Morgunblaðið - 03.01.1985, Page 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JANOAR 1985
ÚTVARP / S JÓN VARP
Þá árið
kveður
w
Aramót eru tími uppgjörs,
ekki bara hjá kaupmönnum
er telja vörur í hillum, heldur og
hjá þeim er hafa tíma og nennu til
að gera upp hug sinn og skoða
hvað aflaga fór á árinu. Vegna
tímaskorts verður sá er hér stýrir
penna aö láta nægja að gera upp
dagskrá ríkisfjölmiðlanna, einsog
hún birtist honum um hátíðirnar.
Ekki merkilegt bókhald það, enda
verður hér aðeins minnst á þau
dagskráratriði er glöddu hjartað,
hitt er aflaga fór verður að bíða
betri tíma — er vonandi gefst ekki
fyrr en fjarlægðin hefir gert fjöll-
in hæfilega blá. Ég hef raunar
þegar vikið í sérstökum greinum
að hinu merkilega framlagi leik-
listarfrömuða sjónvarps er glöddu
okkur með: Gullna hliðinu á annan
í jólum og þann 27. des. gerði
Leiklistardeild Ríkisútvarpsins
garðinn frægan með: Alkestis eftir
engan annan en Evripídes.
Þau gleymdust ekki
En það er fleira menning en
blessuð leiklistin. Sú viðleitni að
hafa ofanaf fyrir börnunum á tím-
um mikillar eftirvæntingar og
spennings er sannkölluð menning-
arviðleitni.
Mér fannst sjónvarpið og i
nokkrum mæli útvarpið leitast við
að efna til allvandaðrar barna-
dagskrár nú um hátíðirnar. Bar
þar langhæst að mínu mati endur-
sýningu sjónvarpsins á: Gauks-
klukkunni, sovésku brúðuleikriti i
sviðssetningu Leikbrúðulands, en
þetta leikrit var áður sýnt í sjón-
varpinu á nýársdag 1980. Leik-
stjóri þessarar sýningar var Bríet
Héðinsdóttir og brúður í höndum
Helgu Steffenssen og Hallveigar
Thorlacius. En margir okkar fær-
ustu leikara lögðu til raddir.
Sannarlega ógleymanleg sýning,
er færir oss sanninn um það, að
hér á landi er til fólk, er getur
sviðsett efni þjóðsagna vorra með
slíkum hætti að þær gætu ratað til
barna víða um heim. Gætu slíkar
sviðsetningar ekki verið einn af
hornsteinum þess mikla markaðs-
átaks er nú er boðað af stjórnvöld-
um? Minnumst þess að börnin eru
eitt sterkasta markaðsaflið, og
takist okkur að telja erlendum
mönnum trú um að bornunum sé
lífsnauðsyn að fá eggjahvítuefni
úr heimsins besta fiski, þá er
björninn unninn. Nú, og ekki sak-
ar að landið verði einskonar töfra-
land í hugum barnanna, land
furðuvera, álfa og firnasterkra
trölla. „Það er af því þessi tröll á
töfraeyjunni íslandi borða heims-
ins besta fisk, mamma.“ Getur
betri auglýsingu?
Þau gleymdust
ekki heldur
Nú, en ríkisfjölmiðlarnir
gleymdu ekki heldur fullorðna
fólkinu á þessum jólum, þannig
var ári heilsað í fyrsta sinn með
bíómynd, nefndist hún: High
Anxiety og var eftir Mel Brooks.
Ágætis lystauki á nývöknuðu ári.
En hið gamla var að venju kvatt
með ávarpi útvarpsstjóra, Andrés-
ar Björnssonar, er nú hverfur af
leikvangi fjölmiðla. Skömmu áður
en Andrés Björnsson steig fram í
allri sinni hógværð, hoppuðu og
skoppuðu þau Gísli Rúnar, Edda
Björgvins og Laddi í árvissu ára-
mótaskaupi. Gamalkunnug andlit
snilldarfólks sem eigi má ofgera,
hefði ég kosið að fleira fólk úr
þjóðlífinu væri leitt til leiksins,
stjórnmálamenn og aðrir þeir er
gera garðinn frægan, því svo
sannarlega var hugmyndaflug
þeirra áramótaskaupsmanna vök-
ult að þessu sinni.
ólafur M.
Jóhannesson
Jazzþáttur:
Árid 1984
í hnotskurn
■■■■ { dag er á
| 00 dagskrá rásar 2
A O — Jassþáttur í
umsjá Vernharðs Linnet.
