Morgunblaðið - 07.02.1985, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. FEBRUAR 1985
5
Vinnslustöðvar of marg-
ar miðað við afurðamagn
— sagði Guðmundur Stefánsson hagfræðingur Stéttarsambandsins
„ÞAÐ ER Ijóst, að verulegur árangur hefur náðst í stjórnun
framleiðslunnar, og biliö á milli framleiðslu og sölu hefur
minnkað mjög. Engu að síður er enn mikið verk að vinna og
Ijóst að betur má ef duga skal. Veruleg reynsla hefur fengist
af því starfi sem unniö hefur verið á þessum árum og tíma-
bært orðið að endurskoöa framleiðslustjórnunina í heild m.a.
með tilliti til þeirrar reynslu,“ sagði Guðmundur Stefánsson,
búnaðarhagfræðingur hjá Stéttarsambandi bænda, á ráðu-
nautafundinum þegar hann ræddi um þróun búvörufram-
leiðslunnar frá árinu 1978.
Sagði hann að fjöldi bænda við
hefðbundinn búskap hefði ekki
breyst í samræmi við samdrátt
framleiðslunnar en hins vegar
virtist hagur þeirra almennt hafa
rýrnað mjög. „Ég held að sá sam-
dráttur sem orðinn er í búvöru-
framleiðslunni krefjist þess, að
margir bændur annaðhvort geri
búskapinn að hlutastarfi eða
hverfi frá hefðbundnum búskap í
annan búskap eða þá einhver
önnur störf. Alltjent er ljóst að
með 15—20% samdrætti í helstu
búgreinum er ekki lengur svig-
rúm fyrir alla þá bændur sem
stunduðu þessa framleiðslu
1979,“ sagði Guðmundur.
Hann ræddi um áhrif fram-
leiðslusamdráttarins á afkomu
afurðasölufyrirtækja og þar með
möguleika þeirra á að greiða
bændum umsamið verð. Sagði
hann að þegar væri farið að bera
á alvarlegum vandræðum við
uppgjör bæði mjólkur- og sauð-
fjárafurða og t.d. fengju nú öll
mjólkursamlög utan fyrsta sölu-
svæðis greiðslur úr Verðmiðlun-
arsjóði, þó þar kæmu aðrar
ástæður einnig til. Taldi hann að
2—3% vantaði að meðaltali upp á
að bændur fengju greitt fullt verð
fyrir framleiðslu sauðfjárafurða
árið 1983, og væri enn meiri verð-
vöntun hjá sumum fyrirtækj-
anna. Þá hefðu vanskil afurða-
sölufyrirtækjanna aukist hjá
Stofnlánadeild landbúnaðarins
og væru þar nú í vanskilum fyrir-
tæki sem ávallt hefðu staðið í
fullum skilum fram til þessa.
Taldi hann fulla þörf á að
endurskoða skipulag mjólkuriðn-
aðarins vegna framleiðslusam-
dráttar og með tilliti til stór-
bættra samgangna og tækninýj-
unga í vinnslu og meðferð mjólk-
ur. „Sum mjólkursamlögin eru
orðin óþörf séð frá þeim sjónar-
hóli að án þeirra verði neytend-
um á viðkomandi svæði ekki séð
fyrir nýmjólk. Þá mjólk sem þar
er vegin inn er hægt að leggja inn
í önnur mjólkursamlög og þau
hin sömu mjólkursamlög geta
fullnægt þörfum neytenda," sagði
Guðmundur.
Hann sagði einnig að endur-
skipulagningar væri þörf í sauð-
fjárslátruninni þar sem þær for-
sendur, sem lágu því til grund-
vallar að sláturhúsin eru staðsett
eins og er í dag og eins mörg og
raun ber vitni, væru ekki lengur
til staðar. Bættar samgöngur,
færra fé og framtíðarhorfur í
landbúnaðinum bentu mjög ein-
dregið í þá átt. „Það er megin-
nauðsyn að nýta þær fjárfest-
ingar sem fyrir hendi eru eins og
nokkur kostur er. Ég held að
reynslan sýni að núverandi af-
urðamagn beri ekki allar þær
vinnslustöðvar sem nú eru starf-
andi og þörf endurskoðunar og
endurskipulagningar er orðin
mjög brýn. Þeim mun fyrr sem
tekið er á þessum málum, þeim
mun betra. Landbúnaðurinn
hvorki má né getur lifað í fortíð-
inni,“ sagði Guðmundur einnig,
þegar hann ræddi um afurðasölu-
fyrirtækin í ljósi breyttra að-
stæðna í landbúnaði.
