Morgunblaðið - 03.01.1985, Side 41

Morgunblaðið - 03.01.1985, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1985 41 kynni okkar hófust. Það var í þrettán ára bekk er okkur var skipað saman í bekk. í fyrstu að- eins í skólatímum, en brátt urðu stundirnar fleiri. Kom þar margt til. Áhugamálin hneigðust í svip- aðar áttir því íþróttir voru okkar ær og yndi. Einnig tókum við það upp nokkrir félagarnir að læra bridge einn veturinn og urðum svo hugnæmir að vart mátti líða kvöldið að spilin yrðu ekki tekin upp. Að öllu ólöstuðu eru þó heilu dagarnir og næturnar minnis- stæðastar er við eyddum saman ásamt Tómasi Gíslasyni og rædd- um helstu áhyggjuefnin meðan hvolpavitið þróaðist í huganum. Það varð snemma ljóst að hugur Þórsa leitaði til félagsstarfa. í litl- um mæli í gagnfræðaskóla, en í Menntaskólann við Hamrahlið kemur hann rétt eins og nýút- sprungið blóm. Mátti vart líða sá atburður í skólanum að ekki væri hann þar nærri kominn. Leiklist, ritstjórn skólablaðs, ræðu- mennska, kórsöngur, svo ekki sé minnst á Ijóðskapinn, voru nokkur af viðfangsefnum hans þar. Þar er Þór rétt lýst að sökkva sér algjör- lega í viðfangsefnið hverju sinni. Átti hann það gjarnan til að koma fyrirvaralaust eftir sambandsleysi í nokkra daga með orðunum æ, fyrirgefðu, en ég hef bara ekki einu sinni haft tíma til að sofa, því ég hef verið að stússast í ... Voru menntaskólaárin honum nær sam- felld skemmtun, enda hafði hann það oft á orði að þetta væru bestu ár lífs manns og því um að gera að njóta þeirra. Lengi höfðum við félagarnir átt þann draum að eyða stundum sameiginlega erlendis. í sumar sem leið varð draumurinn að raunveruleika er við eyddum ásamt Úu, heitkonu Þórs og Fjólu frænku hennar þremur yndisleg- um vikum { Finnlandi. Urðu mér þar enn betur en fyrr ljósir kostir hans. Þrátt fyrir að lítilsháttar magakveisa hrjáði hann mestan tímann var ætíð skammt undan að kitlandi gamansemin næði tökum á honum, ellegar háalvaran þegar hann taldi félagann slá slöku við. Og kröfuharðari en um leið sanngjarnari dreng er ekki að finna. Heim komum við með bjarta drauma og tilbúnir að leggja á nýjar vígstöðvar. Þór innritaðist í bókmenntafræði í háskólanum og hóf námið af kappi er gamall fjandi vinar míns gerði vart við sig á ný eftir dálangt hlé. Það varð ljóst að stríð þetta yrði ei unnið með höndunum einum heldur út- heimti stærri fórnir. Lá Þór í Landspítalanum og á heimili sinu, en erfiðlega gekk að ráða sjúk- dóminn við. Það er eftirtektarvert, að í stað þess að gefast upp með niðurdregið andlit reis Þórsi tví- efldur upp á móti sjúkdóminum, með léttum huga, þó krafturinn minnkaði óðum. Það verður mér ætíð minnisstætt í þessu tilviki, að Þórsi var ekki allskostar ánægður með útlit sitt í spítalanum, enda hafði gulur litur sett svip sinn á andlit vinar míns. Hann hafði því ritað á töflu fyrir ofan rúm sitt: „Velkomin til Asíu! — heimkynna gula mannsins." Sárt batnaði honum samt sóttin og nú var ráðist í að senda Þór í fylgd móður til Englands þar sem betri aðhlynningu var að fá. Ég hitti hann þar og létum við hug- ann reika á ný um gamlar minn- ingar og nýjar áætlanir. Var