Morgunblaðið - 04.05.1985, Blaðsíða 27
MORGUNBLApiÐ, LAUGARDAGUR 4. ^AÍ 1985
_______Bridge
Arnór Ragnarsson
Bridgefélag
kvenna
Síðasta mánudag lauk para-
keppni félagsins og er þessi röð
efstu para:
Sigríður Pálsdóttir —
Guðjón Kristjánsson 949
Kristjana Steingrímsdóttir —
Þórarinn Sigþórsson 927
Sigrún Pétursdóttir —
Sveinn Sigurgeirsson 881
Ólafía Jónsdóttir —
Baldur Ásgeirsson 845
Véný Viðarsdóttir —
Guðlaugur Níelssen 843
Lilja Petersen —
Jón Sigurðsson 842
Sigrún Straumland —
Þorsteinn Erlingsson 834
Júlíana ísebarn —
Örn ísebarn 831
Dóra Friðleifsdóttir —
Guðjón 822
Halla Bergþórsdóttir —
Jóhann Jónsson 819
Guðrún Bergsdóttir —
Bergur Þorleifsson 817
Ingibjörg Halldórsdóttir —
Sigvaldi Þorsteinsson 811
Steinunn Snorradóttir —
Bragi Kristjánsson 806
Kristín Karlsdóttir —
Magnús Oddsson 804
Næsta mánudag hefst siðasta
keppni okkar á þessu starfsári.
Það er þriggja kvölda hraðsveit-
arkeppni og skráning er langt
komin. Enn er þó eitthvað laust.
Upplýsingar hjá Árnýnu í síma
42711 og Sigrúnu í síma 11088.
Bridgeklúbbur
Skagastrandar
Nýlega lauk vetrarstarfi
klúbbsins með vormóti þar sem
þátt tóku 32 pör. Spilaður var
tvímenningur með barometer-
fyrirkomulagi.
Keppendur komu frá 8 bridge-
félögum á NV-landi, Borgarfirði
og frá Akureyri.
Keppnin var jöfn og spennandi
en sigurvegarar urðu Valtýr
Jónasson og Stefanía Sigur-
björnsdóttir frá Siglufirði með
155 stig. Pétur Antonsson og
Ragnar Steinbergsson frá Akur-
eyri urðu i öðru sæti með 154
stig, en Eggert Levy og Baldur
Ingvarsson frá Hvammstanga
þriðju með 149 stig.
Keppnisstjóri var Guðmundur
Kr. Sigurðsson.
Annars hefir vetrarstarfið
verið með liflegra móti. Spilað
hefur verið einu sinni i viku.
Tvisvar hefir verið háð bæjar-
keppni við Hvammstanga og
einu sinni við Blönduós. Einnig
hafa spilarar klúbbsins tekið
þátt i stórmótum annars staðar.
Vestfjarðamót í
sveitakeppni 1985
Dagana 7.-9. júni nk. verður
Vestfjarðamót í sveitakeppni
1985 spilað í Tálknafirði. Stefnt
er að þátttöku sveita frá öllum
byggðarlögum. Frestur til að til-
kynna þátttöku til Ævars Jón-
assonar á Tálknafirði (simar hs:
2585 og vs: 2524) rennur út
mánudaginn 26. mai nk.
Keppnisstjóri kemur að sunn-
an, Hermann Lárusson.
Fyrirkomulag mótsins ræðst
af þátttöku, fjölda spila i leik
o.s.frv.
íslandsmót í
tvímenningi — úrslit
Úrslit íslandsmótsins i
tvímenningskeppni 1985 verða
spiluð á Hótel Loftleiðum helg-
ina 4.-5. maí nk.
Keppni hefst kl. 13.00 á laug-
ardag. 24 pör keppa til úrslita og
eru spiluð 5 spil milli para, alls
115 spil. Eftirtalin 24 pör keppa
(sjá meðfylgjandi lista yfir
þátttakendur):
Vakin er sérstök athygli á þvi,
að á sunnudeginum 5. mai verða
afhent verðlaun fyrir öll mót
sem haldin hafa verið á vegum
Bridgesambands fslands þetta
keppnisárið, þ.e. þau mót sem
ekki hafa verið afhent verðlaun
fyrir til þessa.
Þessi mót eru: íslandsmótið i
sveitakeppni, tvímenning og ein-
menning. íslandsmót i blönduð-
um flokki i tvimenning, i
kvennaflokki i sveitakeppni og í
yngri flokki í sveitakeppni.
