Morgunblaðið - 14.12.1984, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1984
RESTAURANT
arðurinn
(, \patiHc[Jv/lin,
Öm Arason leikur
klassískan gítarleik
fyrir matargesti í Húsi
verslunarinnar við
Kringlumýrarbraut.
Borðapantanir
í síma 30400
í'rá fyrra námskeiðinu sem haldið var fyrir aðstandendur fatiaðra.
jólagjafirnar
frá okkur
Reykelsi 20,- Stór koddaver 214.-
Kínverskar sápur 49.- Steinstyttur 122.-
Pennar frá 40.- Sólhlífar 368.-
Hrísgrjónaskálar 159,- Silkiluktir 723.-
Skálar með skelö 184.- Kínversk veggljós 1.397.-
Eggjabikarar 172.- Tesett 1.617.-
Barnaskeiöar 166.- Kökubox 1.940.-
Blævængir 49.- Lakkkrúsir 1.680.-
Skartgripabox frá 123,- Skartgripakassar 1.617.-
Ljósaskermar 274.- Mikiö úrval af skart-
Tekrúsir Svæfilkoddaver 426.- 148.- gripum. -
CWNAVÖ&JZ
Sjónval, Kirkjustræti 8. Sími 22600.
Námskeið í Olfusborg-
um um málefni fatlaðra
I NÓVEMBER síðastliðnum voru
haldin tvö námskeið um málefni
fatiaðra.
Fyrra námskeiðið var fyrir „að-
standendur fatiaðra barna". Var það
haldið í Ölfusborgum við Hveragerði
helgina 2.-4. nóvember. Fluttir
voru fyrirlestrar um ýmiss konar
fotlun, sagt var frá hjálpartfikjum,
tryggingamál og önnur réttindamál
fatlaðra rædd og talað var um at-
vinnumál fatlaðra. Fjallað var um
„fjölskylduna og fatlaða barnið“ frá
félagslegu og sálfrsðilegu sjónar-
horni og unnið í hópvinnu.
Námskeiðið sóttu 22 fullorðnir
og 20 börn þeirra á ýmsum aldri,
jafnt fötluð sem ófötluð. Meðan
Síðasta bók Desmond Bagley
Desmond Bagley skrifaði
söguna í næturvillu um svipað
leyti og hann skrifaði metsölu-
bækur sínar: Gullkjölinn,
Fjallvirkið og Fellibyl. Þessi
bók var þó ekki gefin út strax,
þar sem höfundurinn vildi
gera á henni nokkrar endurbætur.
Og þar sem önnur viðfangsefni tóku við hjá honum,
dróst útgáfa bókarinnar á langinn. Síðan eru liðin
tuttugu ár og nú hafa þær endurbætur loks verið gerðar, sem höfundurinn
óskaði, samkvæmt athugasemdum hans sem fylgdu handritinu, og þar með
er hún komin í sinn réttmæta sess meðal Bagleybókanna.
Atburðarrásin er spennandi og vel uppbyggð eins og í öllum bókum þessa
frábæra höfundar. - Ósvikin Bagieybók.
Verð krónur 592,80 með söluskatti
SUÐRI
foreldrar voru við störf voru börn-
in í umsjá hjálparfólks. Félagar úr
Sjálfsbjörg, Félagi fatlaðra í Ár-
nessýslu og Kvenfélagi Hvera-
gerðis önnuðust þau af stakri
prýði. A kvöldin var sungið og
rabbað saman.
Námskeiðið var haldið í sam-
vinnu Sjálfsbjargar, landssam-
bands fatlaðra, Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra og Lands-
samtakanna Þroskahjálpar. Þar
sem í ljós kom mikil þörf á slíkum
námskeiðum hafa samtökin fullan
hug á að halda þeim áfram. Er
miðað við að námskeið verði fram-
vegis haldin viðar um landið.
Seinna námskeiðið var haldið á
vegum Sjálfsbjargar, landssam-
bands fatlaðra, og bar heitið „fatl-
aðir og kynlíf". Fór það fram dag-
ana 8.—11. nóvember í ölfusborg-
um. Þátttakendur voru 23 talsins
og var helmingur þeirra fatlaður,
en helmingur starfsfólk af stofn-
unum þar sem fatlaðir dvelja. _
Elísabet Jónsdóttir stjórnaði
námskeiðinu, en Ragnar Gunnars-
son sálfræðingur og Niels-Anton
Rasmussen læknir sáu um leið-
beiningar og fræðslu. Ragnar og
Niels búa í Danmörku og styrkti
Lionsklúbburinn Njörður í
Reykjavík námskeiðið með því að
greiða fargjald þeirra.
Auk kynlífs og fötlunar var
fjallað um viðhorf til fatlaðs fólks
og ýmsa fordóma og ranghug-
myndir í garð þeirra. Námskeiðið
var byggt á fyrirlestrum og hóp-
vinnu, þar sem sérstaklega var
leitast við að nýta reynslu þátt-
takenda sjálfra af þeim málum
sem rædd voru.
Stefnt er að því að námskeið um
þessi efni verði haldin árlega á
vegum Sjálfsbjargar.
(FrétUtilkynning)
Ljósm./G. Berg.
Akureyri:
Ný snyrti- og hár-
greiðslustofa opnuð
Akureyri, 8. desember.
í BYRJUN desember var Snyrti- og
hárgreiðslustofan Eva opnuð í nýju
húsnæði á Ráðhústorgi 1 á Akur-
eyri.
Þar er nú boðið upp á allar
tegundir snyrtingar og hár-
greiðslu, auk Ijósalampa, gufu-
baðs og líkamsnudds, i glæsilegu
150 fermetra húsnæði. Á með-
fylgjandi mynd eru eigendur
stofunnar, Bryndís Friðriksdótt-
ir hárgreiðslumeistari, Birna
Björnsdóttir snyrtifræðingur og
auk þess Bryndís Jóhannesdóttir
snyrtifræðingur, sem starfar hjá
stofunni.