Morgunblaðið - 03.01.1985, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 03.01.1985, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JANÍJAR 1985 * t Eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, JÓHANNES Þ. JÓHANNESSON fyrrverandi kaupmaöur, Dvergasteini, Hellissandi, sem andaöist 25. desember, veröur jarösunginn frá Hellissandskirkju laugardaginn 5. janúar kl. 13.30. Rútuferö veröur frá Reykjavik, upplýsingar i sima 79939. Svandfs Elinmundardóttir, Sigþrúöur Jóhannesdóttir, Rebekka Jóhannesdóttir, Jóhannes Þ. Jóhannesson, Áslaug Jóhannesdóttir, Ósk Jóhannesdóttir, Einar M. Jóhannesson, Pálmi Jóhannesson, tengdabörn og barnabörn. t Minningarathöfn um eiginmann minn, fööur okkar, son og tengda- son, RÓBERT G. JÓNSSON vélstjóra, Breiövangi 13, Hafnarfiröi, er fórst meö mb. Sóley SK 8, 16. október 1984, veröur 5. janúar kl. 14.00 i Þjóökirkjunnl I Hafnarfiröi. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Slysavarnafólag íslands. Eyvör Halldórsdóttir, Guólaugur Róbertsson, Þórunn Gottliebsdóttir, Magnea Guölaugsdóttir, Halldór Róbertsson, Magni Róbertsson, Jón Þórðarson, Halldór Jónsson. t Faöir okkar, BJÖRGVIN HELGI MAGNÚSSON fyrrverandi bryti, er lést þann 22. desember, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 4. janúar kl. 15.00. Börn hins látna. t Eíginmaöur minn, faöir okkar og tengdafaöir, TRYGGVI HARALDSSON, Skaröshlló 9f, Akureyri, veröur jarösunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 4. janúar kl. 13.30. Fjóla Jónsdóttir, Georg H. T ryggvason, Ástrfóur Hauksdóttir, Hersteinn V. T ryggvason, Birna Jónsdóttir, Bjarki S. Tryggvason, Málfrföur Baldursdóttir. t Faöir okkar, tengdafaöir og afi, SIGURDUR MAGNÚSSON fyrrverandi fulltrúi hjá Rfkisútvarpinu frá Syöri-Löngumýri, Leifsgötu 28, sem lést aö morgni 17. desember i Landakotsspitala, veröur jarö- sunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 4. janúar kl. 13.30. Fyrir hönd ættingja, Jón Magnús Sigurósson. t Eiginmaöur minn og faöir, JÓN GEIR PÉTURSSON járnsmióur, Kambsvegi 28, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 3. janúar kl. 10'30’ Sigrún Einarsdóttir, Pátur Jónsson. t Faöir okkar, STEINN KRISTJÁNSSON, veröur jarösettur frá Fossvogskirkju föstudaginn 4. janúar kl. 13.30. Börnin. t Útför sonar okkar, dóttursonar og unnusta, ÞÓRS JÚLÍUSAR SANDHOLTS, Laugarásvegi 33, fer fram frá Dómkirkjunni i dag, 3. janúar, kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaöir en þeim sem vildu minnast hans er bent á liknarstofnanir. Þórhildur Sandholt, Gfsli Sigurbjörnsson, Guöbjörg Sandholt, Sigþrúóur Arnardóttir. María Guðbjörg Eyj■ ólfsdóttir - Minning Fædd 19. ágúst 1900 Dáin 20. desember 1984 „Drottinn er minn hirðir, mig mun ekk- ert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem eg má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt eg fari um dimman dal, óttast eg ekkert ilt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum; þú smyr höfuð mitt með olíu; bikar minn er barmafullur, Já, gæfa og náð fylgja mér alla æfidaga mína, og í húsi Drottins bý eg langa æfi.“ Mig langar að setja niður nokk- ur fátækleg minningarorð um kæra frænku mína Mariu sem ætíð reyndist mér svo vel. María fæddist á Kirkjubóli á Miðnesi, foreldrar hennar voru Lilja Frið- riksdóttir og Eyjólfur Guðlaugs- son, er síðar bjuggu á Kötluhóli i Leiru í Gerðahreppi. María flutt- ist til Reykjavíkur árið 1933 og átti lengst af heima á Snorrabraut 34, ásamt systur sinni Margréti Eyjólfsdóttur, en ekki er hægt að minnast Maríu án Margrétar því svo samofið var líf þeirra systra, en Margrét er látin fyrir nokkrum árum, og syrgði María hana mjög. Ungar gáfust þær systur Jesú Kristi og mótaðist allt líf þeirra af þjónustu við frelsara sinn. Lengi voru þær systur með sunnudaga- skóla i Reykjavík og einnig á Vatnsleysuströnd með systrunum Þórdísi og Steinvöru Símonar- dætrum, var þar unnið mikið og gott starf og fylgdi blessun verk- um þeirra. María var sérlega heil- steypt kona, með ákveðnar skoð- anir, og mátti ekki vamm sitt vita í neinu. María lifði við ágæta heilsu, að undanskildum síðustu mánuðum ævi sinnar, og er það gleði í sorg að hún fékk að hverfa til frelsara síns sem hún elskaði öllu öðru fremur nú á mestu hátíð kristinna manna, og er þá rétt að minnast á grafskrift þá er hún óskaði sér, „ef iegsteinn yrði sett- ur á leiðið mitt“, eins og hún orð- aði það sjálf f bréfi sem hún