Morgunblaðið - 07.02.1985, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1985
63
Enski mjóíkurbikarinn:
Chelsea í
undanúrslit
Frá Bob Hennesty, fréttamanni Morgunblaösins á Englandi.
CHELSEA komst í undanúrslit
mjólkurbikarkeppninnar í knatt-
spyrnu í gærkvöldi er liðiö sigraði
Sheffield Wednesday 2:1 á
heimavelli sínum, Stamford
Bridge í London.
Þetta var þriðja viöureign liö-
anna, hinum tveimur lyktaöi meö
jafntefli.
Þaö var ekki fyrr en á næstsíö-
ustu mínútu leiksins aö Chelsea
tryggði sér sigur. Eftir hornspyrnu
Paul Canoville skallaöi einn
minnsti leikmaöur vallarins, Mick-
ey Thomas, knöttinn í netiö.
Sheffield Wednesday náöi for-
ystu á 11. mín. er Gary Shelton
skoraöi meö firnaföstu skoti.
Jónas til
starfa
FSÍ
hjá
FIMLEIKASAMBAND islands hef-
ur ráðið Jónas Tryggvason til
starfa á skrifstofu sínni. Fastur
skrifstofutími veröur á þriöjudög-
um, miðvikudögum og fimmtu-
dögum kl. 10.00—13.00, síminn er
83402.
Dagana 24.—27. janúar var
haldiö alþjóðlegt dómaranámskeiö
i Lillsved í Svíþjóö. 11 islendingar
sóttu þetta námskeiö og stóöust
þau öll prófiö.
Þau voru: Áslaug Óskarsdóttir,
Ásta isberg, Hrund Þorgeirsdóttir,
Margrét Bjarnadóttir, Rannveig
Guömundsdóttir, Svava Mathie-
sen, Gunnar Gunnarsson, Her-
mann isebarn, Ófeigur Geir-
mundsson og Rúnar Þorvaldsson.
Þar meö eiga islendingar 13 al-
þjóðlega dómara í fimleikum, áöur
höföu Jónas Tryggvason og Berg-
lind Pétursdóttir lokiö sama prófi.
(Fréttatilkynnlng Iré FSf)
David Speedie jafnaöi svo á 32.
mín. Leikmenn Sheffield Wedn-
esday beittu þá rangstööutaktík
sinni án árangurs. Pat Nevin fékk
boltann úti á velli. Allir varnarmenn
Wednesday þustu út á völl en Nev-
in sá viö þeim. Hann sendi knött-
inn yfir þá, tók síðan á rás sjálfur
og náöi knettinum aftur. Hann lék
á Hodge, markvörö Wednesday,
og sendi fyrir markið þar sem Dav-
id Speedie skallaöi auöveldlega í
netiö.
Leikurinn var mjög spennandi.
Bæöi lið lögöu ailt sem þau áttu i
viðureignina og hart var barist.
Canoville og Thomas fengu góö
marktækifæri í síöari hálfleiknum
áður en Thomas skoraöi sigur-
markið, þannig aö sigur Chelsea
veröur aö teljast sanngjarn.
Chelsea tapaöi á mánudag fyrir
Millwall í FA-bikarnum, þannig aö
úrslitin í gærkvöldi eru leik-
mönnum liösins mikil sárabót. Þeir
eiga nú góöa möguleika á aö kom-
ast til Wembley í úrslit mjólkurbik-
arsins. Chelsea mætir Sunderland
í undanúrslitunum.
„Ég hlakka mikiö til aö mæta
Sunderland. Ég er fæddur og upp-
alinn í Sunderland og hélt meö lið-
inu er ég var strákur," sagöi John
Neill, þjálfari Chelsea, eftir leikinn í
gærkvöldi. Hann þakkaöi Sheffield
Wednesday fyrir mikla baráttu og
sagöi alla þrjá leiki liöanna hafa
veriö mjög góöa.
