Morgunblaðið - 26.05.1985, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIOt 8UNNUDAGUR 26. MAl 1985
B
Heiðar Jónsson snyrtir.
Einlöld — Ódýr
Ennazna
Pakkavog 20 kg. 50 kg.
Rafmagn + raíhlööur
Öli\íUíi ©ISl^SOBi A CO. SflSL
SUNDABORG 22 104 REYKJAVÍK SÍMI 84800
Fegurð er
hugarástand
— segir Heiðar Jónsson snyrtir
„Fegurð er hugarástand númer
eitt tvö og þrjú. Ef kona trúir því að
hún sé falleg, þá er hún það.“
Sá sem er höfundur þessara
orða er líklega einhver mesti sér-
fræðingur sem við eigum í fegurð-
armálum, Heiðar Jónsson snyrtir.
Auk þess að hafa starfa af því að
gera konur fagrar var Heiðar um
árabil einn aðal-„reddarinn“ í
kringum íslenskar fegurðarsam-
keppnir og á úrklippusafn um ís-
lenskar og erlendar fegurðar-
drottningar, sem tekur yfir heilan
vegg í stofunni hjá honum. Allar
myndirnar í greininni um fegurð-
ardrottningar tslands í 34 ár eru
fengnar að láni úr þessu safni
Heiðars. En það er fróðlegt per-
sónulegt álit Heiðars á því hvernig
fegurðardrottning eigi að líta út:
„Hún þarf að hafa „presence",
eins og sagt er á ensku, en við
eigum því miður ekkert gott orð
yfir; „sviðsþokki" kemst kannski
næst því. Ég á við að hún verði að
hrífa mann með glæsileika sínum,
hafa útgeislun. Þess vegna segi ég
að fegurð sé hugarástand, því
sviðssjarminn kemur útlitinu i
sjálfu sér lítið við.
En auðvitað er mikilvægt að
konan sé hlutfallslega vel sköpuð
líka, skárra væri það nú. Ég á mér
vissan uppáhaldskvarða, nokkurs
konar „ideal“, sem er þannig að
konan á að vera 175 sentímetrar á
hæð, 55—56 kílógrömm að þyngd
og hafa málin 90—58—90: sem
sagt, engin sleggja, en há, ekki
grindhoruð, en grönn, og hún á að
samsvara sér.
tilbúnar til að leggja á sig þá
miklu vinnu sem þetta krefst."
„Annað til,“ segir Friðþjofur,
„ungt fólk i dag er mun opnara og
heilbrigðara á ýmsan hátt, en áð-
ur var. Það hugsar um útlit sitt og
heilsu, stundar líkamsrækt og sól-
böð, snyrtir sig og klæðir smekk-
lega, og það þykir ekki lengur fínt
að vera blindfullur og druslulegur
að þvælast um á öldurhúsum. Það
eru breytt viðhorf, hreysti og feg-
urð eru i tísku.“
— En sjálft valið á úrslita-
stundu? Hvernig standið þið að
því? Farið þið eftir einhverju sér-
stöku kerfi eða er tilfinningin að
mestu látin ráða?
„Eitt atiði er ofarlega á blaði,
sem kannski snertir ekki*fegurð-
ina beint, en skiptir miklu máli
þegar fegurðardrottning íslands
er valin," segir Ólafur: „Hún verð-
ur að hafa bein í nefinu og geta
komið fyrir sig orði! Við skulum
hafa það í huga að við erum að
velja stúlku til þátttöku I alþjóð-
legum keppnum, svo sem Miss
Universe, sem 650 milljón manns
horfa á í beinni útsendingu. Ef ís-
lensk stúlka nær langt í þeirri
keppni verður hún að vera hörð til
að þola það álag sem því fylgir."
Friðþjófur tók í sama streng, en
sagðist annars byggja sinn dóm á
fimm atriðum, sem öll væru jafn
mikilvæg: vaxtarlagi, andlitsfalli,
göngulagi, almennri framkomu og
persónuleika stúlkunnar. En hvað
er fallegt vaxtarlag eða göngulag,
til dæmis?
Þeir félagar þögðu um stund, en
svo kom svarið:
„Maður er nokkuð snöggur að
sjá það út.“
Eina svarið sem vit er í, enda
hafa dómendur í fegurðarsam-
keppni ekki áhyggjur af því að
geta ekki skilgreint fegurðina sem
slika, þeir vita sem er að ekki er
hægt að krefjast þess af þeim —
það væri eins og að ætla trúuðum
manni að hætta að biðja þar til
hann hafi sannað tilveru guðs með
óyggjandi rökum.
'^bylling í eldhúsinu
Nýjir möguleikar meö ARCOFIAM pottunum.
ARCOFLAM pottana má nota jafh á
ARCOFLAM pottana má setja ■
»sa má handfang ARCOFLAM pottana með
nu handtaki og eru þeir þa sem falleg
>stulínsskál og henta mjoq vel tll þess ad
amreida matinn beint á
TEKK*
KRISTILL
UiugavegtlS simi 14320
ARCOFLAM pottamir bjóda npp á ótal möguleika og gera matreiðsluna auðveldari.
komdu við eða fáðu sendart upplýsinga bækling.