Morgunblaðið - 07.08.1985, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1985
7
Amarflug:
11 þotur í leiguflugi
í Evrópu og Afríku
ARNARFLUG rekur nú 12 þotur af
gerðunum DC-8, Boeing 707 og
Boeing 737 og eru 11 þeirra á er-
lendum mörkuðum.
Fjórar DC-8-vélar eru á vegum
Arnarflugs i Alsír, ein í píla-
grímaflugi í Egyptalandi og tvær í
Saudi-Arabíu. Félagið hefur einn-
ig tekið að sér pílagrímaflug fyrir
Gabonbúa og Túnismenn og verða
notaðar til þess tvær DC-8-þotur
sem alls munu flytja um 70.000
pílagríma.
Arnarflug hefur á síðustu mán-
uðum stundað leiguflug fyrir aust-
urrískar og ítalskar ferðaskrif-
stofur til Havana á Kúbu og hefur
til þess verið notuð þota af gerð-
inni Boeing 737.
Vöruflutningaþota af gerðinni
Boeing 707 hefur verið notuð til
ýmissa verkefna á vegum félags-
ins í Evrópu og Afríku uppá síð-
kastið. Loks er ein þota notuð til
leiguflugs fyrir íslenskar ferða-
skrifstofur.
Að sögn Guðmundar Hauksson-
ar fjármálastjóra Arnarflugs
vinnur félagið að því að tryggja
sig enn frekar í sessi á erlendum
mörkuðum. Flestir samningar fé-
lagsins séu til skamms tíma, en
þar sem veður séu válynd í leigu-
fluginu borgi sig að reyna að
lengja hvert samningstímabil.
Guðmundur sagði ennfremur að
umsvif Arnarflugs væru orðin svo
mikil að það réði tæpast við meira,
en nú væri einmitt rétti tíminn til
þess að styrkja stöðu félagsins
þegar allt gengi svona vel. „Félag-
ið hefur mörg járn í eldinum og
stendur í samningaviðræðum við
ýmsa aðila í Evrópu og Afríku um
lengri tíma leigu á þotum. Það
skýrist væntanlega á næstu mán-
uðum hvernig þessar viðræður
fara, en við gerum okkur góðar
vonir því greinilegt er að íslend-
ingar hafa á sér gott orð í við-
skiptum erlendis, það hefur komið
fram í mikilli eftirspurn eftir
þjónustu Arnarflugs."
Heildartekjur Arnarflugs vegna
verkefna sem félagið hefur tekið
að sér í Norður-Afríku nema um
30 milljónum dollara eða á þrett-
ánda hundrað milljónum íslenskra
króna. Milli 230 og 250 manns
starfa hjá Arnarflugi við hin
ýmsu verkefni félagsins og eru 50
til 70 þeirra íslendingar. Auk þess
eru um 100 starfsmenn fastráðnir
hjá félaginu.
Níu sækja um stöðu
garðyrkjustjóra
Níu manns sóttu um embætti garðyrkjustjóra Reykjavikurborgar og voru
umsóknirnar teknar fyrir á síðasta borgarráðsfundi 2. ágúst sl. Verður
væntanlega ákveðið hver hlýtur stöðuna á næsta fundi borgarráðs, nk.
lostudag.
við störfum einhvern tímann fyrir
næstu áramót en Hafliði Jónsson,
sem gegnt hefur starfinu um ára-
bil, lætur ekki alveg af störfum
fyrir Reykjavíkurborg því hann
mun starfa áfram sem ráðgjafi
borgarinnar um ræktunarmál.
Þeir sem sóttu voru Auður
Sveinsdóttir, Birgir Þórðarson,
Einar K. Sæmundsen, Jóhann Di-
ego, Jóhann Pálsson, Jón Fanndal
Þórðarson, Kjartan Mogensen,
Pétur Jónsson og Reynir Helga-
son.
Nýr garðyrkjustjóri mun taka
BLÖNDUBRÚ MÁLUÐ
Brúin yfir Blöndu í Blöndudal var máluð í sumar. Friðþjófur Helgason
Ijósmyndari Morgunblaðsins átti leið þarna um þegar unnið var að
verkinu og tók þá þessa skemmtilegu mynd.
Kynnum hinn nýja
Honda Civic Shuttle —
Fjórhjóladrifna bílinn
Hinn rúmgóöi Civic Shuttle fæst nú fjórhjóladrifinn. Þaö er
margt sem kemur þér á óvart í þessum bíl. Auðveld skipting úr
framhjóla- í fjórhjóladrif. 6 gíra, með „Super-Low“ gír og margt
fleira.
Tæknilegar upplýsingar:
Hestöfl vélar: 85 Din/600 RPM
Tog KR. (Torque) 12.8 kg/m — 3500 RPM
Vél: 4 cyl OHC 12 ventla „Crossflow"
Lægsti punktur: 17.7 cm.
Verö
559.200
Gengi Yens 0.16826
* ao oo * ■,
' - r-, 00 CO V
Q* |4»»! -
j ! ."40 onoaoot wo"
SHUTTLE
M
i:
Á ÍSLANDI, VATNAGÖRÐUM 24. S: 38772 - 39460