Morgunblaðið - 07.08.1985, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1985
Flugleiðir:
Samningar við bandarískt
fyrirtæki um hljóðdeyfí-
búnað bregðast
,JÍI, ÞAÐ er rétt, þad bendir allt til þess að bandaríska fyrirtækið sem við
sömdum við um smíði á hljóðdeyfum á DC-8-vélarnar ætli að bregðast,"
sagði Leifur Magnússon hjá Flugleiðum í samtali við Morgunblaðið.
Flugleiðum var veitt undan-
þága þegar flugmálayfirvöld í
New York settu reglur um há-
markshávaða flugvéla sem fá að
lenda á flugvelli borgarinnar.
Voru skilyrðin þau að Flugleiðir
yrðu búnar að setja hljóðdeyfa á
vélar félagsins sem fljúga til New
York seint á þessu ári í síðasta
lagi. Til stóð að ein þota félagsins
yrði komin með þennan búnað í
nóvember næstkomandi og aðrar
Mokveiði hjá yngstu
Ólafsvíkingunum
OUfsvík, 6. áfóst
HÉR hefur verið dýrðarveður undanfarna daga, sól og góður hiti og landið
skartar sínu fegursta. Frí hefur verið frá veiðum og vinnslu en nú eru bátar
að hugsa sér til hreyfings, þeir sem eiga fisk í sjó.
Fiskimenn af yngstu kynslóð-
inni veiða vel af bryggjum og
raunar hvar sem færi verður
bleytt. Vinsæll veiðistaður er við
brúna yfir Bæjargilið þar sem
lækurinn rennur í sjó innst í höfn-
inni. Á háflæði veiðist þarna sil-
ungur, ufsi og marhnútur. En í
síðasta stórstreymi bar þó nýrra
við.
Þarna undir brúnni veiddu þeir
hvern þyrsklinginn af öðrum svo
að segja í ferskvatninu. Þótti
fiskimönnunum ungu vel bera í
veiði, þar sem þorskur gaf sig til
við aðalgötu bæjarins.
Nú er bara að vita hvort að ekki
þarf að setja kvóta á kóðin.
Helgi.
Brotist inn í mannlaus hús:
Miklum verðmætum stolið
MIKLUM verðmætum var stolið úr
þremur íbúðum í Reykjavík um helg-
ina á meðan húsráðendur voru að
heiman.
Mestum verðmætum var stolið
úr ibúð við Sunnuveg. Þar var
stolið miklu safni af íslenskum
frimerkjum og skartgripum. Er
þýfið metið á hundruð þúsunda
króna. Töluvert var og rótað í
búðinni.
Úr íbúð við Háaleitisbraut var
stolið talsverðu af silfurmunum og
í fyrrinótt var brotist inn i íbúð
við Efstaland i Fossvogi og stolið
þaðan hljómtækjasamstæðu af
gerðinni Sony — sambyggðu út-
varpi, segulbandi, plötuspilara og
magnara — og myndbandstæki af
gerðinni Akai. Þar var mikið rótað
til við leit þjófanna að verðmæt-
um.
Málin eru i rannsókn hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins.
$m
1 léttum dut>
Smekklegar gjafir,
léttar og hentugar, —
og hitta í mark.
UIWKJ
Höföabakka*9 Reykjavfk
S. 685411
tvær snemma á næsta ári.
Að sögn Leifs hafa Flugleiðir
nú hafið viðræður við annað
fyrirtæki um smíði á þessum
hljóðdeyfibúnaði en ekki er víst
að það takist að ljúka því verki
fyrir tilsettan tíma. „Það hefur
enn ekki verið tekin nein ákvörð-
un um hvernig brugðist verði við
ef illa fer en þó tel ég að yfirvöld
New York-borgar myndu fram-
lengja leyfið. Um aukakostnað
sem af þessu hlýst er ekkert hægt
að segja ennþá,“ sagði Leifur að
lokum.
Morgunbl»6ift/Hjörtur Grítarsson
Blíðviðri kom í veg fyrir stórbruna
BLÍÐVIÐRIÐ í Reykjavík kom í veg fyrir mikinn eld í miðborginni laust
fyrir kl. 23 á fóstudagskvöldið. Þá kom upp eldur í sorpgeymslu viö
Miðbæjarmarkaðinn við Aðalstræti og varð talsvert bál um tíma.
Allt slökkvilið Reykjavíkur var
kallað út og gekk greiðlega að
slökkva eldinn en talsverðar
skemmdir urðu af hans völdum.
Rúður sprungu í gluggum nokk-
urra verslunarfyrirtækja f húsinu
og urðu þar skemmdir af eldi og
reyk.
Lögð var höfuðáhersla á að
verja timburhús i nágrenninu og
má telja víst að erfiðara hefði
verið að fást við eldinn ef rok
hefði verið i borginni. Eldsupp-
tökin eru óljós en helst er talið, að
kveikt hafi verið i ruslageymsl-
unni, sem er ólæstur timburskúr.
