Morgunblaðið - 26.05.1985, Side 12

Morgunblaðið - 26.05.1985, Side 12
& » MURGUNBLADID, 8UNKUDAGUR 26. MAÍ1985 . iGELmHGANES lúLFAMjFELL^V [FOSSVOGUR, ' |RAUflHOLARl IvíhlsstadavatnI lURRWAVATwl IburfelisgjaI iurfellI Mosfellssveit: Varmárósar eru friðlýstir vegna fuglalífs og gróðurfars. Ulfarsá og Blikastaðakró eru á náttúruminjaskrá, áin frá upptök- um í Hafravatni með 200 m breið- um bakka beggja vegna. Fjaran í Blikastaðakró er vernduð með 50 m breiðu belti ofan fjöru. Léttar fjallgöngur Umhverfí þéttbýlisins á suðvesturhorni landsins virðist ákaflega hrjóstrugt og óaðlaðandi við fyrstu sýn. Svo mætti halda, að skaparinn hafí frekar kast- að til höndunum er hann mótaöi landslagið á þessum slóðum. Ekki er miklum gróðri fyrir að fara, hvergi skóg eða kjarr að sjá svo nokkru nemi, en fíenni- stórar og eyðilegar hraun- breiður þekja landið. Þegar betur er að gáð kemur í Ijós að suðvestur- horniö býr yfír mciri nátt- úrufegurð og hagsæld. Galdurinn er sá að skilja staðhætti. Flestum hættir til að leita langt yfír skammt, jafnvel reyndustu ferðamönnum og áhuga- sömustu náttúruskoðurum. Þeir sem unna ferðalögum og útiveru og þekkja ekki túngarðinn hjá sér eru illa staddir. Straumsvík. Innan þessa svæðið má telja næsta nágrenni höfuð- borgarsvæðisins, þó svo að flest sveitarfélög eigi lönd langt út fyrir það. Til dæmis á Kópavogur landamerki upp í Vífilsfell, Reykjavík upp í Hákoll í Bláfjöll- um, Mosfellshreppur langt upp um alla Mosfellsheiði o.s.frv. Til höfuðborgarsvæðisins telj- ast Mosfellssveit, Reykjavík, Seltjarnarnes, Kópavogur, Garða- bær, Bessastaðahreppur og Hafn- arfjörður. Að auki teljast Kjós og Kjalarnes til höfuðborgarsvæðis- ins, en eru fyrir utan viðfangsefni þessarar greinar. Friðlýst svæði og náttúruminjar Innan höfuðborgarsvæðisins má telja 24 staði sem njóta verndar samkvæmt friðlýsingu eða eru á náttúruminjaskrá Náttúruvernd- arráðs, sem þýðir að vilji er fyrir verndun þeirra. Tíu staðir eru friðlýstir, fimm eru á for- gangsskrá Náttúruvernarráðs, en undirbúningsvinna vegna friðlýs- ingar annarra svæða er skemmra á veg komin. Samkvæmt náttúruverndarlög- um er friðlýsing á fernan hátt. Svæði geta verið lýst þjóðgarðar, þau geta verið lýst friðlönd, einnig SELFJALL CA/ IhelgafellI Göngu- leiðir á hö fuðborgarsv æðinu — eftir Sigurð Sigurðarson Þórsmörk, Landmannalaugar, þjóðgarðarnir og vinsælu án- ingastaðirnir á hálendinu missa lítið af ljóma sínum við saman- burð á landslagi á suðvesturhorn- inu. Hins vegar eykst og batnar þekking manna á landinu þegar hugað er að staðháttum suðvest- anlands. Nátúruskoðun og útivist þarf ekki að tengjast löngum bílferðum þvers og kruss um landið. Því mið- ur tengja margir útiveru við lengri ferðir í sumarfríum. Að vetrarlagi á svigskíðalþróttin áhuga flestra, þó svo að æ fleiri fari nú á gönguskíði en áður. Samt er það miður hve fáir gera sér grein fyrir þeim möguleikum sem bjóðast til útiveru og gönguferða í nágrenni höfðuðborgarinnar. Þéttbýlisskipulagi er víða þannig háttað að aðeins er steinsnar út I óspillta náttúruna og um leið er skarkali borgarlífsins hljóðnaður þó til byggðar sjáist. Óteljandi staðir og svæði henta til útiveru. Gönguferðir um strendur og heiðar, veiðar í ám og vötnum, skíðaferðir innan og utan þéttbýlis, skautasvell að vetrar- lagi á hinum mörgu vötnum ná- lægt þéttbýlinu og innan þess. Þessi umfjöllun um gönguleiðir næst þéttbýli höfuðborgarsvæðis- ins er unnin upp úr handriti að bók um gönguleiðir á suðvestur- horni landsins sem væntanlega kemur út í