Verðlaunahafar eru vinsamleg-
ast beðnir um að mæta og taka á
móti verðlaunum sínum. Tíma-
setning verðlaunaafhendingar er
um kl. 17.30 á sunnudaginn.
Björn Theodórsson forseti
Bridgesambands íslands mun
afhenda verðlaun.
Bridgefélag
Breiðholts
Þriðjudaginn 30. april var
spilað eins kvölds tvímenningur.
Röð efstu para varð þessi:
Henning Haraldsson —
Guðmundur Magnússon 246
Guðmundur Grétarsson —
Árni Már Björnsson 242
Friðrik Jónsson —
Þorsteinn Kristjánsson 234
Hermann Sigurðsson —
Jóhannes O. Bjarnason 231
Baldur Bjartmarsson —
Gunnlaugur Guðjónsson 224
Karl Gunnarsson —
Guðjón Garðarsson 220
Þriðjudaginn 7. maí hefst
Firmakeppni félagsins, sem er
jafnframt einmenningskeppni.
Öllum er heimil þátttaka meðan
riðlaskipan leyfir. Spilarar,
mætið vel og tímanlega. Spilað
er í Gerðubergi kl. 19.30.
33.
The Dubliners til íslands í maí
ÍRSKA hljómsveitin The Dubl-
iners er væntanleg til íslands í
maí og er þetta í þriðja sinn sem
hún kemur hingað.
Hljómsveitin var stofnuð í Dub-
lin árið 1961 og gekk þá undir
nafninu The Ronnie Drew Group.
Þegar hljómsveitin gaf út sína
fyrstu plötu 1963 var nafninu
breytt í The Dubliners. Hljóm-
sveitin leikur eingöngu írska þjóð-
lagatónlist og hefur hún fest sig í
sessi sem ein fremsta þjóðlaga-
hljómsveit í heiminum.
Hljómsveitin mun leika á tón-
leikum í Háskólabíói þriðjudaginn
16. og miðvikudaginn 17. maí nk.
The Dubliners
Stýrimannaskólinn í Reykjavík
Endurmenntunarnámskeið
fyrir skipstjórnarmenn
Endurmenntunarnámskeiö 1985 veröur haldiö í eftirtöldum greinum:
Sundköfun: Frá 28. maí til 8. júní. — 10 kennsludagar. — Bókleg og
verkleg kennsla. Þátttökugjald er kr. 8.000,-. Þátttakendur geta haft
meö sér eigin búninga og veröa aö leggja fram læknisvottorö um aö
þeir fullnægi öllum kröfum sem eru gerðar til heilbrigöis og líkams-
byggingar vegna köfunar.
Frá 1. júní — 8. júní:
1. Siglingar í ratsjársamlíki — (RADAR SIMULATOR) og ratsjárútsetningar.
2. ARPA — Námskeið í notkun tölvuratsjár -ARPA- (Automatic Radar Plott-
ing Aids) fyrir þá sem hafa lokiö fyrra námskeiöi í ratsjárútsetningu.
3. Skipagerð — Hreyfistööugleiki (dýnamískur stööugleiki), kröfur IMO um
stööugleika. Kornflutningar. Kynntar reglur SOLAS og meðferö á hættu-
legum farmi.
4. Ratsjá og fiskileitartæki — m.a. Kelvin-Huges — 1600.
Kynning á ARPA.
5. Lóran — Gervitunglamóttakari (Satellite). Lórankortaskrifari.
6. Stórflutningar — Skipspappír (Shipping).
7. Tölvunotkun um borö í skipum og sjávarútvegi.
8. Heilsufræði — Skyndihjálp.
Lyfjareglugerö, lyfjakista. — Slysadeild Borgarspítalans (væntanlega).
9. Veiðarfæri — Vörpur, vörpugerö. Fiskurinn og lífiö í sjónum umhverfis
landiö.
10. Eldvarnir — Slysavarnir. 10.—15. júnl.
(Reykköfun, slökkvitæki, slökkviæfing, fluglínutæki, björgun meö þyrlu.)
Þátttökugjald er kr. 6.000 fyrir greinar frá 1.—10. Væntanlegir þátttakendur
tilkynni þaö til Stýrimannaskólans bréflega eða í síma 13194 virka daga frá kl.
8—14 og tilkynnist þátttaka fyrir 17. maí nk.
Skólastjóri.
Afmælisafsláttur 4.-11. maí
Gefum 15----30% afslátt
af húsgögnum. Notiö ykkur
þetta einstaka tækifæri.
Borgarhúsgögn Hreyfilshúsinu v/Grensásveg,
símar 686070 og 85944.