Morgunblaðið - 26.05.1985, Page 10
10 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1985
VEÐURFAR
Verður allt
á floti alls
staðar eftir
50 ár?
Hópur bandarískra vísinda-
manna hefur varað við því að
ýmsar lofttegundir í andrúmsloft-
inu geti valdið stórhækkun á hita-
stigi og afdrifaríkum loftslags-
breytingum.
Vísindamennirnir starfa á veg-
um stofnunar sem sér um rann-
sóknir á andrúmsloftinu. Þeir full-
yrða að lofttegundir, sem hingað
til hefur verið lítið af í andrúms-
loftinu, aukist jafnt og þétt og
hafi þegar haft merkjanlegar af-
leiðingar. Þessar lofttegundir eru
m.a. metan, óson og klórflúor-
karbon sem mikið er notað í úðun-
arbrúsa.
Lengi vel var það hald manna að
koltvísýringur gæti valdið meiri
hita í andrúmsloftinu en önnur
efni og meðal annars með þeim
afleiðingum að jöklar bráðnuðu og
af hlytust háskaleg flóð. En vís-
indamennirnir hafa komizt að
raun um að 20 sjaldgæfar loftteg-
undir geta haft miklu alvarlegri
afleiðingar í þessa veru en koltví-
sýringurinn. Þeir fullyrða að nú
þegar geti verið hætta á ferðum,
en skýrsla þeirra um þetta verður
birt snemma í næsta mánuði.
Dr. Ralph Cicerone er einn af
höfundum skýrslunnar og jafn-
framt forstöðumaður þeirrar
deildar stofnunarinnar er annast
efnafræðirannsóknir. Hann segir
að mjög mikilvægt sé að fullt jafn-
vægi sé milli hitastreymis frá sólu
og útgeislunar frá jörðu. Hann
segir: „Nálega allur sá hiti sem
streymir til jarðar frá sólu leitar
aftur út í geiminn. Það sem eftir
verður dugir til þess að halda
hæfilegum hita á jörðinni." En
þetta jafnvægi hefur þegar rask-
azt. Þegar jarðefnaeldsneyti er
brennt myndast koltvísýringur og
hann safnast í stöðugt auknum
mæli fyrir í andrúmsloftinu.
Koltvísýringurinn dregur í sig
hita og hefur ef til vill þegar vald-
ið hækkandi hitastigi.
Dr. Cicerone segir enn: „Hér er
um vandamá! að ræða, en þó ekki
alvarlegt. Sannleikurinn er sá að
koltvísýringurinn dregur í sig
hitaútgeislun frá jörðu aðeins á
ákveðnum bylgjulengdum. Mikið
af sólarorkunni endurkastast aft-
ur út í geiminn. Nú höfum við
komizt að raun um að lofttegundir
sem draga í sig hita á öðrum
bylgjulengdum hefta enn frekar
hitaútstreymi frá jörðu.
Það veldur vísindamönnunum
sérlega þungum áhyggjum að ör-
lítið af þessum gasefnum sem
myndast við útblástur bifreiða,
vinnuvéla og frystitækja, geta
dregið til sín mjög mikinn hita.
Þeir hafa komizt að þeirri niður-
stöðu að slíkar lofttegundir geti
haft þrisvar sinnum meiri áhrif á
loftslag hér á jörðu en koltvísýr-
ingurinn.
Þeir spá því að svo geti farið, að
árið 2030 hafi hitinn í andrúms-
lofti jarðar aukizt um þrjár til
fjórar gráður, en það gæti haft í
för með sér verulega röskun á veð-
urfari. Til að bæta gráu ofan á
svart telja vísindamennirnir að
áhrif þessara loftlagsbreytinga
verði mest á heimskautasvæðun-
um. Það gæti hugsanlega valdið
því að íshellan byrjaði að bráðna
og mikil flóð hlytust af.
Umhverfisverndarstofnun
Bandaríkjanna hefur sett fram
svipuð sjónarmið. „Á síðustu ár-
um eru sérfræðingar farnar að
óttast að aðrar lofttegundir geti
valdið miklu meiri skaða en kol-
tvísýringurinn," segir Denis Tir-
pak, starfsmaður stofnunarinnar.