Þess má geta aö áhorfendur á
Stamford Bridge í gærkvöldi voru
um 34.000 og á leikina þrjá hafa
komiö yfir 100.000 manns.
I hinum undanúrslitunum eigast
viö Ipswich og Norwich. Leikiö er
bæði heima og aö heiman í undan-
úrslitum keppninnar. Fyrri leikirnir
veröa miövikudaginn 6. mars og
þeir siöari viku seinna, miöviku-
daginn 13. mars. Úrslitin veröa svo
sunnudaginn 24. mars og veröur
sá leikur sýndur í beinni útsend-
ingu í íslenska sjónvarpinu.
Vilja stofna Evrópusamband
ÞRÍR fulltrúar Handknattieíks-
sambands íslands sátu þing
Handknattleikssambands Vest-
ur-Evrópuþjóða, þair Jón Hjalta-
lín Magnússon, Rósmundur
Jónsson og Jón Erlendsson.
Aö sögn Jóns Hjaltalíns Magn-
ússonar voru tvö mál aöallega á
dagskrá þingsins. Annars vegar
stofnun Evrópusambands — og
kæmu þá austantjaldslöndin inn í
þaö líka og yröi þannig um mjög
sterkt Evrópusamband aö ræöa
sem myndaö gæti sterka heild.
„Það hefur ekki veriö til sterkt Evr-
ópusamband í handknattleiknum,"
sagöi Jón.
Síöan var rætt um aö skilja aö
heimsmeistaramót og Ólympíu-
leika og hafa forkeppni fyrir þessi
stórmót — spilað yröi bæði heima
og aö heiman og þannig fengjust
mun fleiri landsleikir á heimavelli
— þetta þýddi aö komiö yröi á
einhvers konar Evrópukeppni
iandsliöa.
• Bandaríska atúlkan Diann Roffe í stóravigabrautinni í Saint Caterína á ttalíu í gær, þar eem hún vann
AP/Sénomynd
Óþekkt bandarísk stúlka hlaut gull í gær:
„T rúði varla að
ég hefði sigrað"
sagði Diann Roffe eftir sigur í stórsviginu
DIANN Rofte frá Bandaríkjunum,
éður óþekkt skíðakona, vann
mjög óvænt sigur í stórsvigi
kvenna á heimsmeistaramótinu í
Bormio í gær.
Diann Roffe átti frábæra seinni
ferö í stórsviginu og nægöi þaö
henni til sigurs og jafnframt færði
hún Bandaríkjunum fyrstu gull-
verðlaun þeirra á heimsmeistara-
mótinu til þessa.
Roffe, sem er aöeins 17 ára,
varö i fimmta sæti eftir fyrri ferö
stórsvigsins, fékk tímann 1:09,18
mín., náöi síöan langbesta tíman-
um í síöari feröinni og sigraöi, fékk
samanlagöan tíma 2:18,53 mín.
Elisabeth Kirchler frá Austurríki
vann silfurverölaunin, fékk sam-
anlagöan tíma 2:19,13. Önnur
bandarísk skíöakona, Eva Twar-
Sævar með
Val í sumar?
FORRÁDAMENN enska 1. deild-
arliðsins Norwich hafa enn ekki
haft samband við Sævar Jónsson
knattspyrnumann um hugsanleg-
an atvinnusamning hans við liöiö.
Ken Brown stjóri Norwich hefur
ætlaö aö hringja i Sævar undan-
farna daga en ekki gert þaö. „Ég
skil ekki svona vinnubrögö. Þeir
halda manni volgum fyrir ekki neitt
• Sævar í Valsbúningnum.
Klæðist hann honum aftur i
sumar?
og fyrst þeir eru ekki búnir aö hafa
samband ennþá er ég nokkurn
veginn búinn aö afskrifa þetta,"
sagöi Sævar i samtali viö blm. Mbl.
i gærkvöldi.