Vernharður sagði, að
þátturinn í dag væri helg-
aður jassárinu 1984, nokk-
urs konar yfirlitsþáttur
yfir það sem gerst hefur í
jassheiminum á árinu
sem er að líða.
Fjallað verður um plöt-
ur sem hafa verið vinsæl-
astar á árinu, sagt verður
frá merkum mönnum sem
féllu frá á árinu og að
sjálfsögðu verður fjallað
um atburði i íslenskum
jassheimi.
Sagt verður frá úrslit-
um í kosningum hjá
Downbeat, bæði vinsælda-
lista og eins gagnrýnenda.
Sem sagt: Árið 1984 í
hnotskurn.
Jassþáttur er á dagskrá
á rás 2 annan hvorn
fimmtudag eins og er, en
búist er við að fljótlega
verði hann á dagskrá
vikulega.
Þættir af
kristniboðum
víða um heim
■I { dag verður á
00 dagskrá út-
“ varps annar
lestur Ástráðs Sigur-
steindórssonar á þýðingu
hans af kristniboðum um
víða veröld eftir Clarence
Hall. Þátturinn í dag
nefnist „Skipstjórinn á
Morgunstjörnunni" og
fjallar hann um Eleanor
Wilson á Kyrrahafseyj-
um.
Að sögn Ástráðs var
Clarence Hall lengi rit-
stjóri Reader’s Digest.
M { kvöld verður
00 endurflutt leik-
ritið Sumarið
’37 eftir Jökul Jakobsson.
Leikritið er að þessu sinni
flutt í tilefni af áttatíu
ára afmæli Þorsteins ö.
Stephensen hinn 21. des-
ember sl. Það var frum-
sýnt hjá Leikfélagi
Reykjavíkur árið 1968 og
fyrst flutt í útvarpi árið
1969.
leikurinn fer fram á
heimili Davíðs, efnaðs út-
gerðarmanns, sem leikinn
er af Þorsteini ö. Steph-
ensen. Eiginkona Davíðs,
sem lengi hefur verið geð-
veik, er nýlátin og börn
þeirra hjóna eru stödd á
heimilinu ásamt mökum
sínum að jarðarförinni
lokinni. Leikurinn lýsir
samskiptum og sam-
bandsleysi þessa fólks;
fortíðinni sem reist hefur
ósýnilega og ókleifa múra
milli þess.
Með Sumrinu ’37 urðu
athyglisverð þáttaskil á
Hann skrifaði um ýmis
mál í blaðið og m.a. tók
hann sér fyrir hendur ferð
á fjölmargar kristni-
boðsstöðvar víða um
heim. Síðan lýsti hann
starfi kristniboðanna, að-
stæðum þeirra, þeim sem
þeir störfuðu á meðal o.fl.
í bók sinni Adventurers
for God. Hann ferðaðist
til Asíu, Afríku, Ástraliu,
Suður-Ameríku og víðar
og heimsótti kristniboða
af hinum ýmsu kirkju-
höfundarferli Jökuls Jak-
obssonar, en leikritið á
mun meira skylt við síðari
verk hans eins og Dóminn
og Vandarhögg en fyrstu
leikrit hans.
Leikritið Sumarið ’37 eftir
Jökul Jakobsson verður
flutt í útvarpinu í kvöld í
tilefni ittræðisafmelis
Þorsteins.
deildum. Margir heims-
frægir kristniboðar koma
við sögu, svo sem Kagawa,
sem fjallað var um í
fyrsta þætti, Hullston,
Townsend auk annarra
sem e.t.v. eru ekki eins
þekktir. I þáttunum kem-
ur glöggt fram hve Clar-
ence Hall er hrifinn af
starfi kristniboðanna.
Alls verða fluttir 16
þættir að þessu sinni, en
Ástráður hefur áður lesið
úr bókinni í útvarpi.
’37
Leikendur auk Þor-
steins eru Helga Bach-
mann, Edda Þórarinsdótt-
ir, Helgi Skúlason og Þor-
steinn Gunnarsson. Leik-
stjóri er Helgi Skúlason.
Þorsteinn Ö. Stephensen.
Sumarið
ÚTVARP
FIMMTUDAGUR
3. janúar
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn. A virkum degi. 7.25
Leikfimi. 7.55 Daglegt mál.
Endurt. þáttur Siguröar G.
Tómassonar frá kvöldinu áö-
ur.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15
Veöurfregnir.
Morgunorð — Sigurjón
Heiðarsson talar.
