Morgunblaðið - 04.05.1985, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 04.05.1985, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1985 17 FRAMTÍÐ LANDBÚNAÐAR/eftir stefán aðalsteinsson Hvað er helst til ráða? 2. grein Hér á eftir verður reynt að draga saman ýmsa punkta, sem ástæða er til að hafa í huga við umræður um framtíð landbúnað- arins og hinnar dreifðu byggðar í landinu. Við skulum þá fyrst minnast þess, að það þjóðfélag á ekki bjarta daga framundan, sem held- ur dauðahaldi í óarðbær störf fyrir fjölda fólks, vegna þess að menn sjá enga von um arðbærar breytingar, en telja gömlu störfin eiga rétt á stuðningi þjóðfélagsins af gamalli hefð. Við skulum líka minnast þess, að allt þjóðfélagið tekur mjög ör- um breytingum. Allar atvinnu- greinar eru í sífelldri mótun. Það sem þótti gott í gær, getur verið úrelt á morgun. Landbúnaðurinn á erfitt með að aðlaga sig þessum sjónarmiðum. Hann er gamalgróinn atvinnuveg- ur, en ekki síður gamalgróið lífs- form. Verðmætaskyn bændafólks af eldri kynslóðinni mótast mjög af gömlum hefðum, og þess vegna verður oft stirt um allar breyt- ingar. Það er eitt af meginskilyrðum fyrir hagkvæmri lausn á vanda landbúnaðar og dreifbýlis, að menn reyni að víkka sjóndeild- arhringinn og átti sig á því, að öll störf í dreifbýli stuðla að lausn byggðavanda og eru því eftirsókn- arverð bæði fyrir landbúnað og aðra búsetu í dreifbýli. Breytt leiðbeininga- þjónusta Ég held líka, að það verði að taka með nýju móti á leiðbein- ingaþjónustu fyrir landbúnað og dreifbýli. Hingað til hefur leiðbeininga- þjónustan í landbúnaði fyrst og fremst verið bundin við hefð- bundna landbúnaðarframleiðslu. Þar hafa jarðrækt, sauðfjárrækt og nautgriparækt skipað mest rúm. Það er orðið tímabært að koma á ráðunautastörfum úti um land, sem leiðbeini mönnum um at- vinnurekstur í deifbýli, hverju nafni sem hann nefnist. Við getum hugsað okkur, að Skagfirðingar vilji tryggja at- vinnu í héraði betur en nú er. Þeir láta sér í léttu rúmi liggja, hvort sú atvinna er stunduð á innstu bæjum í Lýtingsstaðahreppi, úti í Haganesvík, inni í Varmahlíð eða á Sauðárkróki. Þeir gera sér grein fyrir því, að öll ný atvinnutækifæri í héraðinu stuðla að eflinu byggðar þar, auka möguleika unga fólksins á að finna störf við sitt hæfi í heima- héraði og stuðla að því, að vel menntað fólk, sem er sérhæft í ýmsum þjónustugreinum geti sest þar að til frambúðar. Það er eðlilegt, að forsvarsmenn landbúnaðarins í heimahéraði séu í fararbroddi með forsvars- mönnum annars atvinnulífs við leit að nýjum hugmyndum, skipu- lagi nýrrar atvinnu og áætlana- gerð um búsetuþróun héraðsins alls. Það er ekkert náttúrulögmál, að enginn sveitabær megi fara f eyði. né heldur að ekkert fyrirtæki megi fara á hausinn. Það er heldur ekkert náttúru- lögmál, að dreifð byggð þurfi allt- af að vera í sífelldri vörn gegn samdrætti, röskun og eyðingu. Dugur — framtak — hugmyndir — bjartsýni Það sem mestu ræður um fram- tíð hinnar dreifðu byggðar er dug- ur, framtak, hugmyndaflug og bjartsýni íbúanna til að notfæra sér þau skilyrði, sem bjóðast heima fyrir. Til þess að hægt sé að nýta þessi skilyrði til ágóða fyrir héraðið, þarf að vera hægt að breyta skil- yrðunum í vöru eða þjónustu, sem selst á svo