haust. Höfuðborgarsvæðið f þessari grein verður aðeins fjallað um athyglisverða staði til útiveru og skoðunar hið næsta höfuðborgarsvæðinu. Til að auð- velda viðfangsefnið má takmarka svæðið við línu sem dregin er frá Varmárósum, upp með Varmá til móts við Reykjalund I Mosfells- sveit, þaðan í Selfjall í Lækjar- botnum við Suðurlandsveg. Frá Selfjalli í Helgafell og þaðan í náttúruvætti og þá fólkvangar. Á höfuðborgarsvæðinu eru allar teg- undir friðlýsingar nema þjóðgarða vantar. Hér þykir tilhlýða að birta lista yfir þá staði á höfuðborgarsvæð- inu sem njóta friðlýsingar og einnig þá sem eru á náttúruminja- skrá Náttúruverndarráðs. Þetta geta lesendur notfært sér þegar ætlunin er að fara í gönguferð og finna þá einhvern tilgang með ferðinni annan en þann að teyga hið ferska loft og styrkja líkam- ann. Hafnarfjöröur Ástjörn er friðland. Hún er skammt sunnan Reykjanesbraut- ar fyrir ofan bæinn. í tjörninni er óvenjumikill gróður og fugla- og smádýralif. Hamarinn er svipmikil kletta- borg hátt I miðjum Hafnarfjarð- arbæ. Þaðan er fallegt útsýni. Vonast er til að hann verði frið- lýstur innan skamms. Straumsvík er á náttúruminja- skrá, þ.e.a.s. innsti hluti víkurinn- ar og tjarnir við hana innanverða. Þær eru ferskar og ísaltar í fal- legu umhverfi sem allmikið fugla- líf prýðir. Hvaleyrarlón er á náttúruminja- skrá ásamt nálægri strandlengju. Þar eru leirur og mikil umferð vaðfugla, enda fuglalifið sem ligg- ur til grundvallar hugsanlegri friðun. Garöabær: Búrfell og Búrfellsgjá teljast ásamt Selgjá með meiriháttar náttúruundrum á suðvesturhorn- inu. Búrfell er forn eldstöð og gjárnar eru hrauntraðir, þar sem glóandi hraunið átti sér farveg. Þær og Búrfell eru á náttúru- minjaskrá. Vífilsstaðavatn og Hraunholtslæk- ur eru á náttúruminjaskrá og að auki um 200 m bakki umhverfis vatnið, en 200 m spilda sunnar Hraunholtslækjar. Lækurinn rennur úr Vífilsstaðavatni í Arn- arnesvog. Góð veiði er í vatninu og er náerenni þess vinsæll útivist- arstaður. Hraunholtslækur þykir ákaflega fallegur og setur Búr- fellshraun sunnan hans og hlíðin á móti fallegan svip á umhverfið. Urrióakotsvatn er lítið vatn sunnan Garðabæjar nálægt Hafnarfirði. Vatnið er auðugt lífríki. Bessastaðahreppur: Bessastaðanes og fjörur á Alfta- nesi eru á náttúruminjaskrá ásamt tjörnum og víkum. Þetta eru fjölbreyttar fjörur og grunnsævi með fjölskrúðugu líf- ríki. Að auki er svæðið frábært til útivistar. Kópavogur: Tröllabörn í Lækjarbotnum eru mjög fallegar hraunkúpur sem þykja mjög sérkennilegar. Víghólar er kunnuglegt örnefni I Kópavogi, nefna má Víghólaskóla. Borgir eru jökulsorfið klappar- holt umhverfis Kðpavogskirkju og eru þær friðlýstar. Reykjavík: Laugarás er friðlýstur sem nátt- úruvætti, þ.e. kollurinn. Þar má sjá jökulsorfnar grágrýtisklappir. Þaðan er mjög gott útsýni. Háubakkar við Elliðaárvog eru friðlýstir. Þar er að finna setlög með steingerðum skeljum og frjókornum sem bendir til mynd- unar fyrir um 5.000 árum. Háu- bakkar eru fyrir neðan Súðarvog. Fossvogsbakkar eru á náttúru- minjaskrá. Átt er við svæðið frá botni og að Nauthólsvik. Þar er að finna setlög með skeljum frá síð- asta hlýskeiði ísaldar og einnig leirur með fjölbreyttu llfríki. Myllulækjartjörn í Heiðmörk og mýrin norðan og austan tjarnar- innar eru á náttúruminjaskrá. Þarna er fjölskrúðugur gróður og fuglalif. Rauðhólar eru friðlýstir sem fólkvangur, enda ágætt útivist- arsvæði. Hólarnir eru uppruna- lega gervigígaþyrping. Óskjuhlíðin er á náttúruminja- skrá. Þar eru avinjar um hæstu