Morgunblaðið - 14.12.1984, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 14.12.1984, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1984 Helga Ingólfsdóttir leikur á sembal Tónlist Egill Friöleifsson Fyrir stuttu kom út hjá Fálk- anum hljómplata, er hefur að geyma semballeik Helgu Ing- ólfsdóttur. Þar er að finna þrjú af meistaraverkum J.S. Bach, Forleik að frönskum hætti í h- moll, ítalska konsertinn í F-dúr og Franska svítu nr. IV í Es- dúr. Þetta eru sömu verkin og Helga lék á tónleikum í Kristskirkju á listahátíð í júní sl. Tónleikarnir þóttu takast með sérstökum ágætum, hlutu einróma lof viðstaddra, og eru mörgum enn í fersku minni. Það kom því ekki á óvart að heyra hve leikur Helgu er vand- aður og góður á þessari hljómplötu. Helgu Ingólfsdóttur þarf varla að kynna lesendum Morg- unblaðsins. Hún er fyrsti Is- lendingurinn, sem fullnemar sig í þeirri fornu list að leika á sembal. Á fjölda tónleika und- anfarinna ára hefur hún flutt okkur mörg af meistaraverkum tónbókmenntanna, en tónskáld- in okkar hafa einnig verið ólöt að semja sembaltónlist og til- einka Helgu. Hún er og öllum listvinum kunn fyrir frum- kvæði sitt að sumartónleikum í Skálholti ár hvert. Svo aftur sé vikið að plöt- unni, þá er hún ekki tekin upp í Kristskirkju, þar sem tónleik- arnir fóru fram, heldur í Garðakirkju á Álftanesi. Það var skynsamleg ráðstöfun. Hljómburðurinn í Garðakirkju hentar sembalnum vel, lyftir tóninum hæfilega án þess að hröðu skalarnir renni saman. Mér virðist sem tónmeistarinn Bjarni Rúnar Bjarnason hafi lagt áherslu á að láta hljóminn sem mest njóta sín án utanað- Helga Ingólfsdóttir komandi tæknibragða og tekist vel. Við skurð plötunnar er beitt svokallaðri DMM-tækni, þannig að tæknivinnan er vönduð eins og raunar allt sem viðkemur þessari plötu. Það þarf varla að fjölyrða um leik Helgu á þessari plötu. Jafn vandvirkur og virtur listamað- ur sem hún, léti áreiðanlega ekkert frá sér fara á hljóm- plötu, sem ekki stæðist ná- kvæma hlustun. En leiðirnar til að túlka Bach eru margar, og skilningur manna á verkum hans misjafn. Þannig er smekkur minn ekki alltaf sam- stíga túlkun Helgu á verkum meistarans, og vildi ég tilgreina dæmi orðum mínum til skýr- ingar. Hlið 2 hefst á konsert í ítölskum stíl í F-dúr BVW 971. í ágætri grein, er Reynir Ax- elsson ritar á plötuumslagi, má m.a. lesa þetta: „Auðkenni ít- alska stílsins voru einarðleg og skýr stefjabygging, hrein og einföld hljómsetning og kraftmikil og stöðug hrynjandi, einkum í hröðum þáttum, en söngblíð ljóðræna í hægum þáttum." Þarna er vel að orði komist. Á plötuumslagi segir einnig að yfirskrift 1. þáttar sé Allegro (að vísu innan sviga). í þeirri útgáfu sem ég studdist við (Wilhelm Hansen, þar sem Edwin Fischer bjó konsertinn undir prentun) er yfirskriftin Allegro poco moderato. Þetta kann einhverjum að þykja lítill munur, og það er ekki víst að Edwin Fischer hafi réttara fyrir sér en einhver annar, en að mínu mati leikur Helga kafl- ann að vísu mjög vel, en full hratt, þannig að hin einarðlega og skýra