Morgunblaðið - 07.08.1985, Síða 32
MÖK(Í:0>Í/bL'Aiiri)/ MÍÐVlku'UAÖUK 'I. ÁUÚWitwa •!
Seldu skrið-
drekann
fyrir vodka
Frankfurt, Vestur-þýskalandi, 6. ágúst. AP.
ÁHÖFN á sovéskum skriðdreka
sem villtist við heræfingar í
Tékkóslóvakíu seldi skriðdrek-
ann kráareiganda nokkrum fyrir
tvo kassa af vodka. Hermenn-
irnir fundust síðan úti í skógi
tveimur dögum síðar hvar þeir
voru að sofa úr sér vímuna.
Skriðdreki þeirra sást hvergi, en
yfirvöld komust á snoðir um það
að kráareigandinn hafi snarlega
látið taka skriðdrekann í sundur
og selt varahlutasala í grennd-
inni. Frá þessu segir í vestur-
þýska blaðinu Frankfurter All-
gemeine Zeitung um helgina.
Tékkneskur útflytjandi og
rithöfundur, Ota Filip, kom
fréttinni á framfæri og sagði
að þetta hefði gerst þegar
Varsjárbandalagsríki voru við
heræfingar í Tékkóslóvakíu í
fyrra. Hann sagðist hafa feng-
ið fregnirnar í bréfi frá vini
sínum fyrir örfáum vikum.
Samkvæmt frásögn blaðsins
sögðust hermennirnir ekki
vita hvað orðið hefði af
skriðdrekanum en síðar kom
hið rétta í ljós en þá var búið
að búta farartækið í sundur
eins og fyrr segir.
Veður
víða um heim
LfBgst Hssst
Akureyn 14 téttskýjað
Amsterdam 14 18 •kýjað
Aþena 21 36 haiðakfrt
Barcekma 27 Mttakýjað
Berlín 13 21 •kýjað
BrUsaet 8 18 •kýjaó
Chécago 19 28 •kýjað
Dublin 11 18 •kýjað
Fsmyjar 24 alakýjað
Frankfurt 13 25 •kýjað
Genf 13 28 rigning
Helsinki 16 alakýjað
Hong Kong 28 33 haiöakfrt
Jerúsalem 18 28 haiðakfrt
Kaupmannah. 12 17 •kýjað
Las Palmas 25 téttikýjað
Lissabon 19 24 haiðakfrt
London 11 19 •kýjað
Los Angeles 18 29 haiðakfrt
Lúxomborg 12 •kúr
Mnlagn 30 hafðakfrt
MaHorca 25 lóttakýjað
Miami 25 31 rfgning
Montreal 18 27 •kýjað
Moskva 16 23 •kýjað
Naw Vorfc 20 27 •kýjað
Osló 11 16 rigning
Parts 13 21 haiðskírt
Paking 21 30 •kýjað
Reykjavík 15 •kýjað
Ríó da Janeiro 14 32 haiðskírt
Rómaborg 24 32 skýjað
Stofckhólmur 11 20 •kýi»ð
Sydney 12 15 rigning
Tókýó 27 32 •kýjað
Vtnarborg 16 28 •kýjað
Pórahðfn 9 ■kýjað
Stríðsleikir
Börn í flóttomannabúðum Palestínumanna í Beirút að leik. Myndin er tekin í Sabra-búðunum, sem eru vart
annað en rústir. Börnin leika sér með byssur, sem eru algengar á þessum slóðum.
Sartzetakis neitar
að undirrita lofið
Aþenu, 6. ágúst. AP.
CHRISTOS Sartzetokis, forseti
Grikklands, neitoði um helgina að
undirrito skjöl þar sem lofsamlegum
orðum er farið um fyrrverandi sam-
storfsmann hans er hann lætur af
störfum. Undirritun af þessu togi er
formsatriði eða hefur verið það fram
að þessu. Sartzetokis og dómari sá,
Kostas, sem hlut á að máli munu oft
hafa deilt um lagaleg atriði.
