Morgunblaðið - 26.05.1985, Side 2

Morgunblaðið - 26.05.1985, Side 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1985 UPPHAF STJÖRNUFERILS ROD STEWART mönnum etja kappi við landslið íslands hér á Laugardalsvelli, þann 28. maí næstkomandi. REYNT VIÐ ROKKIÐ Þegar Stewart hafði gefist upp á því að gera boltaspark að at- vinnu, snéri hann sér að tónlist- inni og gerðist munnhörpuleik- ari. Ekki leið þó á löngu áður en hann hóf einnig að þenja radd- böndin við og við. Hann lék fyrst með hljómsveit frá Birmingham, sem nefndist Five Dimensions en ekki settu þeir nú heiminn á annan endann. Það leið svo ekki á löngu áður en hann komst í kynni við söngvarann Long John Baldry og gekk til liðs við hann í hljómsveitinni Hootchie Cootchie Men. Nltján ára gamall var Rod Stewart sem sé orðinn atvinnutónlistarmaður. Kaupinu sínu, sem var yfirleitt í kringum 35 pund á viku, eyddi hann að mestu í föt og varð hann fyrir vikið fljótlega þekkt „týpa“ í skemmtanaheimi Lundúna. Það var um þetta leiti sem hann fékk viðurnefndið Rod the Mod. Stewart sendi frá sér sína fyrstu smáskífu undir eigin nafni árið 1964 en hún hafði á A-hlið að geyma lagið Good Morning Little Schoolgirl og á meðal þeirra hljóðfæraleikara sem aðstoðuðu hann við gerð hennar var bassaleikarinn John Paul Jones, sem síðar varð með- limur Led Zeppelin. Ekki seldist nú plata þessi mikið og það sama er raunar hægt að segja um þær plötur hans, sem fylgdu í kjölfar hennar. Um tíma starfaði hann með hljómsveitunum Steampacket og Shotgun Express en þessar hljómsveitir náðu aldrei að vekja neina sérstaka athygli. Steampacket var þó ágæt hljómsveit en hún sendi ekki frá sér plötu meðan hún starfaði, vegna þess að menn gátu ekki komið sér saman um hverjir ættu að gefa út plötur sveitar- innar. Það mun hafa verið snemma á árinu 1%7, sem Rod Stewart gekk svo til liðs við gítarleikar- ann Jeff Beck, sem þá nýverið hafði sagt skilið við félaga sína í hljómsveitinni Yardbirds. Hljómsveitin nýja fékk nafnið Jeff Beck Group en aðrir sem með henni léku voru Ron Wood (nú Rolling Stones), sem þá lék á bassa en hann er annars gítar- leikari, og trommuleikarinn var Mick Waller, sem áður hafði ver- ið með Stewart í Steampacket. Þá bættist píanóleikarinn Nicky Hopkins í hópinn áður en yfir lauk. Jeff Beck Group starfaði í um það bil tvö ár og sendi frá sér tvær breiðskífur, sem báðar þykja með því merkilegra sem Stewart hefur komið nærri á ferlinum. Fyrri platan, og sú betri, heitir Truth og á henni fer Stewart víða á kostum, en hvergi syngur hann þó betur en í því gamalkunna lagi 01’ Man River. Beck Ola hét seinni platan og er hún af mörgum talin vera upp- haf þeirrar tónlistarstefnu, sem síðar fékk heitið þungarokk. Þá langar mig að benda á eitt lag, sem er að finna á b-hlið smáskíf- unnar Love Is Blue, sem Jeff Beck sendi frá sér, en það er lag sem heitir Iv’e Been Drinkin’ Again. Stewart syngur þetta lag af sérstakri innlifun og hefur mér alltaf þótt titill lagsins eiga svo vel við hann. NÝ STÓRSTJARNA Jeff Beck Group leystist upp vegna sundurþykkju liðsmanna hennar og byrjun árs 1969 gekk Rod Stewart til liðs við hljóm- sveitina Faces, en hún varð til þegar Steve Marriott yfirgaf Small Faces og stofnaði Humble Pie. Um sama leiti gekk Ron Wood einnig í hljómsveitina og þá sem gítarleikari. Faces náðu fljótlega miklum vinsældum sem hljómleikahljómsveit en stemmningin sem þeir sköpuðu, og þá með Stewart sem fremsta mann, þótti helst minna á þá stemmningu sem ríkir á fót- boltavöllum í Englandi. Fólk kom til þess að syngja og skemmta sér en ekki til þess að sökkva sér djúpt í sjálft sig við hlustun alvarlegrar tónlistar. Faces náðu sér aldrei almenni- lega á strik í stúdíói og breið- skífur þeirra þykja lítt eftirminnilegar, ef helst er und- anskilin A Nod As Good As a Wink To a Blind Horse, sem kom út árið 1972. Á svipuðum tíma og Rod gerð- ist Faces-meðlimur, fór hann á ný að huga að sólóferli sínum og gerði þá samning við Mercury- hljómplötufyrirtækið. Fyrstu tvær breiðskífur