Morgunblaðið - 07.02.1985, Page 51
MORGUNBLADID, PIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1985
51
Mor|(unblaðið/Ólafur.
Frá stornfundi Verslunarfélags Austurlands hf.
Egilsstaðir:
Stofnfundur Verslunar-
félags Austurlands hf.
EgiLsNtöóum, 3. febrúar.
SÍÐASTLIÐINN fostudag var boð-
að til stofnfundar Verslunarfélags
Austurlands hf. í Veitingaskálan-
um við Lagarfljótsbrú. Fundinn
sátu um 30 manns víðs vegar af
Austurlandi og var þar samþykkt
að stofna hlutafélag er tæki við
rekstri samvinnufélagsins Verslun-
arfélag Austurlands.
Hlutafé hins nýja félags skal
vera 7 milljónir króna og lýkur
söfnun hlutafjár 1. mars næst-
komandi. Þar sem veruleg hluta-
fjárloforð hafa borist frá fyrir-
tækjum á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu var ákveðið að fresta
stofnfundi og boða til fram-
haldsstofnfundar í Reykjavík um
miðjan þennan mánuð. Gert er
ráð fyrir fimm manna stjórn í
hinu nýja félagi —og verða þrír
þeirra búsettir á Austurlandi en
tveir stjórnarmanna af Reykja-
víkursvæði. Fundurinn sam-
þykkti tillögu þess efnis að
Gunnar Hjaltason, Reyðarfirði,
Grétar Brynjólfsson, Skipalæk,
og Bragi Gunnlaugsson, Set-
bergi, sætu í stjórn félagsins að
hálfu heimamanna.
Að sögn framkvæmdastjóra,
Sigurðar Grétarssonar verður
samvinnufélaginu ekki slitið —
hlutafélagið mun hins vegar yfir-
taka eignir þess og skuldir. Sig-
urður kvaðst bjartsýnn á framtíð
Verslunarfélags Austurlands hf.
og ætti hlutafélagsstofnunin
Sigurður Grétarsson framkvæmda-
stjóri.
endanlega að tryggja eðlilega
samkeppni á sviði verslunar á
Héraði.
Helgi Gíslason, einn aðal-
hvatamanna stofnunar Verslun-
arfélags Austurlands svf. óskaði
hinu nýja félagi velfarnaðar og í
sama streng tóku þeir Bragi
Gunnlaugsson, bóndi Setbergi,
Valdimar Benediktsson verktaki
Egilsstöðum og Magnús Ólafsson
framkvæmdastjóri Hagkaupa í
Reykjavík.
VIÐ HÖFUM
TEKIÐ VIÐ
UMBOÐINU
<$$£> er heimsþekktur framleiðandi hvers kyns þungavinnuvéla. <“**>vélar hafa getið sér
gott orð fyrir frábæra hönnun, styrk, öryggi og hagkvæmni í rekstri. Við munum kosta
kapps um að veita viðskiptavinum okkar trausta og góða þjónustu i hvivetna.
Vél frá <°«> er þrautseigur vinnuþjarkur.
#4% JA
VEGHEFLAR HJÓLASKÓFLUR LYFTARAR
HJÓLAGRÖFUR VÉLBÖRUR HJÓLASKÓFLUR
BELTAGRÖFUR JS RAFMAGNSLYFTARAR BELTAGRÖFUR
HLAÐBÆR
SKEMMUVEGI 6 KÓPAVOGI, SÍMAR 75722 OG 40770
FALCON CREST
Frábærir
framhaldsmyndaþættir
2 nýir þættir koma
á hverjum fimmtudegi.
Fást á öllum helstu
myndbandaleigum landsins. ^ *
Dreifing Myndbönd hf.,
Skeifan 8, símar 686545 — 687310.