Morgunblaðið - 03.01.1985, Page 22

Morgunblaðið - 03.01.1985, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1985 Endurreisn tímans Jólaleikrit útvarpsins Alkestis í þýðingu Helga Hálfdanarsonar Leiklist Ólafur M. Jóhannesson Endurreisn tímans. Jólaleikrit útvarpsins, Alkestes, í þýðingu Helga Hálfdanarsonar. Höfundur: Evripídes. Leikstjóri: Hallmar Sigurðsson. Formálsorð: Jón Viðar Jónsson. Tæknimenn: Áslaug Sturlaugsdótt- ir og Vigfús Ingvarsson. Raddin Viðar Eggertsson, Róbert Arnfinnsson, Helgi Skúlason, Þorsteinn Gunnarsson, Valgerður Dan, María Sigurðardóttir, Arnar Jónsson, Kjartan Bjargmundsson, Jón Sigurbjörnsson, Valur Gísla- son, Hjalti Rögnvaldsson o.fl. Leiklistardeildir ríkisfjölmiðl- anna stigu heillavænleg skref um þessi jól — skref inn í fortíð- ina til menningararfsins í leit að perlum, er færa mátti í nýja um- gjörð, svo hið gamla yrði sem nýtt og hið klassíska sannaði þar með gildi sitt sem eilífur vegvís- ir á leið mannsins. Þannig varð Gullna hliðið svo nútímalegt í höndum þeirra sjónvarpsmanna að litlir drengir spiluðu það af „myndfangaranum" næstum jafn oft og hana Búkollu sem einn daginn fór sjö sinnum fyrir á skjánum. Er ekki stórkostlegt að endurlífga þannig menning- ararfinn uns hann svo að segja rennur hinum bráðungu í merg og blóð. Þannig skal vinna með tæknina, beita hinum bestu mönnum fyrir vagninn og horfa vítt til allra átta, ekki síður til hins besta í kjaisogi tímans en til þeirrar fjólu er þú grípur í garðinum þann daginn. Leiklist- ardeild Ríkisútvarpsins horfði og af djörfung um öxl þessi jól, reyndar alla leið aftur til þeirrar vöggu er vér teljum menningu vora hafa hrærst í við upphaf vega. Fimmtudaginn 27. desember var jólaleikrit útvarpsins, Al- kestis, eftir forngríska harmleikjaskáldið Evripídes, gert heyrumkunnugt. Hér var ekki horfið til þess ráðs að gera verkið nútímalegt, eins og þá sjónvarpið varpaði Kerlu og Jóni sáluga inn í vatnslitaheim Snorra Sveins Friðrikssonar sællar minningar, nei af djörf- ung var staðið við hinn forna texta og Helgi Hálfdanarson fenginn til að hamra hann með meitli skáldsins, enda finnast hér tveir skáldbræður, eða ætli Evrípídes gleðjist ekki yfir eigin hugsun, þá hann kfkir ofan af Ólympsfjalli, gæddur skilningi á öllum móðurtungum jarðarinnar og heyrir söguhetjuna Alkestes, er hljóp í dauðann fyrir sinn ektamaka Aðmetos svo hann mætti lifa áfram að ávísun guð- anna; mæla á tungu Atlantisbúa: Það sé ég nú hvar nálgast bátur einn einróinn/ og Karon, dauðra ferjumaður, þrumir þar/ með hönd að árar-hlummi kreppta og brýnir raust:/ „Hvað dvelur þig svo lengi? Gefðu hraðan á./ Þú tefur mína ferð úr hófi flýttu þér“./ Svo bráðlátt er hans kall til mín að koma skjótt. Og hvílíkt eyrnakonfekt Ólympsgesti að smjatta á þegar skömmu síðar i texta móðirin Alkestes óttast um framtíð barna sinna: lát enga stjúpu fá í hendur þessi börn/ því ef hún reynist verr en ég, þá veitist hún/ að okkar börnum afbrýð- innar heiftum knúð/ Ó, lát það ógert, aðeins þessa bið ég þig/ því nýja stjúpan hatar meira hennar börn/ sem horfin er, en eiturnaðra full af grimmd/ Hann sonur minn á föður fyrir virkisturn/ þar ber hann upp sfn einkamál og hlýtur svör/ En dóttir góð, mun gæfan prýða meydóm þinn?/ Hve raungóð mun þér reynast kona föður þíns/ Hvort mun hún niðra nafni þínu, ata smán/ þinn bjarta æsku-blóma, og hjúskap svipta þig?