Morgunblaðið - 29.03.1985, Síða 15
MORGUNBLADIÐ, FÖSTUDAGUR 29. MARZ 1985
15
Vilhjálmur H. Vilhjálmsdóttir með barnabörnin, þær önnu
Dröfn og Margréti Aðaiheiði Hauksdætur.
Laufey Tómasdóttir og Björgvin Halldórsson.
Bára Þórarinadóttir.
Ragnhildur Péturadóttir og sonurinn
Þorvaldur Þór Þorvaldsson.
Þau Margrét Einarsdóttir og
Bjarni Bjarnason segjast hafa
komið á flesta bókamarkaði á und-
anförnum árum. „Við komum aðal-
lega til að athuga hvort við finnum
ekki eitthvað ódýrt, sem vekur
áhuga. Við erum bæði í námi og
vinnu með því, en lesum þó alltaf
eitthvað með skólanum. Sjónvarp
Bjarni Bjarnason og Margrét Ein-
arsdóttir.
og myndbönd hafa ekki nein áhrif
á lesturinn, því hvorugt er til á
heimilinu," segir Bjarni.
Kolbrún Guðmundsdóttir er
komin með Ingu Kristfnu Kjart-
ansdóttur á bókamarkaðinn. Lffið f
kringum Ingu fer að vfsu framhjá
henni þar sem hún steinsefur f
fangi Kolbrúnar. „Ég kem til að
skoða hvað er á boðstólum og hef
stundum farið á bókamarkað áður.
Lestrarvenjur mínar hafa ekkert
breyst, þrátt fyrir sjónvarp og
myndbönd les ég alltaf jafn mikið,
mest ástarsögur en minnst ljóð.“
„Við höfum sótt bókamarkaði að
undanförnu," segja Laufey Tóm-
asdóttir og Björgvin Halldórsson,
þegar þau eru spurð hvort þau hafi
áður komið á bókamarkað. „Ég
sækist helst eftir ástarsögum, og
þá ekkert sfður þeim sem eru
þýddar, þær eru margar hverjar
mjög góðar, en Björgvin er hrifn-
ari af ævisögum. Við horfum ekki
á sjónvarp nema okkur lfki það
sem er í því, hlustum meira á út-
varp. Bækur kaupum við annars
ekki nema þá helst fyrir jólin, en
hér er hægt að gera góð kaup og þá
sérstaklega i barna- og unglinga-
bókum til að gefa,“ segir Laufey að
lokum.
num
blóma- og gjafavöruverslun
að Laugavegi 62.
Við sérhæfum okkur í frábærum
blómaskreytingum við öll tækifæri.
Auk þess höfum við mikið úrval af
þýskum gjafavörum á mjög góðu verði
Verið velkomin. M
STRAIÐ
Blóma- og gjafavöruverslun.
Laugavegi 62. Sími 16650.