Morgunblaðið - 26.05.1985, Blaðsíða 14
14 B
-MQRQyNeLAÐiÐ,,SUWUDAftUR 26. MAÍ Í985
Frá fornu fari hafa villiepli vaxið í norðvesturhluta Himalayafjalla.
Talið er að eplin hafi breiðst þaðan út vestur og norður til Grikklands,
þar sem þau voru ræktuð frá því um 600 f.Kr. A tímum Theophrastus-
ar, sem var grískur heimspekingur á 4. öld f.Kr., var þegar orðinn til fjöldi
tegunda. Talið er að ef til vill hafi epli borist til Evrópu með dýrum,
sennilega fyrir þann tíma. Minjar um epli hafa fundist í rústum frá steinöld
á Norður-Ítalíu og í Sviss. Epli urðu þýðingarmestu ræktunarávextir Evrópu
og því engin furða þótt Evrópubúar tækju með sér epli til Nýja heimsins.
Spánverjar fluttu epli til Suður-Ameríku, Mexíkó og til suðvesturhluta
Bandaríkjanna. Englendingar gróðursettu epli á Nýja-Englandi og í Vir-
giníu og Hollendingar í New York, en Frakkar í Kanada. Frá austurströnd-
inni fluttust eplin vestur á auðnirnar þar sem kaupmenn, indíánar, trúboðar
og landnámsmenn ræktuðu þau. Trúboði að nafni John Chapman, þekktur
undir nafninu „Johnny eplafræ", bar með sér eplafræ til nýlendanna í Ohio
og Indiana í byrjun 17. aldar. Frá þeim trjám urðu til þúsundir afbrigða, allt
að 7.000 að talið er.
Nú læra börn hér frá blautu barnsbeini að
borða epli beint úr hendinni. Það er af sem
áður var að epli fengust bara um jólin, enda
þjáir C-vítamínskortur ekki íslending
lengur. Almenn ávaxtaneysla er orðin
fastur liður í mataræði okkar, en
sumar ávaxtategundir innihalda
meira C-vítamín en epli. Á markaði
eru rauð, græn og gul epli og við ætt-
um að geta valið. Einn stærsti ávaxta-
innflytjandi auglýsir vikulega í dag-
blöðum þær tegundir sem eru á boð-
stólum hjá honum og hvaðan þær
koma. En algengt er að verslanir, ein-
kum hinar stærri, setji eplin í plast-
poka eða rekka sem gefa engar upp-
lýsingar um eplin. Þó eru einstaka
kaupmenn með eplin í kössunum, sem
þau koma í og er þá hægt að lesa á
kassana. Til er fjöldi eplategunda sem
eru ræktaðar sem matarepli og jafn-
vel sem skrautepli. Matarepli eru
bragðsterk en hér selja kaupmenn
gömul og hrukkótt epli sem matarepli
— epli sem eru orðin dísæt, mjölmikil
og nánast bragðlaus. Gott
ráð er að setja sítrónusafa
saman við þau epli sem
ætluð eru til suðu. Hægt
er að búa til svo margt
úr eplum, að það gæti
verið efni í heila bók,
en ég læt nægja að
birta 5 uppskriftir.
Eplapönnukökuterta með sýrópi
3 eggjarauður
2 msk sykur
3 dl hveiti
1 tsk lyftiduft
1 ‘A dl mjólk
2 msk matarolía
3 þeyttar eggjahvítur
3 epli
safi úr 'k sítrónu
'k dl sýróp
1. Þeytið eggjarauðurnar með sykri, bætið hveiti, lyftidufti
og mjólk út í. Setjið síðan olíuna út í.
2. Þeytið eggjahvíturnar og setjið saman við deigið.
3. Afhýðið eplin, stingið úr þeim kjarnann, skerið síðan í
þunna báta.
4. Kreistið safann úr sítrónunni og hellið yfir eplabátana.
Reynið að jafna vel á þá.
5. Hitið ponnukökupönnu, hafið hægan hita. Búið til 5
pönnukökur úr deiginu.
6. Setjið fimmta hluta deigsins á pönnuna. Látið pönnukök-
una þorna örlítið að ofan. Setjið þá fimmta hluta eplabát-
anna ofan á. Snúið pönnukökunni við og bakið á hinni
hliðinni. Farið eins að með hinar fjórar.
7. Raðið pönnkukökunum saman, smyrjið hverja þeirra
með sýrópi. Setjið á fat. Skerið í sundur eins og tertu.
Eplakaka með tvíbökum og kókosmjöli
1 kg epli, helst súr
2 msk hunang
safi úr 'k sftrónu
200 g tvíbökur
'k dl ljós púðursykur
150 g smjör
50 g kókosmjöl
1. Afhýðið eplin og stingið úr þeim kjarnann, skerið síðan í
þunna báta. Setjið bátana í eldfasta skál.
