Morgunblaðið - 07.08.1985, Blaðsíða 28
28
MORlítJNBLAÐÍD, MlDVHajDAfítm T. ÁGÚ8T1985
Flytja frumsamda dansa
á norrænni listahátíð
æskunnar í Stokkhólmi
Spjallað við unga danshöfunda úr íslenska dansflokknum og Kramhúsinu
Morgunblaðið/Júlíus
„Samvinnan er þroskandi,“ sðgðu þær Auður, Halla Margrét og Lára, en
þer sömdu dansana sem hópurinn fer með utan til sýninga í Moderna
Museet í Stokkhólmi.
Morgunblaðið/Valdls Öskarsdóttir
Hópurinn sem fer. F.v. Auður Bjarnadóttir, Lára Stefánsdóttir, Halla Mar-
grét Árnadóttir, Ásdís Paulsdóttir, Krístín Hall, Einar Sveinn Þórðarson,
Sigrún Guðmundsdóttir og innfelldur f tunnu, Ellert Ingimundarson.
„Hringformið er ráðandi og hópur er líka eins konar hríngur sem hægt er að
vera öruggur innan.“
„Þetta verður ein allsherjar
norræn listahátíð fyrir ungt fólk
og við hlökkum mikið til fararinn-
ar,“ sögðu þær Auður Bjarnadótt-
ir, Halia Margrét Árnadóttir og
Lára Stefánsdóttir í stuttu spjalli
við blaðamann á dögunum. En
þær eru, ásamt fleiri ungum ís-
lenskum dönsurum og reyndar
ungu fólki úr ýmsum listgreinum,
á förum til Stokkhólms til þess að
taka þátt í Ung Nordisk Kultur-
festival, listahátíð ungs fóiks frá
öllum Norðurlöndunum, sem þar
fer fram dagana 16. til 23. ágúst
nk.
„Það var beðið um að einn til
tveir ungir danshöfundar kæmu
frá hverju landi og hér var haft
samband við Þjóðleikhúsið og
Kramhúsið," sögðu þær Auður,
Halla Margrét og Lára, sem allar
eru að góðu kunnar fyrir dans-
mennt þó að Auður sé sennilega sú
þeirra sem komið hefur víðast við
á dansferiinum þótt ung sé að ár-
um.
„Það varð úr að frá Þjóðleikhús-
inu færu fimm dansarar úr Is-
lenska dansflokknum og einn leik-
ari og frá Kramhúsinu fara Haila
Margrét og einn annar dansari.
Við erum með tvö mjög ólik verk
sem við höfum samið. Allur hóp-
urinn tekur þátt í báðum verkefn-
unum og það eru áætlaðar tvær
sýningar i Nútímalistasafninu,
Moderna Museet i Stokkhólmi
meðan á iistahátíðinni stendur."
Fyrra verkið er eftir fulltrúa ís-
ienska dansflokksins, þær Auði og
Láru, samið i hópvinnu við hina í
flokknum og heitir „Hvers-dags-
dans“. „Þetta er dans sem á frekar
að skynja en skilja," sögðu Auður
og Lára. „Okkur langaði að sýna í
iéttum dúr hvernig hversdagsleiki
dansins hefur áhrif á hversdags-
ieika manns sem stendur fyrir
utan þennan heim, lífið i dans-
stúdiói séð með augum einhvers
utanaðkomandi sem fyrir vikið
vaknar til meiri vitundar um eigin
likama.“
Dans Höllu Margrétar heitir
„íris“ og fjallar um samnefnda
þjóð. „Þetta er þjóð, sem er ekki af
okkar heimi," sagði Halla Mar-
grét. „í dansinum eru átta verur
sem hver fyrir sig kynna eitt
ákveðið hugtak fyrir hinum; sorg,
grimmd, móður, lífskraft, systur,
slægð, hinn stóra og hinn litla.
Fólkið í dansinum þekkir ekkert
annað en þetta sem upp er talið og
i kringum það spinnast svo alls
konar vangaveltur. Hringformið
er mjög sterkt í þessu verki, enda
helst orkan best innan þess og
fólkinu í „íris“ finnst einmitt best
að vera innan hópsins, eða hrings-
ins, eitt er það veikt,“ sagði Halla.
Tónlistin við „íris“ er samin af
Gunnari Grímssyni og þeim Þór
Eldon og Jóhamri, sem báðir eru í
Medúsu-hópnum. Búninga og leik-
mynd gerir Sjón. I „Hvers-dags-
dansi“ ræður Bach ríkjum í ýms-
um útsetningum. Um ljósabúnað-
inn sér Ágúst Pétursson og fer
hann með hópnum utan.
„Þetta hefur verið ofsalega
skemmtileg en líka erfið vinna,“
sagði Auður „Bæði er samvinnan
þroskandi og svo höfum við þurft
að gera svo margt sjálf, sem við
erum ekki vön að gera. Við höfum
lært margt af þvi að snúast i öllu
sjálf. Þetta er okkar hlutur og við
erum öll í sama pokanum.
Við ætlum að nota tækifærið
fyrst við erum búin að koma þess-
ari sýningu upp fyrir utanferðina
og frumsýna hana hérna heima
áður en við förum, í tengslum við
námskeið í kóreógrafíu, danssmíð,
sem er að hefjast í Reykjavík.
Frumsýningin verður 9. ágúst í
íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar
og svo verða e.t.v. nokkrar sýn-
ingar til viðbótar þangað til við
förum út. Þó að húsnæðið sé varla
hefðbundið balietthús þá verðum
við að nýta þá möguleika sem
fyrir hendi eru i stað þess að biða
alltaf eftir að fá það stærsta og
besta upp í hendurnar," sagði
Auður. „Þar með er nú samt ekki
sagt að við séum ekki stórhuga,"
bætti Halla við. Það tóku hinar
undir og við svo búið sveif þetta
óopinbera íslenska landslið í dansi
út úr dyrunum.
LTTIRIJ
HAMRABORG 3, SÍMI. 42011, KÓPAVOGI
Dominova húsgögn
Með ótal mögu-
leikum má byggja
upp að eigin vild
Smíöuð úr massívri furu
með hvítlökkuðum hlið-
um og baki. Þessi hús-
gögn eru jafnvönduð og
þau eru glæsileg. Verðið
ótrúlega hagstætt. Hér á
vel við að segja: „Lengi
býr að fyrstu gerð“.