skildi eftir sig, með fyrirmælum um út- för sína, en þar lagði hún áherslu á mikinn söng við undirtekt kirkjugesta. Jóh. 11.25—26. Jesús sagði við hana: Eg er upprisan og lífið; sá sem trúir á mig, mun lifa þótt hann deyi. Og hver sá sem lifir og trúir á mig, hann skal aldrei að eilifu deyja. Trúir þú þessu? Með þakklæti frá mér, eigin- manni mínum og börnum fyrir samveruna við Maríu frænku. Lilja Hafsteinsdóttir Kveikt er ljós við ljós, burt er sortans svið. Angar rós við rós, opnast himins hlið. Þessar fögru ljóðlínur úr ljóði Stefáns frá Hvítadal komu fyrst í hug minn þegar ég frétti um and- lát minnar gömlu vinkonu Maríu Eyjólfsdóttur, en hún lést á Elli- heimilinu Grund þann 20. desem- ber sl. eftir langa vegferð. Fædd var hún á Kirkjubóli á Miðnesi, aldamótaárið, og var því á 85. ald- ursári þegar hún lést. Jafnan kenndi Maria sig við Kötluhól i Leiru, þar sem foreldrar hennar bjuggu lengst af, en þau voru Eyj- ólfur Guðlaugsson og Lilja Frið- riksdóttir. Börn þeirra hjóna voru alls sjö og eru þrjár af dætrum þeirra hjóna enn á lífi. Árið 1932 fluttist María til Reykjavikur og Margrét systir hennar skömmu siðar. Á þeim árum rak ég, ásamt eig- inmanni minum Guðmundi Magn- ússyni, fyrirtækið Prjónastofuna Hlín hér í borg og réðust þær syst- ur sem starfsmenn til fyrirtækis okkar hjóna þetta sama ár. Þær stofunni Hlín í samtals 25 ár og atvikin höguðu því á þann veg, að María var verkstjóri hjá fyrirtæk- inu öll þessi ár. öll störf sín leysti María af hendi af stakri trú- mennsku og samviskusemi. Á þessum árum störfuðu margar stúlkur á ýmsum aldri hjá Prjóna- stofunni Hlín og höfðu þær að sjálfsögðu mismunandi sjónarmið eins og gengur og gerist. Þetta vissi María og á þann hátt um- gekkst hún sitt samstarfsfólk. Hún hafði mjög gott lag á að um- gangast fólk og aldrei fór styggð- aryrði milli hennar og þeirra sem hún átti að segja fyrir verkum. Samstarfsfólk hennar mat hana og virti og vissi jafnframt aö hún var sanngjörn og tillitssöm við alla þá sem með henni störfuðu. María var trúuð kona og hafði mikinn andans kraft til að vera foringi og fyrirliði annarra. Ein- hver af samstarfsmönnum hennar komst svo að orði, þegar hann ræddi um Maríu, að hún hefði ver- ið ljósberi guðs í allri sinni fram- komu og samstarfi. Þær systur María og Margrét ráku sunnudagaskóla fyrir börn í fjölda ára til mikillar blessunar og velfarnaðar fyrir þau mörgu börn sem nutu fræðslu hjá þeim. Þá vil ég geta þess að þær systur önnuð- ust foreldra sína af stakri alúð hin síðustu æviár þeirra hjóna. Margrét systir Maríu lést fyrir nokkrum árum. Síðasta árið dvaldist María á Elliheimilinu Grund þar sem hún naut góðrar umönnunar eftir langa og stranga vegferð. Ég þakka Marfu af heilum hug fyrir allt sem hún var mér og mfn- um og langa og góða samfylgd f röska hálfa öld. Ég fel hana þeim guði sem sólina skóp. — Blessuð sé minning Maríu Eyjólfsdóttur. Sveinbjörg Klcmensdóttir t Systir min og vinkona okkar, SIGRÚN SIGURJÓNSDÓTTIR, sem andaðist á Þorláksmessu, veröur jarösungin frá nýju Fossvogskapellunni föstudaginn 4. janúar kl. 15.00. Bryndfa Ólafsdóttir, Anna Norland, Holga Norland. t Ástkær eiginmaöur minn, ZÓPHONÍAS PÉTURSSON, Sólheimum 23, veröur jarösunginn föstudaginn 4. Janúar kl. 10.30 frá Lang- holtskirkju. Blóm vinsamlegast afþökkuö en þeir sem vildu minnast hans látiö Hjálparstofnun kirkjunnar njóta þess. Stella Gunnur Siguróardóttir og börn. ■ Móöir okkar og tengdamóöir, I- JENSÍNA JENSDÓTTIR, veröur jarösungin frá Fossvogskapellu föstudaginn 4. janúar kl. 10.30. f. h. Guörún Pálsdóttir. össur Aöalsteinsson, Kristfn Páledóttir, Þorsteinn Hannesson, Erla Pálsdóttir, Eirfkur Bjarnason. t Útför móöursystur minnar, KRISTÍNAR KARÓLÍNU ÞORSTEINSDÓTTUR frá Blikalóni, fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 4. Janúar kl. 16.30. Fyrir hönd vandamanna. Þorbjörg Steingrfmedóttir. t Útför móöur minnar, SIGURBORGAR EGGERT8DÓTTUR, sem andaöist 24. þ.m., verður gerö frá Frlkirkjunni i Hafnarfiröi föstudaginn 4. janúar kl. 15.00. Fyrir hönd aöstandenda. Róbert Bjarnason. t Hjartans þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför ÞORSTEINS G. HJÁLMARSSONAR húsgagnasmfóameistara. Egill Hjálmarsson, Ingibjörg Hjálmarsdóttir, Guórún Hjáimarsd. Waage, Kristfn Helga Hjálmarsd., Ólöf Hjálmaredóttir, Halldór Hjálmarsson, Höröur Hjálmarsson, Margrét Hjálmarsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.