eng- an bilbug á honum að finna, enda staðráðinn í og um leið sannfærð- ur um að brátt lægi leiðin bein og greið framundan. En þrátt fyrir stóran hug og mikinn kjark varð hann að lokum að láta undan síga. Þór lést að morgni annars dags jóla. Stórt skarð er nú í höggvið, sem vand- fyllt verður. Það er þó huggun harmi gegn, rétt eins og góður maður benti eitt sinn á, að þrátt fyrir að æviárin hafi einungis orð- ið tuttugu, þá hafi þau skapað honum og öðrum nástöddum meiri hamingju en flestir öðlist um alla ævi. Hvíli Þór í friði, minn vinur kær. Öllum aðstandendum sendi ég mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Karl Þorsteins „Stynur jörð við stormsins 6ð og stráin kveða dauð, hlíðin er hljöð, heiðin er auð. — Blómgröf, blundandi kraftur, við bíðum, það vorar þó aftur. Kemur skær í skýjunum sólin, skín í draumum um jólin. Leiðir fuglinn í för og fleyið úr vör.“ (Einar Benediktsson.) Þór Sandholt háði harða bar- áttu á sjúkrabeði á meðan óskir um gleðileg jól hljómuðu um víða veröld. Baráttunni er lokið, á þann veg sem Guð einn ræður. Hann Þórsi fór til Japans á liðnu sumri með Hamrahlíðar- kórnum. Við óskuðum honum góðrar ferðar en vissum ekki þá að þessi kveðjuorð myndu rifjast svo sterklega upp nú þegar við óskum honum þess sama í ferð hans yfir móðuna miklu. Margs er að minn- ast og margt að þakka. Orð hans sjálfs rifjast upp þar sem hann segir í einu ljóða sinna. Hvað geta kunnáttulítil orð mín gert í ógnarstærð heimsins? Hvers má sín fánýt uppröðun þeirra í formfestu hans? Þegar ungur maður sem svo mörgum kostum er búinn er kall- aður á brott verður okkur orðfátt en hugsanir og tilfinningar knýja okkur samt til að setja orð á blað. Hann Þórsi afkastaði ótrúlega miklu á þeim tveimur tugum ára sem hann lifði, þrátt fyrir van- heilsu sem ágerðist síðustu árin. Hann lauk stúdentsprófi á 3V4 ári og tók einnig mikinn þátt í félagsstarfi skólans þar á meðal blaðaútgáfu, leiklist og kórstarfi. Listagyðjan var með honum á fleiri sviðum því hann samdi líka sögur og ljóð. Hann hlaut verðlaun fyrir smá- sögur sinar m.a. Finnlandsferð á vegum Lionsmanna. Árið 1983 kom út ljóðabók eftir hann sem heitir „Hanastél hugs- ana minna" og var gefin út af Bóksölu MH. Þessi bók vakti vonir um að fleiri ljóðabækur ættu eftir að líta dagsins ljós eftir þennan unga og efnilega höfund. Þór var kjarkmikill og ósérhlíf- inn um leið og hann hafði sigrað veikindatfmabilin. Hann bar sig vel og kvartaði ekki þótt hann gengi ekki alltaf heill til skógar. Við sem fylgdumst með þessu undruðumst oft hvernig hann virtist alltaf geta unnið upp frá- tafir veikindatímabilanna sem voru þó stundum svo hörð og erfið að við þorðum vart að vona að hann hefði þau af. Fyrstu kynni okkar af Þór Sandholt voru þegar hann sem ungur drengur var í barnalúðra- sveit og Iék á túbu. Nánari varð svo kunningsskapurinn þegar hann sem unglingur lék í Ungl- ingasveit Lúðrasveitar Svansins. Foreldrar unglinganna unnu mikið með þeirri sveit við hin ýmsu störf og ferðalög. Þórsi var góður félagi, sérstak- lega rifjast upp eitt skipti þegar hann var 12 ára og kom heim til okkar einhverra erinda fyrir