Morgunblaðið - 26.05.1985, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 26.05.1985, Blaðsíða 25
B 25 MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1985 um var til gleði, jafnt þeim sem gáfu og hinum sem þáðu. Hjúkrunarmál og hjálpsemi við þá, sem voru hjálpar þurfi, voru henni ætíð hugleikin. Þarna var langt að leita læknis, að Brekku í Fljótsdal. Þá var sá eini kostur að menn hlypu undir bagga og tækju að sér að hjúkra þeim sjúku, af þessu fór hún ekki varhluta. Einn- ig var hún tilbúin að ganga í heim- ilisstörfin á viðkomandi stað væri þess þörf, hvort sem það var að þvottabalanum, matartilbúningi eða hverju sem var. Sigurlaug eignaðist fyrstu prjónavélina á Borgarfirði og nutu þar margir góðs af. Þá var áhugi hennar ekki minnstur á bindindismálum. Stúka var stofnuð, sem hún starf- aði einnig í. Til gamans skal þess getið, að þegar ég var viðflæktur á Borgarfirði og var einhvern veg- inn plataður til að ganga í stúk- una. Ég var þó ekki óreglumaður, en þótti gott vín. Sem sagt, ég gekk í stúkuna og var það haft að gamanmálum að mín góða frænka hefði horft stíft á mig, er ég lagði höndina á hjartað. Talið var að höndin hefði ekki verið á réttum stað. í sóknarnefnd var Sigurlaug einnig kosin og með sanni má segja, að hún hafi komið víða við. Hjúkrunarmála hefur áður ver- ið getið. Berklasjúkling tók hún eitt sinn inn á heimilið og hjúkr- aði um tíma. Én það var líkt og hulin hönd varnaði því að nokkuð hlytist af því. Sumir héldu að Sig- urlaug gerði þetta upp á sitt ein- dæmi, en fyrir því hef ég góðar heimildir, að Jón setti aldrei fót fyrir það sem Sigurlaug vildi gera, heldur voru það samráð, en slíku var Jón ekki að flíka. A heimili þeirra hjóna var oft gestkvæmt, voru það bæði nágrannar og lengra að komnir. Þetta hélst meðan þau bjuggu og ekki minnk- aði reisnin eftir að Þórður sonur þeirra og kona hans, Sigrún, tóku við stjórninni. Þar höfðu eldri hjónin athvarf. Jón andaðist árið 1958. Sigurlaug hefur erft hreystina úr Desjarmýrarættinni, og hefur aldrei bognað né brotnað á langri ævi. Síðasta áratuginn hefur hún dvalið blind, á sjúkradeild í Há- túni 10B, í Reykjavík. Þar hefur henni verið veitt einstök umönnun og atlæti. Sumt af því er ég hef sagt hér hef ég eftir konu minni, Svövu Jónsdóttur. Móðir hennar og Sig- urlaug voru jafnöldrur og miklar vinkonur. Þær hittust oft og hlust- aði Svava á tal þeirra, þar sem margt bar á góma. Svava bætir síðan við: „Sigurlaug var myndar- leg kona á velli og bauð af sér góðan þokka, ákveðin í tali og fasi og vingjarnleg við alla. Þeir sem kynntust henni, gleyma henni ekki.“ Hér endar frásögn konu minnar og annarra heimilda, en við tekur tími, þar sem ég kynntist Sigurlaugu að nokkru sjálfur. Á milli þessa hefur mikið vatn til sjávar runnið. Ég fluttur „suður" ásamt mín- um nánustu og að auki tekið grjótsýki. Lækningin var herferð- ir til Áusturlands i sumarfríum og aðalstaður var Borgarfjörður. Nú er mál að geta þess, að Jón og Sigurlaug höfðu eignast tvo syni, Helga og Þórð. Þeir höfðu náð hinum sterka streng ættar- innar, vörpulegir á velli og glæsi- legir í sjón. Nú voru þeir búnir að festa ráð sitt og bjuggu á Bakka- gerði. Helgi var kvæntur Svein- björgu