Talsmaður Papandreu forsæt-
isráðherra sagði að málið væri
ekki til umræðu og fréttamenn
segja að reynt sé að leysa það bak
við tjöldin, en starfsmaður í for-
sætisráðuneytinu skýrði frétta-
mönnum frá því, gegn nafnleynd.
Sartzetakis er þekktur fyrir
nákvæmni sem sumir kalla smá-
smygli og kunnur að þrjósku.
Ýmsir spáðu því er hann varð for-
seti, að hann ætti eftir að verða
Papandreu forsætisráðherra
óþægur ljár í þúfu, einmitt varð-
andi málefni af þessum toga.
Fyrir hálfum mánuði vakti það
mikla reiði meðal fylgismanna
Nýdemókrataflokksins og fleiri,
þegar Sartzetakis neitaði að bjóða
Constantine Karamanlis, fyrrver-
andi forseta, til móttöku í tilefni
þess að 24. júlí voru liðin 11 ár frá
Stokkhólmi, S. ágúm. AP.
TVEIR menn frá Eistlandi hafa beð-
ið um pólitískt hæli í Svíþjóð, en
þangað komust þeir við illan leik um
helgina eftir að hafa ilúið frá Murm-
ansk. Tók flótti þeirra 17 daga, og
þurftu þeir að fara um óbyggðir í
norðurhluto Sovétríkjanna áður en
þeir náðu til Finnlands. Þaðan kom-
ust þeir síðan til Svíþjóðar.
Kom þetta fram í sænska dag-
því lýðræði var endurreist í
Grikklandi. Sartzetakis sagðist
hafa ákveðið að hundsa Kara-
manlis, þar sem hann hefði látið
það ógert að óska sér til hamingju
eftir forsetakjörið í vor.
blaðinu Svenska dagbladet í dag.
Starfsmaður hjá sænska innflytj-
endaeftirlitinu kvað enga ástæðu
til að rengja frásögnina.
Samkvæmt frétt blaðsins hófu
Eistlendingarnir flóttann 6. júlí
sl. með því að fara með lest frá
Leníngrad til Murmansk, en það-
an eru aðeins 200 kílómetrar til
Finnlands. Samt hefðu þeir stöð-
ugt þurft að víkja af leið til að
forðast landamærastöðvar eða
íbúasvæði og ganga gegnum skóga
og fenjasvæði. Eftir tólf daga voru
matarbirgðir þeirra á þrotum, og
lifðu þeir á birkilaufum og vatni
þangað til þeir komu til Finn-
lands.
Á sunnudag flúði svo annar
maður frá Lettlandi af sovéskum
togara til Kalmar í Svíþjóð með
því að synda til lands. Að hans
sögn náði félagi hans ekki að
synda í land. Hefði áhöfn togarans
sent út bát á eftir þeim þegar
flóttans varð vart og náð félaga
hans.
Sólböðunum lokið
hjá Ronald Reagan
WaKhington, 6. ágúnt AP.
RONALD REAGAN, Bandaríkjaforseti, skýrði frá því í gær, mánudag, aö í fyrri
viku hefði hann gengist undir aðgerð öðru sinni vegna krabbameins, að þessu
sinni í andliti. Var um að ræða húðkrabbamein sem sólarljósið getur valdið, og er
hvað auöveldast viðureignar þessara meina.
Reagan sagði að læknar teldu húðkrabbamein," sagði Reagan,
meinið úr sögunni en bætti því við að „vegna þess að ég hef alla tíð verið
þeir hefðu sagt honum að halda sig sólbrúnn og sællegur á skrokkinn.
framvegis í forsælunni. „Vissulega Það var þess vegna sem ég þurfti
var það nokkuö áfali fyrir mig að aldrei á neinum farða að halda þegar
komast að raun um að ég var með ég var í kvikmyndunum."
Tveir Eistlendingar
flýja til Svíþjóðar
Verðfall á
Grænlandsrækju
Crænlandi, 6. ágúsL Frú Nila Jorgen Bruun, frétUriUra Morgunblaðsins.
