Morgunblaðið - 14.04.1985, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1985
B 33
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL 11-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Boð og bönn bæta engan
Guðmundur Guðmundsson, Húsa-
vík, skrifar:
Mig langar að svara Magnúsi
Guðmundssyni, Patreksfirði, sem
skrifaði í Velvakanda fyrir stuttu
um bjór.
Það er furðulegt að sjá fullorð-
inn mann eins og hann láta annað
eins frá sér fara. Hann virðist
ekki hafa mikla trú á íslensku
þjóðlífi en orðrétt sagði hann:
„Númer eitt, ölvun um allt land.“
Hvað ætli maðurinn meini með
þessu? Ég veit ekki betur en að
menn hafi drukkið áfengi i fjölda
ára án þess að orðið hafi almenn
ölvun um land allt. Hins vegar
hafa menn verið teknir fyrir ölvun
við akstur en það er ekki nema
lítill minnihluti allra þeirra sem
brjóta landslög.
Magnús vill kannski láta banna
allt áfengi í landinu? og láta
landsins lýð brugga heima alls
konar óþverra? Það eru fleiri þús-
und manns sem brugga bjór á fs-
landi og sá bjór er yfirleitt 6—8%
sterkari en við förum fram á!
Samt er ekki nein almenn ölvun
Guðmundur segir að fleiri þúsund
íslendingar bruggi bjór heima hjá
sér og sá bjór sé yfirleitt 6—8%
sterkari en sá sem menn vilja fá
fluttan inn og seldan hér.
um landið, eins og Magnús lætur
að liggja.
Þetta kjaftæði um ógæfu á sér
engan grundvöll. Milli 70—80%
þjóðarinnar vilja fá bjór inn i
landið enda er hann drukkinn af
fleiri þúsund manns nú þegar. Þá
segir Magnús orðrétt: „Þegar
Kóreustyrjöldin geisaði fórust
fleiri menn i umferðarslysum i
Bandaríkjunum en þeir sem fórust
í stríðinu.“ Ég spyr: voru þeir allir
ölvaðir? Magnús veit þá líklegast
að þegar Vietnam-stríðið stóð sem
hæst fórust fleiri sjómenn á ís-
landi en dóu í stríðinu miðað viö
höfðatölu.
Nei, við skulum hætta að búa til
draug úr öllum sköpuðum hlutum.
Boð og bönn bæta engan. Margt af
því sem búið er til i heimahúsum
er hinn mesti óþverri og sá óþverri
er engum til góðs. Nær væri að
leyfa almennilegt öl. Á Alþingi
sitja þeir menn sem þjoðin hefur
kosið og ég hvet þá til að verða við
óskum meirihlutans i landinu og
samþykkja innflutning og sölu á
sterkum bjór hér á landi.
Uppihald
innifalið
„Lítilfjörleg verðlaun" var yfir-
skrift greinarkorns í Velvakanda
10. apríl sl.
Vegna ofangreindra skrifa vilj-
um við taka fram að í uppskrifta-
samkeppninni „Upp með svunt-
una... “ þar sem 1. verðlaun eru
helgarferð til Kaupmannahafnar
og 2. og 3. verðlaun ferðir til Akur-
eyrar/Reykjavikur og Húsavík-
ur/Reykjavíkur er að sjálfsögðu
innifalið fullt uppihald, þ.e. gisting
og fullt fæði. Að auki heiðrum við
Kaupmannahafnarfarana sérstak-
lega með glæsilegu kvöldverðar-
boði á einum virtasta veitingastað
borgarinnar þar sem matargerð-
arlistin er í hávegum höfð.
Greinarhöfundur minnist einn-
ig á áhuga fólks á matargerö og
þátttöku i samkeppnisleikjum af
ýmsu tagi. Við höfum, eins og
fram kemur í áðurnefndum aug-
lýsingum, staðið fyrir útgáfu upp-
skriftabæklinga sem fallið hafa i
mjög góðan jarðveg hjá neytend-
um. Það vitum við vegna þess hve
mikið hefur verið um þá spurt og
einnig hins að margir hafa haft
samband við okkur og lýst ánægju
sinni með þá og jafnvel stungið að
okkur ýmsum skemmtilegum og
óvenjulegum hugmyndum. Því var
önnur ástæða þessarar samkeppni
sú að gefa áhugafólki um matar-
gerð kost á að koma hugmyndum
sinum á framfæri í þessum bækl-
ingum og verðlauna um leið bestu
uppskriftirnar. Hverjum og einum
er því frjálst að vera með og „taka
þessa verðlaunaáhættu" sem við
vonum þó fastlega að verðlauna-
hafarnir muni bæði hafa gagn og
gaman af.
