Morgunblaðið - 02.07.1985, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 1985
Nýja ATR 42
skrúfuþotan:
Lipur
og
liðtæk
í
k>fti
Flug
Gunnar Þorsteinsson
Það var eínkum fernt sem
vakti athygli þegar vélarnar
tóku þátt í sýningarfluginu: Þær
notuðu mjög stutta braut í flugt-
aki og lendingu, virtust liprar og
láta vel að stjórn á hinum ýmsa
flughraða, fluginu fylgdi lítill
hávaði, hæfni þeirra er mikil í
kröppu og bröttu aðflugi. ATR
42 er ein þeirra véla sem eru
taldar koma til greina þegar
Flugleiðir fara að endurnýja
innanlandsflugflotann. Kunnug-
ir telja þó að vél eins og Fokker
50, eða yngri og afkastameiri
Fokker F 27, verði frekar fyrir
valinu, m.a. vegna góðrar
reynslu af Fokker-vélum hérl-
endis og ennfremur vegna þess
að Fokker-verksmiðjurnar hafa
sagst ætla að taka gamlar F
27-vélar upp í nýjar Fokker 50.
Höldum okkur við ATR 42. Hún
kostar nú um 6,7 milljónir doll-
ara eða rúmlega 300 milljónir
krónur íslenskar og er í dýrari
flokki skrúfuþotna í þessum
stærðarflokki. ATR 42 rúmar
42—50 farþega.
Árið 1981 var ákveðið að ráð-
ast í smíðina og 16. ágúst sl. fór
fyrsta vélin á loft. Næsta vél var
tilbúin í október 1984 og sú þrið-
ja, og nýjasta, varð flughæf 30.
apríl sl. I lok maí sl. höfðu tvær
flugvélanna lagt upp í 410 próf-
unarflug í samtals 700 flugst-
undir. Ef allt gengur að óskum
mun ATR 42 fá flug-
hæfnisskírteini í september nk.
eftir prófanir í innan við 1000
flugstundir. Að sögn talsmanna
ATR 42 fór hin kanadíska de
Havilland Dash 8 í 1600 flugst-
undir, og til þess voru notaðar
fjórar vélar, áður en flughæfn-
isskírteinið var gefið út. Þeir
voru almennt mjög ánægðir með
niðurstöður prófunarflugsins en
það er of langt mál að fara nán-
Ljósm. Gunnar Þorsteinsson.
Nýja fran.sk/ital.ska skrúfuþotan ATR 42 er lipur og spræk flugvél. Hún er aðeins 9 mánaða gömul.
ar út í það í dagblaðsgrein. Þó
má nefna að þeir sögðust hafa
fengið, óvænt og frábært tækif-
æri, að reyna vélina við vetrar-
aðstæður vegna vetrar-
hörkunnar á meginlandi Evrópu
sl. vetur. Þessum vetrarprófun-
um verður síðan framhaldið í
Finnlandi í byrjun næsta árs.
Flugfélagið Finnair hyggst
kaupa 5 ATR 42-flugvélar, til að
byrja með, og munu þær koma í
stað Fokker F 27-véla. Næsta
ATR 42-flugvélin, sú fjórða í
röðinni, og sú fyrsta sem verður
fullbúin, sem venjuleg farþegafl-
ugvél verður tekin í notkun í nó-
vember nk. Franska flugfélagið
Air Littoral verður fyrst að
taka vélina í notkun. Strax á eft-
þessi tala hækka upp i 4000
manns í hvoru landi, ef með eru
taldir ýmsir undirverktakar.
Á blaðamannafundi á flugsýn-
ingunni í París sagði Jean-Paul
Perrais, yfirmaður ATR 42-áætl-
unarinnar, að samstarf þjóð-
anna hefði gengið mjög vel. Sér-
stök yfirstjórn, sem er einföld og
sveigjanleg, annast öll fjármál
og sölustörf. Samhliða henni
starfa þrjár tækninefndir.
Frakkar og ítalir deila allri
áhættu jafnt.
Skömmu áður en sýningin í
París hófst höfðu 18 flugfélög
pantað samtals 58 ATR 42-vélar
og gert óskuldbundna samninga
um kaup á öðrum 29 vélum. Það
er eftirtektarvert hvað bandar-
ísk flugfélög hafa tekið vélinni
vel. Sex þarlend flugfélög eiga 25
vélar í pöntun.
Söludeild ATR 42 hefur sett
sér það markmið að selja
800—1100 flugvélar fram að al-
damótum eða um fjórðung allra
skrúfuþotna í þessum stærðar-
flokki sem talið er að munu selj-
ast á tímabilinu. ATR 42 mun
mæta hörku samkeppni. Aðal-
keppinautarnir eru Fokker 50 og
BÁe ATP auk smærri véla eins
og Embrarer Brasilía,
Saab-Fairchild 340, de Havilland
Dash 8-300 og Casa-Nurtanio
235.
1 mars sl. var ákveðið að smíða
nýja gerð sem heitir ATR 42-300.
Það flýtti þessari ákvörðun að
prófunarflug venjulegu ATR 42-
vélanna hafði gengið vonum
framar. Það leiddi í ljós að unnt
var að auka burðargetuna frá
því sem gefið var upp þegar
fyrstu afkastatölur ATR 42 voru
kunngerðar. ATR 42-300 verður
þó í öllum aðalatriðum eins og
fyrirrennarinn og mun væntanl-
ega fá flughæfnisskírteini um
líkt leyti. Hún mun hafa 3—400
kílóa hærri flugtaksvigt en það
samsvarar 3—4 farþegum.
