Morgunblaðið - 04.05.1985, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1985
35
Pöróttir
inni en
— eftir Gunnar
Guðmundsson
Maðurinn Reynir Bergsveinsson
frá Fremri-Gufudal í Gufudals-
sveit Austur-Barðastrandarsýslu,
sendir frá sér grein í Morgunblað-
ið, 27. mars sl. sem hann nefnir
„Sé ég eftir sauðunum". Sömu
grein í NT, 28. s.m. með fyrirsögn-
inni „Hvítir sauðir og svartir".
Með þessum skrifum sínum
skilst mér að hann sé í böðuls-
starfi, sendur af hverjum?
Tvo menn hér í Vestur-Barða-
strandarsýslu nefnir hann með
nöfnum í þessari grein sinni og er
ég undirritaður annar þeirra.
Og vil ég hér með svara Reyni
Bergsveinssyni svo þeir, er lásu
hans grein, fari að hugsa sig um
hvort hann er villtur af réttri leið
á vegi lífsins, eða ég sé það
ómenni, sem hann telur mig vera í
grein sinni.
Ég hef aldrei flutt burt af jörð-
inni, parta úr þrem vetrum var ég
við sjó og fiskvinnslu á Patreks-
firði og hafði þá mann hér á næsta
bæ, sem sinnti skepnunum fyrir
mig á meðan. Annan tíma hef ég
sinnt mínum kindum sjálfur. Þótt
ég hefði viljað sinna mínum kind-
um betur en ég hefi gert, tel þeim
samt hafa verið betur sinnt en al-
mennt gerist í þessari sveit nú síð-
ari ár.
Þótt Reynir Bergsveinsson telji
það glöggan mann, sem haldi að
veturgömul kind geti maðkað í
þremur reyfum, þá er slíkt algjör
þvættingur. Þetta eitt bendir á
það hvað maðurinn er óglöggur
sjálfur og einnig hvaða sann-
leiksgildi orð hans hafa.
Mér var að berast dagblaðið NT
þriðjudaginn 2. apríl. Þar sá ég
yfirlýsingu frá sauðfjárveikivörn-
um í 9 tölusettum greinum, rétt-
ara sagt boðorðum. Fullyrðingar
eru þar miklar, en sannleiksgildið
ekki eftir þvi, og hefðum við held-
ur kosið, sem viljum útrýma riðu-
veiki á lýðræðislegum grundvelli,
að framkvæmdastjóri sendi frá
sér svona yfirlýsingu, en ekki sér-
fræðingurinn.
Fyrirsögn greinarinnar er Eig-
inhagsmunir í fyrirrúmi en ekki
heildarhagsmunir. Þetta hefur
einmitt hvarflað að mörgum, er
ljóst var hvað mikill bægslagang-
ur var hafður í frammi með að
farga heilbrigðu fé, á þeim for-
sendum að það væri verið að út-
rýma riðuveiki.
1. Ef heilbrigð kind getur ekki
smitast af riðuveiki, þá er hún
ekki illvígasti sauðfjársjúkdómur
á íslandi. „Þessu getið þið ekki
mótmælt með fullyrðingum, því
það er ekki nema rúmlega hálfur
þrýstihópar ráða ferð-
ekki heildarhagsmunir
annar áratugur síðan þið vöknuð-
uð við vondan draum.
Það er mjög hæpin fullyrðing að
riðuveiki hafi fyrst fundist á Vest-
fjörðum árið 1953.
2. Eins að nota þessa kind á
Patreksfirði, sem fullyrðingu á
þeim stað.
3. Undirbúningur hefur ekki
staðið í nokkur ár svo almenning-
ur viti, ekki heldur notuð sú yfir-
lýsing sem Fjórðungssamband
Vestfjarða gaf í sambandi við
niðurskurð í Barðastrandar-
hreppi. Hvort hún hefur verið
misnotuð veit ég ekki.
