Morgunblaðið - 07.08.1985, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.08.1985, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGOST 1985 Grænlendingar ráðstafa loðnuafla við Jan Mayen Hafa enga heimild til þess, segir Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra Grænlendingar hafa afhent Evr- ópubandalaginu 15 þúsund tonna loðnukvóta á hinu umdeilda haf- svkóí milli Jan Mayen og Græn- lands. Mun ætlunin að dönsk skip veiði þessa loðnu. Auk þess hafa Fundur um Rainbow- málið í dag 8ENDIMAÐUR Bandaríkjastjórnar vegna deilnanna um einokun banda- ríska skipafélagsins Rainbow Navigation Inc. á stórflutningum til varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli var væntanlegur til landsins seint í gærkvöid ásamt tveimur aðstoðar- mönnum sínum. Sendimaðurinn, Edward Derv- insky, mun i dag eiga viðræður við Geir Hallgrímsson utanrfkisráð- herra. Gert er ráð fyrir að Derv- insky og aðstoðarmenn hans haldi af landi brott á morgun. færeyskir útgerðarmenn samið við Grænlendinga um að veiða 40 þús- und tonn af loðnu á svæðinu. Sem kunnugt er hafa staðið yfir alllengi viðræður milli íslendinga, Norðmanna og Dana fyrir hðnd Grænlendinga um skiptingu afla á þessu svæði án þess að árangur hafi náðst. „Við viðurkennum rétt Græn- lendinga til hlutdeildar í þessum fiskstofni, en meðan ekki hefur náðst samkomulag um skiptingu aflans lítum við svo á að þeir hafi engan veiðikvóta á þessu svæði og hafi þvf enga heimild til að ráð- stafa afla þar,“ sagði Halldór Ás- grimsson sjávarútvegsráðherra aðspurður um afstöðu íslenskra stjórnvalda til þessa máls. „Við er- um f sambandi við Færeyinga og munum leggja á það þunga áherslu að þeir veiði ekki þetta umrædda magn á meðan samkomulag hefur ekki náðst um veiðar á svæðinu. Ég á von á því að niðurstaða fáist úr þessum viðræðum á næstunni," sagði sjávarútvegsráðherra að lok- um. Banaslys í Skagafirði BANASLYS varð seint á sunnu- dagskvöldið á Sauðárkróksbraut, skammt norður af bænum Ytra- Skörðugili í Skagafirði. 36 ára gamall maður, Sigmar J. Benediktsson, féll af hestbaki á bundið slitlag. Talið er að hann hafi látist samstundis. Sigmar var á heimleið af hestamanna- móti á Vindheimamelum með fleira fólki. Sigmar bjó við Víðigrund 14 á Sauðárkróki og var bílstjóri hjá Kaupfélagi Skagfirðinga. Hann iætur eftir sig eiginkonu og tvö börn. Sigmar J. Benediktsson Eðlilegra að starfsmenn gætu keypt hlutabréfin — segir Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða „Við böfum ekki séð tilboð Birkis og vitum þar af leiðandi ekki hvert núvirði þess er, en manni skilst að þarna sé ekki um staðgreiðslutilboð að ræða,“ sagði Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, aðspurður um tik boð Birkis Baldvinssonar í Lúxem- borg í hhitabréf ríkisins í Klugleiðum, en ríkið á 20% hlutabréfa. Sigurður sagði að stjórn Flug- leiða hefði talið það eðlilegra, að starfsmönnum þess hefðu verið boðin hlutabréfin á verði, sem væri sannvirði. frekar en að einn aðili erlendis frá kæmi inní fyrirtækið. Starfsmönnum hefðu einungis ver- ið boðin bréfin á nfföldu verði, en það verð teldu þeir of hátt miðað við arðsemi félagsins. Hann sagði að salan kæmi ekki til kasta stjórn- ar