Morgunblaðið - 04.05.1985, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1985
59
VELVAKANDI
SVARAR f SÍMA
10100 KL. 14—15
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
\js u iJtrmTX v/7u,1
Glötunarkenning Biblfunnar
er ekki eilífar pyntingar
Prestur nokkur átti hér bréf
þann 15. marz undir fyrirsögninni
„Glötunakenningin guðlast". Mér
hefði fundizt eðlilegt, að einhver
starfsbróðir hans í Þjóðkirkjunni
svaraði því bréfi, en þar sem því er
ekki að heilsa, er ég fús að standa
hér upp til varnar.
Það er reginmisskilningur, að sú
ævarandi glötun, sem Biblían
kennir, sé einfaldlega „eilífar
pyntingar". Glötunin er fyrst og
fremst fólgin í því, að þeim, sem
deyr í synd og vantrú, tekst aldrei
um eilífð að öðlast sjálft takmark
og fyllingu lífsins — að fá að búa
frammi fyrir dýrðarásjónu Guðs,
þar sem ríkir óendanleg hamingja.
„Þær „pyntingar", sem prestur-
inn kvað kirkjuna eigna Guði, eru
ekkert annað en það, að kærleiks-
lausir menn sitja uppi með afleið-
ingarnar af lífsstefnu sinni: óseðj-
andi girndir, dýrkun á veraldleg-
um gæðum og takmarkalausa eig-
ingirni, sem þeir losna ekki við
með dauðanum, heldur verða
ofurseldir til frambúðar, vegna
þess að þeir halda áfram að kjósa
þessa tegund af „hamingju" fram
yfir Guð sjálfan. Það að fá ekki
fullnægt slíkum girndum eftir
dauðann, þótt eftir þeim sé leitað,
er því andleg og líkamleg kvöl
syndarans sjálfs — hans eigin „hel-
vítiseldur", — ef svo má að orði
komast — en ekki pynting frá
hendi Guðs.
Ef þú velur vonzkubraut,
verða mun þér allt að þraut.
Eins og sáir, upp þú sker:
undan kemst ei sjálfum þér!
Heljar-sár er samvizkan,
sök er bítur ranglátan.
Hroki og girnd er hjáguð sá,
hvíld sem aldrei veita má.
En sú „glötunarkenning", sem
presturinn beinir spjótum sínum
að, er næsta einföld bókstafstúlk-
un á líkingamáli Biblíunnar. Bar-
átta hans er því sem betur fer
vindmyllustríð.
Vissulega kennir Ritningin ei-
lífa glötun. En það er ekki hin lit-
rika barnatrú prestsins, sem þar
kemur fram, heldur eitthvað í ætt
við þá kenningu, sem hér hefur
verið lýst. Hver kristinn maður
getur beygt sig fyrir þvílíkum
Biblíuboðskap án þess aö hneyksl-
ast — ef hann á annað borð vill
lúta Guði. Það ætti ekki heldur að
vera nein ofraun frir presta Þjóð-
kirkjunnar. Þeir hafa beinlínis þá
skyldu að „prédika Guðs orð
hreint og ómengað, eins og það er
að finna í hinum spámannlegu og
postullegu ritum, og í anda vorrar
evangelísku lúthersku kirkju"
(eins og segir í eiðstaf presta). En
af fimm höfuðjátningum lúth-
erskrar kirkju eru ekki færri en
þrjár, sem ræða opinskátt um ei-
lífa glötun þeirra manna, sem allt
til síðustu stundar hafna Guði
(Aþanasíusar- og Ágsborgarjátn-
ingarnar og Fræði Lúthers hin
minni). Er það nú til of mikils ætl-
azt, að launaðir þjónar kirkjunnar
reyni að sjá sannleikann í þeirri
kenningu og boði hana trúfastlega
— í stað þess að eltast við mis-
skilning á henni og væna svo
kirkjuna um „hryllilegt guðlast"
fyrir þá eina sðk, að erfikenning
hennar fylgir orðum Krists í þessu
efni?
Við björgum engum frá eilífri
glötun með því að óska þess, að
hún sé ekki til, heldur miklu frem-
ur þvert á móti, með því að vara
menn við því, að eilíf syndagjöld
munu vissulega bíða þeirra, sem
enda líf sitt í fjandskap við Guð.
Ótti Guðs er heilagt hnoss,
hlotnist þetta mörgum oss!
Aldrei hafna honum skalt,
hann þá gætir þin ávallt.
Eilíf mettar Alvalds dýrð
ægibjört, í hugum skýrð,
vini Guðs, sem hreif hans hönd
í himin upp, í gleðilönd.
Frater catholicus
Fjöldauppsagnir
á NT 1. maí 1985
E.E. skrifar:
Framsóknar gerast fræði rotin
fýkur í Tímans skjól.
