Morgunblaðið - 07.02.1985, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1985
3
Verkamaðurinn og \inkaupin:
Brennivínsflaskan kostar
daglaun nú en fimm
stunda vinnu fyrir ári
VERKAMAÐUR er þremur klukku-
stundum lengur að vinna fyrir einni
flösku af íslensku brennivíni nú en
fyrir ári.
í janúar 1984 kostaði ein flaska
af brennivíni 380 krónur, en tíma-
kaup verkamanns var þá 73 krón-
Þingflokksfundur
sjálfstæðismanna:
Ráðherrar
gangi frá efna-
hagstillögunum
Þingflokkur Sjálfstæðisflokks-
ins lauk á fundi sínum í gær um-
ræðum um þær hugmyndir sem
legið hafa fyrir frá ríkisstjórninni
um aðgerðir í efnahagsmálum.
Niöurstaða þingflokksfundarins
varð sú að ráðherrum flokksins
var falið að ganga frá tillögum á
þeim grundvelli sem fyrir lá frá
ríkisstjórninni.
ur, miðað við lágmarkstekjutrygg-
ingu. Það tók verkamanninn því
rúmar 5 klukkustundir að eignast
peninga fyrir flöskunni. Eftir sið-
ustu hækkun á áfengi sem var á
þriðjudag, kostar brennivínið 680
krónur, en tímakaup verkamanns-
ins er 81,20 krónur miðað við lág-
markstekjutrygginguna. Hann er
því nærri 8Vfe klukkustund að
vinna sér inn fyrir drykknum, eða
rúmlega einn dag.
Frá því í desember 1983 hefur
áfengi hækkað fimm sinnum. Þá
hækkaði það í 380 krónur, í mars
1984 fór flaskan í 470 krónur, í
september sl. var brennivínið
hækkað í 510 krónur flaskan, en
þremur mánuðum síðar, eða í des-
ember, kostaði flaskan 590 krónur
og á þriðjudag var hún enn hækk-
uð og kostar nú 680 krónur.
Lágmarkstekjutrygging nam í
febrúar í fyrra 12.660 krónum á
mánuði, sem hefði nægt fyrir um
33 flöskum af brennivíni. Nú er
mánaðarkaupið 14.075 krónur á
mánuði, sem gæti nægt verka-
manni fyrir um 20 flöskum af
sama vökva.
Hátt á fjórða hundrað
myndbönd í töskunum
HÁTT í fjórða hundrað myndbanda
reyndist vera í töskunum þremur,
sem tveir menn skildu eftir í tollhliði
á Keflavíkurflugvelli í liðinni viku
þegar tollverðir fóru þess á leit að fá
að skoða innihaldið. Embætti lög-
reglustjóra á Keflavíkurflugvelli hef-
ur kært þetta sem tolllagabrot og
vinnur Rannsóknarlögregla ríkisins
að rannsókn málsins.
Annar mannanna, sem töskurn-
ar áttu, er eigandi myndbanda-
leigu í Hafnarfirði. Ljóst er að
verðmæti myndbandanna skiptir
hundruðum þúsunda króna, lík-
lega um hálfri milljón.
Lagt af stað frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti.
Nemendur Fjölbrautaskólans
í Breiðholti hlupu með undir-
skriftalista til borgarstjóra
Einu íþróttirnar sem nemendur
Fjölbrautaskóla Breiðholts geta
stundað eru sund og hlaup, sem
ekki er metið til stúdentsprófs. Ef
þeir fengju almenna kennslu i
íþróttum yrðu hún aftur á móti
metin til prófs.
maður uppeldissviðs skólans, sagði
í samtali við blm. Morgunblaðsins
að skortur á íþróttahúsnæði kæmi
verst niður á þeim nemendum á
uppeldissviði sem væru á íþrótta-
braut. Þeir eru um 70 talsins. Nem-
endur skólans hafa fengið inni í
öðrum íþróttahúsum borgarinnar,
t.d. við Alftamýrarskóla í 2 tíma í
viku og í Laugardalshöllinni milli
kl. 8 og 11 á laugardagsmorgnum og
fer sá tími mest í íþróttamót á veg-
um skólans.
Logi Sigurfinnsson formaður Nemendafélags Fjölbrautaskólans afhendir
Davíð Oddssyni borgarstjóra undirskriftalistann. Á milli þeirra er Árni
Njálsson, en fyrir aftan Loga stendur Vignir Sigurðsson.
Vignir sagði að nemendur skól-
ans byndu nú vonir við að bygging
íþróttahúss við skólann verði á
fjárhagsáætlun borgarinnar árið
1986.
NEMENDUR Fjölbrautaskólans í
Breiðholti efndu til boðhlaups í
gærmorgun frá skólanum og að
skrifstofu borgarstjóra. Þar var
borgarstjóra afiientur undirskrifta-
listi þar sem þess er krafist að nú
þegar verði hafin bygging íþrótta-
húss við skólann. Undir þetta eni
rituð yfir eitt þúsund nöfn.
Borgarstjóri tjáði nemendum að
íþróttahús við Fjölbrautaskólann
væri ekki á fjárhagsáætlun borgar-
innar fyrir árið 1985.
Vignir Sigurðsson, umsjónar-
Courchevel í frönsku Ölpunum er
einn stærsti og besti skíöastaður í heimi
— og þaö er sko ekki orðum aukið.
Stórskemmtilegar brekkur við allra hæfi,
nýjasta lyftutækni, óviðjafnanlegur gisti-
staður, stórbrotið landslag, sólskin og
nægur 1. flokks skíðasnjór leggsl allt á
eitt um að gera ógleymanlega skíðaferð
að sérkapitula í endurminningum þínum.
Courchevel er staður fyrir snillinga,
verðandi, núverandi og fyrrverandi. Þú
velur þér brekku og færi við hæfi og svo
er bara að leggja í hann.
Einn dagur í Courchevel gæti verið
svona:
Að loknum góðum nætursvefni eftir fjör-
ið daginn áður, færðu þér stadgódan
morgunverð á Crystal 2000, 3ja stjörnu
hótelinu sem allt Urvalsfólk gistir á. Síð-
an liggur leiðin í lyfturnar, tvær þeirra
eiga heimsmet í fóiksfiutningum, og ein-
hverja skíðabrekkuna. í hádeginu get-
urðu gert stans á einhverjum veitinga-
staðnum í brekkunni, fengið þér gott að
borða og safnað orku fyrir skíöa-
mennsku eftirmiðdagsins.
Þú byrjar kvöldið í gufubaði, eða
sundlauginni ferð í nudd og slappar af.
Þið skíðafélagarnir getið síðan mælt
ykkur mót á barnum eða á veitinga-
stað, farið í bíó, á dansleik eða bara
að sofa til þess að undirbúa næsta
skídadag, sem getur oröiö allt öðruvísi.
Það er undir þér komið — af nógu er að
taka.
Courchevel er svo ásetinn að við getum
ekki boðið nema tvær 2ja vikna ferðir,
15. og 29. mars (páskaferð).
Verð pr. mann í tvíbýli 15/3
kr. 42.100,-
Verð pr. mann í tvíbýli 29/3
kr. 44.250.-
Innifalið: Flug til Genfar og heim, rútu-
ferðir, gisting með hálfu fæði á Crystal
2000 og íslensk fararstjórn.
Smelltu þér í skíðaskóna og vertu
samferða.
Síminn er 26900
Gengl 23/1 1985
FERMSKRIFSTOMN ÚRVAL
Ferðaskrifstofan Úrval við Austurvöll, sími 26900.