Morgunblaðið - 04.05.1985, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. MAl 1985
Skagfirska söngsveitin:
Afmælistónleikar í til-
efni 15 ára starfsafmælis
Skagfírska söngsveitin á 15 ára afmæli um þessar mundir. Morgunblaftií/Friöþjófur
Þaö blómstrar fleira en náttúran í
upphafí sumars, þá kemur einnig í
Ijós og blómstrar í mörgum myndum
það sem til var sáð í listinni að vetr-
inum tíl. Sýningar og samsöngvar
eru aldrei fleiri en að vorinu. Einn
þeirra hópa sem um þessar mundir
ber fram ávöxtu vetrarstarfsins er
Skagfírska söngsveitin sem heldur
tónleika á morgun f Austurbæjar-
bíóL
Sum verkanna eru alveg ný fyrir
kórmeðlimi og nýlegur er einnig
stjórnandinn Björgvin Valdimarsson
en þetta er annað starfsár hans með
kórinn. Þá er vert að geta þess að
þessir tónleikar sem haldnir verða á
morgun eru afmælistónleikar 15.
starfsárs kórsins.
Blm. og ljósm. Mbl. litu inn á
æfingu eitt kvöldið og tóku nokkra
tali.
Heillandi að fást við eitthvað
sem enginn hefur mótað.
Björgvin Valdimarsson,
stjórnandi kórsins.
— Hvað hefur kórinn fengist
við í vetur?
Við byrjuðum óvenju snemma í
haust af æfa og tókum þá fyrir
jólaprógramm, þ.á m. æfðum við
upp Litlu orgelmessuna eftir
Hayden.Við fluttum svo jólatón-
listina bæði hérna í Reykjavík og
fórum austur yfir fja.ll.
Undanfarið höfum við verið að
æfa dagskrá sem að miklu leyti er
samsett af lögum sem við höfum
ekki sungið áður. Að loknum tón-
leikunum í Austurbæjarbíói er
ætlunin að æfa áfram og fara með
þetta prógramm í söngferðalag til
Italíu nú í vor.
— Hvaða verk eru á þessari
dagskrá?
Það er kannski vert að geta þess
fyrst að Gunnar Reynir samdi sér-
staklega fyrir kórinn verk við
texta Halldórs Laxness úr
Brekkukotsannál „Kæru bræður
ha“. Þetta verk frumflytjum við
því á afmælistónleikunum í Aust-
urbæjarbíói, en kórinn pantaði
einmitt verkið hjá Gunnari í til-
efni þess að kórinn á fimmtán ára
afmæli um þessar mundir. Þetta
er nýstárlegt fyrir kórinn því
hann hefur ekki fengist við nú-
tímaverk áður,og verkið tekur um
átta mínútur í flutningi.
Þá frumflytur kórinn einnig lag
eftir mig við texta Tómasar Guð-
mundssonar, „Heim til þín Is-
land“.
Við fengum til liðs við okkur tvo
einsðngvara í vetur sem koma til
með að fara með okkur utan, þau
Guðbjörn Guðbjörnsson og Höllu
Jónasdóttur sem var að ljúka
burtfararprófi, en bæði eru þau
nemendur Sigurðar Demens sem
hefur verið með kórinn í radd-
þjálfun í vetur. Guðbjörn og Halla
syngja tvö lög hvort á tónleikun-
um og nokkra dúetta.
— Hvernig fannst kórmeðlim-
um að glíma við nútímaverkið?
Þetta er náttúrulega alveg nýtt
fyrir kórinn og sumir voru fljótir
að dæma í upphafi. En verk af
þessu tagi vinna á og ég held að ef
litið er á heildina finnist þeim
gaman og spennandi að fást við
þetta. Sjálfum þykir mér mjög
Björgvin Valdimarsson, stjórnandi
kórsins.
heillandi að fást við eitthvað slíkt
sem enginn hefur mótað áður.
Hef verið í 30 ár í kór
Einar Reynir Finnbogason.
— Hefur þú verið lengi í kórn-
um?
