Morgunblaðið - 07.08.1985, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 07.08.1985, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1985 49 Miðstjórn ASÍ um verðlagningu búvara: Aöild neytenda er greinilega sviðsett Á FIJNDI miAstjórnar Alþýðusam- bands íslands þann 1. ágúst sl. var eftirfarandi samþykkt gerð vegna óskar landbúnaðarráðuneytisins um tilnefningu fulltrúa ASÍ í verðlags- nefndir búvara: I „Með skírskotun til umsagnar Alþýðusambands íslands um frumvarp til laga um framleiðslu- ráð frá síðastliðinu vori, telur miðstjórn fráleitt að tilnefna full- trúa í þær nefndir, sem lögin kveða á um. Miðstjórn bendir á, að fulltrúa neytenda eru engir mögu- leikar skapaðir til þess að hafa áhrif á heildarstefnumótun í mál- efnum landbúnaðarins, heldur verður hún ákveðin af samningum landbúnaðarráðherra og fulltrúa framleiðenda. Þá er samnings- rammi neytenda stórlega þrengd- ur með margvíslegum öðrum ákvæðum í frumvarpinu. Aðild neytenda að verðlagningarkerfinu er greinilega sviðsett með það fyrir augum að þeir verði nánast áhrifalausir. Endurspeglar þetta nú sem fyrr það viðhorf einokun- ar- og skrifræðisherranna f land- búnaðarráðuneyti og bændahöll, að hlutverk neytenda sé að éta það sem að þeim er rétt á því eina verði sem í reynd er ákveðið af þessum sömu herrum. II í niðurlagsorðum umsagnar ASl sagði m.a.: „Það frumvarp sem hér er fjallað um tryggir á engan hátt hag neytenda og til lengri tíma litið tryggir það held- ur ekki hagsmuni framleiðenda." Þessi orð hafa nú ræst fyrr en nokkurn grunaði. Landbúnaðar- ráðherra hefur í umboði ríkis- stjórnarinnar ákveðið að hækka verð á búvörum með því að skatt- leggja kjarnfóður. Lausnin á framleiðsluvandanum á að vera að gera afurðirnar svo dýrar að neyt- endur geti ekki keypt þær og skerða þar með stórlega fram- leiðslumöguleika bænda. Ástæða þykir til að vega sérstaklega að framleiðendum alifugla, eggja og svína, sem fram að þessu hafa þó sjálfir leyst sín framleiðsluvanda- mál. Miðstjórn Alþýðusambands íslands þykir vítavert hvernig að þessari skattlagningu er staðið og skorar á ríkisstjórnina og land- búnaðarráðherra að taka til endurskoðunar fyrri ákvarðanir í þessu efni. Bendir miðstjórnin sérstaklega á, að engin rök hafa verið færð fyrir því íð fóðurbætir sé í reynd niðurgreiddur erlendis, en þetta er ein meginforsendan fyrir álagningu skattsins. Miðstjórn Alþýðusambands ís- lands hefur ítrekað lýst yfir vilja til þess að taka þátt í raunhæfri stefnumótun á sviði landbúnaðar. Alþýðusambandið er nú sem fyrr reiðubúið til þess að standa að stefnu sem tryggir jafnvægi í bú- vöruframleiðslu, tryggir framleið- endum nauðsynlegt svigrúm til framleiðni- og framleiðsluaukn- ingar og neytendum lægsta mögu- lega vöruverð. Ljóst er að nú reyn- ir á hvort ríkisvaldið er reiðubúið að koma til móts við þessa stefnu. Ef ekki verður stefnubreyting í þeim herbúðum, hlýtur Alþýðu- sambandið að taka til athugunar möguleika á því að knýja fram aðra skipan þessara mála í sam- vinnu við önnur helstu samtök launþega og neytenda." Hagstæð heyskapar- tíð í Mikla- holtshreppi Bor* í MikUboltshreppi, 2. ápist SÍÐASTLIÐNA viku var hér hag- stæð heyskapartíð. Mikilla og góðra heyja var aflað og eru hér allsstaðar góðar heyskaparhorfur. Margir bændur eru búnir með fyrri slátt og bíða nú eftir góðri seinni slægju, því margir hafa borið á tilbúinn áburð á það sem fyrst var slegið og er gott útlit með sprettu á því. Nokkuð er um það að hjón og annað búandi fólk taki sér nú frí frá amstri daganna og fari í sumarfrí, sér til hress- ingar og ánægju. Er gott til þess að vita þegar veðurguðirnir eru okkur svo híiðhollir. Mikil umferð er hér um vegi, því margir nota góða veðrið og skoða héraðið, sem er rómað fyrir nátt- úrufegurð. Um síðustu helgi héldu hestamenn í Snæfellingi sitt ár- lega mót á Kaldármelum og var það vel sótt og var þar margt fal- legra gæðinga. Ég hef fengið yfirlit yfir úr- komu í júlímánuði frá Hjarðar- felli og Haukatungu. í Hauka- tungu var úrkoman 69,7 milli- metrar, en var á sama tíma í fyrra 164 millimetrar. Á Hjarðarfelli var úrkoman 73,3 millimetrar, en var í fyrra 216,2. í Haukatungu voru 11 dagar úrkomulausir í síð- asta mánuði, en 1984 voru þeir niu. Páll Siglufjörður: Uppgripaafli hjá trillunum Sigiufirði, 1. ágúgt. UPPGRIPAAFLI hefur verið hjá trillum héðan að undanförnu. Þykir það sem dæmi tíðindum sæta að á fjögurra tonna trillu héðan hefur afl- azt fyrir 477.000 krónur á tæpum þremur mánuðum, mest af einum manwi. Trillurnar hafa að undanförnu sótt á Skagagrunn og hefur afli þeirra verið frá einu og upp í fjög- ur tonn í róðri, allt á handfæri og er fiskurinn mjög góður. Stöðug rækjulöndun hefur verið hér í sumar og afli rækjubátanna hefur verið mjög viðunandi. Tog- ararnir hafa einnig fiskað mjög vel í sumar, en nú er lítið eftir af kvóta þeirra og hafa þeir því hægt um sig og eru tveir þeirra í landi. <r
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.