4. Ég er ekki búinn að sjá að
stjórnvöld standi við landslög í
þessu máli hvað varðar skerðingu
á eignarrétti manna «g þeim af-
leiðingum, sem af þessu kunna að
hljótast.
5. Er ekki réttara að segja að
heimamönnum hafi verið sagt að
leggja á ráðin.
6. Það er ekki traust samstaða
sem er byggð upp á ólýðræðisleg-
um grunni. Ég veit ekki til þess að
ég hafi ekki sætt mig við að hlíta
lögmætum aðgerðum, og ég veit
heldur ekki til þess að nokkur
maður I þessu máli hafi skapað
jafnmikla tortryggni og þar að
leiðandi úlfúð og Sigurður Sigurð-
arson sérfræðingur hjá sauðfjár-
veikivörnum.
7. I fjórðu viku janúarmánaðar
voru öll fjöll og hlíðar vel fær til
smalamennsku nú í vetur, en erf-
itt yfir febrúarmánuð vegna
frosta, sérstaklega í blautum fjöll-
um. í byrjun marsmánuðar er svo
komin góð færð aftur nema í
blautum fjöllum.
8. Það var ekki verið að fram-
fylgja neinum lögum með skothríð
úr þyrlu landhelgisgæslunnar á
sauðfé í Tálknanum og Skorar-
hlíðum 15. mars sl. Það var ódæð-
isverk sem þarna var unnið. Sauð-
fjárveikivarnir sjá aðeins eitt við
þetta að athuga að hræin væru
ekki grafin fyrr en nokkrum dög-
um seinna. Það er bara alls ekki
búið að grafa þau enn nema að
einhverju leyti. Það vita allir, sem
vilja vita það, að færð um fjöll,
dali og heiðar hefur verið það góð
til smalamennsku síðastliðið
haust og vetur að einsdæmi má
kallast.
9. Og síðasti liðurinn i grein Sig-
urðar Sigurðarsonar fyrir hönd
sauðfjársjúkdómanefndar nefnir
„Ég veit ekki til þess að
ég hafi ekki sætt mig
við að hlíta lögmætum
aðgerðum...“
hann oddvitana í V-Barðastrand-
arsýslu eða réttara sagt tillögur
frá þeim er varðar útrýmingu á
riðuveiki. Það væri ánægjulegt ef
frá þeim kæmi eitthvað jákvætt
svo þessum vesaldóm, sem látinn
hefur verið ráða ferðinni til þessa,
fari að linna í þessum málum.
Nú þegar ég er að ljúka þessum
orðum mínum fæ ég fregnir um
það, er ótvírætt sanna að sumir
frammámenn í sauðfjárveikivörn-
um eru ekki trúverðugir í starfi. Á
ég þá við að nú hefur fundist ein
kindin af 5 eða 6 kindum, sem
margir hafa álitið að hafi lifað af
skothrðina úr þyrlu landhelgis-
gæslunnar föstudaginn 15. mars
sl. og var hún lifandi eftir rúman
mánuð.
Vegna aðdróttana i minn garð í
þessu máli vil ég taka fram eftir-
farandi. Það vissu menn að ég ætl-
aði á þær slóðir er kindurnar voru
skotnar á, utanvert við Stáfjall,
laugardaginn 16. mars en hætti
við ferðina vegna þessara atburða,
sem skeðu þar daginn áður. Fer
síðan fimm dögum eftir skotárás-
ina. Kanna það, sem ferð mín var
ákveðin til, fer síðan að gá hvað ég
sjái af kindarhræum, af því ég
hafði grun um að þarna hefði lúa-
legur atburður gerst. Eftir dálitla
eftirgrenslan, kem ég að tveimur “
kindum, sem báðar munu hafa
dauðskotist strax. Stutt frá þeim
liggur lamb sem ég tel að hafi ekki'
dauðskotist en er dautt með skots-
ár á hálsi, gat alveg eins dáið dag-
inn áður en ég kom eins og fyrir 5
dögum, því það var alveg óhreyft
af vargi en ærnar talsvert étnar.