2. Hitið hunangið í potti þar til það er þunnfljótandi, setjið
sítrónusafann saman við. Hellið yfir eplin og hreyfið við
þeim svo þetta þeki eplin.
3. Setjið tvfbökurnar í plastpoka og merjið með kökukefli.
SetjiiV síðan púðursykurinn saman við tvfbökumylsnuna.
Hellið þessu ofan á eplin.
4. Bræðið smjörið og ausið yfir tvfbökurnar með skeið.
5. Stráið kókosmjöli yfir.
6. Hitið bakaraofn f 190°C og bakið kökuna í miðjum ofnin-
um í 30—40 mfnútur.
Meðlæti: Þeyttur rjómi.
Eplakaka með rúsínum og möndlum
Botninn
250 g hveiti
175 g smjör eða smjörlíki
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
100 g sykur
1 egg
1—2 msk rjómi eða mjólk.
1. Blandið saman hveiti og sykri, myljið smjörið saman
við þar til þetta er orðið kornótt deig. Setjið þá egg og
rjóma/mjólk saman við og hnoðið vel saman.
2. Setjið deigið á botninn á og upp með börmunum á
bökumóti eða springmóti (30 sm í þvermál). Setjið í kæli-
skáp f 1 klst.
3. Hitið bakaraofninn f 200°C og bakið þetta i 10 mínút-
Fyllingin:
1 kg epli, helst súr
75 g sykur
1 dl rúsínur
'k dl hnetur eða möndlur
2 msk sherry
4. Afhýðið eplin, stingið úr þeim kjarnann, skerið síðan í
þunna báta. Setjið í pott.
5. Malið hneturnar fínt, setjið þær ásamt rúsínum og
sykri saman við eplin, hitið þetta í pottinum, hrærið vel í
en gætið þess að þetta brenni ekki. Þegar þetta hefur
jafnast vel saman, er sherry hellt út í.
6. Hellið eplunum á deigbotninn.
Deig yfir bökuna:
75 g lint smjör
75 g sykur
25 g saxaðar möndlur eða hnetur
7. Blandið þessu vel saman og myljið yfir eplin.
8. Minnkið hitann á bakaraofninum í 180°C og bakið
þetta í 20 mínútur.
9. Berið kökuna fram heita eða kalda með ís.
Djúpsteiktir eplahringir
5 epli, helst súr
safi úr 1 sítrónu
2 eggjarauður
2 tsk sykur
2 dl hveiti
1 tsk lyftiduft
1 'k dl eplajógi
2 þeyttar eggjahvítur
'k pk palmin + 3 dl matarolía til að steikja úr
1 msk flórsykur
1. Afhýðið eplin, skerið úr þeim kjarnann, skerið síðan i
1 sm þykkar sneiðar (hringi).
2. Penslið eplasneiðarnar með sítrónusafanum.
3. Hrærið eggjarauðurnar með sykri, setjið síöan hveiti,
lyftiduft og eplajóga út f.
4. Þeytið eggjahviturnar og blandið saman viö deigið með
sleikju.
4. Hitið palmín ásamt mataroliu.
5. Setjið deig í teskeið og steikið i feitinni til að athuga
hvort hún er mátulega heit.
6. Veltið eplasneiðunum upp úr deiginu, setjið 3—4 sneið-
ar í pottinn i einu og steikið báðum megin, þar til sneiðarn-
ar eru gullbrúnar.
7. Leggiö hringina á eldhúspappfr sem sogar feitina í sig.
Setjið síöan eplahringina á fat.
8. Sigtið flórsykur yfir í gegnum vírsigti.
Fljótleg eplakaka
2 egg + 2 eggjarauður
175 g sykur
100 g hveiti
1 tsk lyftiduft
2 epli
2 þeyttar eggjahvítur ofan á kökuna
l'k dl sykur saman við eggjahvíturnar.
1. Þeytið saman 2 egg, 2 eggjarauður og sykur þar til það
er ljóst og létt.
2. Hrærið hveiti og lyftidufti saman við með sleikju.
3. Hitið bakaraofninn í 190°C og bakið þetta í 10 mínút-
ur.
4. Afhýðið eplin, stingið úr þeim kjarnann. Rífið sfðan
gróft.
5. Þeytið hvíturnar ásamt hluta af sykrinum. Þeytið
áfram og setjið sykurinn smám saman út f.
6. Takið kökubotninn úr ofninum, setjið eplin ofan á,
smyrjið sfðan eggjahvitunni jafnt yfir.
7. Minnkið hitann á bakaraofninum f 180°C og bakið
kökuna áfram í 20 mínútur.
Meðlæti: Is.