Morgunblaðið - 03.01.1985, Side 30
JiO
Sudurnes:
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1985
Takmörkun á hundaeign
^ Vofim, 2. juiúar.
Á VEGUM heilbrigðisnefndar Suð-
urnesja er unnið að breytingum á
Dánarfregn
MILLI jóla og nýárs lést í Santi-
ago í Chile fyrrum ræðismaður ís-
lands þar í höfuðborginni, Roberto
Knoop verksmiðjueigandi, 94 ára
gamall.
Hann var borinn og fæddur
Þjóðverji er fluttist með foreldr-
um sínum til Chile er hann var 11
ára, en þeir settust þar að fyrir
fullt og allt. Seinni kona Knoops
var íslensk. Var það frú María
Heigadóttir úr Reykjavík, dóttir
Helga Helgasonar verslunarstjóra
er heima átti á Óðinsgötu 2, og var
á sínum tíma kunnur bæjarmaður.
Þeim hjónum varð ekki barna auð-
ið. Er þau giftust hafði María átt
heima i Chile í um 20 ár. Hún tók
við ræðismannsstarfinu eftir
mann sinn og var það um árabil
eða þar til hún lést þar á síðasta
ári. Hjónin komu í nokkur skipti
hingað til íslands og voru hér síð-
ast á ferð árið 1970.
reglugerð um hundahald sem tók
gildi í byrjun si. árs.
Meðal nýrra atriða sem verða
sett í reglugerðina eru ákvæði um
takmörkun á hundaeign t.d. við
tvo hunda, en í samtali við Morg-
unblaðið sagði Jóhann Sveinsson
heilbrigðisfulltrúi að dæmi væru
um að sami aðili ætti yfir tíu
hunda, en vildi t.d. ekki greiða
gjöld af nema einum. Þá verður í
reglugerðinni ákvæði um að gjald-
dagi leyfisgjalda verði 1. mars en í
nóvember sl. skulduðu allir
hundaeigendur í einu sveitarfélagi
leyfisgjöld fyrir að halda hund.
Sagði Jóhann að áður hefði gjald-
dagi verið þegar hreinsun færi
fram og hefði komið í ljós að engin
samtök hefðu verið meðal íbúa
sveitarfélagsins með gjöldin enda
hefðu þeir skilað sér vel við
hundahreinsun sem fram fór í
desember.
Á Suðurnesjum eru um 200
hundar og eru 2% íbúanna sem
eiga þá, sagði Jóhann nauðsynlegt
fyrir hundaeigendurna að bindast
samtökum um hagsmunamál sín.
e.g.
Morgunblaöið/Kristján Ingi
Korarev sendiherra Sovétríkjanna, Jakob Magnússon og Brement sendi-
herra Bandaríkjanna syngja Nótt í Moskvu.
Sendiherrar stórveldanna
sungu saman á rússnesku
SENDIHERRAR Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna, Marshall Brement og
Evgeniy Aleksandrovich Kosarev,
tóku lagið saman á áramótagleði út-
varpsmanna og Stuðmanna í Sigtúni
á nýársnótt. Sendiberrarnir sungu
„Nótt í Moskvu" á rússnesku við
undirleik Stuðmanna. Þá söng Pam-
ela Brement sendiherrafrú „Eg leit-
aði blárra blóma“ á íslenzku.
Kristján Jóhannsson, óperu-
söngvari, söng nokkur lög og var
stúdíó útvarpsins á Akureyri sam-
tengt við kerfi útvarpsmanna í
Sigtúni.. Meðal annars hafði
Kristján forsöng í laginu um ólaf
liljurós, en gestir í Sigtúni sungu
viðlagið. Ingimar Eydal lék undir
fyrir norðan og Stuðmenn í
Reykjavík. Þá söng Kristján með
Ingu Eydal, dóttur Ingimars.
Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson
RúUn hafnaði í fjöruborðinu u.þ.b. 70 metrum frá vegarkantinum þar sem hún fór útaf. Það verður að kallast
ótrúlegt þrekvirki fyrir slasaðan mann að komast upp á veginn aftur á örfáum mínútum.
Vindhviða þeytti rútu
út af Kirkjubólshlíð
fsafiróí, 29. desember.
„ÉG SKRAPP til ísafjarðar að
sækja efni fyrir Frosta hf. og mb.
Sigrúnu ÍS. 113, en ég er skipverji
á henni,“ sagði Elvar Ragnarsson,
sem varð fyrir því að 20 manna
Benz-rúta sem hann var á fauk út
af veginum á Kirkjubólshlíð,
skammt innan Arnardals. Óhappið
varð milli kl. 5 og 6 fostudaginn
28. des., en fréttaritari Morgun-
blaðsins hitti hann að máli í Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á ísafirði um há-
degisbilið á laugardag.
„Það gekk á með skörpum
hryðjum, en var skaplegt á milli,
ég var á leið inneftir aftur þegar
bíllinn snerist þversum á vegin-
um, ég var að mestu búinn að
rétta hann af þegar önnur
vindhviða kom og þeitti honum
yfir veginn og yfir auða vegar-
brúnina og framaf. Ég ætlaði að
kasta mér út en komst ekki svo
ég fór með bílnum alla leið niður
í fjöru. Ég get ekki gert mér
grein fyrir hvað hann fór marg-
ar veltur, en þær voru nokkrar.
Þegar bíllinn stoppaði á hliðinni
niðri í fjöru, skreið ég strax upp
úr honum því ég vissi af bíl rétt
á eftir mér og ætlaði að ná upp á
veg áður en hann kæmi. En ég
var of seinn, en um það leyti sem
ég kom upp á veginn aftur bar að
Elías Sveinsson leigubílstjóra,
sem ók mér beint i sjúkrahúsið
og lét vita strax í gegn um stöð-
ina hvað hafði gerst. Elvar er
ótrúlega lítið slasaður miðað við
aðstæður. Hann er liklega með
Horgunbla&i&/Úl(ar Ágústaaon
Elvar Ragnarason á sjúkrahúsinu
á ísafirði. Ef myndin prentast vel
má sjá skurðinn á hálsi hans sem
hefði riðið honum að fullu ef hann
hefði verið aðeins dýpri.
brotið bringubein og er víða
marinn. Á hálsi hans er stór
skurður, hefði hann verið aðeins
dýpri hefðu skorist í sundur
slagæðarnar og hefði þá senni-
lega ekki þurft að spyrja að
leikslokum. Bergþóra Sigurðar-
dóttir læknir sagði að það væri
með ólíkindum hve vel hann
hefði sloppið, og ekki ástæða til
að ætla að fleiri áverkar ættu
eftir að koma í ljós, þótt erfitt
væri stundum að dæma, því
maðurinn væri einstakt
hraustmenni og kvartaði ekkert
undan áverkunum. Ekki er búist
við að Elvar þurfi að dvelja lengi
í sjúkrahúsi, en búast má við að
það taki hann nokkurn tíma að
ná sér að fullu.
Í bílnum sem Elvar vissi af á
eftir sér voru tvær ungar stúlkur
úr Súðavík. Fréttaritari náði tali
af annarri þeirra og sagði hún að
rútan hefði farið framúr þeim
við flugvöllinn, sem er i u.þ.b.
tveggja km fjarlægð frá slys-
staðnum. Þær voru báðar mjög
hræddar, þvf þær voru á bíl á
sumardekkjum og áttu fullt í
fangi með að hemja hann á veg-
inum. Þær sáu rútuna hverfa, en
töldu að hún hefði horfið niður
brekku sem þarna er á veginum.