sjávarstöðu 4- þoaaum slóðum. Öskjuhliðin w VHWasll útivistar- og útsýnisstaður í Reykjavík. Tjörnin og Vatnsmýrin eru á náttúruminjaskrá. Hér er átt við allar tjarnirnar með hólmum og bökkum og Vatnsmýrina við Nor- ræna húsið og gömlu Njarðargötu. Fuglalíf er þarna mikið, varpland á vorin, og úr Vatnsmýrinni kem- ur vatnið í tjarnirnar. Laugarnes er að hluta til á nátt- úruminjaskrá, þ.e.a.s. vesturhorn þess. Þarna er óröskuð strand- lengja með sérkennilegum kletta- myndunum. Sjaldgæf sjón í Reykjavík. Þarna er góður útsýn- isstaður. Grafarvogur er á náttúruminja- skrá vegna mikils fuglalífs I leir- unni í botni hans. Þess ber hér að geta að borgaryfirvöld í Reykjavík tóku fullt tillit til þessara nátt- úruverðmæta við skipulagningu og framkvæmd nýju byggðarinnar norðan Grafarvogs. Gufuneshöfði er á náttúruminja- skrá svo og fjaran fyrir framan hann. Höfðinn er stórgrýttur :með jökulminjum og brattri strðnd. Þarna er gott útsýni og verður ->að varðveitt I framtíðinni þó byggt verði nálægt honum. Viðey er á náttúruminjaskrá. Hún er lítt snortin, vel gróin með fjölbreyttu landslagi. Þarna »ru miklar söguminjar og eyjan því vinsælt útivistarsvæði. Seltjarnarnes: Seltjarnarnesfjörur og Suðurnes eru á náttúruminjaskrá, þ.e.a.s. fjörurnar kringum nesið srá Bakka að Bygggarði, allt Suður- nes, Kotagrandi, sem liggur milti Suðurness og Gróttu, Bakka- grandi, þar sem vegurinn út á Suðurnes liggur um, og Bakka- tjörn, sem er norðan Bakka- granda. Þarna eru fjölbreyttar fjörur og strandgróður ásamt sjávartjörnum. Fuglalíf er mikið og finna má jarðlög með Rkelja- leifum frá ísöld. Þarna er mjög vinsælt útivistarsvæði. JMÍmK Valhúsahæð er á aáttúru- minjaskrá. Þaðan er mjög g®Ct étf- sýni. Innan þess svæðið sem hér um ræðir eru nokkur lág fjöll eða fell. Helst ber á (Jlfarsfelli og Helga- felli. Nefna má að auki Selfjall í Lækjarbotnum og Sandfell, rétt utan svæðisins. Úlfarsfell er svipmikið fjall séð frá Reykjavík, hömrum girt að ofan að norðanverðu. Að vestan- verðu, því sem næst fyrir ofan Korpúlfsstaði, og að sunnanverðu er mjög auðvelt að ganga á fjallið. Hér er þó frekar mælt með því að fara upp í gilið norðanmegin, þó nokkuð erfitt sé. Engin ástæða er til að fara upp á efsta tind fjalls- ins, því útsýni er mjög gott fyrir ofan hamravegginn. Síðan má fara niður sunnan megin og ganga undir fjallinu eftir hitaveitu- stokknum þangað sem bílnum var lagt. Raunverulegur hæðarmismunur upp á fjallið er aðeins um 120 m eða því sem næst. Uppferðin tekur aðeins um 30 mínútur og öll leiðin um 2 klst. með góðum hvildum. Hæst er Úlfarsfell 295 m, en Vest- urlandsvegur sem liggur undir fjallinu er 1100 m hæð yfir sjávar- máli. Selfjall afmarkar Lækjarbotna til suðvesturs. Þetta er ekki hátt fjall, nokkuð ólögulegt í laginu, en af því er nokkuð víðsýnt. Selfjall ber nafnið af seli sem bærinn örfirisey átti. Þar nýttu örfiriseyjarbændur selstöðu sína um langan tíma. Undir Selfjalli er hellir þar sem gripin voru karl og kona á seinni hluta 17. aldar, en þau höfðu lagst út og stolið sér til matar. Af þessum tveimur dæm- um má sjá að oft liggja nokkrar sögur af stöðum sem láta ekki mikið yfir sér. Best er að ganga á vesturfjallið og þaðan austur á hærri hluta Selfjalls, sem nefna má austur- fjall. Gönguferðin ætti ekki að taka lengri tíma en 2 klst. Helgafell er um 340 m hátt, klettótt og nokkuð bratt víða. Að vetrarlagi getur verið varhugavert að ganga á Helgafell, nema á mjög ‘góðum skóm. Svellbunkar vilja -

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.