Morgunblaðið - 03.01.1985, Side 51
MORGUNBLADID, FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1985
51
VELVAKANDI
SVARAR f SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
MujAmrx-asj'u ir
í»essir hringdu
Gleymum ekki
fuglunum
Ásgeir Guðmundsson í Kópa-
vogi hringdi:
Vinir okkar snjótittlingarnir
eru bjargarlausir þegar jarð-
bönn eru. Leita þeir til byggða
og vonast til að við mennirnir
réttum þeim lífsbjörgina. Þá eru
skógarþrestir einnig bjargar-
lausir. Víst er það að nú á marg-
ur bágt. En ef grannt er skoðað
þá fer margt matarkyns forgörð-
um og nýtist því ekki hungruðu
fólki í fjarlægum heimsálfum,
svo sem brauðmylsna, brauðleif-
ar og alls konar kjötafgangar og
fita. Ef brauðið er tætt sundur
eða mulið nýtist það vel snjó-
tittlingum. Skógarþröstum líkar
best kjötfita eða brauð. Best er
að kjötfitan sé skorin af soðnu
eða steiktu kjöti. En hins vegar
nýta þeir sér það hrátt sé það
smátt skorið.
Að vísu mun fuglakorn fást i
búðum og hentar það snjótittl-
ingum vel, en það kostar nú pen-
inga. Matarafgöngum er oft
fleygt í ruslatunnuna. Það kost-
ar því aðeins umhugsun og lítinn
tíma að gefa þessum vinum
okkar lífsbjörg. Þetta er þrosk-
andi starf fyrir eldri sem yngri.
Ekki síst fyrir börnin. Og að lok-
um:
Góðum fylgir gefanda gæfa á leið
og hópurinn við gluggann, sem að svangur
beið.
Sama konan í
tveimur stjórn-
málasamtökum?
H.H. hringdi:
Ég las það í einhverju blað-
anna hverjir væru í miðstjórn
Alþýðubandalagsins. Þar rakst
ég á nafn konu nokkurrar. Ég las
síðan á öðrum stað að hún er
fulltrúi Kvennalistans í út-
varpsráði. Hvenig getur sama
manneskjan verið í tveimur
stjórnmálasamtökum og starfað
fyrir bæði?
rótt eftir að hafa róað (svæft)
samvizku sína með nýjum lögum!
En engin hjálparhönd, engin sam-
úð, engin önnur úrlausn á vanda-
málum mæðranna en að gefa
barnið í fóstur og ræna það móður
sinni, það dýrmætasta sem hvert
mannsbarn hér á jörðinni á, og
sem ekkert getur nokkurn tímann
komið í staðinn fyrir. Og ekki á
það pabba heldur, því að hann er
horfinn, oft löngu áður en barnið
er fætt, og „mannúðin" með hon-
um. Samt koma oftast óskir (eða
beinlínis skipanir) um fóstureyð-
ingu einmitt frá þeim karl-
mönnum, sem hafa komið þessu til
leiðar ...
Já, siðmenningu þjóðar má
marka af þeirri mannúð sem sýnd
er lítilmagnanum — lítilmagnan-
um í þessum heimi, sem hér er
ólétt og varnarlaus stúlka eða
kona: notuð, svívirt, dæmd og út-
skúfuð. Ég er ekki í neinum vafa
um hvernig höfundur kristin-
dómsins mundi bregðast við i
þessu máli. Kenning hans, sem
hann sagði aftur og aftur ekki
vera sína kenningu en kæmi frá
Guði föður sínum, er nefnilega
ekki sú sama og kenning kirkjunn-
ar. Það er ekkert nýtt að menn
misskilji Biblíuna og séu ófeimnir
við að slá um sig með vafasömum
dómum, eins og prestur nokkur
orðaði það. En boðskapur Guðs er
skýr: „Og ef þér hefðuð skilið hvað
það er: Miskunnsemi þrái ég, en
ekki fórn, munduð þér eigi hafa
sakfellt saklausa menn (konur),“
Matteus 12:7. Áfram segir í Lúkas
20:45—47: „Varið yður á fræði-
mönnum, sem gjarnt er að ganga í
síðklæðum og hafa mætur á að
láta heilsa sér á torgunum og
efstu sætum í samkundunum og
helztu sætum í veizlunum. Þeir
eta upp heimili ekknanna (sjá
„Thornbirds") og flytja langar
bænir að yfirskini. Þeir munu fá
því þyngri dóm!“
Og áfram segir í pistli „Lesand-
ans“: „... svipt barni lífsréttinum
strax á fósturskeiði". Það er nú
varla hægt ef Guð almáttugur hef-
ur eitthvað að segja í þessu máli,
sem ég er viss um að hann gerir.
Líf okkar allra er í höndum Guðs,
svo segja að minnsta kosti allir
sannkristnir menn. Og sálin, sem
er reiðubúin til að koma inn í
þennan heim, finnur þá aðeins
annað „ökutæki" hjá öðrum for-
eldrum ef hitt var eyðilagt með
fóstureyðingu eða slys með öðrum
hætti. Það eina sem er nokkuð at-
hugavert og á sama tíma eftir-
sjáarvert, er að missa á þennan
hátt kannski af einhverjum Beet-
hoven eða Shakespeare eða Mam-
atma Gandhi eða Clark Gable eða
Florence Nightingale (eða afa,
ömmu, bróður, barni o.s.frv. Sjá
„Endurholdgun“ eftir Edgar
Cayce; Joh. 3:3—8,13; 4:36—37,
15:27: Matteus 5:4 og Markús
10:29—30; I. kor. 3:8; Matteus
16:18!) Kona (maður) ætti að hafa
það í huga áður en hún (hann) tek-
ur endanlega afstöðu til fóstur-
eyðingar.