góðu verði, að þeir sem að framleiðslunni standa, hafi af henni tilskilinn ágóða og gjarnan svolítið meira. Það er ástæða til að vekja sér- staka athygli á því, að til þess að menn hefjist handa um nýja at- vinnu, sem er e.t.v. að einhverju leyti ótrygg, þarf að koma til lána- fyrirgreiðsla og eitthvert áhættu- fjármagn. Það ætti að vera hægt að efna til margra nýrra starfa með því að kynna hugsanlegar nýjungar, kanna viðhorf einstakl- inga við þeim, gera rekstraráætl- anir og veita fyrirgreiðslu til þeirra, sem uppfylltu sett skilyrði með tilliti til þeirra atvinnustarf- semi, sem um væri að ræða hverju sinni. Hér á landi hefur það verið tíska að leita til hins opinbera um fjárframlög til að greiða halla af útflutningi, greiða niður vöruverð eða leysa skuidavanda atvinnu- greina með ýmiss konar fyrir- greiðslu. Leysum vandamál — framlengjum þau ekki { þessum tilvikum má oft segja, að verið sé að veita fjármagni frá hinu opinbera til þess að fram- lengja ástand, sem ekki er hag- kvæmt til frambúðar. Það má kalla það fjárveitingar til að við- halda vandamálunum. Hér þarf að verða stefnubreyt- ing. Fjárveitingum, sem nú stuðla að framlengingu vandamála, þarf að breyta í það form, að þær stuðli að varanlegri lausn þeirra. Til þess að lausnir finnist, þarf mikla umræðu. Menn þurfa að velta upp nýjum hugmyndum, sem til greina geta komið. Þær þurfa að fá sem besta umfjöllun, og þær þarf að bera þannig á borð fyrir þá, sem gætu gert þær að veru- leika, að þeir geti tekið afstöðu til þeirra. Bóndi, sem situr á eignarjörð og stundar hefðbundna framleiðslu á mjólk eða dilkakjöti, snýr ekki allt í einu við blaðinu til að hlaupa út í einhverja nýjung, sem enginn ráð- _ leggur honum og enginn styrkir hann í eða lánar út á. Til þess að um búháttabreyt- ingu verði að ræða í þeim mæli, að við losnum úr kreppunni, sem landbúnaðurinn er í, þarf mikið að breytast. Menn þurfa að eiga margra kosta völ. Það er ekki nóg að geta farið úr sauðfé eða kúm yfir í ioðdýr. Menn þurfa líka að geta tekist á við aðra hluti, sem gefa von um ágóða. Með því dreifist áhættan og fleiri stoðum er rennt undir atvinnulífið. Hér verður ekki komið með til- lögur um það, hvernig atvinnu Skagfirðingar eiga að byggja upp í sínu heimahéraði til að sporna við fólksflótta og auka atvinnutekjur heima fyrir. Hins vegar má benda á ýmsa möguleika, sem aðrir hafa notfært sér til að skapa sér tekjur og sjá sér og sínum farborða. Dæmin sem taka má eru bæði inniend og erlend, en frekar ber að líta á þau sem umræðugrundvöll en bein viðfangsefni, sem hægt sé að hefj- ast handa um án frekari fyrirvara. Þau dæmi verða rakin í tveimur seinni greinunum í þessum flokki. Höíundur er deildarstjóri vid Rannsáknastofnun landbúnadar- ins. <r 0 0 0 D 0 D P P D P HAGSTÆÐ INNKAUP LÆKKAÐ VÖRUVERÐ TILBOÐSVERÐ Á PÚSTKERFUM Í DATSUN OG SUBARU VEGNA HAGSTÆÐRA INNKAUPA LÆKKUN ALLT AÐ 25% GEGN STAÐGREIÐSLU T.D. KOSTAR PÚSTKERFI í DATSUN CHERRY KR. 3.315 OG í SUBARU 1600 DL KR. 3.398, MIÐAÐ VIÐ AÐ KEYPT SÉ HEILT SETT. GÆÐAVARA ÚR ÁLSERUÐU EFNI SEM GEFUR 70% —80% BETRI ENDINGU GEGN RYÐI. HVER BÝÐUR BETUR? D D D D D D D D D D BílavörubúÓin FJÖÐRIN Skeifunni 2 82944 Púst röraverkstæói 83466
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.