„Við dælum stöðugt fleiri gas-
tegundum út í andrúmsloftið án
þess að hafa hugmynd um hvílík
áhrif þær geta haft á viðkvæmt
umhverfi okkar,“ segir dr. Cice-
rone.
„Segja má að við séum að gera
tilraunir með umhverfi okkar og
að við förum þar afar gáleysislega
að. Og þó gætu afleiðingarnar orð-
ið geigvænlegar."
— ROBIN MCKIE
wmm i!
Sigur við Stalingrad - á að minnast svo um munar
UNDUR VERALDAR
Minnisstætt
minnismerki
Þetta sovéska stríðsminnis-
merki verður það stærsta,
sem um getur í heiminum, það
glæsilegasta og örugglega það
eina með gríðarstór blómabeð allt
um kring í litum, sem eiga að
tákna atburði stríðsáranna.
„Purpurarauður litur, rauður og
fjólublár munu tákna ófarir og
erfiðleika fyrsta ársins en að lok-
um breytast þeir í bjarta litadýrð
sigursins árið 1945,“ segir arki-
tektinn Anatoly Polyansky.
Stríðsminnismerkið verður við
borgarhlið Moskvu, á Pokl-
onnaya-hæð, þar sem Napóleon
beið árangurslaust eftir því árið
1812, að Moskvubúar kæmu til
MENNTAMALl
Skólarnir
eiga að
skóla menn
Borgaralegur skólaskilningur
eða sem sumir kalla, heil-
brigð skynsemi, mun á hausti
komanda aftur verða hafinn til
vegs og virðingar í frönskum
barnaskólum eftir margra ára
„samfélagsfræðistagl", sem runn-
ið er undan rifjum skólarann-
sóknadeilda íhaldsmanna jafnt
sem sósíalista.
Kennsla með því sniði, sem var í
tíð pabba og mömmu og afa og
ömmu, er mál númer eitt, tvö og
þrjú í gagnorðum 62 síðna bækl-
ingi um kennsluefni barnaskól-
anna en höfundur hans er Jean-
Pierra Chevenement, foringi
vinstri armsins í Sósialistaflokkn-
um, sem tók við embætti mennta-
málaráðherra á síðasta sumri.
Chevenement hafði ekki fyrr
tekið við embættinu en hann gerði
það lýðum ljóst, að þar með væri
búið með meðalmennskuna í
frönsku skólastarfi, nemenda-
dekrið og undanlátssemina, sem
ráðið hafa ríkjum í Frakklandi frá
því á dögum stúdentabyltingar-
innar í maí árið 1968.
í staðinn fyrir „áhugavekjandi"
námsefni fyrir litlu börnin skipaði
Chevenement svo fyrir, að kennar-
arnir skyldu snúa sér aftur að
gömlu greinunum, lestri, skrift,
sögu og landafræði, og fylgja
náminu fast eftir. Einnig burstaði
hann rykið af grein, sem lengi hef-
ur ekki átt upp á pallborðið hjá
„framfarasinnuðum" kennurum,
en það er þjóðerniskennd og
þegnskapur.
„Manndómur, ástundun og föð-
urlandsást" voru þær leiðarstjörn-
ur sem Chevenement fór eftir þeg-
ar hann hófst handa við umbæt-
urnar á síðasta vetri. „Að blása
aftur lífi í heilbrigt gildismat er
ekki skref aftur á bak,“ sagði
Chevenement þegar hann gerði
þingheimi grein fyrir stefnu sinni.
Þetta skyndilega afturhvarf til
aga og reglu í skólastarfi hefur
valdið því, að Chevenement er nú
orðinn að hetju í augum hægri
manna, sem fram að þessu hafa
litið á hann sem marxískan
lýðskrumara, en eins og gefur að
skilja eru samherjar hans á
vinstri vængnum ekki jafn ánægð-
ir og hafa þeir heldur ekki vandað
honum kveðjurnar.
Chevenement lætur raunar líta
út fyrir að breytingarnar séu rót-
tækari en þær eru í raun með því
að lýsa þeim á skorinorðan hátt og
skafa ekkert utan af. „í skólanum
á að stunda nám en ekki skemmt-
anir,“ hreytti hann út úr sér þegar
hann var spurður hvort tíðum
safnferðum með krakkana yrði
haldið áfram en bætti því svo við,
að ekki yrði alveg hætt við þennan
þátt i skólastarfinu.