9.00 Fréttir. *
9.05 Morgunstund barnanna:
Umsjón: Sigrún Sigurðar-
dóttir. (RÚVAK)
9.25 Tilkynningar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veöur-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.). Tónleikar.
11.00 .Ég man þá tlö“
Lög frá liönum árum. Um-
sjón: Hermann Ragnar Stef-
ánsson.
11.30 .Sagt hefur það verið"
Hjálmar Arnason og Magnús
Glslason sjá um pátt af Suö-
urnesjum.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
1220 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
13_20 Barnagaman
13.30 Tónleikar
14.00 .Þættir af kristniboöum
um vlða veröld" eftir Clar-
ence Hall. .Skipstjórinn á
Morgunstjörnunni" Eleanor
Wilson á Kyrrahafseyjum.
Astráöur Sigursteindórsson
les þýöingu slna.
14.30 A frlvaktinni
Þóra Marteinsdóttir kynnir
óskalög sjómanna.
15J0 Tilkynningar. Tónleikar.
18.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Síödegistónleikar
a. Sónata I Es-dúr op. 120
nr. 2 eftir Johannes Brahms.
Pinchas Zukerman og Daniel
Barenboim leika á vlólu og
pfanó.
b. Planókvartett nr. 4 I Es-
dúr op. 16 eftir Ludwig van
19.15 A döfinni. Umsjónarmaö-
ur Karl Sigtryggsson. Kynnir
Birna Hrólfsdóttir.
1925. Krakkarnir I hverfinu. 3.
Inga flytur I hverfiö. Kana-
dískur myndaflokkur I þrett-
án þáttum, um atvik I llfi
nokkurra borgarbarna. Þýö-
andi Kristrún Þórðardóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
Beethoven. Flæmski planó-
kvartettinn leikur.
17.10 Slðdegisútvarp
Tilkynningar.
1845 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynn-
ingar.
19.50 Daglegt mál. Siguröur G.
Tómasson flytur þáttinn.
20.00 Endurtekiö leikrit:
.Sumarið ’37“
Höfundur: Jðkull Jakobsson.
Leikstjóri: Helgi Skúlason.
Leikendur: Þorsteinn O.
Stephensen, Helga Bach-
mann, Þorsteinn Gunnars-
son, Edda Þórarinsdóttir og
20.00 Fréttir og veöur.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Kastljós. Þáttur um inn-
lend málefni.
21.10 Skonrokk
Umsjónarmenn: Anna Hin-
riksdóttir og Anna Kristln
Hjartardóttir.
21Í5 Hláturinn lengir llfiö.
Breskur myndaflokkur I
Helgi Skúlason. (Aöur flutt
1969.)
2140 Gestir f útvarpssal
Stephanie Brown frá Banda-
rikjunum leikur á planó.
a. Sónata nr. 10 op. 14 nr.
2 eftir Ludwig van Beethov-
en.
b. Prelúdla úr „Le Tombeau
de Couperin" eftir Maurice
Ravel.
c. .Berceuse” eftir Frédéric
Chopin.
22.15 Veöurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 Fimmtudagsumræöan
Ariö 1984 — Drög að upp-
þrettán þáttum um gaman-
semi og gamanleikara I fjöl-
miðlum fyrr og slðar. Þýö-
andi Guöni Kolbeinsson.
2225 Fanny og Alexander.
Slöasti hluti. Sænsk fram-
haldsmynd I fjórum hlutum
eftir Ingmar Bergman. Þýð-
andi Jóhanna Þráinsdóttir.
23.50 Fréttir I dagskrárlok.
gjöri. Umsjón: Páll Heiðar
Jónsson.
2345 Fréttir. Dagskrárlok.
FIMMTUDAGUR
3. janúar
10.00—12.00 Morgunþátt-
ur
Stjórnendur: Kristján Sigur-
jónsson og Siguröur Sverr-
isson.
14.00—15.00 Dægurtlugur
Nýjustu dægurlögin.
Stjórnandi: Leópold Sveins-
son.
15.00—16.00 Otroðnar slóöir
Kristileg popptónlist.
Stjórnendur: Andri Már Ing-
ólfsson og Halldór Lárusson.
16.00—17.00 Jazzþáttur
Stjórnandi: Vernharöur Linn-
et.
17.00—18.00 Gullöldin
Lög frá 7. áratugnum
Stjórnandi: Þorgeir Astvalds-
son.
20.00—24.00 Kvðldútvarp.
SJÓNVARP
FÖSTUDAGUR
4. janúar