lúðrasveitina. Hann gaf sér góðan tíma og ræddi við okkur um alla heima og geima. Þá kynntumst við því að þarna var ungur maður með afar heilbrigða hugsun og tilbúinn til að ræða jafnt við alla aldurs- flokka af kurteisi og skilningi. Lúðrasveitin Svanur fór í tón- leikaferðir til Danmerkur og síðar til Noregs. Aldrei reynir eins mik- ið á samskipti og félagsþroska eins og í ferðum þar sem þátttak- endur þurfa að koma fram sem fulltrúar lands síns og dagskrár oft strangar og erfiðar. Þórsi var einn þeirra sem gerði sér fulla grein fyrir þessu. Aldrei kvartaði hann yfir einu né neinu og vissum við þó að oft var hann afar þreyttur og stundum lasinn. Hann var samt hress og glaður og gerði aldrei athugasemdir við stjórnun fullorðna fólksins þótt þarfir unglinganna væru stundum aðrar en skipulag ferðanna leyfði. Hann var frekar smávaxinn á þessum árum og gat því verið erf- itt að bera túbu og spila á hana þegar sveitin þurfti að marsera langar leiðir, en það gerði Þórsi án þess að gefa frá sér þreytutón. Það hlýtur að vera regin munur á flautu og túbu, en því vildi Þórsi kynnast af eigin raun. Hann fór í Tónlistarskóla Reykjavíkur til að læra flautuleik og lauk þaðan stigi á skömmum tíma. Árin liðu og gaman var að hitta seinna hávaxinn ungan mann sem virtist búa yfir svo mikilli starfs- orku. Hann hafði ekki lengur tima fyrir hljóðfæraleik í lúðrasveit hvorki á túbu né flautu, aðrar listgreinar höfðu orðið yfirsterk- ari. Framhaldsnám i háskóla var hafið og við leyfðum okkur að vona að læknavísindin gætu lið- sinnt þessum efnilega unga manni. Hann eignaðist góða vinkonu sem stóð styrk við hlið hans í gleði og sorg. En brátt skipast veður í lofti, enginn mannlegur máttur gat stöðvað þá ferð sem allir leggja upp í að lokum. Við vottum foreldrum og öðrum ástvinum hins látna innilega sam- úð og biðjum Guð að veita þeim huggunarríkt ár. „Af eilífðarljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en auga sér mótöllum oss faðminn breiðir* (Einar Benediktsson.) Matthildur, Jón Freyr og Vilborg. „Lítið strá sem lék sér í vindinum. Það stóð eitt og barðist við veturinn" Þannig kemst Þór Júlíus heitinn Sandholt sjálfur að orði í kvæði sinu Reisn. Hann er nú að kveðja okkur eftir hetjulega baráttu með óbilandi styrk móður sinnar og ástvina. Þessi elskulegi piltur var aðeins 20 ára gamall, nemi í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Sem strákhnokki vestur á Reyni- mel var hann til fyrirmyndar, þeg- ar prúður og alvörugefinn. Úndir niðri bjó þessi mikli hæfileiki að yrkja falleg ljóð. Það hafði hann hlotið í vöggugjöf. Ljóð hans sögðu okkur svo margt um lífsv- iðhorf hans og tilveruna. Þau auð- kenndust af hugsýnum hans og báru sterk persónuleg einkenni. Kvæði Þórs báru keim af erfið- leikum við sjúkdóm hans, trega- blandin án þess að vera bitur. Boðskapurinn i kvæðum hans var að láta okkur líta á björtu hliðarn- ar sem sýnir þroska hans og hve heilsteyptur hann var. Enn einu sinni verðum við ís- lendingar að sjá ljóðskáld kveðja okkur á unga aldri. Þegar við syrgjum hann, hjálpar hann okkur í Ijóðinu og segir: „Ég lognast ekki út af éghlæ við geislum