Morgunblaðið - 26.05.1985, Síða 6

Morgunblaðið - 26.05.1985, Síða 6
$ H MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. MAl 1985 Hvað er kvenleg fegurð? Hvað er það við sumar konur sem gerir þær fagrar? Er það ákveðið vaxtarlag, andlitsfall, litaraft, framkoma eða skapgerð? Er til einhver fullkomin „blanda" þess- ara eiginleika, sem gengur svo vel upp hjá einstaka konum að feg- urðin geislar af þeim? Ef svo er, hvernig er hún þessi blanda? Hver er hin fullkomna ímynd kvenlegr- ar fegurðar? Hvernig á fegurðar- drottning að líta út? Kannski sumir álíti spurningar af þessu tagi jafn fáránlegar og að velta því fyrir sér hvaða sósa sé best út á is. Það vill nefnilega svo til að einum finnst jaröarberjaís með afbrigðum góður en öðrum býður við honum, en þykir hins vegar ís með súkkulaðibragði það besta sem hann fær. Það er út i hött að velta fyrir sér hvers vegna þetta er svo, segja menn; þetta er smekksatriði og menn deila ekki um smekk. Menn hafa einfaldlega misjafnan smekk, ekki aðeins á ís- sósur, heldur á nánast hvað sem er: tónlist, skemmtanir, vinnu, bíla, málverk, hús, kvikmyndir, bækur, mat og síðast en ekki síst — konur. í sinni öfgafyllstu mynd felur þetta sjónarmið í sér, að kona geti talist fögur sem mælist 50—90—120 á mikilvægum stöð- um, er með fjórfalda undirhöku, brenndar tennur, útstandandi eyru og nef eins og naggris. Ef einhver heldur því fram að slík kona sé fögur er enginn þess um- kominn að segja að hann hafi rangt fyrir sér — honum skjátlist, því konan sé forljót. Það má kannski segja að hann hafi óvenjulegt fegurðarskyn — og setja hann að þvi leyti á bekk með manni sem boröar sinnep út á is — en hans smekkur er jafn rétt- hár öllum öðrum. Er fegurðarsam- keppni marklaus? Ef þetta væri sannleikanum samkvæmt væri fegurðarsam- keppni auðvitað marklaus með öllu; úrslitin endurspegluðu þá að- eins smekk dómenda, en segðu ekkert um „raunverulega fegurð" þátttakenda. Önnur dómnefnd gæti komist að gjörólíkri niður- stöðu. Raunar væri vafasamt að tala um „raunverulega fegurð", í þeim skilningi a.m.k. að í því fæl- ist tilvísun til einhverra eiginleika konunnar, sem gerðu hana fagra. Því við hvaða eiginleika ætti að miða? Ef val manna á viðmiðum er persónubundið og handahófs- kennt, þá eru til jafn margar fyrirmyndir hinnar fullkomlega fögru konu og mennirnir eru margir. Sömu viðmiðin En það stenst ekki, því hvað sem líður breytilegu fegurðarskyni fólks, þá liggja að meira eða minna leyti sömu viðmiðunarregl- urnar til grundvallar öllu fegurð- armati. Ef svo væri ekki gætum við ekki talað af nokkru viti um fegurð hluta, því enginn nema við sjálf hefðum nokkur tök á þvi að skilja hvað við er átt. Raunveru- lega skiljum við varla mann sem hrífst af konu sem ofannefnd lýs- ing gæti átt við. Hvað sérðu við hana, spyrjum við? Og ef hann segir að sér líki málin, þetta flata nef, útstandandi eyrun og brennd- ar tennurnar, þá erum við jafn nálægt því að skilja hann og mann sem segist reykja af því það sé svo vont! Það er einfaldlega hugsun sem við gripum ekki. En ef hann segir að það lýsi af konunni „innri fegurð", hreinleiki sálarinnar, og hún hafi mjúkar, seiðandi hreyf- ingar, sem honum falli i geð, er kominn umræðugrundvöllur: ágreiningur okkar stafar þá af því að hann metur þessa hluti meira, tekur „innihaldið" fram yfir „formið". Við getum verið sam- mála honum eða ekki, en eitt er víst, við skiljum hann: hann beitir sömu reglum og við í mati sínu, þótt