Morgunblaðið - 03.01.1985, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1985
5
Komnir
til Eþíópíu
„í SKEYTI, sem barst frá þeim
Bernharði og Árna í dag, lýsa
þeir hrikalegu ástandi, en þeir
telja samt unnt að tryggja það, að
okkar aðstoð komist fullkomlega
til skila,“ sagði Gunnlaugur Stef-
ánsson hjá Hjálparstofnun kirkj-
unnar í samtali við Mbl. í gær.
Þeir Árni Gunnarsson og Bern-
harður Guðmundsson komu til
Addis Ababa á þriðjudagsmorg-
un til að undirbúa störf íslend-
inga í Eþíópíu og dreifingu hjálp-
argagna frá íslandi, en meðfylgj-
andi mvnd tók Sigríður Ásta af
þeim Árna og Bernharði við
brottför á laugardaginn.
veröur haldin á félagssvæðinu á Víðivöllum,
laugardaginn 5. janúar kl. 15.30.
Álfakóngur og drottning koma ríöandi ásamt fjöl-
mennu fylgdarliði.
Veitingar í nýja fólagsheimilinu.
Allir velkomnir.
Dansleikur
veröur haldinn í félagsheimilinu viö Bústaöaveg, laug-
ardaginn 5. janúar. Hljómsveit Auðuns Valdimarssonar.
Miöasala á skrifstofunni.
Hestamannafélagið Fákur.
Söluskatt-
ur í 24%
SÖLUSKATTUR var hækkaður um
0,5%um áramótin. Er hann nú 24%í
stað 23,5%.
Hækka því allar söluskattsskyldar
vörur og þjónusta sem þvi nemur
frá og með 1. janúar.
Grindavík:
Þremur bílum
stolið og
brotist inn
í verslanir
AÐFARANÓTT síðastliðins laugar-
dags var mikil ölvun í Grindavík.
Brotist var inn í tvær verslanir og
þremur bílum stoiið.
Tilkynnt var um innbrot í versl-
anirnar Víkurnesti og Bláfell.
Litlu var stolið, aðallega tóbaki,
en innbrotsþjófurinn vann nokkr-
ar skemmdir við leit að peningum.
Á laugardagsmorguninn hand-
samaði lögreglan í Grindavík 15
ára pilt af staðnum sem þarna
hafði verið að verki og kom þá í
ljós að hann hafði líka stolið
tveimur bifreiðum og skemmt þær
nokkuð. Þær bifreiðir sem stolið
var þessa nótt voru allar ólæstar
og stóðu lyklarnir í þeim.
SPECK
Lensi-, slor-, skolp-,
sjó-, vatns- og
holræsa-dælur.
Otvegum einnig dælu-
sett meö raf-, Bensín-
og Diesel vélum.
^ÖQJHFOaiILÐ^JILDfr
dJ£xro»s<s>ifi) (S(o)
Vesturgötu 16,
sími 13280
CAMRY
Það getur verið að ekkert sé nýtt
undir sólinni, en í „landi hinnar
rísandi sólar", virðist sífellt hægt
að gera betur. Toyota Camry er
fullkomið dæmi þess.Hann virðist
við fyrstu sýn ósköp venjulegur
5 manna fjölskyldubíll, en við
nánari kynni kemur annað í Ijós. Þverstæð vél og framhjóladrif gera það að
verkum að innanrými er geysimikið. Sætin eru 1. flokks, (t.d. er hægt
að stilla bílstjórasætið á 7 mismunandi vegu).
Farangursrými í Camry Liftback er 1,17 m\
sem er meira en margir stationbílar geta státað
af. Veltistýri, 5-gíra skipting (eða 4 stiga
sjálfskipting), loftbremsur, gasdemparar,
tannstangarstýri, gott miðstöðvarkerfi og
annar búnaður hafa líka sitt að segja um þægindi og góða aksturseiginleika.
1,8 eða 2,0 lítra bensínvél með rafstýrðri „beinni innspýtingu'' og 1,8
lítra dieselvél með forþjöppu, hafa snerpu og kraften eru auk þess hljóð-
látar og eyðslugrannar.
TOYOTA
Nýbýlavegi 8 200Kópavogi S. 91-44144.