Morgunblaðið - 27.01.1985, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JANÚAR 1985
„Hlaupa ekki
milli landshluta
eftir fiskvinnu"
„I>etta er fyrst og fremst vandamál hérna á SuA-vesturhorninu, sérstak-
lega á Suðurnesjum og engar horfur á að úr rætist,“ sagði Þórir Daníelsson,
framkvæmdastjóri Verkamannasambands íslands, er blm. Mbl. hafði sam-
band við hann í tilefni frétta um mikið atvinnuleysi fiskverkafólks á síðustu
vikum.
„Þar sem búið er að selja at-
vinnutækin, a.m.k. þrjá togara,
burt úr byggðalögunum, eru horf-
urnar ekki bjartar á Suðurnesj-
um,“ sagði Þórir.
Hann sagði ástandið skárra í
öðrum landshlutum. „En þó að
eitthvað sé um það að auglýst sé
eftir fólki annars staöar á landinu
hefur það enga þýðingu þar sem
atvinnuleysið er. Aðaluppistaðan í
þessu vinnuafli eru kvenfólk og
húsmæður hlaupa ekki milli
landshluta eftir vinnu í fiski.
Það fer að verða hefð að þetta
fólk sé atvinnulaust seinni partinn
í desember og fyrri hlutann af
janúar og kemur til af því, að
lagaákvæðin um uppsagnarfrest
fiskverkafólks eru afskaplega
óhaldkvæm," sagði Þórir. „Það er
hægt að setja þetta fólk í launa-
laust frí, nánast fyrirvaralaust, ef
skortur er á hráefni. Uppsagnar-
fresturinn er því álíka jafn mikils
virði og pappírinn, sem hann er
skráður á.“
ÁKLÆÐI OG GÓLFMOTTUR
í FLESTAR GERÐIR BIFREIÐA
Áklæðin eru hlý og teygjanleg.
Fjölbreytt litaúrval.
Motturnar fást í rauðum, bláum, brúnum og gráum litum.
Kynnið ykkur verð og gæði.
Einar Hálfdánsson á Heiðrúnu Lv. og Guðbjartur Bjarnason fyrsti vél-
stjóri. Guðbjartur er með reykköfunartækin sem hann notaði við slökkvi-
starfið.
Sjómenn þurfa að
fara á brunaæfingu
a.m.k. einu sinni á ári
Segir Guðbjartur Bjarnason Heiðrúnu
EINS OG komið hefur fram í fréttum kom eldur upp í skuttogaranum
Heiðrúnu frá Bolungarvík þann 15. janúar sl. er skipið var að veiðum í
Víkurál. Guðbjartur Bjarnason fyrsti vélstjóri fór með reykköfunartæki
niður í vélarrúm og tókst að slökkva eldinn.
Blaðamaður Morgunblaðsins
ræddi við Guðbjart og Einar
Hálfdánsson skipstjóra á Heið-
rúnu og bað þá að lýsa því sem
gerðist.
Guðbjartur sagði að þegar
eldsins varð vart í skorsteins-
húsi hefði þegar verið hafist
handa við að fjarlægja logsuðu-
tæki, sem voru í námunda við
eldinn. Því næst var reynt að
ráða niðurlögum eldsins með
handslökkvitækjum, en það
dugði ekki til. „Þegar hér var
komið höfðu skipverjar reynt að
hjálpa til við slökkvistarfið, en
orðið frá að hverfa vegna þess að
mikill hiti var og reykur,“ sagði
Guðbjartur. „Ég greip þá til
reykköfunartækis og fór fyrst á
milliþilfar með brunaslöngu og
reyndi að slökkva eldinn þaðan.
En ég réð ekki við eldinn vegna
þess að mikill hiti og gufa komu
á móti mér. Ég brá þá á það ráð
að fara niður í vélarrúmið og
sprauta upp með pústgreinun-
um, undir eldinn. Þannig tókst
að slökkva eldinn eftir u.þ.b.
þrjú korter. Reykurinn var gíf-
urlegur þarna niðri og var farið
að loga í balakæliklefa sem er
tréklæddur og var hinum megin
við þilið. Fljótlega tókst að
slökkva eldinn þar. Það mátti
ekki miklu muna því loftið í
reykköfunartækinu var búið.
Það þarf ekki að spyrja að því
hvað hefði gerst ef eldurinn
hefði komist í veiðarfæra-
geymslurnar."
Fyrir tæpu ári fór skipshöfnin
á Heiðrúnu á æfingu í reykköf-
un, sem slökkviliðin í Bolungar-
vík og á ísafirði héldu fyrir
skipsáhafnir. Guðbjartur var
spurður hvort það hafi ekki
komið að góðum notum í slökkvi-
starfinu.
„Jú, það hefur skipt sköpum.