Með þökk fyrir birtinguna,
f.h. Osta- og smjörsölunnar sf.,
óskar H. Gunnarsson.
Lögreglan leysi
umferðarhnúta
Borgarbúi skrifar:
Allir vita hvað umferðin hér er
þung í vöfum, sérstaklega á mánu-
dögum og föstudögum. Til dæmis
er Laugavegurinn hrein plága og
ekki bætir úr skák að vagnar SVR
þurfa að stoppa við Landsbankann
á Laugavegi 77, síðan á móts við
Iðunnar Apótek og loks við Lauga-
veg 7. Aðeins á síðastnefnda stað-
num komast bílar framhjá vögn-
um SVR, en við Laugaveg 77 og á
móts við apótekið stöðvast öll um-
ferð því Laugavegurinn er ekki
breiðgata og vagnarnir fyrirferð-
armiklir. Ætla má að öll umferð
stöðvist 30 til 40 sinnum á dag ef
ekki oftar og maður spyr: hvar eru
umferðarséníin, hvar er umferð-
arstjórnin og allt það? Á ekki
lögreglan að sjá um að leysa þetta
mál?
Hvers vegna er lögreglan hætt
að greiða fyrir umferð um Lauga-
veg t.d. og í miðbænum? Sem
dæmi er umferð við Tryggvagötu
og Hafnarstræti hreinasta hörm-
ung. Lögreglan sést aldrei á þess-
um slóðum og alls ekki á mánu-
dögum og föstudögum. Aftur á
móti sá ég nýlega á föstudegi lög-
regluþjón á mótorhjóli við Landa-
kotsspítala skrifa upp fjölda bíla
sem líklega var ólöglega lagt, á
meðan allt var í kaos í miðbænum.
Sl. sunnudag varð ég vitni að því
að lögreglan stöðvaði ökumenn
sem voru að keyra um. Ekki er
mér kunnugt um ástæðuna því
ekki óku þessir ökumenn yfir há-
markshraða. Mikið hlýtur að vera
að í sambandi við umferðarstjórn
hér þegar lögreglan er að eltast
við smámál en leiða aðalhöfuð-
verkinn hjá sér. Ég skil bara ekki
svona lagað. Því skora ég á yfir-
völd að bæta úr þessu ófremdar-
ástandi.
Borgarbúi segir að oft stöðvist öll umferð á Laugaveginum vegna ferða SVR sem hafi viðkomu á mörgum stöðum og
þar sem gatan sé mjó komist engir bflar framhjá.
Málverka
uppboð
veröur aö Hótel Sögu mánudaginn 6. mai kl. 20.30.
Myndirnar veröa til sýnis sunnudaginn 5. mai kl.
14.00—18.00 aö Hótel Sögu.
<
TOL VUHAM5KEIÐ
MULTIPLAM
Markmið námskeiðsins er að gefa stjórnendum og
öðrum sem starfa við áætlanagerð ogflókna útreikninga
innsýn í hvernig nota má tölvur á þessu sviði, með
sérstöku tilliti til þeirra möguleika sem Multiplan býður.
i
EFI1I; • Uppbygging töflureikna
• Valmyndir kerfisins
• Skipanir útskýrðar
• Uppbygging líkana
Hámskeiðið er að langmestu leyti í formi verklegra
æfinga og miðast við að þátttakendur geti staðið á
eigin fótum við vinnu í Multiplan að námskeiði loknu.
Tími:
22.-24. apríl
kl. 9.00-13.00
LEIÐBEIHAtlDI:
l/algeir Hallvarðsson,
deildarstjóri hjá Eimskip
ATH! Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar, Starfsmenntun-
arsjóður starfsmannafélags ríkisstofnana og Verslunar-
mannafélag Reykjavíkur styrkja félagsmenn sína til þátttöku
á námskeiðinu.
STJÓRNUNARFÉLÁG
ÍSLANDS IWo23
K
Blaöburðarfólk
óskast!
Austurbær:
Óöinsgata Sóleyjargata
' Meöalholt