Flugleiða, þar sem engar hömlur væru á sölu hlutabréfanna milli innlendra aðila. Hins vegar yrði stjórnin að samþykkja söluna, væri um erlendan aðila að ræða. Gróf líkamsárás á Suðurlandsbraut: Morgunblaöiö/Þorkell „Ég vil fá minn bjór eins og aðrir,“ segir Einar Ingimundarson, aðstoðarverslunarstjéri í Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli. Myndin var tekin í Fríhöfninni f gærkvöldi, skömmu áður en Einar mætti á vakt til að selja ferðamönnum bjór. Bjór tekinn af íslenskum feróamanni á Keflavíkurflugvelli: Vil láta reyna á hvort reglugerðin er lögleg — segir Kristján Pétursson deildarstjóri — Vil fá minn bjór, segir farþeginn „ÉG VIL einfaldlega láU á það reyna hvort sá hluti reglugerðarinnar um tollfrjálsan farangur ferðamanna og farmanna við komu frá útlöndum, er varðar innflutning þeirra á áfengu öli með yfir 2Vt % vínanda, eigi sér stoð í lögum eða veiti heimild til undanþágu frá innflutningsbanni samkvæmt áfengislögum," sagði Kristján Pétursson deildarstjóri í Tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli, í samUli við Morgunblaðið í gær. Kristján stöðvaði í gærmorg- un íslenskan ferðamann við komuna til landsins, tók af hon- um tólf 50 cl dósir af Heineken- bjór, og kærði hann síðan fyrir lögreglustjóranum á Keflavíkur- flugvelli fyrir að gera tilraun til að flytja bjór ólöglega inn i land- ið. Aðrir ferðamenn fóru með sinn bjór óáreittir í gegnum tollskoðun. Ferðamaðurinn, sem um ræð- ir, er Einar Ingimundarson, að- stoðarverslunarstjóri í Fríhöfn- inni, sem var að koma úr snöggri ferð til Grænlands. Einar sagð- ist í gær hafa mótmælt aðgerð tollgæslunnar og hafa gert þá kröfu, að hann fengi sinn bjór eins og gildandi reglugerð mælti fyrir um. „Ég se) ferðamönnum bjór samkvæmt þessari reglu- gerð,“ sagði hann, „og vil fá að kaupa minn bjór eins og aðrir. Mér hefur verið gert að mæta til skýrslutöku á morgun, miðviku- dag, og þar mun ég halda uppi þeirri kröfu að ég fái að njóta sömu réttinda og aðrir. Annað hvort verða þeir að láta mig hafa bjórinn eða sekta mig — og ef það verður ofan á, þá verður lok- að fyrir bjórinn, því það getur auðvitað ekki gengið að það leyf- ist einum sem annar má ekki.“ Kristján Pétursson sagði að upphaf þessa máls væri það, að 17. apríl á síðasta ári hefði hann kært lögreglustjórann á Kefla- víkurflugvelli og forstjóra Frf- hafnarinnar fyrir ítrekuð brot á áfengislögum. Sú kæra hefði verið ítarlega rökstudd, m.a. með greinargerð Sigurðar Líndals prófessors, sem hefði komist að þeirri niðurstöðu að reglugerð frá 1979, er leyfði sölu á bjór til ferðamanna við komuna til landsins, ætti sér ekki stoð í lög- um. „Seint og um síðir fékk ég svar við þessari kæru frá ríkis- saksóknara. Hann sá ekki ástæðu til aðgerða í ljósi um- sagna, sem hann hafði fengið frá fjármálaráðuneytinu og varn- armáladeild utanríkisráðuneyt- isins,“ sagði Kristján. Hann sagðist svo hafa ítrekað kæru sína 3. júlí síðastliðinn en þar sem hann hefði ekki fengið nein viðbrögð hefði hann ákveðið að láta reyna á það nú hvort reglugerðin, sem Sighvatur Björgvinsson fyrrum fjármála- ráðherra setti, stæðist fyrir lög- um. Sjálfur sagðist Kristján ein- dregið vera þeirrar skoðunar, að svo væri