Morgunblaðið - 14.04.1985, Blaðsíða 15
MORGUNBLADID, SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1985
B 15
CHINA GATE
Erlendar bækur
Jóhanna Kristjónsdóttir
William Arnold: China Gate
Útg. Ballantine Books 1983.
William Arnold mun hafa
stundað nám á Taiwan, og sjálf-
sagt hefur búseta hans þar hjálp-
að honum drjúgt áleiðis í að skrifa
þessa stóru og miklu bók þar sem
sögusviðið er að mestum hluta
Taiwan. Hann virðist skynja Asíu
og Asíumenn og sú stemmning
sem ríkir i bókinni er sannfærandi
í betra lagi.
Söguþráðurinn er nokkuð flók-
inn, margar persónur koma við
sögu og atburðarásinn all æðisleg.
í stuttu máli má segja að hér segi
frá Bryan White bandarískum að
ætterni sem fæddist á meginlandi
Kína skömmu fyrir stríðslok, en
flýr þaðan með föður sínum, þegar
kommúnistar taka völdin. Því er
spáð fyrir honum ungum, að hann
eigi eftir að verða sá sem muni
ríkja yfir Kína, þótt síðar verði.
Þessu til undirbúnings og til þess
að ná völdum og áhrifum er sett á
laggirnar Omega Chi, hópur ungl-
inga undir forystu Bryans, sem
nær tökum á svartamarkaði Tai-
wan og verður tengiliður Taiwans
við Bandaríkin. En það eru fleiri
hópar á Taipei, sem Omega Chi
verður stöðugt að berjast við með
hinum afdrifaríkustu afleiðingum.
Inn í söguna fléttast Víet-
namstríðið, friðarhreyfingar í
Bandaríkjunum og stefna Banda-
rikjamanna varðandi Taiwan,
þegar fram líða stundir — og
horft er á þetta frá sjónarmiði
Asíumannsins. Þegar Omega Chi
fer að hafa afskipti af eiturlyfja-
markaðnum, þegar Bandaríkja-
menn fara að breyta stefnu sinni
gagnvart Kína og Taiwan virðist
vera skilin eftir úti í kuldanum.
Þetta er mikil saga um ævin-
týri, vináttu, glæpastarfsemi svik-
semi, pólitíska klæki, úrkynjun —
hvaðeina. Hún er nokkuð erfið af-
lestrar og ekki alltaf hægt að vera
sáttur við þær ákvarðanir sem
Bryan White tekur. En sagan er
mögnuð og þó að framtíðarspáin
rætist á annan máta en lesandi
hyggur í upphafi eru sögulokin
eiginlega ekki svo galin — og
koma reyndar nokkuð vel heim og
saman við einmitt það sem er að
gerast í Kína nú.
Og Bryan er alla bókina út í
gegn sjálfum sér samkvæmur svo
fremi hugsjónamenn geti á annað
borð verið það. Þrátt fyrir niður-
lægingu, ósigra og svik, víkur
hann ekki frá því markmiði sem
hann trúir statt og stöðugt, að
hann muni ná. Og gerir líklega.
SKm® m
S Áskriftarsímimer 83033 oo •/
FR£M
TölvuskolT
COBOLl
FORRITUNARNÁMSKEIÐ
ÞÁTTT AKENDUR:
MARKMIÐ:
LENGD:
KENNSLUTILHÖGUN:
INNTÖKUSKILYRÐI:
TÍMI:
FJ. ÞÁTTTAKENDA:
Námskeiöið er ætlaö öllum þeim er vilja læra undirstöðuatriði
forritunarmálsins COBOL.
Aö veita þátttakendum haldgóöa þekkingu I forritunarmálinu
COBOL. Fariö er I allar helstu skipanir forritunarmálsins og frávik á
milli hinna mismunandi véla. Einnig er farið I hin ýmsu forritunar-
vandamál er upp koma, lausnir á þeim, hjálpargögn o.fl. Fariö er
m.a. I eftirfarandi atriöi:
* Uppbygging og skipulagning forrita.
* Kerfisskipanir, forritunarskipanir.
* Þýðendur og ritþórar.
* Meðhöndlun skráa.
* Meðhöndlun geymslumiða og prentara.
Kerfisfræði.
* Skipulagning tölvuverkefna.
18 kennslustundir.
Námskeiðið er I formi fyrirlestra og dæma, ásamt raunverulegum
verkefnum er þátttakendur þurfa að leysa sjálfstætt meö aöstoö
tölvu.
AÖ þátttakendur þekki áöur eitthvað til tölva, tölvuvinnslu og
forritunar.
22/4, 24/4, 26/4, 30/4, 2/5, 4/5 klukkan 20.45—23.00.
Hámark 10.
Innritun og nánari upplýsingar fást I slma 39566 frá klukkan 10—12 og 13—18.
„Hverjir kaupa
allar þessar
IBM PC einkatölvur?“