VERÐ A grænlenzkri rækju hefur
fallið mjög upp á síðkastíð og get-
ur það haft alvarleg áhrif á efna-
hag Grænlands sem byggir mikið
á rækjuveiðum. Árið 1983 var verð
á rækjukíló 73 danskar krónur en
hefur lækkað í 58 krónur. Ástæð-
an fyrir verðfallinu er meira
framboð á heimsmarkaði. Græn-
lendingar flytja árlega út fjögur
þúsund tonn af frystri rækju og
getur því verðfall þetta leitt til
þess að um 50 millj. danskra
króna minna en áður fáist fyrir
vöruna.
í stuttu máli
Vestur-Þýskaland:
6 Tékkar
biðja um
pólitískt hæli
Waidhaus, V-Þýskalandi, 5. ágúst AP.
SKÝRT var frá því í dag að sex
Tékkar hefðu beðið um pólitískt
hæli í Vestur-Þýskalandi í síð-
asto mánuði. Hefðu þeir allir
sagt skilið við hóp tékkneskra
ferðamanna, sem dvaldist í
Vestur-Þýskalandi.
Flugræningjar
yfirbugaðir
Nikósim, Kýpvr, 6. ágúst. AP.
ÍRANSKA fréttastofan IRNA
sagði að komið hefði verið í veg
fyrir flugrán í innanlandsflugi í
Iran. Vélin var á leið frá Teheran
til Bandar Abbas við Persaflóa
þegar tveir menn gerðu sig lík-
lega til að toka vélina. íranska
flugfélagið hefur haft sérstoka
öryggisgæslu í innanlandsflugi
frá því í fyrra, en þá var allmörg-
um vélura rænt og þess krafist að
þær lentu uton írans.
Níu pfla-
grímar létust
Yinadio, ÍUlíu, 6. ágúst AP.
NÍU manns létust og 32 slösuð-
ust þcgar farþegarúto með píla-
grímum fór út af hálum fjallvegi.
Skyggni var afleitt. Bíllinn þeytt-
ist niður eftir fjallshlíð áður en
hann stöðvaðist og björgunar-
sveitir áttu erfitt með að athafna
sig hinum slösuðu til hjálpar. Átj-
án hinna slösuðu voru alvarlega
meiddir.
Thailand:
10 fangar féllu f
fangelsis-
uppreisn
Bangkok, Thailandi, 6. ágúst AP.
TÍU fangar í Bang Kwang-fang-
elsi í grennd við Bangkok hafa
beðið bana í alvarlegustu fang-
elsisóeirðum í Thailandi svo ár-
um skiptir. Fangelsið á að vera
eitt hið traustasta þar í landi.
Óeirðirnar brutust út fyrir helg-
ina og segir lögreglan að þrjú
þúsund fangar hafi tekið þátt í
aðgerðunum, sem hafi augljós-
lega verið þrautskipulagðar.
Fangarnir kröfðust náðunar eða
að fangelsisdómar þeirra yrðu
styttir.
46 % Tókýó-
kvenna vilja út
á vinnumarkað
Tókýó, 6. ágúot AP.
FJÖRUTÍU og sex prósent jap-
anskra húsfreyja sem búa á
Tókýósvæðinu vilja vinna uton
heimilis og vonast til að fá um
það bil 122 þusund jen (jafnvirði
um 21 þús. kr.) á mánuði. Um
30% þeirra sögðust vilja vinna
uton heimilis til að víkka sjón-
deildarhring sinn, 30 prósent
sögðust hafa áhuga á útivinnu
vegna peninganna og aðeins 6,7
prósent sögðust hafa hug á að
leggja fram sinn skerf til þjóðfé-
lagsins.
Atvinnuleysi
eykst í Belgíu
Briissel, 6. ágúsL AP.
ATVINNULEYSI í Belgíu jókst í
júlímánuði í I3,2%atvinnubærra,
en var 12 prósent í júní. Samtols
voru 554.910 menn atvinnulausir
þann tíma. Júlí er fimmti mánuð-
urinn í röð sem atvinnuleysi vex í
Belgíu. Starfsmaöur atvinnu-
málaráðuneytisins í landinu
sagði að þessi mikla aukning
væri aðallega árstíðabundin
vegna sumarleyfa.