Morgunblaðið - 29.03.1985, Page 21
MORGUNBLADID, FOSTUDAGUR 29. MARZ 1985
21
Skólabfllmn dreginn upp úr uppistöóulóninu. 60 afrfkanskir unglingar voru í bflnum, þegar hann steyptist í
lónið. 38 lík hafa fundist, en fjögur ungmennanna létust i sjúkrahúsi í nótt.
Slysið í Jóhannesarborg:
Dánartalan komin upp í 42
Jóhunemrborg, SuAur-Arríku, 28. mara. AP.
Dánartala unglinganna, sem voru með skólabílnum er
steyptist ofan í uppistöðulón í útborg Jóhannesar-
borgar í gsr, miðvikudag, er komin upp í 42, en fjögur
ungmennanna létust í sjúkrahúsi í nótt, að sögn yfir-
valda. Aðeins sjö unglinganna, sem voru á aldrinum
13 til 17 ira, sluppu ómeiddir.
Þá sagði lögreglan, að fimm manns hefðu farist
í bílslysi í morgun, er farþegabíll fór fram af upp-
hlöðnum vegarkanti nálægt Pietermaritzburg í
Natal-héraði.
Orsök slyssins á miðvikudag er enn ókunn. Sum-
ir töldu, að hjólbarði hefði sprungið er bíllinn ók
meðfram lóninu, en lögreglan kvað allt hafa verið
heilt undir bilnum er hann var dreginn upp úr
vatninu.
Vegfarandi, sem átti leið fram hjá slysstað,
stakk sér til sunds og bjargaði alls 15 börnum, þar
af mörgum illa slösuðum.
Er slysið vildi til voru unglingarnir á leið úr
skóla til heimila sinna í Rossmore, í vesturhluta
Jóhannesarborgar.
„Flestar stelpurnar urðu frávita af hræðslu. Og
það fór allt i handaskolum, af því að allir voru að
reyna að komast út úr sökkvandi bílnum," sagði
Marcelle Wilsnach, 14 ára gömul. „Ég var heppin,
af því að ég er svo lítil, ég komst út um glugga.
Margir komust hins vegar ekki út.“
Útför unglinganna 42 fer fram á mánudag. For-
eldrarnir halda með sér fund til þess að sjá um
undirbúning.
Flótti sovésks sendiráðsmanns:
Rætt um hlut
Bandaríkjanna
Nýj« Delhí, 28. nure. AP. ^
ÞINGSKIPUD nefnd er að leggja síðustu hönd i skýrslu sem fjallar um mil
sovéska sendiriðsmannsins sem flúði fri Indlandi til Bandaríkjanna með
aðstoð sendiriðs síðarnefnda landsins i dögunum. Fjallar nefndin um það
hvort og með hvaða hætti Bandaríkin hafi farið grófiega út fyrir starfssvið sitt
með því að aðstoða Sovétmanninn Igor Gezha.
Gezha hvarf eftir að hafa farið hæli sem pólitískur flóttamaður og
út að skokka i lystigarði i Nýju
Delhí og er leit bar ekki árangur,
bentu Sovétmenn indverskum yfir-
völdum á að ræða málið við banda-
ríska sendiráðið. Það staðfesti að
Gezha hefði beðið um og fengið
hann væri þegar kominn til Banda-
ríkjanna. Hafa stjórnvöld á Ind-
landi lýst yfir áhuga sínum að vita
með hvaða hætti Gezha komst
leynilega úr landi.
Víetnamar skjóta
á Thailendinga
Araaimpratbet, ThfliUndi. 28. mara. AP.
VÍETNAMSKIR hermenn skutu úr
fallbyssum i stöðvar kambódískra
stjórnarandstæðinga í dag og einnig
öðru hvoru i varðstöðvar thailenskra
landamæravarða með þeim afleiðing-
um að 10 thailenskir hermenn særð-
ust.
Skothríð Víetnama var þó eink-
um beint gegn skæruliða- og flótta-
mannabúðunum N’Bok þar sem
khmerar hafa aðsetur. Herma
fregnir að þeir hafi flúið undan
skothríðinni, einnig fjöldi flótta-
manna og um 2000 thailenskir
þorpsbúar úr landamæraþorpum
sem óttuðust að bardagarnir næðu
til þeirra.
GENGI GJALDMIÐLA
Loadon, 28. marz. AP.
Bandaríkjadollar lækkaði enn I
dag gagnvart mörgum gjaldmiðlum
heims, en hækkaði þó gagnvart
enska pundinu og kanadíska doll-
arnum. Talið er, að vaxtalækkun í
Bretlandi hafi leitt til þess, að marg-
ir fjirfestingaraðilar hafi skipt
miklu fjarmagni í vestur-þýzk mörk
eða aðra gjaldmiðla í Vestur-Evrópu.
Gerðist þetta, eftir að flestir brezkir
bankar lækkuðu vexti sína um V4%
úr 13,5% í 13%ídag.
Gengi pundsins siðdegis í dag
var þannig, að fyrir það fengust
1,2290 dollarar (1,2310), en gengi
dollarans var að öðru leyti þannig,
að fyrir einn dollar fengust 3,1250
vestur-þýzk mörk (3,1500), 2,6525
svissneskir frankar (2,6635),
9,5545 franskir frankar (9,6050),
3,5340 hollenzk gyllini (3,5580),
2.008,00 italskar lírur (2.008,50),
1,3715 kanadiskir dollarar (1,3655)
og 253,30 jen (254,00).
LADA 1200
LADA SAFIR
LADALUX
LADA SPORT 4X4
LAUGARDAG
BIFREIÐAR OG LANDBUNAÐARVELAR HF
SUÐURLANDSBRAUT 14 S.: 38600 S. SOLUDEILD: 31236.