Morgunblaðið - 07.02.1985, Page 41

Morgunblaðið - 07.02.1985, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. FEBROAR 1985 41 Umboðsmenn verða að koma sér vel við forstjóra ÁTVR, til að koma vöru á markað segir Jón Baldvin Hanni- balsson um áfengissölu ,,ÉG ER á móti allri skinhelgi í þess- um málum og það á að leggja ÁTVR niður," sagði formaður Alþýðu- flokksins, Jón Baldvin Hannibals- son, í samtaii við Morgunblaðið. „Núverandi kerfi býður upp á und- arlega viðskiptahætti." I samtali við Helgarpóstinn í síðustu viku sagði Jón Baldvin, að mútustarfsemi væri í kringum Áfengisverslunina. „Við höfum umboðsmannakerfi, þar sem um- boðsmenn sjá aðeins um að reka smiðshöggið á verkið", sagði Jón Baldvin. nSá, sem vill koma nýrri vöru á markað, á auðsæilega allt sitt undir þeirri ríkiseinokun, sem verslar með vöruna. Það þýðir, að hann þarf að koma sér ákaflega vel við forstjórann, verslunar- stjórana, hótelhaldarana, bar- stjórana og alla þá staði þar sem þessi vara er til sölu, vegna þess að vöruna er bannað að auglýsa og honum er fyrirmunað að koma henni á framfæri eftir venjulegum leiðum. Hans hlutur er m.ö.o. sá, að hann kynnir vöruna fyrir ríkis- einokuninni og ef honum hlotnast náð fyrir henni, þá er varan flutt inn á vegum ÁTVR. Það er ÁTVR sem sér um alla framkvæmd þess- ara viðskipta, en hlutur umboðs- mannsins er sá, að þegar honum hefur tekist að koma vörunni á markað, sem honum er bannað með lögum að gera með venju- legum hætti, þá fær hann væntan- lega sendan tékka í pósti." Jón Baldvin sagðist hafa heyrt ótal sögur um það hvernig um- boðsmenn fara að því að kynna vöru sína fyrir ÁTVR. „Á meðan þessar sögur eru óstaðfestar, þá get ég ekki staðið við þær. En maður spyr sjálfan sig óneitan- lega hvernig eigi að selja vöru sem er bannað að auglýsa." Að áliti Jóns Baldvins á að leggjá ÁTVR niður og láta um- boðsmenn bera allan kostnað sjálfa af því að panta vöruna, flytja hana til landsins og selja. „Ríkið á að móta sér stefnu í þess- um málum, t.d. hvort tolla eigi sterk vín meira en létt, hvort fremur eigi að leggja áherslu á að beina neyslu manna að léttari vín- um o.s.frv. Stjórnmálamenn og valdhafar halda því fram að með sölu þessarar vöru sé verið að byrla mönnum eitur og því á ríkið allra síst að selja vöruna," sagði Jón Baldvin Hannibalsson að lok- Þing Norðurlandaráðs: Gistirýmið yfirfullt HÓTEL og gistihús í Reykjavík eni nú fullbókuð í byrjun marsmánaðar næst- komandi vegna þings Norðurlanda- ráðs, sem þá verður haldið í Reykjavík. Er talið að enn vanti gistirými til að mæta þeim mikla gestagangi sem búist er við á meðan þingið stendur yfir. Kjartan Lárusson, forstjóri Ferðaskrifstofu ríkisins, sem annast fyrirgreiðslu um gistingu þingfull- trúa, staðfesti í samtali við Morgun- blaðið, að svo til allt gistirými í Reykjavík væri upptekið þessa daga, en hann sagði að erfitt væri að gera sér nákvæma grein fyrir hvort, eða hversu mikið gistirými vantaði. „Það er nú oft svo, að gistirými fyllist í Reykjavík þegar stærri fundir og ráðstefnur eru haldnar, en þegar upp er staðið hefur þetta yfirleitt gengið heim og saman. I þessu sam- bandi ber ennfremur að geta þess, að lítið af gistiplássi í heimahúsum hef- ur komið inn sem varapláss, þannig að eftir er að kanna hversu mikið rými kemur þar til viðbótar," sagði Kjartan Lárusson. ENN A NORÐAN og HúsgagnahöUin áBíldshöiða er stútíuU ai norðanvömm. Góðum vömm á góðu verði, sem íjúka út jainharðan. Á BOÐSTÓLUM: Sport- og gallabuxur, úlpur, mittisstakkar, skyrtur, sokkar, margs konar barnaíatnaður og inníluttir skór. ENNFREMUR: Prjónajakkar, peysur, vettlingar, treílar, húíur og legghlííar. LÍKA: Mokkaíatnaður margs konar á góðu verði, herra- og dömujakkar, kápur ogírakkar ogmokkalúííur, húíur ogskór á börn ogíullorðna. ÞAR AÐ AUKI: Teppagœrur, trippahúðir og leður til heimasaums. EINNIG: Teppabútar, áklœði, gluggatjöld, buxnaeíni, kjólaeín og gullíalleg ullarteppi á kostakjörum— (k - OG AUÐVTTAÐ: Garn, meðal annars í stórhespum, loðband og lopi. Strœtisvagnaíerðir: Frá Hlemmtorgi: Leið 10 Frá Lœkjargötu: Leið 15 _ yim«ltuda?1W'\3 - 22 V/SA *VERKSME>JVSALA* SAMBANDSVERKSMBJANNA Á AKOSEYSI Gódan daginn! Gylmir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.