Hann sagöist aö öllu óbreyttu
leika meö Valsmönnum í 1. deild-
inni hér heima næsta sumar.
Þaö eru nú um tveir mánuöir
síðan Norwich sýndi Sævari fyrst
áhuga er hann lék enn meö Cercle
Brúgge í Belgíu. „Þeir hlytu aö vera
búnir aö hafa samband ef þeir
heföu einhvern áhuga," sagöi
Sævar í gær.
dokens, sem haföi besta tímann
eftir fyrri ferö, varö þriöja á tíman-
um 2:19,21. Debbie Armstrong
ólympíumeistari i stórsvigi frá
Bandaríkjunum varö i fjóröa sæti
og átti því bandaríska liöiö þrjár af
fjórum fyrstu i stórsvigskeppninni.
Roffe, sem er í B-landsliöi
Bandarikjanna, átti áöur bestan
árangur sem var áttunda sæti i
stórsvigi í heimsbikarkeppninni i
Lake Placid á síöasta ári.
Marina Kiehl frá V-Þýskalandi,
sem var þriöja eftir fyrri ferö, geröi
mistök í þeirri seinni og endaöi i
fimmta sæti. „Ég er svo ánægö og
trúi varla aö þetta hafi gerst í
raun," sagöi Roffe eftir aö hafa
unniö stórsvigiö í gær.
„Ég er mjög ánægö meö annað
sætiö í dag," sagöi Kirchler.
„I fyrri feröinni gat ég varla beö-
iö eftir aö ég færi af staö. i þeirri
seinni var ég ekki eins ákveöin og
ætlaöi aö reyna aö halda fengnum
hlut," sagöi Twardokens eftir
keppnina.
Fjóröa bandaríska stúlkan,
j»ot tumM:t^iö
iiíTjniira
Tamara McKinney, féll í neöri hluta
brautarinnar í fyrri ferö eftir aö
hafa haft næstbesta millitímann.
Þetta var hálf mislukkaöur dag-
ur fyrir svissneska liöiö sem hefur
staöiö sig svo vel til þessa á mót-
inu. Maria Walliser varö best
þeirra og hafnaöi i áttunda sæti,
næstum tveimur sek. á eftir Roffe.
Erika Hess sem vann alpatvi-
keppnina á mánudag varö aö láta
sér lynda ellefta sætiö og var 2,26
sek. á eftir sigurvegaranum. Vreni
Schneider varö í 12. sæti og Mich-
ela Figini, sem vann bruniö á
sunnudag, endaöi í 15. sæti og var
rúmlega 3 sek. á eftir Roffe.
Urslit í stórsviginu í gær uröu
þessi:
1. Diann Roffe Bandaríkjunum
2:18.53(1:09,18—1:09.35)
2. Elisabeth Kirchler Austurríki
2:19,13(1:09.01 — 1:10,12)
3. Eva Twardokens Bandaríkjunum
2:19,21 (1:08.91 — 1:10,30)
4. Debbie Armstrong Bandaríkjunum
2:19.26(1:09,11 — 1:10.15)
5. Marina Kiel V-Þyskalandi
2:19.60(1:09.44—1:10.58)
6. Traudl Haecher V-Þýskalandi
2:20,14 (1:09.02—1:10,58)
7. Maria Epple V-Þyskalandi
2:20,34 (1:09.49—1:10.70)
8. Maria Walliser Sviss
2:20,51(1:10,19—1:10,32)
9. Blanca Fernandez-Ochoa Spáni
2:20,59(1:10,19—1:10,40)
10. Liisa Savijarvi Kanada
2:20,67(1:09.51 — 1:11,16)
Víkingur
Ólafsvík
óskar eftir aö ráða góöan knattspyrnuþjálfara fyrir
meistaraflokk félagsins næsta keppnistímabil.
Upplýsingar eftir kl. 10 á kvöldin í símum 93-6106
Atli Alexandersson og 93-6198 Helgi Kristjánsson.