Morgunblaðið - 26.05.1985, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 26.05.1985, Qupperneq 22
22 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1985 Svavar A. Jónsson HugsaAu þér bara. Það er áreiðanlega innifalið í fyrirheitum hvítasunn- unnar að vð getum fund- ið nýjar leiðir til að tala saman. Það er nú ekkert smáfyrirheit. Þá eru það ekki alltaf þau sömu, sem tala, og þau sömu, sem hlusta. EITTHVAÐ STÓRKOST- LEGT, EITTHVAÐ NÝTT Hvað er hvíta- sunnan? Mig langaði til að senda þér kveðjur frá góðu fólki í kirkj- unni, sem vildi segja okkur frá því hvað hvítasunnan væri því. Það er svo gagnlegt og uppörv- andi að heyra hvert til annars. Þetta, að láta hugmyndirnar flæða frá einu okkar til annars, er einmitt eitt af því stórkost- lega, sem við eigum í kristinni kirkju. Það að taka á móti hugmyndum annarra, láta þær búa með okkur og berast til ann- arra. Það er á þann hátt sem eitthvað gerist, eitthvað stór- kostlegt, gott og nýtt. Anne Marie Reinholdtsen, for- ingi í Hjálpræðishernum, sagði: Hvítasunnan býður okkur endurnýjun. Hún er hátíð fagn- aðarins yfir þvi að Heilagur andi kom og lífgaði Orðið og gerði Jesúm persónulegri fyrir hverj- um einstaklingi. Bf hvitasunnan hefði ekki komið hefði trúin ekki orðið lifandi heldur byggð á kenningum og lögmáli. Hún hefði mótazt meira af okkar eig- in hugsunum en því, sem Heilag- ur andi gefur hjarta okkar og hver flokkur hefði sífellt haldið fram sínum eigin kenningum. En af því að hvítasunnan kom og Heilagur andi var sendur eigum við nýtt líf, orð Guðs eru lifandi og gefa líf. Eitthvað stórkostlegt, eitt- hvað nýtt. Ég raulaði þessi orð með sjálfri mér. Mér fannst þau vera upphafið á söng, sem ég heyrði á samkomu eitt kvöldið. En það var reyndar ekki svona. Eitthvað stórkostlegt, eitthvað gott, segir í söngnum. En ég hélt samt áfram að raula um eitt- Nýjar leiðir í guðsþjónustunni Það er hægt að halda guðs- þjónustu með svo mörgu móti í kirkjunni. Það er alls ekki nauðsynlegt að nota alltaf sama formið. Sumum finnst það nú samt. Það á sínar skýr- ingar. Við þörfnumst einhvers óumbreytilegs í allri ringul- reiðinni, einhvers, sem er stað- fast og öruggt. Samt er hægt að halda guðsþjónustu á annan máta en hinn venjulega og finna þó til öryggisins og þess, sem aldrei breytistj kirkjunni. Því það byggir ekki á okkur heldur Guði. Og þeim, sem kæra sig um það, verður það oft hollt og endurnýjandi. Það getur orðið eitthvað stórkost- legt. Alveg eins og allar guðs- þjónustur, hvaða form, sem við notum, geta orðið okkur nýjar og stórkostlegar. í bók, sem heitir No Longer Strangers er fjallað um nýjar leiðir í guðsþjónustunni. Þetta er dálítið hefti, gefið út af fjór- um alheimshreyfingum: Lút- erska heimssambandinu, Al- kirkjuráðinu, Kristilegu stúd- entahreyfingunni og KFUK. Ég sendi ykkur, kæru lesendur, útdrátt úr því, sem þar stendur um nýjar leiðir í guðsþjónust- unni. Við komum einfaldlega í kirkju til þess að finna návist Guðs. Við byrjum guðsþjónust- una með staðfestingu á því að Guð er þar hjá okkur. Og við erum þar vegna þess að við þörfnumst nærveru Guðs. Við erum ófullkomin, náum ekki þvi marki, sem við óskum. Við þurfum að biðja um fyrirgefn- ingu, þakka miskunn Guðs og náö. Og í vissu um það biðjum við, þökkum og lofsyngjum. Svo hlýðum við á Guð í ritn- ingarlestri og sálmasöng og i predikun, sem snertir okkur þar sem hún er flutt og þegar hún er flutt. Svo erum við send. Við erum send út með fagnaðarerindið. Blessunin heitir okkur því að Guð fari með okkur. Þetta er það, sem gerist og við getum sett það fram í guðs- þjónustunni á þann hátt, sem við kjósum. Við getum sleppt sumum liðum og bætt öðrum við. Við getum valið nýja sálma, túlkað hina ýmsu liði á nýjan máta. 1 stuttu raáli er það svo að guðsþjónustan á að hjálpa okkur til að: ★ Rifja upp og hugleiða hjálp- ræðisverk Guðs, sem Ritn- ingin segir frá. ★ Finna til návistar Guðs og halda hana hátíðlega. ★ Leggja dýpstu gleði okkar, ótta og vonir í hönd guðs. ★ Finna von í gæzku Guðs, von í okkar eigin lífi og í lífi safnaðarins. ★ Þakka Guði fyrir ást hans í Jesú Kristi. Hvernig myndir þú, kæri les- andi, helzt vilja halda guðs- þjónustu með söfnuði þínum? Svona gætum viö lengi talið Talið