hans, An Old Raincoat Won’t Ever Let You Down og Gasoline Alley, hlutu sérlega góðar viðtökur hjá gagn- rýnendum en þær seldust ekkert sérlega vel. Þar varð þó breyting á þegar hann sendi frá sér plöt- una Every Picture Tells a Story, sem leit dagsins ljós árið 1971. Af þeirri plötu var svo tekið lag- ið Maggie May og það gefið út á smáskífu, sem náði miklum vin- sældum beggja vegna Atlants- hafsins. ENDANLEGA EINN Á FERÐ Það togaðist alltaf á í huga Stewarts, hvort hann ætti að halda í samstarfið við Faces, eða gefa þá upp á bátinn og einbeita sér að sólóferlinum. Það að hann skyldi vera að berjast á tvennum vígstöðvum, bitnaði á hvoru tveggja. Faces sendu aldrei frá sér virkilega góða plötu og sóló- skífum Rods hrakaði sífellt að gæðum. Það var svo loks árið 1976, sem hann gerði upp hug sinn og hélt endanlega af stað einn síns liðs. Skömmu áður hafði hann sent frá sér breið- skífuna Atlantic Crossing, sem varð mjög vinsæl og þótti þar að auki með hans betri plötum. Af henni náði líka lagið Missing miklum vinsældum. Platan A Night on a Town, sem fylgdi þar á eftir, náði enn meiri vin- sældum og síðan hefur stjarna Stewarts skinið skært, þó svo margir hafi sífellt verið að spá því að senn færi nú að slokkna á henni. Plötur hans hafa selst í milljónaupplagi og má nefna af þeim sem komið hafa út á seinni árum Footloose and Fancy Free, Blondes Have More Fun, Foolish Behaviour, Tonight I’m Your, Body Wishes og í fyrra kom frá honum platan Camouflage. Og af þeim lögum sem orðið hafa vin- sæl með honum og er að finna á þessum plötum má nefna To- night’s the Night, Hot Legs, Da Ya Think I’ Sexy, Passion, Baby Jane og Some Guys Have All the Luck. Ekki er hægt að gera ferli Rods Stewart full skil í grein sem þessari, til þess hefur hann komið of víða við og ferill hans verið of skrautlegur. Ég hef t.d. algerlega sniðgengið kvenna- farssögur og fyllerísævintýri. Ég hef sleppt af hverju hann flúði Bretland og ekki hefur verið greint frá hvern hug sumir fyrr- um samstarfsmenn hans bera til hans. Líklega hafa þó verið sagð- ir fleiri slæmir hlutir um hann en góðir en svo vill oft verða um fólk sem baðar sig í ljóma frægð- arinnar, að ég tali nú ekki um þegar það gerir það jafn ríkulega og Rod Stewart hefur gert. Hvað svo sem sagt verður um manninn er það óneitanlega að- dáunarvert hversu lengi hann hefur staðið í fremstu víglínu og hversu vel hann hefur samlagast eða staðið af sér hinar ýmsu tískubylgjur rokktónlistar. Þó mér finnist persónulega margt misjafnt hafa komið frá Rod Stewart um dagana, þá hef ég nú yfirleitt ekki séð neina ástæðu til að tala eða skrifa neitt sérlega illa um hann, en mikið vona ég nú samt að honum komi ekki til með að líða allt of vel í stúkunni á Laugardalsvell- inum, þegar landsleikur íslend- inga og Skota fer þar fram næstkomandi þriðjudag. CU PDN3> TYPAR ný lousn ó gömlumvando TYPAR síudúkur frá Du Pont er níösterkur jarövegsdúkur ofinn úr polypropylene. Hann er léttur og mjög meðfærilegur. TYPAR síudúkur leysir alls konar jarövatns- @vandamál. TYPAR er notaöur í ríkum mæli í stærri verk- um svo sem í vegagerö, hafnargerð og 0stíflugerð. TYPAR síudúkur er ódýr lausn á jaróvatns- vandamálum viö ræsalagnir vió hús- byggingar, lóóaframkvæmdir, Iþrótta- ^svæöi o.s.frv. TYPAR síudúkur dregur úr kostnaói vió jaró- vegsskipti og gerir þau jafnvel óþörf og stuölar aö því, aö annars ónýtan- legan jaróveg megi nota. Dúkurinn kemur sérstaklega vel að notum í ódýrri vegageró, hann dregur úr aur- bleytu í vegum þar sem dúkurinn að- skilur malarburöarlagiö og vatnsmett- aö moldar- eöa leirblandaðan jaróveg. Notkun dúksins dregur úr kostnaói vió vegi, „sem ekkert mega kosta”, en leggja verður, svo sem aö sveitabýl- ^um, sumarbústöðum o.s.frv. TYPAR er fáanlegur í mörgum geröum, sem hver hentar til sinna ákveðnu nota. TYPAR® skrásett vörumerki Du Pont Siðumúla32 Sími 38000 esid af meginþorra þjóðarinnar daglega! Auglýsinga- síminn er224 80

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.