Morgunblaðið - 29.03.1985, Page 47

Morgunblaðið - 29.03.1985, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. MARZ 1985 47 MofguntHaðlö/Júlíus • ívar Webster lék mfög wi I lok Wkakw gegn KR og akoraði þá 8 elig al 13 9em Haukar skomöu. Reykiavíkurmótið í knattspymu: KR og ÍR gerðu jafntefli FYRSTI leikurinn í Reykjavíkur- mótinu í knattspyrnu fór fram í gærkvöldi ó gervigrasvellinum ( Laugardal. KR og IR gerðu jafn- tefli í leiknum 1—1. Bæöi mörkin voru skoruð í fyrri hálfleiknum. Jón G. Bjarnason skoraöi mark KR um miðjan fyrri hálfleik en Bragi Björnsson jafnaöi fyrir iR úr vitaspyrnu. Margt gott sást til leikmanna beggja liöa í þessum leik sem fram fór viö erfiö- ar aöstæöur, mikinn kulda og há- vaöa rok. Þaö má segja aö ÍR- ingar fara virkilega vel af staö ( mótinu en þetta er í fyrsta sinn sem þeir taka þátt í Reykjavíkur- mótinu í knattspyrnu í meistara- flokki karla. „Vonbrigðí að tapa“ — sagöi Birgir Mikaelsson KR — Það voru mér mikil von- brigði að tapa þessum leik. Við vorum betri aöilinn í leiknum og óttum aö sigra. En það sem réði úrslitum að svona fór var að okkur vantar meiri leikreynslu og svo meiri hæð. Það var erfitt aö róða við hann ívar Webster í lok- in. Þeir hafa unniö okkur í síöustu fjórum leikjum en allir hafa þeir verið jafnir og þessi máske jafn- astur og bestur af okkar hálfu. En framtíöin er björt hjá okkur KR-ingum og viö Iftum fram á veginn. Þetta hlýtur bara að koma hjó okkur nsest, sagði Birg- ir Mikaelsson sem átti stórgóðan leik með liöi KR gegn Haukum og er einn af framtföar leikmönnum f góðu liði KR. — ÞR „Þetta var stórkostlegur sigur fyrir okkur alla“ — Ég álít aö við höfum verið betra liðiö f leiknum. Við lékum þó undir getu framan af en tókst að né okkur aftur á strik er líða tók é leikinn. Þetta var stórkost- legur sigur fyrir okkur alla, sagöi þjálfari Hauka, Einar Bollason, eftir að hann haðfi leitt lið sitt Hauka til sigurs í bikarkeppni KKÍ í gærkvöldi. Einar var í sjöunda himni eins og allir leikmenn hans og fangaði ókaft að leikslokum. Hann var svo hás og rámur f röddinni eftir að hafa hrópað á liðsmenn sína að fyrst á eftir átti hann erfitt um mél. En þaö lagaö- ist fljótt og hann sagði viö leik- menn sína í búningsklefanum eft- ir leikinn: „Viö skulum njóta sig- ursins drengir, þaö er svo sjaldan sem svona sigurstundir renna upp.“ Haukar voru nú að vinna sinn fyrsta meiri háttar titil í körfuboltanum og voru vel aö honum komnir. — Ég vissi aö þessi leikur yröi erfiöur, KR-ingar rísa ávallt hæst þegar mest ríður á. Og þaö geröu þeir í kvöld. Þelr léku mjög vel og drengilega og áttu góöan leik. Gamla góöa KR stendur alltaf fyrir sínu, sagöi Einar, sem eins og allir vita vann marga titla meö meist- araflokki KR í körfuknattlelk. Einar sagöi aö síöustu leikir heföu veriö mjög erfiðir og leikmenn sínir væru örþreyttir. „Þeir voru svo lúnir á síöustu æfingu hjá mér aö þaö var eins og óg væri meö gamla menn í hressingarleikfimi. Varla furöa, viö höfum þurft aö leika átta erfiða leiki á örfáum dögum. Of mikiö álag og streita, sagöi Einar aö lok- um. — ÞR Nú er komið aó aðaMnningi ársins Verndaðri þjónustuíbúð með garðhýsi að Boða- hlein 15. Garðabæ, að verðmæti 25 milljónir króna dreginn út í 12. flokki 5- apríl. Húsið, sem stendur meðal smáhýsanna aftan við Hrafnistu í Hafnarfirði, verður til sýnis nú um helgina, laugardag og sunnudag, frá kl. 2 til 6. Nokkrir lausir miðar til sölu, söluverð miða 1.200 krónur. Aðrir vinningar: Vinningur til íbúðarkaupa á 500 þúsund krónur. Níu vinningar til bílakaupa á 100 þúsund krónur og 40 utanlandsferðir á 55 þúsund krónur auk margra húsbúnaðarvinninga. Nú má enginn gleyma að endurnýja! < lae Happdrættí 84-85

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.