upp svo margt nýtt og stórkostlegt, sem Guð vill gefa okkur, kenna okkur. Vinkona mín sagði mér frá því þegar hún var einu sinni á samkomu í Englandi. Þá heyrði hún í fyrsta og eina sinn á ævi sinni að fólk söng í Heilögum anda. Geturðu hugsað þér hvernig það var? Fólkið söng marg- raddað. Lag, sem það hafði aldrei lært. Samt hljómaði það eins og þau hefðu æft það aftur og aftur. Og svo enduðu þau öll í einu. Það var eitthvað stór- kostlegt. Ólýsanlegt. Við skul- um ekki gleyma því að á hinni fyrstu hvítasunnu var talað í tungum og það er enn talað og sungið i tungum í kirkjunni. Og Biblían segir að gjafir Heil- ags anda séu svo margar. Veiztu að stjórnun er gjöf Heilags anda? Og handverk líka. Og kennsla og líknarstörf. Það er eitthvað undursamlegt samband milli þess að sitja með öðru fólki og syngja með því í Heilögum anda og finna svo þennan sama anda í dag- legu starfi. Starfi, sem við vit- um öll að getur orðið leiðinlega hversdagslegt og andlaust. En svo finnum við aftur og aftur að allt verður nýtt. Ég sendi þér mínar beztu hátíðakveðjur og hringi nú í einhvern, sem kann betur en ég þennan söng, sem ég var að raula með sjálfri mér, svo að þú getir raulað hann líka ef þú kærir þig um. Eitthvað stórkostlegt, eitthvað gott, allan minn biturleik þú tókst á brott. Allt, sem ég gat gefið þér, var niður- brotin sál, en eitthvað stórkostlegt þú gerðir úr mér þá. hvað stórkostlegt og eitthvað nýtt. Vegna þess að mig sjálfa langar svo mikið til að finna eitthvað nýtt í kirkjunni, eitt- hvað stórkostlegt og nýtt. Ekki vegna þess að ég telji að fagnað- arerindið sé að verða gamaldags. Þvert á móti vegna þess að ég er viss um að það hefur að geyma svo ótalmargt, sem við höfum enn ekki fundið. En getum fund- ið. Og Guð vill að við finnum. Ég held að hvítasunnuundrið sé ein- mitt staðfesta þess að Guð vill alltaf vera að gefa okkur eitt- hvað nýtt. Ég veit að Guð vill alltaf vera að gefa okkur nýjan kraft, nýjan kjark, nýjan kær- leika og nýja gleði. Ég veit þetta ekki vegna þess að mér hafi dott- ið það í hug sjálfri, heldur vegna þess að kirkjan hefur sagt mér þetta. Og ég er svo fegin því að kirkjan heldur áfram að segja mér það. Hugsaðu þér. Við getum áreið- anlega fundið nýjar leiðir til að tala saman. Svo að við hættum að misskilja hvert annað jafn oft og við gerum í daglegum sam- skiptum bæði heima og heiman. Og álpumst sjaldnar til að vera ónærgætin. Við getum líka fund- ið nýjar leiðir til að tala saman á fundum. Svo að við höldum ekki iangar ræður og lendum ekki í löngum umræðum um smáatriði og förum ekki að tala um eitt- hvað allt annað en það, sem við ætluðum. Við getum lært að tala saman í hóp svo að allir í hópn- um fái að njóta sln og finni að öllum hinum finnst bara dálítið varið í það, sem þau eru að segja. Ágúst Ólason, starfsmaður í Samhjálp, sagði: Mér þykir hvítasunnan bezti trúaratburður ársins. Það er af því að ég er hvítasunnumaður. Þegar ég var 16 ára lifði ég skírn Heilags anda. Heilagur andi er huggari minn og kraftur til að ganga í gegnum lífið. Fyrir mér er Heilagur andi eins og fyrir lærisveinunum þegar þeir voru orðnir einir. Þá sendi Jesús þeim kraft til að starfa. Þegar Kristur er búinn að fyrirgefa mér þá sendir hann mér kraft til að halda áfram þótt lífið geti oft orðið erfitt og niðurdragandi. Við megum alltaf tala við Krist og biðja um huggun og kraft. Séra Sólveig Lára Guðmunds- dóttir sagði: Ég er einmitt nýkomin heim af fundi með kirkjufólki frá mörgum löndum og álfum. Þar fann ég sterklega fyrir áhrifum hvítasunnunnar. Ég talaði við fólk sem bjó við allt aðrar að- stæður en ég. Og svo gengum við öll saman til altaris og báðum saman hvert á sínu tungumáli. Við fundum hvernig við vorum sameinuð frammi fyrir Guði okkar og hvernig Heiiagur andi skapar samfélag kristinna manna um allan heim. Og þetta sagði séra Sigurður Helgi Guðmundsson: Hvítasunnan er fyrir mér innri veröld, staðfesting á sam- félaginu við Guð, samféiagi, sem er afar óáþreifanlegt, en engu að síður lifandi staðreynd, og þá í senn fuilvissa og upplifun á kærleika hans. Þau, sen segja okkur frá hvítasunnunni, segja að hún gefi þeim nýtt líf. Það erw mi góö skilaboð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.