Ég var í Fríkirkjukórnum í ein
þrjátiu ár, en þegar Sigurður ís-
ólfsson lét af stjórn kórsins hætt-
um við öll. Ég var svo í tímum hjá
Einari Sturlusyni í raddþjálfun og
hann spurði mig hvort ég vildi
ekki koma í Skagfirsku söngsveit-
ina því þá vantaði bassa þar. Ég
Sigurlaug Eggertsdóttir
lét tilleiðast, byrjaði fyrir áramót
í fyrra og líkar ágætlega.
— Hvernig finnst þér að fást
við þetta nútímaverk sem þið eruð
að frumflytja?
Það er með þetta eins og allar
aðrar nýjungar. Þetta er erfitt en
skemmtilegt þegar búið er að sigr-
ast á erfiðleikunum.
— Hafa verið strangar æfingar
að undanförnu?
Já, sem betur fer. Á meðan mað-
ur skaðast ekki atvinnulega séð
held ég að maður hafi ekkert þarf-
ara við tímann að gera og þetta sé
vel þess virði.
Einar Reynir Finnbogason
Maður gleymir dagsins önn
Sigurlaug Eggertsdóttir.
— Kanntu vel við þig í söngn-
um?
Það er óhætt að segja það því ég
er búin að syngja með frá því að
kórinn var stofnaður. Þetta er að
vísu mikil og erfið vinna en ótrú-
lega skemmtilegt og maður fær
svo mikið út úr söngnum. Á haust-
in er maður farinn að þrá það að
syngja aftur eftir sumarhléið.
Ég vinn við kennslu á daginn og
þetta er góð tilbreyting að koma
hingað, skipta um hlutverk og
gera það sem manni er sagt. Mað-
ur gleymir dagsins önn í söngnum.
Milli 20 og 30 meðlimir
hafa verið með frá byrjun
Lovísa Hannesdóttir,
formaður kórsins.
— Þú hefur verið félagi í kórn-
um frá byrjun. Hvað voru margir
meðlimir í upphafi?
Fyrir fimmtán árum þegar við
vorum að byrja vorum við 26 sem
komum saman i gamla Edduhús-
inu á Lindargötunni. Þetta hlóð
fljótt á sig og á fyrstu tónleikun-
um okkar vorum við orðin 46.
— Hver átti frumkvæðið að því
að stofna kórinn?
Þetta var ákvörðun tekin að til-
hlutan stjórn Skagfirðingafélags-
ins. Það hafði ríkt deyfð í félags-
lífinu svo það var ákveðið að
stofna blandaðan kór og
aðalhvatamaðurinn var eiginlega
Gunnar Björnsson frá Sólheimum.
— Eru margir sem hafa verið í
kórnum frá upphafi?
Ætli að við séum ekki á milli 20
og 30 sem höfum sungið með öll
árin, en í ár eru meðlimir kórsins
alls 72.
— Hefur tónlistin breyst í
gegnum árin?
Þegar við vorum að byrja í
kórnum sungum við mikið eftir
skagfirsk tónskáld sem eru þrjú,
Eyþór Stefánsson, Jón Björnsson
og Pétur Sigurðsson. Við kynntum
þessi skáld rækilega. Allar götur
síðan höfum við að ég held verið
með fjölbreytta efnisskrá, en
þetta er í fyrsta skipti sem við
tökum fyrir nútímaverk.
Lovísa Hannesdóttir, formaður
söngsveitarinnar.
GORI
ÞVÍ AÐ FARA FÚLL AÐ HEIMAN
MEÐ OFHLAÐINN BÍLINN
ÞAÐ ER STUTT í„NESIÐ’
ÚR BÚSTAÐNUM:
pr ALHLIÐA ^
BYCiíxI NG/WÖRU
VERSLUN
VERÐLAG: N
erum samkeppnis\
færir
FRABÆR FUAVARI
ALLT
VATNSLAGHAEFN!
ÞJONUSTA:
gerum okkar
besta
VIÐHA L DSVORURNA R
færöu hjá okkur
Látió skynsemina ráóa — Litió inn
Opió laucjardaga frá kL 9 til 12 — Simi 93-7200
//LK^ BYGGINGAVÖRUR
BORGARNESI