vetrarsólarinnar." Ég kveð elsku strákinn. Það bíð- ur hans fallegt kerti þarna fyrir handan. Guð blessi fjölskyldu hans og ástvini og veiti þeim styrk. Orri Vigfússon Það er fjarstæðukennt. til þess að hugsa að Þór Sandholt sé ekki lengur á meðal vor. Þór Sandholt, frændi minn og vinur, yfirgaf móður jörð allskyndilega eftir mikla aðgerð sem framkvæmd var í Englandi. Þó svo að maður hafi verið meðvitaður um áhættuna sem þessari aðgerð fylgdi, kom fréttin um andlátið sem reiðar- slag. Við Þór fylgdumst að í gegnum Menntaskólann við Hamrahlíð og útskrifuðumst þaðan síðasta vor. Ég varð málkunnugur honum þá þegar á fyrstu önninni en góð kynni tókust með okkur er við sát- um saman í dönskutímum á öðru námsári. Það var einmitt í einum slíkum tíma er við tókum þá ákvörðun að bjóða okkur fram í ritnefnd skólablaðsins, Benevent- um, ásamt Sigurði Böðvarssyni. Við náðum kjöri og þar með hófst mjög ánægjulegur timi skólagöng- unnar. Margt var brallað og tak- markaðist sköpunargleðin og at- hafnaþráin alls ekki við blaða- útgáfu, starfað var að tíma- bundnum útvarpsrekstri, leikið var i stórhljómsveitinni PC 1211 Kítín svo eitthvað sé upp talið. Á þessum tíma komu vel fram þeir þættir í fari Þórs sem mér fannst einkennandi fyrir hann, hug- myndaauðgi og kraftur hans til framkvæmda. Þór hafði iðulega í fórum sínum bók nokkra svarta sem hann var vanur að rita í hugsmiðar sínar, aðallega Ijóð en þó einhverjar smásögur. Hann bar óvenju næmt skyn á íslenskt mál og hafði riku- lega skáldgáfu. Hann orti mikið í frjálsu formi og iðulega með mörg járn i eldinum. Einnig var hann afkastamikill ferskeytlusmiður og átti það til að varpa að mönnum skondnum tækifæriskveðskap. Mörg ljóð eftir Þór birtust í skólablaðinu og vöktu þau verð- skuldaða athygli. Það var síðan haustið 1983 er við þáverandi um- sjónarmenn bóksölu skólans gáf- um út ljóðabók Þórs, Hanastél hugsana minna. Þessi bók inni- heldur 33 ljóð samin á siðustu ár- um. Einnig birtust 4 ljóð eftir Þór í bókinni Spegilbrot úr helli, gefin út af bóksölunni á vorönn 1983. Sjálfur orti Þór svo um skáld- skap sinn í ljóðinu Sköpun: Égvil aö ljóð mitt liði áfram eins og spegilmynd sálar minnar á skapadægri þess. Ýmist lygnt og lokkandi, ólgandi ellegar ísi legið. Með síbreytilegum bratta, hugmyndum og hrynjandi. Þó ávallt sjálfu sér samkvæmt og umfram allt skiljanlega blátt áfram. Þór orti mikið um borgina, handlék ástina á rómantiskan hátt, orti um mannlífið, lifið, dauðann. Svo segir i ljóðinu Vídd: Skyldi bíða mín kerti þarna fyrir handan, í fjórðu, fimmtu eða hvaða vídd það nú er? Blys sem brennur eftir fyrirfram ákveðnu forriti á tímum þess tölvuvædda. Brennur og skilur eftir sig farveg í ótal bugðum og bungum. Eins og til að minna á aö eitt sinn hafir þú verið ég og ég þú og það teinrétt, ókvikað. Skyldi ég sjálfur hafa tendrað það? Hver annar svosem? Þór var maður gæddur miklum hæfileikum, sem birtust ekki ein- ungis á sviði ljóðlistar, heldur einnig sönglistar, leiklistar og mælskulistar. Umfram allt var hann góður vinur og leið mér ávallt vel í návist hans, hvort sem var í leik eða starfi. Úr heimi er horfinn góður