Morgunblaðið - 26.05.1985, Síða 18

Morgunblaðið - 26.05.1985, Síða 18
18 ,P Afmæliskveðja: Óskar Magnús Gíslason 70 ára BRETTAVOGIN I1iisí.»s llt* ®82655 Annan hvítasunnudag verður Óskar Magnús Gíslason sjötugur. Hann fæddist í Vestmannaeyjum 27. maí 1915, sonur hjónanna Guð- nýjar Einarsdóttur og Gísla Jónssonar útvegsbónda á Arnar- hóli. Óskar varð ungur gjaldgengur í lífsbaráttunni, þrátt fyrir veikindi í æsku. Hann gerðist háseti á vetr- arvertíð á bát föður síns „Víkingi VE 133“, aðeins fjórtán ára að aldri. Síðar nam Óskar skipstjórn- arfræði og gerðist stýrimaður hjá sægörpum í Eyjum, uns hann eignaðist þriðjung í útgerð „Vík- ings“ á móti föður sínum og Júlí- usi á Hliðarenda; þá tók Óskar við formennsku. Hann var formaður um árabil á eigin útvegi fyrst í félagi við fyrrnefnda útvegsmenn og síðar í félagi við Einar bróður sinn. Óskar var farsæll skipstjórnar- maður og fór vel með hin marg- víslegu veiðarfæri, línu, dragnót, net og troll. Hann var vinsæll af undirmönnum og samstarfs- mönnum. Óskar varð þeirrar gæfu aðnjótandi að bjarga einum þeirra úr sjávarháska, mann tók út í vondu veðri við Einidrang. Óskar kastaði sér fyrir borð og bjargaði þeim sem ósjálfbjarga var, kom þar sér vel líkamshreysti óskars og sundþjálfun sem hann hafði hlotið við sjóböð í hafinu við Heimaey. Ungur að árum hlýddi Óskar kalli Jesú Krists og gerðist læri- sveinn hans. Hann gekk í Hvíta- sunnusöfnuðinn Betel og hefur staðið þar stöðugur síðan, lengst- um í forystusveit safnaðarins. Enda er Óskar þekktastur í Eyjum undir nafninu „óskar í Betel“. Eindregin afstaða óskars og heil- indi við fagnaðarerindið hefur afl- m D’ vatns VURETEX - koma í veg fyrir steypuskemmdir eða i lagfæra þær með réttri meðhöndlun Sprungur geta myndast í heilbrigðn steinsteypu þegar ytraborð hennar mettast af vatm sem síðan frýs og þiðnar á víxl í hinni umhleypingasömu veðráttu okkar. Alkalivirk steinsteypa mettast af vatni og sprmgur síðan vegna efnafræðilegra hvata Því þarf að hindra að vatn smjúgi inn í steypuna svo sem kostur er en hún verður þó að geta andað. DYNASYLAN BSM 40 er monosífan vatnsfæla sem hlotið hefur meðmæli Rannsóknarstofnunar bygging- ariðnaðarlns. DYNASYLAN BSM 40 er efni sem borið er jafnt á nýjan. ómálaðan steín og sprunginn málaðan stem og hindrar vatnsdrægni steypunnar VITRETEX plastmálning er copolymer (akryl) máln- ing með mjóg gott PAM gildi og andar því vel. VITRETEX plastmálnmg hefur verið á /slenskum markaði f áratugi og sannað ágæti sirt, þ.á m. í ströngustu veðurþols- tilraunum. Tvær yflrferðir með DYIMASYLAIM BSM 40 og síöan tvær yflrferðlr með VITRETEX plastmálnlngu tryggir margra ára endingu. Umboðsmenn um land alltl i S/íppfé/agíó íReykjavík hf MálningarverksmiÖjan Dugguvogi Sími 84255 að honum virðingar og gert Óskar að kletti í mannhafinu. Margir hafa leitað trausts og huggunar hjá honum í erfiðum kringum- stæðum. Þetta kom glögglega fram á reynslustundum gossins í Heimaey 1973. Meðan óvissan ríkti og Eyjamenn stóðu máttvana gegnt spúandi eldfjallinu, stóð Oskar rólegur við eldavélina sina á Faxastíg 2b. Þar eldaði hann lystilegar kjötsúpur, saltkjöt og soðkökur og aðra kjarnafæðu. Gestir og gangandi, kunnugir og ókunnungir, voru velkomnir að borði Óskars. Þar sátu saman háir og lágir, fyrirmenn og almúga- menn. í hvert skipti sem sest var að borðum fór Óskar með bæn, hann bað viðstöddum blessunar og byggðinni sinni verndar. Bænir Óskars voru heyrðar og menn stóðu upp frá borðum hressari til anda, sálar og líkama. Veit ég að margir minnast þessara stunda. Óskar er vinsæll og áhrifaríkur boðandi Guðs orðs, fólk sækir að ræðustóli þessa lífsreynda manns, sem talar af eigin reynslu um höf- und trúarinnar, Jesúm Krist. Óskar giftist Kristínu Jónu Þorsteinsdóttur frá Fagradal í Vestmannaeyjum. Þau eignuðust sex börn og komust fimm þeirra til manns: Þorsteinn Kristinn eðl- isfræðingur, Gísli Jóhannes kenn- ari, Anna Sólveig hjúkrunarfræð- ingur, Snorri forstöðumaður og kennari og Kristinn Magnús kenn- ari. Við þessi tímamót sendi ég óskari frænda mínum og allri fjölskyldu hans hjartanlegar ha- mingjuóskir. Ég bið þess að við fáum lengi enn notið þjónustu Óskars á þeim vettvangi, sem er honum kærast- ur, við boðun fagnaðarerindisins. Lifðu heill frændi! Guðni Einarsson. í Kaupmannahöfn FÆST í BLAOASÖLUNNI Á JÁRNBRAUTAR- STÖÐINNI OG Á KASTRUP- FLUGVELLI jo

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.