stefjabygging nýtur sín jafnvel ekki eins og best verður á kosið. Vegna hraðans örlar einnig á að hlutir vilji renna saman, ekki vegna þess að Helga leiki óskýrt heldur vegna hljómburðar hússins. Svo ég bendi nákvæmlega á við hvað er átt er það í takti 112-115 og 117-119. Þetta kann nú sumum að finnast ótrúleg smámunasemi, og mun ég ekki tína til fleiri slík dæmi. Það hefur tekið mig lengri tíma en upphaflega var áætlað aö setja þessar línur á blað. Ástæðan er sú, að ég hef gefið mér meiri og betri tíma til að hlusta á þessa plötu en ýmis- legt annað. Þó ég sé ekki í öll- um tilvikum sammála Helgu varðandi Bach, dáist ég að heil- steyptri túlkun hennar, þar sem virðingin fyrir höfundin- um kemur alls staðar fram. Það sem hún lætur frá sjálfri sér fara, svo sem skrautnótur, trill- ur og slaufur, er hógværlega og smekklega gert. Leikur hennar ber öll merki hins þroskaða listamanns, sem veit nákvæm- lega hvað hann er að gera. Þetta er hljómplata, sem Bach-unnendur ættu ekki aö missa af. „Draugabanar" í átökum í New York 1984. Skyldu ] á Strandaskottur okkar íslendinga, á árum áður? aðfarir hafa dugað Dómsdagsvitleysa Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Leikstjóri: Ivan Reitman. Handrit: Dan Aykroyd og Harold Ramis. Framleiðandi: Ramis. Kvikmynda- taka: Laszlo Kovacs, ASC. Tónlist: Klmer Bernstein. Titillag: Ray Park- er jr. Aðalhlutverk: Aykroyd, Bill Murray, Sigourney Weaver, Harold Ramis, Rick Moranis. Bandari.sk, frumsýnd 1984 og er mest sótta myndin í ár. Frá Columbia. Fjarlægðin gerir fjöllin blá og mennina mikla, segir máltækið. Það á vel við um Ghostbusters. Undanfarna mánuði hafa borist fréttir af ævintýralegum vinsæld- um hennar, austur yfir Atlantsála og mun nú svo komið að myndin er næst mest sótta mynd allra tíma, á ET. eftir eina, ósigraða. Og ekki öll nótt úti enn. En Ghostbusters er því miður ákaflega sér-amerískt fyrirbrigði. Saturday Night Live gálgahúmor- inn grasserar á heimamarkaðin- um, en er upp og ofan sem útflutn- ingsvara. Undirr. er til efs að vin- sældir myndarinnar komist á hálfkvisti hér og i nágrannalönd- andrés INDR'ÐASON fÝPA Á FÖSTU Óskabækur unglinganna i fyrra og hittifyrra voru Viltu byrja meö mér? og Fjórtán . . . bráöum fimmtán — sögurnar um Elias Þór Árnason eftir Andrés Indriðason. Bráðfyndnar sögur um vandræöalegan strák og hressar stelpur. Núerkominný! TÖFF TÝPA Á FÖSTU tekur upp þráðinn haustið '83 þegar Elias Þór byrjar i 8. bekk — en þráðurinn er þara ekki sá sami: Mamma og Elias eru flutt í nýtt hverfi og Elias byrjar í nýjum skóla með krökkum sem hann hefur aldrei séö. Þá er málið aö koma vel fyrir, vera töff, svalur aö slást, djarfur aö breika, ódeigurað veifaflösku og tröllavindli. . . þó mann langi mest til að skriða i felur niðri í geymslu. Best af öllu væri þó aö sýna nýju félögunum hana Evu, hlaupaspiruna af Skaganum — þá gæti enginn efast lengur um að Elías væri Töff týpa á föstu! Bækurnar um Elias Þór eru heillandi skemmtilegar og mjög vel skrifaöar bækur sem sýna lif unglinga i Reykjavik á lifandi hátt. Þær eru sjálfstæðar bækur hver um sig en segja þó eina sögu saman: söguna af þvi hvernig Elias finnur sjálfan sig. Snjallar myndir Önnu Cynthiu Leplar gefa bókunum aukið gildi. Bækur Andrésar hafa veriö söluhæstu unglingabækurnar undanfarin ár. Þær bregðast ekki. Verökr. 