Farþegarýmið er rúmgott og í
breiðþotustfl. Það er sagt vel hljóð-
einangrað og vélarhljóðið heyrist
varla.
ir koma félögin Cimber Air i
Danmörku, Command Airways i
New York og Air West Airlines í
Houston í Texas.
Alls er ráðgert að smíða 37
flugvélar árið 1986 eða 3,5 vélar
á mánuði. Árið 1987 40 vélar og
44 árið 1988. Ef eftirspurn eykst
verður unnt að auka framleiðsl-
una í 4 vélar á mánuði. Þegar
smíði ATR 42 hófst störfuðu
1200 manns í hvoru landi við
verkið en smám saman mun
Stjórnklefl ATR 42 er búinn öllum nýjasta tæknibúnaði. Við hönnun hans
var byggt i reynshmni af nýtisku stjórnklefa Airbus 310-farþegaþotunn-
ar. öll flugfélögin sem hafa pantað vélina hafa valið sama útbúnað í
stjórnklefann.
Framleiðendur ATR
42-skrúfuþotunnar una
sínu vel um þessar
mundir. ATR 42 er
smíðuð í sameiningu af
ríkisflugvélaverksmiðj-
um Frakklands og ítal-
íu, Aerospatiale og
Aeritalia. Prófunar- og
tilraunaflugið, sem nú
stendur yfír, hefur
gengið framar björt-
ustu vonum og salan
gengið þokkalega mið-
að við að um algerlega
nýja flugvél er að
ræða. Þeir mættu til
leiks á Parísarflugsýn-
inguna með þær þrjár
flugvélar sem nú eru
fullsmíðaðar. Tvær
sýndu fluglistir dag-
lega meðan sú þriðja
var til sýnis á jörðu
niðri. Þetta var í fyrsta
sinn sem ATR 42-vélin
var til sýnis á almennri
flugsýningu.
Flugdrægið mun aukast um 450
km eða 245 sjómílur.
Á Parísarsýningunni var til-
kynnt að ráðist yrði í smíði nýrr-
ar gerðar ATR 42 og hlaut hún
nafnið ATR 42-ST. Það verður
lengri gerð með stærri væng og
öflugri hreyfla. Farþegarýmið
verður fimm sætaröðum lengra
og mun mest rúma 70 farþega.
Með þessari gerð styrkist
samkeppnisaðstaðan við vélar
eins og Fokker 50 og Bae ATP.
Vængflöturinn verður 61m2 í
stað 54,2mz á venjulegu gerðinni.
Hreyflarnir verða um 100 hest-
öflum öflugri eða 2.400 hestöfl í
stað 2.308 hestafla. Hámarks-
flugtaksþyngd ATR 42-ST verð-
ur tæp 20 tonn. Að sögn fram-
leiðendanna er unnt að lengja
vélina og auka afkastagetuna,
eins og lýst var hér að framan,
með því að nota samtrefjaefni og
léttar málmblöndur í ríkari
mæli en áður hefur tíðkast í
flugvélasmíði. ATR 42-ST verður
tilbúin árið 1988 ef allt fer að
áætlun. Söludeildin segist ætla
að selja 3—400 vélar af þessari
lengri gerð sem er nálægt 30%
markaðshlutdeild véla í þessum
stærðarflokki.
Frá upphafi hefur verið mark-
miðið að bjóða ýmsar gerðir
ATR 42-véla og skapa einskonar
ATR-fjölskyldu sem yrði eins í
allri grundvallarsmíði. Auk
þeirra gerða sem hér hefur verið
sagt frá er í undirbúningi að
smíða vöruflutningagerð, her-
flutningagerð og tvær gerðir
strandgæslu- og eft-
irlitsflugvéla.
Bliki EA 12 frá Dalvík.
Dalvík:
Bliki EA 12 endurbyggður
Dalvík. 27. jóní.
ÞRIÐJUDAGINN sl. kom Bliki EA
12 úr fyrstu veiðiferð sinni eftir
gagngera endurbyggingu. Kom Bliki
sem er á togveiðum með fullfermi af
þorski eftir fjögurra sólarhringa
veiðiferð.
Endurbygging skipsins var gerð
í Slippstöðinni á Akureyri. Bliki
sem var 150 lesta stálskip var yfir-
byggður og gerð á hann skutrenna
til togveiða. Skipt var um plötur I
bol skipsins, sett ný skrúfa auk
þess sem sett var kælikerfi i lestar
og endurnýjaðar raf- og olíulagn-
ir. Þá var sett I hann grandaraspil
og vökvakrani á efra þilfar. Skipið
er vel búið alls konar siglinga- og
fiskileitartækjum og m.a. voru
sett í skipið dagsbirtu radar, Atlas
litadýptarmælir, Shipmate RS
2000 litaplotter, en það tæki skráir
allar ferðir skipsins, og Scanner
hita-, höfuðlinu- og aflamælir. Þá
hefur verið komið fyrir sjónvarps-
kerfi sem gerir skipstjóra kleift að
fylgjast með á millidekki og við
skutrennu.
Þessar breytingar tóku 3 mán-
uði. Að sögn skipverja reyndist
skipið mjög vel í fyrstu veiðiferð-
inni, en þá kom skipið inn með um
55 lestir af góðum þorski. Skip-
stjóri á Blika er Brynjólfur
Oddsson, 1. stýrimaður Kristján
Júlíusson og 1. vélstjóri Halldór
Johannesson. Frétt&rit&rar.