Morgunblaðið - 07.02.1985, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. FEBRUAR 1985
29
Stjórnarandstaðan í Svíþjóð:
Vantraust á Lennart
Bodström í þinginu
Stokkhólmi, 6. fehníar. Frá AP og fréttaritara Mbl.
LEIÐTOGAR stjórnarandstöðunnar á sænska þinginu hafa lagt fram tillögu
um vantraust á Lennart Bodström, utanríkisráðherra Svíþjóðar. Astæðan er
þau ummæli ráðherrans fyrir nokkrum dögum, að engar sannanir væru fyrir
því að erlendir kafbátar hefðu með leynd siglt innan sænskrar lögsögu síðan
1982.
Vantraust hefur aðeins einu
sinni áður verið borið fram á
sænskan utanríkisráðherra á
þingi landsins. Ólíklegt þykir hins
vegar að það verði samþykkt að
þessu sinni, þar sem stjórnar-
flokkurinn. flokkur jafnaðar-
manna, hefur meirihluta á þing-
inu.
Svíþjóð:
Tíu herþotur
voru í hættu
Aðskotahlutir fundust
í 50 Viggen-þotum
Stokkhólmi, 6. febrúar. AP.
AÐSKOTAHLUTIR, sem slysahætta
stafar af, hafa við vandlega athugun
fundist í 10 af um 200 herþotum
Svía af gerðinni Viggen, að er tals-
maður hinna opinberu hergagna-
verksmiðja í Svíþjóð skýrði frá því í
dag.
Ýfirstjórn flughersins ákvað í
fyrri viku, eftir að herþota af
Viggen-gerð fórst vegna þess að
laus skrúfa hafði skemmt stjórn-
kerfi hennar, að stöðva flug allra
þota af sömu gerð og rannsaka
hvort gallar leyndust í fleiri vél-
um.
Rannsókn leiddi í ljós að í 50
herþotum voru ýmsir aðskotahlut-
ir, s.s. lausar skrúfur og pinnar, og
í 10 vélanna hefðu þessir hlutir
getað skemmt stjórnkerfið og
valdið þvi að þær hröpuðu.
Veður
víða um heim
Lttgil Hæaf
Akureyri +2 skýjaö
Amsterdam +2 8 heiöskírt
Aþena 3 15 heiöskfrt
Barcelona 14 léttskýjað
Beriín 0 6 skýjaö
Brussel 2 9 skýjaö
Chicago +10 +5 ekýjað
Dublin 4 11 heiðskírt
Feneyjar Frankfurt Genf +1 7 vantar vantar skýjaö
Hefsinki +23 +11 heiöskirt
Hong Kong 18 18 skýjaö
Jerúsalem 3 8 skýjaö
Kaupm.höfn +2 0 skýjaö
Las Palmas 22 léttskýjaö
Lissabon 10 18 ekýjaö
London 8 12 skýjaö
Los Angeles 4 16 haiöskírt
Lúxemborg Malaga 18 vantar haiöskfrt
Mallorka 13 þokum.
Miami 22 25 heiöskírt
Montreal Moskva +17 +12 vantar skýjeö
NewVork +5 +2 •kýjað
Osló +8 +3 skýjaö
Parts 6 11 •kýjeö
Peking +2 8 heiöskirt
Reykjavík 3 skýjaö
Rio de Janeiro 18 37 skýjaö
Rúmaborg 8 13 skýjaö
Stokkhólmur +12 +8 snjókoma
Sydney 21 29 heiðskírt
Tókýó 5 11 heiðskírt
Vinarborg +1 3 heióskírt
Þórshöfn 4 skýjaó
Olof Palme, forsætisráðherra,
hefur sagt að þeir sem greiða van-
trausti á Bodström atkvæði séu
jafnframt að lýsa vantrausti á rík-
isstjórnina, þar sem Bodström
hafi í engu vikið frá stefnu henn-
ar.
Ummæli Bodströms um kafbát-
ana birtust i sænskum blöðum á
sunnudaginn, en hann hafði látið
þau orð falla á óformlegum hádeg-
isverðarfundi með sjö blaða-
mönnum, að sænsk stjórnvöld litu
svo á, að Sovétmenn fylgdu rökv-
ísri stefnu og ekki væri unnt að
finna neina rökvísa skýringu til að
styðja fullyrðingar um ólögmætar
siglingar kafbáta þeirra innan
sænskrar lögsögu.
Samkvæmt upplýsingum, sem
yfirstjórn hersins hefur áður sent
frá sér, er vitað um fjögur dæmi
þess að óþekktir kafbátar hafi
siglt með leynd innan sænskrar
lögsögu síðan 1982. Hefur mjög
verið vitnað til þeirra í gagnrýnj á
Bodström undanfarna daga.
GENGI
GJALDMIÐLA
Metverð
dollars í
Osló og Kaup-
mannahöfn
London, 6. febrúar. AP.
Bandaríkjadollar setti ný met
gagnvart nokkrum helztu gjald-
miðlum Evrópu, einkum vegna
væntinga um að bankavextir I
Bandaríkjunum haldist háir og
eftirspurnar innflytjenda banda-
rískrar framleiðsluvöru.
Jafnframt hjálpaði það til að
evrópskir seðlabankar gerðu
ekkert til þess að stemma stigu
við verðhækkun dollars með
gjaldeyrissölu. Sögðu franskir
sérfræðingar eftirspurn eftir
dollar það mikla að seðlabanka-
menn teldu íhlutun gagnslausa.
Loks telja menn horfur á efna-
hagsbata i Bandaríkjunum góð-
ar.
Setti dollar nýtt met gagnvart
franska frankanum og ítölsku
lírunni, var nærri meti gagnvart
brezka pundinu, og hann hefur
ekki verið verðmeiri gagnvart
vestur-þýzka markinu og hol-
lenzka gyllininu í 13 ár.
Þá hefur dollar aldrei verið
verðmeiri í Osló, þar sem fyrir
hann fengust 9,2850 krónur, og í
Kaupmannahöfn, þar sem 11,48
danskar krónur fengust fyrir
dollar.
í London fengust 1,1120 dalir
fyrir hvert eitt sterlingspund,
eða tíundahluta úr senti meira
en 28. janúar þegar dollar setti
met gagnvart pundinu. t gær
varð að greiða 1,1130 dollara
fyrir pundið.
Að öðru leyti var staða dollars
gagnvart helztu gjaldmiðlum
við lok viðskipta á fjármála-
mörkuðum í London þannig:
3,2270 vestur-þýzk mörk (f gær
3,2180), 2,73975 svissneskir
frankar (2,7352), 9,8545 franskir
frankar (9,8265), 3,6550 hollenzk
gyllini (3,6450), 1.983,45 ítalskar
lírur (1.978,50) og 1,3341 kan-
adadalir (1,3345).
Fyrir hverja gullúnsu fengust
f dag 303,25 dolíarar, en á sama
tíma í gær 301,80 dalir.
Ótrúlegustu óhöpp gera ekki boö á undan sér. Barn-
iö er öruggt í barnaöryggisstól. KL-Jeenay eru við-
urkenndir stólar og hafa hlotiö verölaun fyrir hönnun
og öryggi.
(fflmnaustkf
Siöumúla 7 9 Simi 82722