Nátttröllin hörfa í skúmaskotin
af skini frá hækkandi sól.
Skonrokk
Ein döpur hringdi:
í Mbl. var sagt að hljómsveit-
irnar King og Wham ættu að
koma fram f Skonrokki föstu-
daginn 12. aprfl sl. Ég beið
spennt eftir lögum þeirra allan
daginn. Ég var alveg tilbúin að
taka þáttinn upp á myndbandið.
Þulan kemur á skjáinn og nefnir
að hljómsveitimar eigi að koma
fram í þættinum. En, hvað svo.
Maður horfði bara og horfði en
aldrei komu umræddar hljóm-
sveitir á skjáinn. Hvernig stend-
ur á því? Þulan nefndi það og
Morgunblaðið nefndi það. Ég
beið þangað til næsti skonrokks-
þáttur kom en allt kom fyrir
ekki. Getið þið umsjónarmenn
Skonrokks gefið mér skýringu
þar sem mig langar svo mikið til
að sjá hljómsveitina Wham og
lagið sem hún átti að flytja í
sjónvarpinu: „Everything she
wants".
Gullarmband
Marta Björnsdóttir hringdi:
Um 20. april fann dóttir mfn
gullarmband á bílastæði versl-
unar minnar, Gróðrarstöðvar-
innar Markar. Énginn hefur
spurst fyrir um armbandið. Ég
vona að eigandinn komi og nái i
það.
Gott útvarp
Fullorðin kona hringdi:
Mér finnst útvarpið, rás 1,
ljómandi gott útvarp, sérstak-
lega fyrir hádegið. Ég vil þakka
Helga Þorlákssyni fyrir
skemmtilegan lestur miðdegis-
sögunnar — hann les mjög
skemmtilega. Einnig er ég alltaf
jafn hrifin af Jóni Múla og Pétri,
sem þulum. Ég hef hlustað á þá í
marga áratugi og finnst mér
þeir alltaf jafn sígildir og
skemmtilegir.
Sætaferðir
7799—1816 hringdi:
Ég vil spyrja forráðamenn
Flugleiða hvort hugsanlegt væri
að þeir gætu boðið upp á sæta-
ferðir á tónleika „Frankie goes
to Hollywood" sem haldnir verða
f Svíþjóð í júní.
„Free-style“
Helga og Eva hringdu:
Við viljum að sjónvarpið sýni
„free-style“-keppni yngri krakk-
anna, 10 til 12 ára, sem fram fór
í Tónabæ í byrjun aprfl. Sjón-
varpið sýndi keppni eldri krakk-
anna um síðustu helgi svo að það
getur alveg eins sýnt keppni
yngri krakkanna líka.
^"CITROÉN^^""
Notaður Citroén
næstbesti kosturinn
GSA Pallas '84, ekinn 18.000. V. 360 þús.
GSA Pallas ’84, ekinn 8.000. Verö 375 þús.
GSA Pallas ’82, ekinn 45.000. Verö 280 þús.
GSA Pallas ’82, ekinn 57.000. Verö 250 þús.
Góö kjör.
Aðrar tegundir:
Suzuki jeppi ’83, ekinn 40.000. Verö 325
þús.
Lada 1300 Saffír '82, ekinn 44.000. Verö 150
þus.
Opið laugardaga kl. 2—5.
Globus?
l At.Mi .1 1 . MM. "i , . ,
Ferðakynning Vestfjarða
Ferðamálasamtök Vestfjarða
efna til Vest-
fjarðakynn-
ingar að Hótel
Loftleiðum í
kvöld kl.
19.30.
Heiðursgestur
Steingrímur Hermannsson
forsætisráöherra og þing-
maöur Vestfjarða.
Dagskrá:
Ávarp Matthías Bjarnason
samgönguráðherra og þing-
maöur Vestfjaröa.
Hafsteinn Davíösson frá
Patreksfiröi leikur á sög viö
undirleik Tone Solbakk
kennara viö Tónlistarskólann
Bíldudal.
Vestfjaröakynning
Reynir Adolfsson framkvæmdastjóri.
Karlakór Þingeyrar.
Jóhannes Kristjánsson frá Brekku á Ingjalds-
sandi skemmtir.
Ljómyndasýning Jóns Hermannssonar fer fram í
Hótelinu föstudag, laugardag og sunnudag.
fjöldi fallegra mynda frá Vestfjöröum.
Matseðill
Ljúffengir sjávarréttir af hlaðborði.
Ólafur Kristjánsson Boiungarvík og Bjarni Svein-
björnsson leika dinnermúsík.
Hljómsveitin Töfraflautan leikur fyrir dansi til kl. 3.
Kynnir Úlfar Ágústsson.
Boröapantanir hjá yfirþjóni á Hótel Loftleiöum í
síma 22322. Ferðamálasamtök Vestfjarða