Steinsdóttur og eru dætur þeirra Sigurlaug, Þóra, Sesselja og Jóna. Kona Þórðar er Sigrún Pálsdóttir og börn þeirra Páll, Sigurlaug, Birna og Jón. Sigurlaug og Jón höfðu tekið til fósturs dreng, fárra vikna gamlan, Björn Helgason. Hann var sonur hjón- anna Hólmfríðar Björnsdóttur og Helga Björnssonar, náskyldur Sigurlaugu. Hann var þeim jafn- kær og hinir synirnir enda alinn upp sem bróðir þeirra. Björn lést 1949. Kona hans var Margrét Sig- urjónsdóttir og bðrn þeirra Guð- finna, Helgi og Sigurjón. Systir Björns dvaldi einnig á heimilinu um árabil. Þórður og Sigrún bjuggu nú i Sigtúni á Borgarfirði ásamt for- eldrum Þórðar. Ég fékk pláss í kjallara undir grjót og varð þar að miklu heimagangur. Með þessu hófust hin raunverulegu kynni okkar Sigurlaugar. Þótt steina- sýkin stæði hátt, féllu alltaf til stundir til að tala um bæði gamalt og nýtt. Umhyggja Sigurlaugar um minn hag var óstöðvandi. „Ertu ekki votur í fætur, viltu ekki mjólkurdropa eða kaffisopa eða matarbita?" Hefði ég alltaf játað, hefði ýstra á mig hlaðist, en erfið- ið varnaði þess. Gaman var að eygja afstöðu eldri hjónanna til barnabarnanna, þó fannst mér Jón þar á toppi, enda hafði hann betri tíma. Sigur- laug hafði alltaf haft mikil um- svif, sem hún virtist ekki geta los- að sig frá, en voru ekki jafnbrýn og fyrr. Kannski var þetta líkt og með mig, sem aldrei átti nógu marga steina. Þórður létti mér margan spölinn og fór stundum með mér í fjöru, en aldrei vildi hann taka neitt i sinn hlut. Helgi hafði ekki áhuga á steinum nema honum sýndust þeir sérstæðir. Þessu laumaði hann að mér við tækifæri. Helgi féll að foldu á besta aldri af völdum hjartaáfalls. „En minn- ing lifir þó merki falli." Mitt happ var að eignast vináttu þeirra bræðra. Drengskapur þeirra mér til handa fyrnist ei. Nú er mál að lýsingu linni, Lauga frænka. Óskir og vonir fylgja oftast afmælisgreinum. Þótt ég sé 12 árum yngri, hygg ég að örlög okkar séu að mestu ráðin á stöðvum, sem við höfum óljósar hugmyndir um, en góðar þó. Trúa mín er sú, að hlýjum óskum fylgi meiri kraftur en. margur hyggur. Þess kyns óskum viljum við Svava beina til þín á þessum degi. Halldór Pjetursson — SSBSSB Sff — „ OFNAR Odýrir en traustir VEHA ofnar eru ekki bara ódýrir og traustir heldur líka hin mesta heimilisprýði, á sinn hljóðláta hátt. VEHA ofnar eru samþykktir af alþjóðlega staðalsambandinu ISO. VEHA ofnar eru samþykktir fyrir íslenskan staðal. VEHA ofnar afhendast fullmálaðir (innbrennt lakk). VEHA ofnar eru hagkvæmur kostur fyrir húsbyggjendur. Við gerum tilboó, þér að kostnaðarlausu. EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI: Birgir Þorvaldsson umboðs- og heildverslun. Sölu- og umboösadilar: Stór-R«yk|avlkursv«Oi: G. Noródahl. Trönuhrauni 2, Hafnarfiröi. Simar 54666 og 50875. Vastfiróír: Vólsmiðjan Þór, Suöurgötu 12, Isafiröi. Simi 3711. Akurayri, Húsavik og nágrenni: Hitl sf., byggingavörur, Draupnisgötu 2, Akureyri. Simi 22360. Sauöárkrókur og nágrenni: Vélsmiöjan Logi, Sauöórmýri 1, Sauóárkrók. Simi 5165. Reyöarfjöröur og nágrenni: J.P.H. Véia- og bilaverkstaaði, Fagradalsbraut, Reyöarfiröi. Simi 4349. Umboós- og aöluaöilar óskast á fteiri staöi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.