Þegar utar dró fóru þær að
undrast að sjá ekki lengur til
rútunnar, en vegna veðurofsans
treystu þær sér ekki til að snúa
bílnum og töldu að of langt væri
orðið til að ganga til baka auk
þess sem þær gætu ekkert gert
ef eitthvað hefði komið fyrir.
Strax og þær komu til Súðavíkur
fóru þær að grennslast fyrir um
rútuna, en var þá sagt hvað gerst
hafði, því þá var Elvar kominn i
sjúkrahúsið á ísafirði.
Úlfar
Heimsmeistaraeinyígið í skák:
Gagnkvæmt traust
og óttablandin virðing
Skák
Margeir Pétursson
Síðan Morgunblaðið kom út síð-
ast hafa tvær einvígisskákir þeirra
Karpovs og Kasparovs orðið jafn-
tefli, þær 36. og 37. í röðinni. Stað-
an er því enn óbreytt, Karpov hefur
hlotið fimm vinninga, Kasparov
einn, en 31 skák hefur lokið með
jafntefli. Halda átti áfram að tefla
36. skákina á laugardaginn, en hún
hafði farið i bið kvöldið áður. Kasp-
arov hafði peði meira og bjuggust
flestir við að hann myndi reyna að
vinna taflið. Það gerði hann ekki,
hefur treyst heimsmeistaranum til
að halda stöðunni og bauð jafntefli
án þess að tefla frekar. Fri var á
gamlárskvöld, en í gær hafði Karp-
ov hvítt í 37. skákinni og lauk henni
með jafntefli eftir aðeins 15 leiki.
Kasparov tefldi aftur sama af-
brigðið af Sikileyjarvörn og í 35.
skákinni, en Karpov breytti út af
í níunda leik. Svo vill til að ís-
lenska ólympíusveitin í skák
hafði á æfingum sínum í haust
einmitt uppgötvað nýjung Kasp-
arovs, sem fylgdi í kjölfarið, en
við fengum ekki heppilegt tæki-
færi til að nota leikinn á
Ólympíumótinu í Saloniki um
daginn, eins og nánar verður vik-
ið að í skákskýringum. Mat ís-
lensku sveitarinnar á leiknum,
sem hún taldi jafna taflið fyrir
svartan, virðist rétt, a.m.k. fann
Karpov enga leið til að ná frum-
kvæðinu. Jafnteflisboðið var þó
óþarflega snemma á ferðinni.
37. einvígisskákin:
Hvítfc Anatoly Karpov
Svarfc Gary Kasparov
Sikileyjarvörn
I. e4 — c5, 2. Rf3 — d6, 3. d4 —
cxd4,4. Rxd4 — Rf6,5. Rc3 — Rc6,
6. Bg5 - e6, 7. Dd2 — Be7,8. (HM»
— 0-0, 9. Rb3
f 35. skákinni lék Karpov 9. f4.
Þá var samið eftir 18 leiki.
9. - a5!?
íslenska ólympíusveitin hafði
einnig uppgötvað þessa leið, en í
Saloniki var það aðeins Karl
Þorsteins sem fékk tækifæri til
að beita henni gegn Tékkanum
Mokry. Sá svaraði með 10. Rd4l?
og fékk betri stöðu eftir 10. — h6,
II. Bxf6 — Bxf6, en rétta svarið
var 10. — d5! og svartur hefur
gott mótspil.
10. a4 - d5!, 11. exd5
Það er þekkt regla að svartur
hafi jafnað taflið f Sikileyjarvörn
þegar hann hefur fengið að leika
d6-d5 órefsað. Það fær hann
núna, en 11. Bxf6 — Bxf6, 12.
exd5 — Rb4! gefur svörtum frá-
bær sóknarfæri.
11. - Rxd5, 12. Bxe7 - Rcxe7, 13.
Rb5 - Bd7, 14. Be2 - Rf5, 15.
R3d4 - Rxd4.
Svart: Kasparov
Hvítt: Karpov
Jafntefli.