Morgunblaðið - 04.12.1984, Page 51

Morgunblaðið - 04.12.1984, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1984 51 Morgunblaftið/Árni Sœberg. Eigandi Mazda-bflsins kom aðvífandi þegar starfsmenn Vöku hugðust draga bflinn í burtu að beiðni lögreglunnar. Bfllinn lokaði tvo aðra af. Eigandinn slapp með skrekkinn, fékk bflinn sinn áður en hann var dreginn af vettvangi. Bflar, sem lagt er ólöglega í miðbænum: Dregnir í burtu með kranabifreið „VIÐ HÖFUM gripið til þess ráðs að fá kranabfl frá Vöku til þess að fjarlægja þá bfla, sem lagt er í miðbænum með þeim hætti að þeir skapa hættu eða hindra eðlilega umferð,“ sagði Einar Bjarnason varðstjóri á miðbæjarstöð lögreglunnar í Reykjavík í samtali við Mbl., en undanfarna daga hefur lögreglan í Reykjavík fjarlægt bfla, sem ólöglega er lagt í miðbænum. „Það hefur skapast vandræðaástand í miðbænum vegna bfla, sem er illa lagt. Iðulega leggja ökumenn bflum sínum þannig að aðrir komast hvorki afturábak né áfram og slíkt er auðvitað óviðunandi,“ sagði Einar ennfremur. „Við höfum fengið kranabíl frá Vöku og farið með bílana inn í bílageymsluna í Seðlabankabygg- ingunni. Eigendur hafa þurft að greiða 550 krónur, auk kostnaðar við geymslu. Að sjálfsögðu hafa margir þeirra orðið gramir vegna þessa, en við höfum neyðst til að grípa til þessa ráðs til þess að aðr- ir komist ferða sinna og til að koma í veg fyrir slysahættu," sagði Einar Bjarnason að lokum. Vetrar veður.... Nú þegar allra veðra er von, vill Hafskip hf. benda viðskiptavinum sínum á eftirfarandi: 1. 2. 3. Að þeir séu á verði um hagsmuni sína t.d. með því að tryggja vörum sínum viðeigandi umbúðir og gera allar þær ráð- stafanir fyrir sitt leyti, til að auka flutningsöryggi vörunnar á komandi árstíma. Bent er einnig á ótvírætt öryggi þess fyrir farmeigendur, að vátryggja á frjálsum markaði farm sinn í flutningi og geymslu, þar sem ábyrgð farmflytjenda er á margan hátl takrhörkuð, t.d. vegna veðurfars og ófullnægjandi umbúða. Sérstaklega skal gæta þess að frostlögur sé á kælikerfum véla og tækja og huga þarf að öryggi farms í vöruskemmum eða á útisvæðum sem kynni að vera hættvegnafrosts,foks eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna. Hrein súldodaðibiáð Síríus hjúpsúkkulaðið er framleitt úr hreinu súkkulaði og er þoí sérstaklega bragðgott. Það á engan sinn líka þegar kemur að því að hjúpa veislukökurnar og sumir telja það jafnvel standa öllu öðru Síríussúkkulaði framar, — og þá er nú mikið sagt! Hrein súkkulaðibráð - þú finnur muninn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.