Morgunblaðið - 03.01.1985, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 03.01.1985, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1985 17 „Mér óljúf ákvörðun gagn- vart fjölda sjúklinga minna“ — segir Þórður Theodórsson heimilis- læknir sem sagt hefur upp störfum og hyggst flytja til Svíþjóðar ÞÓRÐUR THEODÓRSSON, sem starfað hefur hér sem heimilisiæknir sl. fjögur ár, hefur nú sagt upp störfum hjá Sjúkrasamlagi Reykjavíkur og hyggst fiytjast til Svíþjóðar þar sem honum hefur boðist starf á heilsugæslustöð. Eins og frá hefur verið greint í blaðinu eru heimilis- og heilsu- gæslulæknar að íhuga fjöldauppsagnir vegna slæmra kjara sinna, ef ekki kemst skriður á samningaviðræður þeirra við ríkisvaldið fljótlega. Blm. innti Þórð eftir því hvort þessi almenna óánægja heimilis- og heilsugæslulækna væri ástæða þess að hann hefur afráðið að gerast læknir erlendis. „Þessi ákvörðun mín á sér langan aðdraganda", sagði Þórð- ur. „í fyrsta lagi er mikil fagleg óánægja í þessu starfi hér á höfuðborgarsvæðinu og í öðru lagi hafa kjör og afkoma heimil- islækna farið hraðversnandi. Áratugur er nú liðinn frá því að Alþingi setti ný lög um heil- brigðisþjónustu, þar sem kveðið er á um svokallaða heilsugæslu íbúum landsins til handa. Nú tíu árum síðar býr aðalþéttbýlis- svæði landsins og meira en helmingur landsmanna enn við algjört ófremdarástand í þessum efnum og lítil sem engin von virðist vera til breytinga hér á höfuðborgarsvæðinu á næstunni. Því hef ég ákveðið að hverfa til Svíþjóðar þar sem uppbygging heilsugæslu er í hröðum upp- gangi og fyrir hendi er skilning- ur á hagkvæmu gildi hennar." — Þú átt við að slíkur skiln- ingur sé ekki fyrir hendi hér? „Já, ég fæ ekki betur séð en að hann skorti algerlega. Eðli og innihald heimilislækninga skv. nútímakröfum er margskonar. Það er ekki lengur eins manns vinna að starfa sem heimilis- læknir, þar sem starfið er teimi- vinna læknis, hjúkrunarfræð- ings, læknaritara og símamót- töku. Samt sem áður vinnur meiri hluti heimilislækna í Reykjavík einn og er ástæðan sú að rekstrarstyrkur Sjúkrasam- lags Reykjavíkur gerir ekki ráð fyrir fleiri. Viðfangsefni nútíma heimilis- lækningar er í fyrsta lagi for- varnarstarf, þ.e.a.s. að kanna hvar skóinn kreppir í heilbrigð- ismálum íbúanna og veita upp- lýsingar til bættrar heilsu. í Morgunblaðið/Bjarni Þóröur Theodórsson öðru lagi að reyna að uppgötva sjúkdóma eins snemma og hægt er því þeim mun auðveldari verður lækningin. I þriðja lagi að veita úrráð og lækningu á kvillum og sjúkdómum sem um garð eru gengnir og hafa valdið varanlegum skaða. Alls staðar í nágrannalöndum okkar er nú lögð mikil áhersla á ofangreind atriði í þeirri röð sem þau eru upptalin. Hér á landi fer hinsvegar öll orka og tími heim- ilislæknis, a.m.k. hér á Stór- Reykjavikursvæðinu, í þessa liði í öfugri röð. Er það vegna að- stöðuleysis og skorts á tíma þar sem of margir sjúklingar eru per lækni. Ef fullnægja ætti lág- marksstaðli á sviði heilsugæslu þyrftu læknar í borginni að vera tvöfalt fleiri og er þá ekki tekið tillit til kennslu, rannsókna- starfa o.s.frv." — Hvar stendur hnífurinn í kúnni? „Það sem er að kollsteypa fjármagni Sjúkrsamlagsins og Tryggingastofnunar ríkisins eru að mínu mati óhóflegir reikn- ingar fyrir vissa þætti sérfræði- þjónustu utan sjúkrahúsa. Við, þessi yngri kynslóð heimilis- lækna, sem sótt höfum fram- haldsmenntun sérstaklega á þessu sviði, höfum sérhæft okkur í því að reyna að ráða fram úr vandamálum fólks á nokkuð annan hátt en aðrir sér- fræðingar. Við náum betra sam- bandi við sjúklinga og getum betur fylgst með gangi mála. Sérfræðingur