Glæðist aftur í
Laxá í I»ing.
Veiði glæddist aftur i Laxá i Aðal-
dal um helgina, eftir Jtví sem Völ-
undur Hermóðsson í Arnesi sagði í
samtali við Morgunblaðið i gær.
Veiðin í ánni hefur verið góð lengst
af í sumar, en fyrir rúmri viku eða
svo dofnaði verulega og skyndilega
yfir benni og laxinn gaf sig Iftt fyrr
en um helgina. Þá veiddist vel og nú
eru komnir 1.320 laxar á land úr
ánni og er Laxá sú áin sem flesta
laxana hefur gefið. Mikið er af laxi í
ánni og er hann að sögn farinn að
dreifa sér meira en áður og það er
farið að glæðast á stöðum sem hafa
verið daufir lengst af sumri. Meðai-
þunginn verður ekki með hæsta
móti að þessu sinni, smálaxar eru
margir í afianum, en stærstu laxarn-
ir sem fyrr 28 og 25,5 punda fiskar.
Mikið af smálaxi hefur verið að
ganga í ána alveg fram undir þenn-
an dag.
Víðar í Þing.
330 laxar hafa veiðst f Skjálf-
andafljóti og þykir mönnum á
þeim slóðum það vera firnagóður
afli og miklu betra en í fyrra, sem
þó má ekki miða of mikið við.
Næst á eftir Skjálfandafljóti er
Reykjadalsá, en hún hefur gefið
150 laxa og veiði hefur verið að
glæðast nokkuð. 110 laxar hafa
komið í land úr Mýrakvfsl, en að-
eins 60 í Fnjóská. Er það afburða-
lélegt í þeirri síðastnefndu, en þó
hefur aðeins verið að lifna yfir
henni að undanförnu. Dágóð
bleikjuveiði hefur bætt laxleysið
örlftið upp, um 300 vænar bleikjur
hafa verið dregnar á þurrt. Það á
við þessar ár eins og Laxá, að
smálax hefur verið að ganga fram
á þennan dag.
Enn gott í Langá
Enn er veiði góð í Langá á Mýr-
um, þó stórlega hafi dregið úi
göngum í ána, en feiknamagn
gekk af fiski í hana í júlí og i
fyrradag voru komnir um 1.060
laxar á land úr ánni allri. Enn er
dagsaflinn á neðsta svæðinu
15—20 laxar á 5 stangir og er það
afburðagott miðað við hin erfiðu
skilyrði sem verið hafa f nær allt
sumar.
Um 760 laxar hafa veiðst á
neðsta svæðinu, 260 á miðsvæð-
inu, en aðeins 40—50 á efsta
svæðinu, en laxinn hefur ein-
hverra hluta vegna verið tregur
til að ganga fram ána og er talið
að það þurfi ærlega rigningu til
að hann geri það. Sé miðað við að
það rigni fyrr eða sfðar má þvf
enn búast við umtalsverðri veiði í
Langá er laxinn dreifir sér á end-
anum, þvf mikið er af laxi á neðri
svæðum árinnar.
Gott í Gljúfurá
Vel hefur veiðst í Gljúfurá,
einkum ef vatnsleysið er tekið
með í dæmið, eru komnir um 120
laxar á land og er það meira en
allt síðasta sumar, en heildarafl-
inn þá nam aðeins 110 löxum.
Þrátt fyrir að afar lftið vatn hafi
verið i ánni vikum saman hefur
talsvert gengið af fiski og er hann
dreifður. Meira er af laxi f ós ár-
innar og í Straumunum og er talið
að eitthvað af þeim fiski muni
ganga upp ána ef það rignir að
ráði.
Smálaxarnir eru
að koma...
Veiði hefur glæðst f Miðfjarð-
ará, fyrsta daginn, 4. ágúst, sem
íslenskir veiðimenn bleittu þar
færi eftir útlendingatörnina
fengu þeir 86 laxa. Hefur annað
eins vart veiðst þar á einum degi
árum saman. Mest er þetta smá-
lax og mikið af honum ber sjólús
sem staðfestir að um nýrunninn
lax er að ræða. Verði framhald á
þessum göngum þykir sýnt að
spár fiskifræðinga hafa staðist i
Miðfirði hvað svo sem fréttist frá
öðrum verstöðvum. Sá litli hefur
komið seint, en komið samt.
Talsvert hefur veiðst af merktum
laxi sem sleppt var f sjóinn f
fyrra.
Um 400 laxar eru komnir á
land, útlendingarnir sem voru við
veiðar voru eftir atvikum ánægðir
með sitt, sérstaklega er á leið, þvf
stigandi var i veiðinni hjá þeim.
FiwnköUum
Htmyn
nrnútum