ekki. Hann bætti við að hann teldi allan innflutning á bjór, sem væri sterkari en 2'A%, ólöglegan og gilti það ekki aðeins um ferðamenn og farmenn, held- ur einnig varnarliðið á Keflavík- urflugvelli. Kristján Pétursson kvaðst ekki reikna með að bjór yrði tek- inn af ferðamönnum á Keflavík- urflugvelli í dag, „ætii við bíðum ekki eftir viðbrögðum ríkissak- sóknara áður en lengra verður haldið," sagði Kristján Péturs- son. Fiskmarkaðuriim í Bretlandi: Verðfall á gámafiski VERÐ i ísuðum flski í gámum féll talsvert i fiskmarkaðnum í Bret- landi f gær. Um morguninn hafði verið selt úr 6 gimum héðan. Þritt fyrir að flskurinn úr 5 þeirra færi allur f fyrsta flokk, varð meðalverðið aðeins 29,55 krónur. Betra verð fékkst fyrir físk, sem seldur var beint úr fiskiskipum. fyrir samtals 2 milljónir króna, meðalverð 42,70. Loks seldi Dag- rún ÍS 168,9 íestir, mest karfa og ufsa i Cuxhaven á mánudag. Heildarverð var 5,5 milljónir króna, meðalverð 33,04. í gæsluvarðhaldi grunaður um nauðgun SAKADÓMUR Reykjavíkur úrskurðaði á minudaginn 26 ira gamlan mann í gæsluvarðhald allt til 21. igúst næstkomandi. Hann var handtekinn snemma i sunnudagsmorguninn eftir að hafa ráðist i unga konu, sem hefur kært manninn fyrir nauðgun. Konan, sem er liðlega tvítug, var á heimleið eftir Suðurlands- braut í Reykjavík milli kl. 04 og 05 á laugardagsnóttina þegar maður- inn réðst á hana. Dró hann hana að húsinu númer 18, reif þar utan af henni fötin og gerði tilraun til að koma fram vilja sínum við hana. Ber þeim ekki saman um lyktir málsins — stúlkan telur að honum hafi tekist ætlunarverk sitt en fyrir það þrætii maðurinn. Stúlkan komst undan og I leigu- bíl. Bílstjórinn kallaði í lögreglu en veitti síðan manninum eftirför um hverfið og bættist fljótlega í hópinn gangandi vegfarandi. Á gamla íþróttavellinum við Sjó- mannaskólann handtók lögreglan manninn, sem var svo úrskurðað- ur í gæsluvarðhald á mánudaginn. — Maður þessi var undir áhrifum áfengis. Hann hefur ekki áður gerst brotlegur við lög, skv. upp- lýsingum Rannsóknarlögreglu ríkisins. Á mánudag var seldur fiskur úr 23 gámum, 239,7 lestir. Heildar- verð var 9,4 milljónir króna, með- alverð 39,39. í gærdag höfðu 72,7 lestir verið seldar úr gámum. Heildarverð var 2,1 milljón króna, meðalverð 29,55. 1 gær seldi Sól- berg ÓF 190,8 lestir í Grimsby. Heildarverð var 7,7 millónir króna, meðalverð 40,49. Þá seldi Breki VE 200,7 lestir í Bremerhav- en, mest karfa og ufsa. Heildar- verð var 7 milliónir króna, meðal- verð 35,08. Á mánudag seldi Klakkur VE 174,3 lestir í Grimsby. Heildarverð var 6,8 milljónir króna, meðalverð 39,14. Þá seldi Skipaskagi AK 92,5 lestir. Heildarverð var 3,6 milljónir króna, meðalverð39,76. Steinunn SF seldi einnig i Bretlandi á mánudag. Hún seldi alls 49,1 lest A-Barðastrandarsýsla: Lítil umferð en hey góð MMúmii. A-Btr#„ 6. ágút YFIR helgina hefur verið lítil um- ferð þritt fyrir allgott veður. Á þess- um slóðum er lítið um að vera því enginn dansleikur eða útisamkoma var í sýslunni. Heyskapur hefur gengið vel og er víðast hvar lokið. Grasspretta var misjöfn en víða þó í meðallagi en nýting heyja er með albesta móti. — Sveinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.