Hvað bréf Sóleyjar varðar, þá
afsannar sköpun Guðs ekki þróun-
arkenninguna. Þvert á móti. í
Biblíunni stendur skrifuð einmitt
útskýring á þessu: „Því að þúsund
ár (milljón, milljarðar) eru í þín-
um augum sem dagurinn í gær,
þegar hann er liðinn, já, eins og
næturvaka (nokkrar klukkustund-
ir),“ Sálm. 90:4. Sannleikurinn er
einfaldlega sá, að sköpun himins
og jarðar, öðru nafni þróun, tók
þess vegna að minnsta kosti 6
milljarða ára eða u.þ.b. Og eftir
lýsingunni í I. Mósebók kom
mannkynið ekki við sögu fyrr en
allra síðast á sjötta „degi“ sköpun-
arinnar. „Og Guð sagði: Vér vilj-
um gjöra Menn eftir vorri mynd,
líka oss. (Sjá einnig Genesis 6:2).
Og hann skapaði þau karl og konu
(mannkynið)" Genesis 1:26—31.
Og svo kom sjöundi dagur, hvíld-
ardagurinn, sem við köllum
sunnudag eða dag Drottins. Bingó.
Adam og Eva komu ekki við sögu
fyrr en í 2. kafla I. Mósebókar.
Að lokum þetta: Milljónir barna
deyja ár hvert úr hungri, og millj-
ónir eru heimilislausar eða mun-
aðarleysingjar. Er betra að horfa
upp á dauða þessara milljóna í
sjónvarpinu ár eftir ár í stað þess
að koma í veg fyrir ennþá meiri
hörmungar með Natural Birth
Control og öðrum hætti? (Við
jarðarbúar sitjum jú öll í sama
báti.) Eins lengi og getnaðarvarn-
ir eru ófullnægjandi annars vegar
og karlmenn of ágengir og eigin-
gjarnir hins vegar, er því miður
engin önnur úrlausn í málinu en
fóstureyðing. Þess vegna þurfum
við að biðja til Guðs að hann sýni
okkur aðra leið út úr þessu vanda-
máli, af því að mér líst heldur ekki
á fóstureyðingu. Og ég held að ég
tali fyrir hönd allra kvenna með
því að segja, að það líst engri
okkar á fóstureyðingu sem lausn í
málinu.
Náð og friður veitist öllum
þeim, sem elska Drottin Guð og
hans eingetna son Jesúm, Krist.
Sarah Jóhanns
Velvakandi hvetur les-
endur til að skrifa þætt-
inum um hvaðeina, sem
hugur þeirra stendur til
— eða hringja milli kl.
11 og 12, mánudaga til
föstudaga, ef þeir koma
því ekki við að skrifa.
Meðal efnis, sem vel er
þegið, eru ábendingar og
orðaskipti, fyrirspurnir
og frásagnir, auk pistla
og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrit-
uð, en nöfn, nafnnúmer
og heimilisföng verða að
fylgja öllu efni til þátt-
arins, þó að höfundar
óski nafnleyndar.
G3P SlGGA WöGA É ‘(iLVERAU
Ballett
Kennsla hefst á ný
mánudaginn 7. janúar.
Framhalds-
nemendur mæti
á sömu tímum
og áöur.
Innritun nýrra nemenda og allar upplýs-
ingar í aíma 15359 kl. 13—19 daglega.
Ballettskóli
Guðbjargar Björgvins.
jþróttahúsinu Seltjarnarnesí, Litla aal.
rDYs??
mm
EINKARITARA
SKÓLINN
..
$&&&&
ip
iii
iíSíHí
ftSSftWí
i
lill
Skólinn tekur til starfa 14. janúar.
Námsgreinar verða:
ÍSLENSKA - BÓKFÆRSLA
TOLLUR - TÖLVUFRÆÐI
ENSKA _ SKJALAVARSLA
SÍMSVÖRUN - BANKASKJÖL
LÖG OG FORMÁLAR
VÉLRITUN O.FL.
Innritun í Einkaritaraskólann
fer fram kl: 13.00 — 17.00
í síma 10004 - 11109
MÁLASKÓLINN
BRAUTARHOLJl 4
OG HON NEITRR ÓVI
R9 HRFR LRTI9 HRUS*
INN VR9R l HRUSINN/
Jl STEFNRNDRt
PLÚSY-DRR
HtiGÖFGI^ // rjz^
PO VEIST RD MRNN-
GREYI9 SE6ISTHRFR,
\0TRL VITNI
Já,Y9RR Nw
PLÓS V9RR Há‘ ,
GÖFól PLÓS Y9RR/
HEILRGLEIKL
2-9
(E6ERf® REYNH
SSMJWRI® SKILURÐU