Morgunblaðið - 03.01.1985, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 03.01.1985, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JANUAR 1985 23 Réttur ttagsins Margrét Þorvaldsdóttir í lok hátíðar og mikilla dýrindis- daga í mat og drykk, er fiskur jafn- an kærkominn f málsverð á borð landsmanna. Fiskréttur þessi hefur verið flokk- aður undir sælgæti, en hann er bæði einfaldur og fljótlagaður. Þetta en Ofnbakaður fiskur með ostabráð 800 gr fiskur, lúðusteikur eða ýsu- flök skorin í hæfileg stykki 1 sítróna V* tsk. tarragon salt og pipar eftir smekk Vs bolli brauðmylsna 1 bolli rifinn ostur 26% (Maribó) 'A bolli bráðið smjör(vi) 1. Ef fiskurinn er frosinn þá þíðið hann alveg. 2. Smyrjið eldfast fat og raðið fisk- stykkjunum þar á. Kreistið saf- ann úr sítrónunni yfir fiskinn og kryddið með salti og pipar. Bakið í ofni við 200° í 15 mín. 3. Blandið vel saman brauðmylsnu og osti. Takið fatið úr ofninum og setjið osta- og brauðmylsnuna yfir fiskinn og hellið síðan bráðnu smjörinu jafnt yfir mylsnuna. Bakið i 10 mín. til viðbótar eða þangað til fiskurinn er orðinn laus í sér. Sem meðlæti eru góðar soðnar kartöflur og blandað salat. Það er salatblöð, agúrka og tómatar. Eða ef meira er við haft bakaðar kart- öflur með fyllingu, aspas með smjörbráð og appelsínuís. Verð á hráefni Fiskur sítróna ostur kr. 80,00 kr. 8,00 kr. 20,00 Kr. 108,00 Það er rétt að ítreka aðvörun sem komið hefur fram í sambandi við dældaðar dósir með niðursoðnum matvælum sem algengar eru hér á markaði. Skemmdir á niðursuðudósum virðast verða jafnt hjá framleið- endum sem í verslunum. Það er þó einn stórmarkaður borgarinnar sem sker sig úr hvað varðar slæma meðferð, en þar hvolfir starfsfólk dósum úr kössum i körfur í hillum. Erlendis flokkast slík vara undir áhættusama matvöru. Hættan: Þegar dósir verða fyrir höggi, getur saumurinn sem festir lokið við dósina, opnast sem snöggvast, en vegna lofttæmis í dósinni getur dregist inn í hana loft áður en hún lokast aftur. Ef þar er um mengað loft að ræða geta gró úr umhverfinu komist í innihaldið og valdið skemmdum. Skemmdir eru sérstaklega varasamar vegna hættu á „bótulismus“-matareitrun. Því er rétt að hafa i huga að sködduð niðursuðudós er varhugaverð hvort heldur dældir liggja inn eða ganga út á dósinni. Fylgið hinni gullvægu reglu að forðast varhugaverð matvæli. Við höfum heilsu okkar að verja en sér- fræðingar segja matareitranir allt of algengar á Islandi. rs _ _iiglýsinga- síminn er 2 24 80 Sjúkranuddstofa Hilke Hubert óskar viðskiptavirtum sírtum gledilegs nýs árs og þakkar fyrir liðið ár. Sjúkranuddstofan opnar aftur 7. janúar. Uppl. og tímapantanir í síma 13680 frá kl. 13.30—18.00. ópavogsbúaT athugið! Við bjóðum alla almenna hársnyrtingu svo sem: Permanent, kilppingu, lagningu, hárþvott, litun, lástur, strípur, skol, djúpnæringu o.s.frv. Opið fra kl. 9—18 á virkum dögum og kl. 9—12 á laugardögum. Pantanir teknar í síma 40369. HÁRGREIÐSLUSTOFAN ÞINGHÓLSBRAUT 19. Tld Sýnum samhug / verki — fyllum Laugardals- » ^ « höllina og flugvélina ó sunnudaginn! -lúði leggp****** Grý|a og L©PPa MgJ-S Kr. 350 fyrir * 12 óra Kr. «0 fV^°;n(u„0,Snum. —TCSjSsssss Æskuiýösráð Reykjavíkur íþróttaráö Reykjavíkur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.