Morgunblaðið - 03.01.1985, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 03.01.1985, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1985 19 þreyttari til hvílu sinnar en synir og dætur Braga og Iðunnar." Góðir áheyrendur, ég hef gripið á nokkrum stöðum niður í hina viturlegu grein Guðmundar á Sandi sem rituð var á fyrstu árum skáldlauna fyrir síðustu aldamót. Síðan hefur mikið unnist, og Guð- mundur mun horfa með velþóknun til okkar frá sínum Englastöðum. Guðmundur víkur að fornsögun- um og þeim mönnum sem færðu þær í letur. Á eftir fornöldinni komu þeir tímar sem í mínu ung- dæmi voru kallaðir miðaldir og náðu fram á átjándu öld. Þá var fátækt í landi, og að sumu leyti einangrun, enda fá skáld og rit- höfundar sem upp gnæfa. En á nitjándu öld hófst viðreisn bók- menntanna að nýju, með mörgum öflugum liðsmönnum, þótt tveir væru þar fremstir í flokki, annar í ljóðagerð, hinn í skáldsagnaritun. Það hefur vart verið metið að verðleikum af íslenskum bók- menntafræðingum hve Jónas Hallgrímsson var mikill endur- lausnari íslenskrar ljóðasmíðar. Hann spann sín ljóð úr ýmsum þáttum, en þó hygg ég að þrír hafi verið gildastir. Hann var baráttu- maður sinnar samtíðar, orti róm- antísk hvatningarljóð og lærði margt af eldri skáldum íslenskum, ekki síst af sveitunga sínum séra Jóni á Bægisá. Þó mun hitt hafa verið afdrifaríkara að hann fór beint í smiðju til erlendra samtíð- arskálda og fékk þar þau vopn sem dugðu til að leysa íslenskan skáldskap úr viðjum. Og jafn- framt seildist hann yfir aldahöf og sótti orðfæri sitt og stundum bragarháttu beint til íslenskrar fornaldar. Svipað má segja um fyrsta skáldsagnahöfundinn okkar. Jón Thoroddsen sækir efni skáldsagna sinna, og að miklu leyti orðfæri sitt, i líf íslenskrar alþýðu á sínum dögum. Mesti aflvaki hans voru skáldsögur erlendra samtímahöf- unda. En jafnframt stendur hann föstum fótum í hinni íslensku frásagnarlist sem hæst rís í forn- sögum okkar. Ég hygg að þessi trausti þjóðlegi grundvöllur valdi mestu um það hversu bráðlifandi verk þeirra Jóns og Jónasar eru hér á landi enn í dag. Aðeins einn norrænn rithöfundur frá róman- tíska tímanum lifir jafn góðu lífi með sinni þjóð enn í dag. Á öndverðri þessari öld var stundum talað um „opingátt" og „innilokun" Mesta sagnaskáld þjóðarinnar var í fyrstu ofhlaðinn margvísiegum erlendum áhrifum, og var gott eitt um það að segja — af því að hann fann brátt sinn rétta farveg og skóp hvert snilld- arverkið af öðru með því sniði sem var í senn þjóðlegt og alþjóðlegt. Þess var getið að hann fengi Nób- elsverðlaunin meðal annars fyrir að hafa endurvakið hina fornu ís- lensku frásagnarlist. Ég hef rifjað þetta upp að nokkru leyti til áminningar ung- um íslenskum skáldum og rithöf- undum. Raunar eru fá þeirra stödd hér í dag — en þá þið ég ykkur sem mál mitt heyrið að skila þessu til þeirra. En einkum hef ég rifjað þetta upp vegna þess að sá rithöfundur eða það skáld sem laun okkar hlýtur nú í dag hefur einmitt starfað á vegum endurreisnarmanna nítjándu ald- ar. Hann byggir verk sín á fornri arfleifð, yrkir að mestu í „hefð- bundnum stíl“ sem nú er kallað; en hann er jafnframt frumlegt skáld sem leitar víða fanga, og hann er viturt skáld sem hefur margt að kenna okkur. Tekjur Rithöfundasjóðsins sem að þessu sinni koma til úthlutunar nema 150 þúsundum króna. Sjóð- stjórnin hefur einróma ákveðið að styrkinn skuli hljóta Heiðrekur Guðmundsson. Sökum sjúkleika getur hann ekki verið viðstaddur hér í dag, en Ragnheiður dóttir hans er hér meðal okkar, og bið ég hana að gjöra svo vel að ganga fram og veita viðtöku skilríkjum fyrir styrkveitingunni fyrir hönd föður síns. Jafnframt biðjum við hana að færa honum einlægar kveðjur okkar og óskir um góða heilsubót. Þakkir frá Jólanefnd Verndar 25. jólafagnaður Verndar var haldinn á aðfangadag í húsi Slysa- varnafélagsins á Grandagarði. Þá voru einnig að venju gefnir jóla- pakkar í öll fangelsin. Jólanefnd Verndar vill þakka öllum sínum mörgu, tryggu vel- unnurum, er ávallt styrkja starf- semina fyrir jólin og gera það mögulegt að halda starfinu áfram. Þá ber ekki síst að þakka öllu því fólki, er vinnur við jólafagnaðinn allan aðfangadag, margt sama fólkið ár eftir ár, séra Árelíusi Ní- elssyni er annast helgistund, framkvæmdastjóra Slysavarnafé- lagsins, Hannesi Hafstein, er lán- ar húsið endurgjaldslaust, lögregl- unni og öðrum þeim, er veita okkur aðstoð. F.h. Jólanefndar Verndar, Hanna Johannessen formaður. HRESSINGARLEIKFIMI KVENNA OG KARLA óskar öllum nemendum sínum gleöilegs nýs árs og þakkar ánægjulegt samstarf á liönu ári. Kennsla hefst í öllum flokkum mánudaginn 7. janúar 1985. Kennslustaöir: Leikfimisalur Laugarnesskólans. Kvöldtímar kvenna og karla. Iþróttahús Seltjarnarness. Morguntímar kvenna. Fjölbreyttar æfingar — músik — dansspuni — þrekæfingar — slökun. Innritun og upplýsingar í síma 33290. Ástbjörg S. Gunnarsdóttir, íþróttakennari. Útsala Allt að 85% afsláttur. Plaköt á 14—20 kr. Út- sala á smellurömmum, álrömmum, myndum, kortum og fleiru. Atvinnurekendur, húsráöendur, frá- bært úrval mynda á vinnustaöi, stigaganga og til hvers konar hús- prýöi. Notið þetta einstaka tækifæri. Opnunartími: Mánudaga til fimmtudaga kl. 9-18. Föstudaga kl. 9—19. Laugardaga kl. 10—17. Sunnudaga kl. 13—17. Myndin Dalshrauni 13, Hafnarfirði. Sími 54171.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.