548.— Félagsverö kr. 466.— Mál aefum cjóAar baiiut og menning unum í austri, í samanburði við velgengni hennar í Vesturheimi. Ghostbusters er farsi, líkt og fyrri myndir þeirra Murrays, Áykroyds og félaga. Uppákomun- um eru engin takmörk sett. Að þessu sinni eru þeir Murrey og Co, draugabanar í NY. Tekst þeim vel upp í starfi, hafa hálffyllt hjá sér kjallarana af vakúmpökkuðum drísildjöflum. Hafa svo gott sem losað borgarbúa við þennan ófögn- uð. Þá gerast válegir atburðir. Von er á myrkrahöfðingjanum sjálf- um, og sér til fulltingis fær hann einn dæmigerðan harðhausinn í þjónustu hins opinbera, náunga sem er formaður umhverfisvernd- arráðs borgarbúa. Embættismað- urinn hleypir náttúrlega dríslun- um út og verður nú ólíft í stór- borginni sökum reimleika og hverskyns djöfulskapar. Dóms- dagur er í nánd og þeir einu sem hugsanlega geta bjargað mann- kyninu frá tortímingu skrattans og ára hans eru náttúrlega okkar menn — „Draugabanarnir". Þó svo að gamansemi myndar- innar, og ekki síður framsetning hennar, sé staðbundin nokkuð við norður-amerískan fjölmiðlakúltúr líkt og fyrr er getið, skal það tekið skýrt fram að margir þættir henn- ar hljóta að teljast fyndnir og hressilegir, hvar í álfu sem er. T.d. fær hinn gamalkunni, hrokafulli embættismaður, velútilátinn skammt og lokaatriðið, þegar paurinn sjálfur birtist í líki eins- konar ritavaxins sætabrauðs- drengs — af öllum hlutum, er al- deilis ólýsanlegt húllumhæ. Hér er fyrst og fremst gert grín að öllum þeim afturgöngu — djöfla- og draugamyndum sem tröllriðið hafa kvikmyndahúsum á undanförnum árum. Nægir að minna á myndir einsog The Exorc- ist I og II, The Omen I—III, Ghost Story og Poltergeist í því sambandi. Tæknilega er Ghostbusters prýðilega gerð, end brellurnar undir yfirumsjón Richards Edlunds, (Star Wars, Poltergeist, ET o.fl.) Leikstjórnin og leikurinn er í anda Saturday Night Live. Sjálfsagt stórkostlegur í augum margra Vesturheimsbúa og ann- arra, en virkar ofteygður og full yfirgengilegur hjá öðrum. Bill Murray fær hér príma- donnuhlutverkið og skilar því með prýði þó maður fái tæpast skilið það geysilof sem hann hlaut fyrir það í bandarísku pressunni. Aykroyd og Ramis halda sig við SNL ímyndina og einhvern veginn finnst manni Belushi heitinn fjarri góðu gamni, enda áttu hann og Aykroyd hugmyndina að þess- um ærslafulla farsa. Sigourney Weaver, sú glæsilega og hæfileikaríka leikkona, er úti á hól í fáránlegu hlutverki en litli aulabárðurinn með Jerry Lewis- taktana átti bestan dag, fyrir mína parta. Ef jafn innilega hefði verið hlegið að öðrum þáttum Ghostbustcrs í Stjörnubíó og þeim sem hann kom fram í, hefði ég svo sannarlega spáð þessu fræga kassastykki mun meiri velgengni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.