Fjórðu kindina sem átti að vera
þarna dauð, fann ég ekki. Og eftir
þessa sjón, sem ég sá þarna gat ég
aldrei talið að þarna hafi verið vel
að verki staðið. Annan dag páska
vorum við þrír saman þarna á ferð
og gengum um þetta svæði, sem
þessi fjórða kind átti að hafa verið
skotin á, og var okkur þá ljóst að
hún gat ekki hafa dauðskotist á
þeim stað sem sagt var.
Höfundur er bóndi að Skjaldrar-
aríossi í Barðarstrandarhreppi.
Norræna húsið:
Sígaunar eiga
sterkar menning-
arlegar hefðir
— sagði Rosa Taikon, silfursmiður
Silfursmiðirnir Rosa Taikon og Bernd Janusch.
„Uppruni listamansins kemur
alltaf fram í verkum hans,“ sagði
Rosa Taikon, silfursmiður, sem
ásamt manni sínum, Bernd Jan-
usch, arkitekt og silfursmið, sýna
verk sín í anddyri Norræna húss-
ins um þessar mundir. „Við hjónin
höfum mjög ólíkan bakgrunn en
verðum í list okkar fyrir sterkum
áhrifum hvort frá öðru. í verkum
okkar gætir gamallrar indverskrar
listhefðar, sem má rekja til upp-
runa míns, en ég er sígauni.“
JListamaðurinn verður að
vera opinn fyrir ólíkum menn-
ingaráhrifum ef hann á að geta
þroskast. Þannig má sjá i verk-
um mínum sterk áhrif frá göml-
um hefðbundnum formum, sem
ég nýti mér á minn eiginn per-
sónulega hátt,“ sagði Bern Jan-
usch.
í heimalandi þeirra, Svíþjóð,
eru þau hjónin ekki eingöngu
þekkt sem listamenn, heldur líka
sem baráttumenn fyrir bættri
félagslegri aðstöðu sígauna. Bar-
áttuna hófu þau ásamt systur
Rósu og mági snemma á sjötta
áratugnum þegar sígaunar frá
Frakklandi fengu slæmar mót-
tökur við komuna til Svíþjóðar.
Síðan þá hefur margt breyst, all-
ir sigaunar hafa þak yfir höfuðið
og ganga í skóla eins og aðrir.
„Fordómar í garð sígauna
hafa alltaf verið sterkir í Sví-
þjóð,“ sagði Rósa. „Þegar ég var
ung og einhver spurði mig af-
hverju ég hefði þennan dökka
litarhátt, sagði ég alltaf að faðir
minn væri frá Frakklandi. Það
var að vísu satt, en ég þorði ekki
að segja að hann væri sígauni.
Nú finnst mér það besta sem
ég get gert í baráttunni gegn for-
dómunum, að sína fólki að við
sígaunar getum gert annað og
meira en smella fingrum,
kveikja eld, syngja og dansa. Við
verðum að koma því til skila að
við eigum sterkar menningarleg-
Morgunbladid/Pridþjófur
ar hefðir, sem listamenn ann-
arra þjóða hafa orðið fyrir áhrif-
um frá.
Á listsýningu, sem opnuð
verður í París 6. maí, verða verk
eftir sígauna frá 33 löndum. Þar
verður hægt að rekja áhrif frá
sígaunum í listsköpun Evrópu-
þjóða allt frá 16. öld,“ sagði Rósa
að lokum.
Sýningin í Norræna húsinu
stendur til 12. mai og er sölusýn-
ing.
i
jtmuBEswne
GERIR GÓÐAN BÍL BETRI!
Þaö er ótrúlegt hvað góðir hjólbarðar eins og
BRIDGESTONE gera fyrir bílinn.
Með BRIDGES TONE fæst frábært veggrip,
rásfesta og mikið slitþol. TryggOu öryggi þitt og
þinna settu BRIDGESTONE undirbílinn — þeir
fást hjá hjólbarðasölum um land allt.
BILABORG HF
Smiðshöfða 23, Sími 81299