/ Því aldrei býr þér brúðarsæng hún móðir þín/ né styrkir þig í hörðum hríðum faéðingar/ ó, barnið gott, þar væri mildust móður hönd. Það þarf ekki forngrískt skáld, er kíkir af ólympstindi, til að skilja þennan texta. Hann er ljós og klár og snertir okkur ekki síð- ur en fregn af ungri móður er heyr sitt dauðastríð árið 1985. Samt er hér bundið mál og þar að auki snörun á tvö þúsund og fimm hundruð ára gömlum frumtexta, geri aðrir betur. Nei, við eigum ekki að hlaupa enda- laust eftir þeim er hæst lætur, þessum „herra vinsælum" er skyggir á hljóðláta snilldar- menn, er kafa köld djúpin og koma upp sprengmóðir með perl- ur og aðrar gersemar úr sjóði fornmanna. Slíkt réttir Helgi Hálfdanarson fram af hæversku og til allrar hamingju er enn til maður í ríki fjölmiðla er heyrir í gegnum hávaðann hið lágværa hvískur aldanna, og opnar fyrir Helga svo hann geti borið okkur fjársjóðinn. Sá maður er leiklist- arstjóri útvarpsins, Jón Viðar Jónsson, er upplýsir í forspjalli að hér sé um að ræða frumflutn- ing á verki eftir Evripídes. Hér er sannarlega mikilsvert skref stigið til móts við hið besta í fornaldarmenningunni, því þar með höfum vér íslendingar fært alla þrjá höfuðsnillinga forn- gríska harmleiksins á svið, þá Aiskhýlos og Sófókles höfum vér þegar eignast. Svo ég víki nánar að upp- færslu leiklistardeildarinnar á þessu verki Evripídesar, þá verð ég að segja eins og er, að aðeins eitt skyggði á óviðjafnanlegan sorgarhljóm verksins: skringi- legur raddhljómur Efmelosar, sonar Aðmetosar og Alkestisar, er Kjartan Bjargmundsson lék. Sannar þetta að Kjartan er gam- anleikari af guðs náð, en slíkir breytast oft í hina mögnuðustu tragí/kómíkera með árunum, eins og dæmin sanna. Aðrir leik- arar voru sum sé upphafnir af alvarleika andartaksins, eins og vera ber, og hefði ég grátið með þeim ef goðsagan er Evripídes leggur til grundvallar Alkestis, hefði verið svolítið jarðbundari og meira sannfærandi. Ég hafði ekki mjög djúpa samúð með þessu fólki, einfaldlega vegna þess að ég vissi allan tímann að guðirnir voru þarna að leik og að auki er þetta allt sett fram í sið- bótaranda, okkur dauðlegum mönnum til viðvörunar. Þannig vinnur Evripídes í anda Brechts (eða er það máski öfugt) og stefnir áhorfandanum strax við upphaf leiksins til móts við hin- ar siðferðilegu grundvallar- spurningar, sem tekist er á um í verkinu. Ræða Dauði og guðinn Apollon málin áður en Alkestis gengur í dauðann fyrir bónda sinn og setja þar með áhorfand- ann í siðferðilegar stellingar. Brecht hefði í þessu skyni beitt áletruðum spjöldum og ýmsum öðrum senutrixum, en markmið- ið er hið sama, að gera áhorfand- ann meðvitaðan um boðskap verksins og hina þjóðfélagslegu eða goðfræðilegu skírskotun textans. Slíkt er úr tísku í dag og nú vilja menn bara hverfa inn í at- burðarásina formálalaust, lausir við allt siðferðilegt kjaftæði er upplýsir söguþráðinn fyrirfram. Menn vilja sjálfir gerast leik- dómendur í hléi og í húmi nætur, við rauðvínsglas og kertaljós á búllum sem grunur leikur á að séu stundaðar af listamönnum. Leikstjórar og leikritaskáld sem skýra út fyrir mönnum þjóðfé- lagslegar eða goðfræðilegar staðreyndir eru gamaldags og lummó. Þess vegna eru Brecht og Evripídes ekki skemmtilegir. Þeir skemma ánægju leikhús- gestsins af hinni „óvæntu uppá- komu“ sem hann getur útlistað síðar í listamannabúllunni á sinn persónulega hátt, og þó helst ekki fyrr en hann er búinn að kíkja i leikdóminn í blaðinu sínu. Þegar áhorfandinn er bú- inn að læra