Morgunblaðið/Ómar Valdimarsson
Myndin var tekin skömmu áður en íslendingarnir héldu frá Addis
Ababa. Frá vinstri: Björg Pálsdóttir, Þóra B. Hafsteinsdóttir, Ólafur E.'
Lárusson, Bjarni Sighvatsson, Pálína Ása Ásgeirsdóttir og Kristín Dav-
íðsdóttir.
Eþíópía:
íslendingarnir
farnir til starfa á
hungursvæðunum
ÍSLENSKU hjálparliðarnir, sem eru í Eþíópíu á vegum Hjálparstofnunar
kirkjunnar og Lútherska heimssambandsins, eru nú allir komnir til starfa á
hungursvæðunum í norðurhluta landsins. Björgunarsveitarmennirnir tveir
frá Vestmannaeyjum héldu áleiðis til Worgesa, nærri fylkismörkum Shoa
og Tigre, á sunnudagsmorguninn. Hjúkrunarfræðingarnir fjórir héldu svo
af stað til Worgesa og Senbete á mánudag. I'ar er verið að dreifa hluta
þeirra hjálpargagna, er keypt voru fyrir söfnunarféð á íslandi.
Mikill hugur var í íslenska vinnustöðum. Piltarnir tveir
hjálparfólkinu er það lagði af verða í Eþíópíu í þrjá mánuði,
stað og sagðist það í samtali við hjúkrunarfræðingarnir í hálft ár.
blaðamann Morgunblaðsins í Þau báðu öll fyrir góðar kveðjur
Addis Ababa gera sér góðar vonir til ættingja og vina hér heima.
um að geta orðið að liði á sínum
ÚTSÝN
OA
FERÐASKRIFSTOFAN
ÚTSÝN
AusruKsntm mtmavh simi jmm
RADHUSfORGI i AIUÖVKt MMI 22M11
HÓPFERÐIR
1985
A grænni grei
med ÚTSÝN
erlendis
Skemmtun
helgarinnar!
Stórglæsileg sumaráætlun Utsýnar 85 kynnt í
BCOADWAy
sunnudaginn 10. febrúar kl. 19.30.
Húsið fagurlega skreytt blómum,
sem koma beint frá Hollandi í til-
efni dagsins.
FJÖLBREYTT SKEMMTIDAGSKRÁ!
Þríréttaöur hátíöarmatseðill
3*. kr. ggg
Veist þú — aö um 78% farþega kjósa sólar-
landaferö?
Veist þú — aö til aö lækka ferðakostnaöinn vilja
um 50% ferðast utan háannatimans
um 65% feröast aö kvöldi eöa jafnvel
nóttu
Þessar niöurstöður og fleiri úr skoðanakönnun Út-
sýnar um feröaval o.fl. veröa kynntar og dregiö úr
yfir 2000 svörum sem bárust. Verður þú viö-
staddur?
Yfir 1000 svör bárust viö getrauninni „Út-
sýn 30 ára“.
Verðlaunin: Farseöill til höfuöborgar í
Evrópu dreginn úr réttum lausnum.
Verður þú viðstaddur?
Feröavinningar samtals að verömæti nálægt 200 þúsund kr.
Vinnur þú sumarleyfisferð í Broadway á sunnudaginn?
Færri komust aö en vildu á síðustu skemmtun Út-
sýnar og Fríklúbbsins. Þetta er jafnan ein fjörugasta
—og glæsilegasta skemmtun ársins. Tryggöu þér
miöa í tíma. Borðapantanir og miðasala í Broadway.
Símar 77500 og 687370.