Eins hef ég æft sjálfur meðferð
reykköfunartækisins. En ég tel
að tveir menn þyrftu að geta
notað reykköfunartæki og helst
þyrfti að hafa talsamband á
milli. Þegar ég var kominn niður
í vélarrúmið var svo mikill reyk-
ur að það var erfitt að athafna
sig. Þeir vissu ekkert um mig
hinir skipverjarnir og þar sem
ekki var annað tæki um borð
gátu þeir ekki fylgst með mér.
Einnig þarf að hafa auka súrefn-
iskúta, því eins og kom fram áð-
an var allt loft búið um það leyti
sem slökkvistarfi lauk. Eftir
þessa reynslu er ég sannfærður
um að allir sjómenn þurfa að
fara á brunaæfingu a.m.k. einu
sinni á ári. Gott væri ef ákveð-
inn væri viss staður fyrir hvern
mann. Þá vissi hver og einn
hvernig bregðast ætti við ef eld-
ur kæmi upp. Best væri að tvö
tæki væru um borð og þrír til
fjórir menn væru þjálfaðir í
notkun þeirra."
Einar Hálfdánsson skipstjóri
var ekki með þegar kviknaði í
skipinu. Hann var sammála
Guðbjarti að mikla áherslu þurfi
að leggja á að sjómenn fái verk-
lega þjálfun í notkun reykköfun-
artækja og annars öryggisbún-
aðar. „Það er mjög mikilvægt að
menn kunni að fara með þessi
tæki. Þá eru þeir öruggir og vita
hvað þeir eiga að gera. Guð-
bjartur notaði t.d. lítið súrefni
og varð það til þess að honum
tókst að slökkva eldinn. Það er
mjög misjafnt hvað menn þurfa
mikið súrefni og það er Ijóst að
því óöruggari sem þeir eru, því
meira þurfa þeir að nota af því.“
Hannes Hafstein fram-
kvæmdastjóri Slysavarnafélags
Islands sagði að umrædd bruna-
æfing hafi verið haldin fyrir
tæpu ári samkvæmt beiðni frá
skipstjóra- og sjómannafélaginu
á staðnum. „Við leggjum ákaf-
lega mikla áherslu á svona verk-
legar æfingar," sagði Hannes.
„Eftir þetta slys um borð í Heið-
rúnu sjáum við hvað þær eru
þýðingarmiklar. Nú hefur er-
indreki Slysavarnafélagsins í
samstarfi við ýmis önnur félög
hafið kynningarferð um allt land
til þess að benda á hvað slíkar
æfingar geta haft mikið að
segja. Lögð er áhersla á að sjó-
menn leiti til slökkviliðsmanna á
hverjum stað og fái þá til að að-
stoða sig við að halda námskeið
og verklegar æfingar. Við höfum
átt mjög gott samstarf við Land-
samband slökkviliðsmanna um
að hefja áróðursherferð um
auknar eldvarnir um borð í skip-
um.“
Opið í dag frá kl. 13.30-18.00.
2ja herb.
Bústaöahverfi
Glæsileg 70 tm íb. meö sérinng. á
jaröhæö. Mikiö endurnýjuö. Verö
1500 þús.
Grettisgata
Nýstandsett en ósamþykkt 65 fm í
risi. Þribýlis-timburhús. Verö ca. 1,1
millj.
Vesturbær - Hafn.
Tvær ágætar íb. í parhúsi á rólegum
staö, ca. 2X65 tm. Verö 1200 og
1400 þús.
Langholtsvegur
Hrísmóar, Garöabæ, nokkrar
glæsilegar 4ra-6 herb. íbúöir sem
Hverfisgata
50 fm 2ja-3ja herb. íb. á 1. hæö i
bakhúsi. Verö ca. 1100 þús.
Asparfell
55 fm íbúð í góöu ástandi. Bílskúr.
Verð 1500-1550 þús.
Fossvogur
40 fm einstakl.íb. Verö 950 þús.
Bergstaöastræti
48 fm einstakl.íb. á 1. hæö. íbúöin
er nýstandsett. Verö ca. 1100 þús.
Lokastígur
2ja herb. risíb. Verö 1200-1250 þús.
Grettisgata
Stór 2ja herb. ib. á 1. hæö. Verö 1,4
millj.
Ásbraut
75 fm íbúö í góöu ástandi. Gott
útsýni. Mögul. á 2 svefnherb. Verð
1,5 millj.
Selvogsgata
65 fm sérhaaö i timburhúsi meö
nýlegum gluggum og nýrri raflögn.
Verö 1350-1400 þús.
Mosfellssveit
Lítið einbýlishús ca. 40 fm meö
stórri lóö og byggingarrétti. Verö
rúmlega millj.
3ja herb.
Hraunbær
90 fm ib. á 2. hæö í góöu ástandi.
Skipti á stærri ibúö i Hraunbæ
æskil. Verð 1750 þús.
Grettisgata
80 fm 3ja herb. íb. á 2. hæö. Verö
1550-1600 þús. Útb. 500-600 þús.