maður, allt alltof snemma. En Þór er ekki með öllu horfinn, áfram mun hann lifa i ljóðum sínum. Öllum aðstandendum votta ég mína innilegustu samúð. Pétur Benedikt Júlíusson Fyrstu kynni mín af Þór Sand- holt voru er við sátum saman i stærðfræði, 12 tíma á viku og skemmtum okkur við að semja sposkar athugasemdir um sam- nemendur okkar. Ekki grunaði mig þá hve samgróin mennta- skólaganga okkar átti eftir að verða og hve allar minningar menntaskólaáranna tengjast hon- um. Þór kom fyrir sem orðhvatur og sjálfsöruggur náungi. Hann gerði sér far um að kynnast fólki og ná til þess, en gat um leið verið frá- fælandi þeim sem ekki kunnu að meta hreinskilni hans. Undir harðri skelinni leyndist þó við- kvæmur og einlægur maður sem þráði hvort tveggja vináttu og við- urkenningu. Félagslyndur var Þór og þá er hann hafði eitt sinn kastað sér út i viðfangsefni var hann ham- hleypa til verka. Þegar á fyrstu önn í MH starfaði hann með leik- listarfélagi skólans, alls óhræddur við þá sem þar voru fyrir. Innan málfundafélagsins gat hann sér og gott orð, átti reyndar sæti í sigur- liði skólans í mælskukeppni fram- haldsskólanna og var loks kjörinn mælskasti nemandi skólans síð- astliöinn vor. Má af þessu sjá að Þór kunni vel að meta orðsins list, enda kemur það hvað best fram í Ijóðum hans svo innihaldsrík sem þau eru í einfaldleika sínum. Heyrðu Heyrðu hjalið í fjalli þinu. Maður, kona, ljós. Heyrðu sundursprungnar syllurnar mala yfir höfði þér. Heyrðu gnauðið í grjótunum, andardrátt grassins. Lífið, dauðann. Heyrðu vel. Svo syllurnar skelli ekki á dimmbláan dvalarstað þinn hellisbúi. Maður, kona, ljós. Samvinna okkar Þórs var hvað mest veturinn 1982—1983. Áttum við þá báðir sæti i ritnefnd skóla- blaðsins Beneventum, stóðum í stórskemmtilegum útvarpsrekstri á Lagningardögum og síðast en ekki síst störfuðum við ásamt öðr- um f að okkar mati hinu geysivin- sæla bandi PC 1211 Kítín. Eru þá ótaldar allar þær stundir er við áttum saman i kórstarfi gegnum árin. Af þessum sökum vorum við nánast heimagangar hvor hjá öðr- um og þáði ég á heimili hans margan góðan tesopann. Á þeim siðkvöldum varð Þór oft tíðrætt um afa sinn og nafna. Hafði hann mikinn hug á að feta i fótspor hans og stefndi að loknu stúdentsprófi til Finnlands og hugðist leggja stund á arkitektúr. Honum snerist þó hugur og hóf nám í bókmenntafræðum við Há- skóla íslands. Hafði ég á orði við Þór, að hann þyrfti ekki að sjá eftir þeirri ákvörðun þar eð ís- lensk fræði væru miklu fremur hans fag en raungreinar. Enda þótt Þór gengi ekki heill til skógar bar hann ekki áhyggjur sínar á torg og lét ekki sjúkdóm sinn aftra sér frá þátttöku i fé- lagslífi svo lengi sem hann gat. Fréttin um andlát hans kom eins og reiðarslag. Jafnvel þó svo að um nokkurra mánaða skeið hafi verið ljóst að hverju stefndi. Eftir vel heppnaðan uppskurð kviknaði von sem siðan brást. Það er með sárum söknuði að ég sé á bak vini mínum sem nú er fallinn frá svo langt um aldur fram. Ættingjum öllum og ekki síst þér, elsku Úa, sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Sigurður Böðvarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.