Morgunblaðið - 26.05.1985, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 26.05.1985, Blaðsíða 29
MORGUNBLAPIÐ, SUNNUDAGUR 26. MAl 1965 endanum. í henni þroskast gró- in, sem dreifast með vindum. Upp af þeim vaxa síðan nýjar mosaplöntur. Kynlaus æxlun er líka mjög algeng meðal mosa, en þá fjölgar þeim án grómyndun- ar. Þess háttar æxlun getur ver- ið með ýmsu móti. Af rúmum 500 mosategund- um, sem vaxa hér á landi, eru það aðallega tvær til fjórar teg- undir, sem eru algengar í garð- blettum, a.m.k. á Suðurlandi. Miklu mest ber á einni þeirra, engjaskrauta (Rhytidiadelphus squrrosus). Engjaskrauti (sjá mynd) vex oftast í stórum þykkum breiðum. Hann er óreglulega greinóttur og er auðþekktur á blöðunum. Fremri hluti þeirra stendur út frá stönglinum og myndar þri- hyrndan, mjóan odd, sem sveig- ist jafnvel aftur á bak. Blöðin eru riflaus og oftast er mosinn rætlingalaus og ekki jarðfastur. Hann tekur allt vatn úr regni eða umhverfinu, en sýgur það ekki úr jarðveginum. Gróhirzlur eru mjög sjaldgæfar hér á landi. Hann fjölgar sér því einkum kynlaust með sprotum eða grein- um. Auðveldasta ráðið tl þess að eyða engjaskrauta er að rífa hann upp með garðhrífu snemma vors og ekki er verra að bera köfnunarefnisáburð í skell- urnar, sem kunna að myndast. Einnig getur verið til bóta aö Jersey Sumarleyfísparadís í Ermasundi Jersey-eyja er í miðjum Golfstrauminum aðeins 21 km. frá Frakklandi. Loftslagið og umhverfið minnir mjög á Frakkland og hið sama má segja um matinn og hin gómsætu vín, sem þar eru ræktuð. Gestrisnin og hin frábæra aðstaða til hvers kyns íþróttaiðkana er hins vegar dæmigerð fyrir Englendinga. Ibúarnir tala ensku og verðlagið er sérstaklega hagstætt vegna tollfríðinda. Á Jersey eru fjölmargir góðir veitinga- og skemmtistaðir og baðstrendurnar eru einstakar. Á leiðinni til eða frá Jersey er tilvalið að koma við í London og njóta alls þess sem heimsborgin hefur upp á áð bjóða. Leitið frekari upplýsinga hjá Ferðaskrifstofu Kjartans Helgasonar eða Ferðaskrifstofunni Urval eða klippið út miðann og sendið hann til: Dept. CXl, States of Jersey Tourism, Weighbridge, Jersey, Channel Islands. Sendið mér upplýsingar um ferðir til Jersey og gistingu þar Nafn__________________________________________ Heimilisfang__________________________________ Póstnr. B tóö dreifa sandi í sárin. Mosanum, sem upp rakast, má síðan blanda í moldina, grafa hann niður í beð eða láta í safnhaug. Næringar- gildi hans er að vísu ekki ýkja mikið en þar sem jarðvegur er leirborinn og þéttur kemur hann að góðum notum sem íblöndun- arefni, því að hann gerir mold- ina gljúpari og loftbetri. Þrálátari getur mosinn orðið í gömlum görðum, þar sem hávax- in tré eða veggir varpa miklum skugga. Eitt aðaleinkenni slíkra grasflata er hversu blautar þær eru. Reyndar er rangt að kalla þær grasflatir, því að mosinn er þar alls ráðandi. Það er því ekki nóg að raka burt mosann heldur þarf að ræsa fram jarðveginn, tyrfa að nýju eða sá, en einnig þarf að huga að grisjun trjáa og runna, sem skyggja á. Þótt margir hafi horn í síðu mosa í grasflötinni geta þeir ver- ið hin mesta garðaprýði þar sem við á. Oft eru steinar úr hraun- um og holtum notaðir í vegg- hleðslur eða steinhæðir. $líkir mosavaxnir steinar eru oft veru- lega fallegir og ekki þarf að ótt- ast að mosategundir, sem á þeim vaxa, sæki í grasflötina, því að það eru allt aðrar tegundir. En vilji menn hins vegar allan mosa burt af steinum má auðveldlega þvo hann af með heitu vatni eða rífa hann lausan með