Kópavogsbraut
4ra herb. íbúö á 1. hæö meö 36 fm
bilskúr. Verö 2,1 millj.
Álfhólsvegur
3ja herb. íbúð á 1. hæö. Verö 1700
þús.
Hraunbær
Tvær 3ja herb. íbúöir á jaröhæö og
2. hæö. Verð 1700-1800 þús.
Grænakinn Hf.
3ja-4ra herb. góö risíb., sérinng.
Verð 1600 þús.
4ra herb.
Skaftahlíö
4ra herb. 90 fm á jaröhæð meö
sérinng., sérhita. Verö 1800 þús.
Blöndubakki
4ra herb. íbúð á 2. hæö, 112 fm,
þvottaherb. á hæöinni. Verð ca. 2,1
millj.
Langholtsvegur
4ra-5 herb. ibúö á 1. hæö, 120 fm
aukaherb. i kjallara. Makaskipti
æskileg á minni eign. Verö ca. 2,1
millj.
Markarflöt
120 fm á jarðhæö, sérinng. og sór-
hiti. Laus fljótlega. Verö ca. 2,5 millj.
Æsufell
4ra herb. 100 fm íbúð á 3. hæö.
Verð 1900 þús.
Nýbýlavegur -
tilb. undir tréverk
Höfum fengiö í sölu tvær 4ra-5 herb.
íbúöir sem afh. á næstunni. Hvor
ibúö er ca. 115 fm meö stórum
svölum og miklu útsýni þaöan, en
þakgaröi til suöurs. Sérinng. í hvora
íbúö. Verö ca. 2-2,2 millj.
Herjólfsgata Hf.
Ágæt efri hæö, 95 fm, ásamt góöu
geymslurisi og 30 fm bílskúr. Verð
ca. 2,3 millj. Makaskipti á ódýrari
eign möguleg.
Vesturbraut Hf.
Skemmtilegt parhús á tveimur
hæöum, mikiö endurnýjaö. Alls 120
fm. Verð 2,1m illj.
Engihjalli
4ra herb. 110 fm íbúö á 2. hæö í
góðu standi. Verð 1950 þús.-2 millj.
Stærri eignir
Breiðvangur
Stórglæsileg neöri sérhæö, 150 fm
+ 85 fm í kj. Bílskúr. Makaskipti
æskil. á rúmg. blokkaríb.
Langholtsvegur
Litiö einbýlishús, 75 fm að grunnfleti
meö tveimur íb. sem seljast saman
eöa sitt í hvoru lagi. Bílsk.réttur og
garöskúr. Verð rúml. millj.
Breiövangur Hf.
5 herb. íbúö á 4. hæö meö suö-
vestursvölum. Verö ca. 2 millj.
Ásbúðartröð Hf.
170 fm sérhæö með fjórum svefn-
herb. og möguleika fyrir
einstaklingsibúö á jaröhæö, 30 fm
bilskúr. Verö rúmar 3 millj.
Kársnesbraut Kóp.
Einbýtishús á tveimur hæöum, alls
um 150 fm ásamt rúmlega 50 fm
bílskúr. Verö ca. 3,3 millj.
Vesturbær
Sænskt einbýlishús aö grunnfleti ca
80 fm meö íbúö i kjallara (samgang-
ur milli hæöa), bílskúrsréttur, mjög
rólegt hverfi. Verö ca. 3,3 millj.
Furugrund
130 fm á 1. hæö. Ibúöin er i góöu
ásigkomulagi. Mikil sameign, þ.á m.
gufubaö. Verö 2,6 millj.
Grafarvogur
Parhús, 117X2. Hsbö og ris. Risið
er meö skemmtilegum kvistum.
Selst fullbúiö aöutan en tilb. undir
tréverk og málningu aö innan. Verð
3,5-3,6 millj.
Raðhús í Laugarneshverfi
180 fm huseign. Unnt aö hfa 2ja
herb. íbúö á jaröhæö. Makaskipti
æskileg á minni eign meö bílskúr.
Uppl. á skrifstofunni.
Auglýsingastofa
í fullum rekstri meö bestu fáanlegu
tækjum til sölu eöa leigusölu. 100
fm leiguhúsnæði getur fylgt
samningum á besta staö í bænum.
Uppl. aöeins gefnar á skrifstofunni.
Tilbúið undir tréverk
Hrísmóar Garöabæ, nokkrar
glæsilegar 4ra-6 herb. íbúöir sem
afh. i sumar eða eftir samkomulagi,
bilskúr fylgir hverri ibúð. Verö ca.
2,1-2,8 millj.
í byggingu
Höfum 2ja herb. (búðir á jaröhæð
viö Rauðás. Verö 1100-1250 þús.
Útb. ca. 50%.
FASTEIGNASALA
Skólavöröustíg 18. 2. h.
Pétur Gunnlaugsson lögfr.
Halldór Kristján sölustjóri.
m 028511
nm
^lóla^chdiLit/ts((C^\