áherslurnar séu aðrar. Samræmi Við getum sem sagt slegið því föstu að einhvers konar ímynd kvenlegrar fegurðar liggi til grundvallar mati fólks á fegurð kvenna. Annars væri öll rökræða om þessi mál út í bláinn og til einskis. Þessi ímynd er kannski ekki nákvæmlega eins í hugum manna, og hún er breytileg frá einum tíma til annars, og svo flók- in er hún og ofin úr mörgum þátt- um, að það er líklega útilokað að skilgreina hana og skýra nákvæm- lega. Ekki frekar en menn geta skilgreint í hverju fullkomið lista- verk er fólgið: tvö málverk geta verið nánast fullkomin, en þó gjör- ólík. Samt er eitthvað sameigin- legt með þeim, sem ljær þeim full- komleikann: ákveðin myndbygg- ing, litaval, jafnvel boðskapur. Listfræðingar geta eytt ævi sinni í að reyna að finna hvað það er, komist nær því kannski, en end- anlegt svar er varla til. Eins geta dómendur í fegurðarsamkeppni staðið frammi fyrir því að þurfa að velja á milli tveggja stúlkna, sem eru sláandi ólíkar en báðar gullfallegar. Fegurðin tekur á sig margar myndir, en að baki öllum fögrum hlutum liggja sömu for- sendurnar, og sú mikilvægasta er samræmi, eða samsvörun. Gríski heimspekingurinn Platón taldi að fullkomnasta samræmið væri fólgið í hlutföllunum 5 á móti 8, svokölluðu „gullinsniði", sem er ríkjandi hlutfall í hefðbundnu landslagsmálverki: himinninn tek- ur yfir % hluta myndflatarins og landslagið % hluta. Dómarar i fegurðarsamkeppni fyrri tima álitu á svipaðan hátt að fegurstu hlutföll konulíkama væru 90—60—90 milli brjósta, mittis og mjaðma. Það er nú úr tísku að einblína um of á þetta „skutlu- snið“, en grunnhugmyndin um ákveðna samsvörun líkamans, „að konan verði að samsvara sér“, eins og sagt er, er enn í fullu gildi. GPA ímynd kvenlegrar fegurðar á 19. öldinni. Málverk eftir franska listamanninn Ingres. Hver fegurst er á landi hér Rætt við tvo dómnefndarmenn, Friðþjóf Helgason og Ólaf Laufdal Fegurðarsamkeppni íslands fer fram annað kvöld á veitingahúsinu Broadway. Þá mun sex manna dóm- nefnd skera úr um það „hver á landi fegurst er“ árið 1985. Þetta fólk hef- ur starfs síns vegna þroskað með sér gott auga fyrir kvenlegri fegurð og er að því leyti betur í stakk búið til að kveða upp slíkan dóm en allur almenningur. En hvernig bera þau sig að við þetta starf? Tveir dóm- nefndarmenn, Friðþjófur Helgason Ijósmyndari og Ólafur Laufdal veit- ingamaður, verða fyrir svörum: „Fyrst er nú að velja stúlkurnar í sjálfa keppnina," segir Friðþjóf- ur, en hann hefur, ásamt Krist- jönu Geirsdóttur, framkvæmda- stjóra keppninnar, og Sóleyju Jó- hannsdóttur haft veg og vanda af því vali. „Við höfum samband við á ann- að hundrað stúlkur, ræðum við þær og tökum af þeim myndir og veljum síðan úr ákveðinn hóp sem við teljum að eigi erindi í keppn- inna ... Hvernig við finnum þessar stúlkur? Ja, við fáum ábendingar, og svo hikum við ekki við að svífa á fallegar stúlkur á skemmtistöð- um og bjóða þeim þátttöku. Við höfum öll spjót úti.“ „Það hefur orðið mikil hugar- farsbreyting hjá fólki í sambandi við fegurðarsamkeppnina," tekur Ólafur upp þráðinn, „sá tími er Tveir af dómurum keppninnar í ár, Ólafur Laufdal og Friðþjófur Helgason, ásamt framkvæmdastjóranum, Kristjönu Geirsdóttur. liðinn þegar menn litu á fegurðar- samkeppni sem ómerkilegt karl- rembusport og ekki sönnum fem- inistum sæmandi — nú eru stúlk- ur yfirleitt mjög upp með sér að fá tækifæri til að taka þátt í slíku og

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.