vírbusta. Höfundurinn er formaður Hins ís- lenzka náttúrufræðifélags. FRÆÐSLUÞÆTTIR HINS ÍSLENSKA NÁTTÚRUFRÆÐIFÉLAGS Mosi í görðum J—/esió af meginþorra þjóðarinnar daglega! Auglýsinga- síminn er224 80 — eftir Ágúst H. Bjamason Hið íslenska náttúrufræðifélag og áhugahópur um nátturu- fræðisafn báðu ýmsa menn að skrifa stutta og aðgöngugóða fræðsluþætti um náttúru landsjns. Þeir munu birtast í sunnu- dagsblöðum Morgunblaðsins. í sumum greinum er getið um nýjungar en í öðrum er fjallað um árstímabundna atburði í ríki náttúrunnar. Tilgangurinn er að auka þekkingu og áhuga fólks á náttúrufræðum. Á hverju vori er það garðeig- endum mikið áhyggjuefni, að grasbletturinn sé hlaupinn í mosa. Rétt er, að mosi sækir mjög í suma bletti, aðallega vegna raka, áburðarskorts og skugga. Það ber því að hafa það í huga, að mönnum hættir til að gera of mikið veður út af fram- sækni mosans. Flestir leggja metnað sinn í að hafa fallega grasbletti umhverf- is hús sín. Helzt vilja menn, að grasið í þeim sé þétt, snöggt og samfellt og þoli nokkurn átroðn- ing. Sagt er, að ósleginn blettur lýsi betur en flest annað hirðu- leysi eigandans. Ætli grasteg- undir séu ekki einu plönturnar, sem fólk kærir sig ekki um í blóma, þó að stórum keilulega punkti snarrótar og fíngerðum punkti língresis sé viðbrugðið fyrir fegurð. Það er algengt víða erlendis einkum á vorin, að grasflatir séu blómum skrýddar. Þá hefur laukplöntum verið plantað þar að hausti og þykir að þeim hin mesta prýði. Jafnan er sáð mjög gisið í slíkar flatir og lítið borið á þær, svo að ýmsar aðrar plönt- ur ná þar einnig fótfestu. Ekki er slegið fyrr en síðla sumars og þarfnast flatirnar nokkurrar umhirðu, ef vel á að vera. Ef grasblettir hér á landi loga í sól- eyjum og fíflum er það hins veg- ar talið merki um hina mestu órækt. Sums staðar er það að vísu trúa manna, að ávallt fari saman kalt vor og tún fagurgul af sóleyjum. Vaxtarskeið mosanna er með nokkuð sérstökum hætti. Mosar eru sígrænir og lifa allan vetur- inn. Þeir byrja að vaxa fyrstir allra plantna á vorin, síðan dreg- ur verulega úr vextinum þegar aðrar plöntur yfirskyggja þá, en undir haustið hleypur oft vöxtur í þá á ný. Það er einmitt vegna þessa, sem mosinn verður svo mjög áberandi í grasblettum þegar á útmánuðum og veldur oftast óþarfa áhyggjum. Þegar líða tekur á vorið og grasið nær yfirhöndinni hverfa þeir í svörð- inn og fólk hættir að taka eftir þeim. Það, sem ræður mestu um það hvar mosar vaxa, er gerð undir- lagsins (t.d. jarðvegs, steina eða trjágreina) og lágviðrið (micro- clima) eða, með öðrum orðum, það veðurfar, sem ríkir næst mosanum og er frábrugðið lofts- lagi umhverfisins. Ávallt ríkir líka samkeppni á milli mosans og annarra plantna um alla þætti í umhverfinu, svo sem um ljós, hita, næringu og fleira. Út- breiðsla mosategundar afmark- ast bannig af aðlögunarhæfni Engjaskrauti. — Á myndinni er sýnd lögun gróhirzlu, blaða, bæði á greinum og stöngli og helztu frum- gerðir. Teikning: Bergþór Jó- hannsson. hennar gagnvart umhverfinu. Flestir mosar hafa stöngul og blöð en í stað róta eru fíngerðir þræðir, svokallaðir rætlingar, sem festa niður og annast vatns- upptöku. Sumir mosar taka þó allt vatn ásamt steinefnum upp gegnum blöðin. Þau eru aðeins eitt frumulag á þykkt. Eftir blaðinu miðju er á stundum upp- hleyptur strengur, rifið, eða það er strenglaust. Mosaplönturnar mynda egghirzlur og frjóhirzlur. Eftir frjógvun vex kvenplönt- unni stilkur með gróhirzlu á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.