Morgunblaðið - 14.04.1985, Page 25
B 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1986
Þessi mynd var tekin á síðasta aðalfundi Alezander von Humbolt-félagsins og eru á henni nokkrir fyrrverandi og
núverandi frammámenn félagsins. — Talið frá vinstri: Leó Kristjánsson, Þorleifur Kinarsson, Sigurður Sigurðsson,
Jóhannes Zoega, Sigurður Steinþórsson, Oddur Guðjónsson, Frosti Sigurjónsson, Úlfar Þórðarson og Geir Tómasson.
Þess skal getið að Úlfar Þórðarson er núverandi formaður félagsins sem á aðalfundinum tók við af Frosta
Sigurjónssyni laekni. Fyrsti formaður félagsins er einnig á þessari mynd, en það er dr. Oddur Guðjónsson fyrrum
sendiherra.
Alexander Humbolt-félagið 5 ára
FYRIR rúmlega 5 árum var stofn-
að hér í Reykjavík Alexander von
Humbolt-félagið. Félagið starfar í
nánum tengslum við hina heims-
kunnu vestur-þýsku vísindastofn-
un í Bonn og er kennd við vís-
indamanninn Alexander von
Humbolt. Hefur stofnunin á sín-
um snærum mjög öflugan vísinda-
sjóð, sem heimskunnur er fyrir
fjárframlög til vísindaiðkana í
formi styrkja til vísindamanna.
Eins hefur þessi stofnun gefið
vísindatæki og styrkt rannsókna-
efni út um allan heim. Nema fjár-
veitingarnar í þessu skyni miklum
fjárhæðum, svo milljörðum skiptir
frá upphafí.
Hér á landi hafa einstaklingar
og deildir í Háskóla Islands notið
fjárframlaga til vísindastarfa og
skipta þessar fjárveitingar mjög
háum fjárupphæðum. Þetta kann
að liggja í því að tengsl íslands og
hérlendra vísindamanna við
Humbolt-stofnunina ná miklu
lengra aftur en þessi rúmlega 5 ár
sem Alexander Humbolt-félagið
hefur starfað hér. Eru áratugir
síðan stofnunin veitti fyrstu
styrki hingað til lands til ísl. vís-
indamanna og má þar til nefna dr.
Kristin Guðmundsson, síðar utan-
ríkisráðherra, og dr. Sigurð Sig-
urðsson lækni, fyrrverandi land-
lækni. Þá veitti stofnunin styrk til
jarðfræðistofnunarinnar og til
Raunvísindastofnunar Háskólans.
Fyrir nokkru hlaut skurðdeild
Borgarspítalans bókagjafir á sviði
bókmennta og vísinda. Hefur
stofnunin gefið til fjölmargra
stofnana hér.
Fiskverkendur
— útgeröarmenn
Útvegum meö stuttum fyrirvara sjálfvirk notuð og
uppgerö „Jackstone" frystitæki.
Mjög hagstætt verö.
Nánari upplýsingar hjá okkur.
Sjávarvörur hf.,
Bergþórugötu 21,
Símar 26204 - 26280.
Fljótandi gólfefni
Húseigendur — Arkitektar — Byggingameistarar
Verkfræöingar — Múrarameistarar
1. Beba gólfílagningarefni sem stenst allar gæöakröfur sem kraf-
ist er í íbúöarhúsum og öörum mannvirkjum.
2. Meö þessu efni þurfa múrarar ekki aö bogra viö aö strauja
gólfin eöa aö skríöa á fjórum fótum við aö pússa þau.
3. Fljótandi efni sem leggur sig sjálft og veröur algjörlega lárétt
(góö áferö). Auðveldar uppsetningu á innréttingum.
4. Gólfiö er rykbundiö og litaö meö Bepa-gólfefni.
5. Þornar á 24 tímum.
6. Fyrir ný sem gömul gólf. Festist vel viö máluö gólf og réttir
af undir parket, flísar o.fl.
Allar upplýsingar hjá
MAGNÚSSON HF.
Kleppsmýrarvegi 8, sími 81068.
ARGUS<0
Vantar þig ennþá rauða fjöður ?
Allirþeirsem misstu af rauðu fjöðrinni
eru boðnir velkomnir í Lionsheimilið,
Sigtúni 9 í Reykjavík.
Þar verður rauða fjöðrin seld í dag frá
kl. 10-20.
Fríar veitingar að vild fyrir börn og full-
orðna.
Kaffi frá O. Johnson & Kaaber
Kökur frá Mosfellsbakaríi
Gosdrykkir frá Vífilfelli
Sæigæti frá Mónu og ABC
Vídeó-myndasýning allan daginn
fyrirbörnin. Skemmtilegarbarna-
myndirfrá Videósporti.
Sýndarásjónvarpstækjum frá Heim -
ilistækjum.
Hornaflokkur Kópavogs undir stjórn
Björns Guðjónssonar leikur fyrir utan
Lionsheimilið kl. 15.
ídag erlokaátakið-
Þig má ekki vanta rauða fjöður.
Komdu við í Lionsheimilinu Sigtúni 9 (Sími 33122)
IANDSSÖFNUN
UONS