þar nokkrar setn- ingar, helst þær nöturlegustu, utanbókar, þá fyrst er hann til í að bregða sér í betri fötin og dansa um á listamannsskónum í takt við alla hina listamennina í skini kertaljóss og nánast i bjórlíki. Einsog ég sagði áðan, þá er ég einn slíkur áhorfandi sem vill fá leikfléttuna beint í æð, og því hundleiddist mér að hlusta á upphafinn texta Evripídesar sogast úr munni leikaranna, eins og kæm’ ’ann úr hvalsmaga á stundum. Þar fór Róbert fremst- ur í flokki enda afburða leikari. En mikil nautn var að lesa þenn- an texta, þar var ekki tilgerðinni fyrir að fara. Nánast eins og að lesa af legsteini orð sem ætluð eru óbornum kynslóðum. Við þurfum ekki að kviða því að ryk tímans setjist á tungu vora á meðan menn á borð við Helga Hálfdanarson og Jón Viðar Jóns- son eiga fyrir meitli og hamri. Bridge Arnór Ragnarsson Bridgefélag Akureyrar Sveit Antons Haraldssonar sigraði í Akureyrarmótinu í sveitakeppni sem nýlega er lok- ið. Sveit Antons tók forystu snemma í mótinu og hélt henni til loka, en keppnin var jöfn og spennandi allan tímann. Með Anton spila í sveitinni: Gunnar Berg yngri, Soffía Guðmunds- dóttir, Disa Pétursdóttir, Trausti Haraldsson og Gunnar Berg eldri. Alls tóku 16 sveitir þátt í keppninni. Lokastaðan: Stig Anton Haraldsson 291 Páll Pálsson 285 Örn Einarsson 282 Jón Stefánsson 266 Júlíus Thorarensen 266 Stefán Vilhjálmsson 263 Sigurður Víglundsson 260 Kristján Guðjónsson 260 Alþýðubankamót Milli jóla og nýárs var haldinn jólatvímenningur í Sjallanum á vegum BA, svokallað Alþýðu- bankamót, en bankinn gaf vegleg verðlaun til þessarar keppni. Hófst mótið að morgni 29. des- ember og var spiluð tvöföld um- ferð og snæddur hádegisverður milli umferða. Alls voru 60 pör skráð til keppninnar, en 5 pör úr Ólafsfirði komust ekki til móts- ins þar sem snjóflóð féll í Múlan- um. Spilað var í 5 tólf para riðlum. Sigurvegarar urðu Kristinn Kristinsson og Þormóður Ein- arsson, sem hlutu 264 stig, en röð efstu para varð annars þessi: Stig Arnald Reykdal — Pétur Guðjónsson 256 Jón Stefánsson — Frá keppni hjá Bridgefélagi Suðurnesja. Stefán Ragnarsson 256 Jóhann Gauti — Gunnar Sólnes 254 Eiríkur Helgason — Jóhannes Jónsson 254 Páll Jónsson — Þórarinn Jónsson 250 Sverrir Þórarinsson — Ævar Ármannsson 249 Páll Pálsson — Frímann Frímannsson 249 Jón Jónsson — Ásgeir Stefánsson 246 Reynir Helgason — Þórarinn Helgason 246 Meðalárangur 220 Akureyrarmótið f tvímenningi hefst þriðjudaginn 8. janúar og verður spilaður barómeter. Skráningu lýkur föstudagskvöld- ið 4. janúar kl. 20 hjá stjórn fé- lagsins. Spilað verður í Félags- borg. Keppnisstjóri er Albert Sigurðsson. Bridgefélag kvenna Félagið byrjar starfsemi sína á nýju ári með aðalsveitakeppni mánudaginn 7. janúar. Spila- mennska hefst kl. 19.30 og spilað er í Domus Medica. Sveitar- foringjar og aðrir sem ekki hafa fullmannaða sveit, en vilja vera með, eru hvattir til að hringja f s. 17933 (Alda), 11088 (Sigrún), 43474 (Valgerður) og láta skrá sig. Bridgefélag Kópavogs Starfsemi ársins 1984 lauk fimmtudaginn 20. des., en þá var spiluð jólarúberta" með þátt- töku 18 para. Pör voru dregin saman. Sigurvegarar urðu: Stig Þórður Björnsson — Sigurður Gunnlaugsson 46 Örn Vigfússon — Sæmundur Árnason 22 Vilhjálmur Sigurðsson — Karólina Sveinsd. 20 í kvöld, 3. janúar, verður spilaður eins kvölds tvímenning- ur, en síðan hefst aðalsveita- keppni félagsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.