Morgunblaðið - 29.03.1985, Qupperneq 27
Auglýsing Mjólkurdagsnefndar:
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. MARZ 1985
27
Ráðlögð mjólkurneysla
langt umfram það
sem hollt getur talist
Stuðlið að aukinni
mannúð 03 friði
- gefið æskunni
fermingarqjöf sem
kemur að liði...
MINNISPENINGUR
RAUÐA KROSS ÍSLANDS
— segir í niðurstöðum Manneldisráðs
„ÞAÐ verða auðvitað gerðar viðeig-
andi breytingar á þessum auglýsing-
um enda var það aldrei ætlunin af
hálfu Mjólkurdagsnefndar að vera
með fullyrðingar sem ekki stand-
ast,“ sagði Óskar H. Gunnarsson,
formaður Mjólkurdagsnefndar, er
blm. Morgunblaðsins innti hann
álits á niðurstöðum Manneldisráðs
um ólögmæti áðurnefndra auglýs-
inga. „Við birtum þetta í góðri trú
þar sem textarnir höfðu verið lesnir
yfir af sérfræðingum. En við munum
að sjálfsögðu endurskoða þau atriði
sem gerðar hafa verið athugasemdir
við,“ sagði Óskar.
í niðurstöðum Manneldisráðs er
talið ótvírætt, að auglýsingarnar
brjóti í bága við 1. tölulið 7. grein-
ar reglugerðar númer 250 frá 1976,
„þar sem þær blekkja um sam-
setningu, eðli og áhrif vörunnar",
eins og þar segir. Samkvæmt
niðurstöðum Manneldisráðs eru
helstu rangfærslur í auglýsing-
unni þessar:
„Birt er tafla yfir ráðlagða
dagskamta (RDS) af kalki, þar
sem gefnar eru rangar og of háar
tölur bæði fyrir eldri konur og
mjólkandi mæður. í auglýsingunni
er ráðlagður dagskamtur jafn-
framt talinn jafngilda lágmarks-
þörf, en í rauninni er RDS sam-
kvæmt skilgreiningu verulega
fyrir ofan lágmarksþörf alls þorra
heilbrigðra einstaklinga. í sam-
ræmi fyrir þessa ýktu þörf fyrir
kalk er ráðlögð mjólkurneysla
langt umfram það, sem hollt getur
talist, einkum fyrir þessa tvo hópa
kvenna. í auglýsingunum er því
haldið fram, að i mjólk sé D víta-
mín í hæfilegu magni og þar af
leiðandi nýtist kalk mjólkurinnar
betur en úr öðrum fæðutegundum.
{ rauninni er afar lítið D vítamín i
mjólk. Þvi er haldið fram, að al-
varlegir hrörnunarsjúkdómar
hljótist af minni mjólkurneyslu og
sérstaklega að hægt sé að koma i
veg fyrir beinþynningu á efri ár-
um með því að drekka næga mjólk
alla ævi. Að dómi sérfræðinga er
beinþynning hrörnunarsjúkdóm-
ur, sem ekki er hægt að rekja
beinlínis til kalkskorts, enda þótt
nægilega kalkrík fæða sé tvímæla-
laust mikilvæg fyrir heilbrigði
beina og tanna. Rannsóknir hafa
þó enn ekki sýnt að mikil mjólk-
urneysla geti komið í veg fyrir
beinþynningu."
í tilkynningu frá Hollustuvernd
ríkisins vegna þessa máls er vitn-
að í áðurnefnda reglugerðargrein
þar sem segir m.a.: „Matvæli,
neyslu- og nauðsynjavörur má
ekki hafa á boðstólnum eða dreifa
manna á meðal á nokkurn þann
hátt, sem fallinn er til að blekkja
kaupanda eða móttakanda á upp-
runa þeirra, tegund, samsetningu,
eðli, áhrifum, magni, verðgildi,
eða öðru þess háttar. Þegar dæmt
er um þessi atriði, skal sérstak-
Morgunblaðið/Júlíus
Þessi mynd var tekin er Fulbrightstofnunin fhitti skrifstofu sína í stærra og
rúmbetra húsnæði í Garðastræti 16. Á myndinni eru Þorbjörn Karlsson,
formaður Fulbrightnefndarinnar, Wincie Jóhannsdóttir, ráðgjafi og Robert
Berman, framkvæmdastjóri.
Fulbrightstofnunin
flytur í nýtt húsnæði
Fulbrightstofnunin hefur flutt
skrifstofu sína í Garðastræti 16
Reykjavík og er skrifstofan opin alla
virka daga frá kl. 12 til kl. 16 en til
kl. 19 á fimmtudögum.
Starfsemi Fulbrightstofnunar-
innar er tvíþætt. í fyrsta lagi veit-
ir hún fslenskunámsmönnum, há-
skólakennurum og öðrum, styrki
til dvalar hér á landi og I öðru lagi
hefur stofnunin yfir að ráða safni
upplýsinga varðandi nám og há-
skóla í Bandaríkjunum. Hjá stofn-
uninni er einnig veitt ráðgjöf
varðandi nám í Bandaríkjunum.
18 árekstrar í
morgunsólinni
TÍU bifreiðaárekstrar urðu í
Reykjavík í gærmorgun og átta
aðrir höfðu verið tilkynntir um
miðjan dag, skv. upplýsingum
Reykjavíkurlögreglunnar. Eru
þetta heldur fleiri árekstrar, en
„eðlilegt" er talið á einum morgni
á þessum árstíma. Er helst talið
að sterk morgunsólin hafi blindað
ökumenn því hálka var ekki sér-
staklega mikil.
lega tekið tillit til þess nafns, sem
vörunni er gefið og þeirra upplýs-
inga, sem um hana eru birtar í
auglýsingum ... “
I tilkynningu Hollustuverndar
segir síðan: „Öllum er ljóst að
neysla á mjólk og mjólkurvörum
er mikilvægur þáttur í mataræði
okkar, þó svo að ýmsar fullyrð-
ingar í áðurgreindum auglýsing-
um séu alrangar, t.d. um að mjólk
sé D vítamín auðug." í niðurlagi
tilkynningarinnar er brýnt fyrir
þeim, sem senda frá sér upplýs-
ingar til almennings um matvæli
og aðrar neysluvörur í formi aug-
lýsinga eða á annan hátt, að virða
ákvæði reglugerðarinnar.
A/J-:: rrií'rr“i i
iFtKlHESiífe / i i 1
, . f PhH-tV
l1-fJcriTlr liij
\r^_p
Mvof ooningur or tötuoonuf á rOndmo
Með mannúð til friðar
Minnispeningur Rauða kross íslands
fæst í bönkum, hjá deildum Rauða krossins
og hjá myntsölum.
.. VEISLUMATUR A
VORUMARKAÐSVERÐI
Nautakjötiö
okkar er nýtt, ófrosiö og mátulega
hangiö
Þaö gerir gæfumuninn ...
Svínakjöt
af nýslátruöu
Lambakjöt —
mátulega hangið
Kanínukjöt
af nýslátruöu
Nýslátraöir kalkúnar
Kjúklingar Endur | Gæsir
Nýr lax 1 Graflax | Reyktur lax
Nýveiddur silungur Nýveiddur áll | Reyktur áll |
Humar | Hörpudiskur | Rækjur
Ostapinnar |
Ostakúlur
Ostabakkar
Páskaegg
Vdrumarkaðurinn ht.
Ármúla 1A og Eiöistorai 11.
S:686111 S: 6222C
Auðvitað er alltaff gerð
athugun á fæði.
Við undirstrikum ódýrt verð
og æðísgengin gæði.