Enginn efast um, að Chevene-
ment sé full alvara. Jafnvel þegar
hann barðist hvað ákafast fyrir
vinstrimennskunni þótti hann dá-
lítið sérstakur fyrir það hvað
hann talaði oft um ástundun og
árangur og ástina til föðurlands-
ins. Þrátt fyrir það fær Chevene-
ment að heyra það bæði fra hægri
og vinstri, að kúvendingin í
menntamálum sé bara pólitískt
bellibragð, sem komi honum sjálf-
um til góða þar sem vinsældir
hans hafi nokkuð verið farnar að
dvina og geri auk þess stjórn sósí-
alista auðveldara að ná til miðju-
manna í kosningunum á næsta ári.
Það, sem hægrimönnum svíður
þó sárast, er, að það voru þeir
sjálfir eða menntamálaráðherra
úr þeirra hópi, sem byrjuðu á
samfélagsfræðistaglinu áður en
sósíalistar komust til valda.
Staðreyndin er raunar sú, að
samfélagsfræðin og þeir kennslu-
hættir, sem við hana eru kenndir,
hafa haft heldur lítil áhrif á starf-
ið í mörgum frönskum skólum.
Þar sem hennar hefur gætt og víð-
ar raunar hafa þó foreldrar kvart-
að undan óreiðu og áhugaleysi og
að allt sé látið reka á reiðanum.
Það hefur líka verið vatn á myllu
þessarar óánægju, að fjöldinn all-
ur af nemendum er varla læs að
barnaskólanáminu loknu.
í skoðanakönnunum kemur
fram, að vinsældir Chevenements
meðal almennings hafa aukist
stórum og nú nýlega birti franska
stórblaðið Le Monde af honum
dæmigerða teiknimynd þar sem
hann sést rífa mánuðinn maí árið
1968 af skóladagatalinu og kasta
snjáðum sneplunum yfir axlir sér.
- ROBIN SMYTH
hans færandi hendi og afhentu
honum borgarlyklana. Sigurbog-
inn, sem keisarinn lét reisa eftir
sigurinn 1812, var nú nýlega flutt-
ur á þennan stað, sem kallast nú
Sigurgarðurinn.
Nýja stríðsminnismerkið, sem
byrjað var á fyrir fjórum árum, er
230 feta há stytta af sigurfánum,
sem breiðast út og blakta yfir
höfðum verkamanna, hermanna
og bænda. Styttan stendur í garði,
sem er 300 ekrur og í honum verða
1.418 gosbrunnar, einn fyrir hvern
dag sem stríðið stóð fyrir Sovét-
menn.
„Höllin bak við styttuna verður
úr marmara með gullnu hvolfþaki,
eins og rísandi sól að baki minnis-
merkinu."
í Frægðarhöllinni, sem svo kall-
ast, verða letruð nöfn 12.400
helstu stríðshetja Sovétríkjanna
en í næstu sölum verða sýndar
myndir frá uppgjöf Þjóðverja,
gunnfánar, sem féllu í hendur
Sovétmanna, og kort, sem herfor-
ingjaráðið notaði fyrir orrusturn-
ar um Stalíngrad og áhlaupið á
Berlín.
— MARTIN WALKER
NYJUNGAR |
Með sjúk-
dómssögu
sína upp
á vasann
Eitt af stærstu sjúkratrygg
ingafélögunum í Bandaríkj
unum mun brátt kynna nýtt skír
teini, sem hefur þá byltingar
kenndu breytingu í för með sér, ai
læknar þurfa aldrei framar a<
óttast að týna allri sjúkrasögi
þess, sem skírteinið ber. Það eri
þó ekki forstöðumenn fyrirtækis
ins, sem eiga heiðurinn af þessar
uppfinningu, heldur unglings
strákur og tveir félagar hans, sen
hrökklast höfðu úr skóla.
JLífskortið" verður eins o(
hvert annað lánskort að sjá ei
með innbyggðu minni, sem getui
geymt allt að 800 blaðsíður me<
sjúkrasögu viðkomandi. Með þv
að nota einfalda myndsjá og heim
ilistölvu geta læknar skoðað allt
sem skráð hefur verið um veikind
og heilsufar korthafans, allt frí