á stofu sem fólk leitar til að einhverju tilefni, hefur oftast minni heildaryfir- sýn og tíma til að fylgjast með þessu. Ég er ekki að reka fleyg á milli heimilislækna og sérfræð- inga, hef raunar alltaf verið fylgjandi skynsamlegu sam- starfi þeirra, heldur bendi á blákaldar staðreyndir. Varðandi sjálfan mig lauk ég framhaldsnámi í Svíþjóð árið 1980 og hóf störf hér heima sama ár. Þá höfðu mörg orð fall- ið frá hendi yfirvalda um að beð- ið væri eftir starfskröftum heim til starfa á sviði heilsugæslu. Á þessu hefur þó orðið alger brest- ur. Ég neyddist til að setjast að i borginni á grundvelli gamla númerasamningsins sem gerði ekki ráð fyrir öðru en að hver læknir starfaði einn með skrif- borð, sima og lyfseðil. Það er svipuð aðstaða og verkfræðingi væri afhent skófla og haki. Ég vildi ekki una þessu og 1982 tók ég á leigu, við annan mann, húsnæði það sem ég nú sit í. Síð- an hefur einn læknir bæst í hóp- inn og við barist hart fyrir því að fá frumþörfum okkar fullnægt, s.s. viðunandi húsnæði, húsgögn og annað slíkt. Flest öll lækn- ingatæki skortir okkur enn. Við höfum margoft farið fram á að- stoð og fengið dálitla frá Heil- brigðisráði Reykjavíkur. Allri annarri aðstoð hefur verið synj- að. Til þess að okkur væri kleift að ráða til okkar læknaritara urðum við að taka á leigu afgang hæðarinnar sem við erum á, inn- rétta hann og endurleigja út tvö herbergi. Að öllu þessu saman- lögðu virðist mér einsýnt að heilbrigðisyfirvöld hér á þétt- býlissvæði Reykjvíkur kæri sig kollótt þó að heimilislæknastétt- in deyi hér út. Enda er nú nær fjórði hver íbúi án heimilislækn- is. Heilbrigðisráð Reykjavíkur hefur þó haft góðan skilning á gildi heimilislækna en ekki feng- ið neinu áorkað vegna algjörs skilningsleysis þeirra sem stýra fjárveitingum. Ég er orðinn langþreyttur á því að vera galeiðuþræll hins ís- lenska heilbrigðiskerfis og við það bætist síversnandi afkoma okkar heimilislækna síðustu ár- in. Sú ákvörðun mín að hverfa til Svíþjóðar er mér óljúf gagnvart fjölda sjúklinga minna. En þessi staða mín og sennilega margra annarra heimilislækna blasir við, líkt og beinbrot við manni á röntgenmynd. Staðreynd sem kallar á þessa ákvörðum mína,“ sagði Þórður Theodórsson. „Flugvél sem er þyngri en andrúmsloftið mun aldrei geta flogið," spáði Kelvin lávarður, forseti bresku vfsindastofnunar- innar, 1890-95. Hann hafði rangt fyrir sér. „Þjónusta sem er léttvægari en loftið getur ekki staðið undir sölu viðskipta- ferða,“ sagði Jan Carlzon, forstjóri SAS, árið 1981. Hann virðist hafa haft rétt fyrir sér. Gott flugfélag þarf að hafa fleira en vængi. Eyru eru jafn áríðandi. Með eyrunum hlustar flugfélagið eftir því hverjar óskir og þarfir farþeganna eru. Það hlustar og safnar saman upplýs- ingum, sem þjónustan er síðan sniðin eftir. I sannleika sagt, þá eru það farþegar okkar, sem hafa gert okkur að flugfélagi fólks úr viðskiptalífinu, og þeirra sem ferðast mjög mikið. Við höfum einfaldlega tekið mark á fjölda skynsamlegra ábendinga frá farþegum okkar. Þannig hefur tekist að bæta þjónustu okkar og ferðatilhögun. Margir hafa spurt hvort þessi stefna hafi ekki verið kostnaðarsöm fyrir félagið. Ef til vill, en hún hefur einnig aukið tekiurnar. Á hverju ári bætist í hóp þeirra, sem þurfa að ferðast vegna starfs sins. Þetta hefur aukið tekjumöguleika okkar. Við höfum einnig öðlast meiri kjark og betri aðstöðu til að hlusta á farþega okkar. Ef þú telur að flest flugfélög þjáist vegna skertrar heyrnar, ættirðu að tala við okkur. Vid hlustum á þig! M/S4S Laugavegi 3, simar: 21199, 22299
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.