Morgunblaðið - 07.08.1985, Page 39
MORGUNBLADIÐ, MIDVIKUDAGUR 7. ÁGOST 1985
39
Lengsta og sterk-
asta skákmót sem
ég hef tekið þátt í
— segir Margeir
Pétursson um milli-
svæöamótið í Biel
,,1‘ETTA mót er þaó lengsta og
sterkasta sem ég hef tekið þátt í.
Ég sat í 120 klukkustundir við
skákborðið á meðan á mótinu
stóð og þó ég hafi orðið fyrir von-
brigðum, dregur þetta ekkert úr
manni. Ég var að vonast til að
vinna a.m.k. jafnmargar skákir
og ég tapaði,“ sagði Margeir Pét-
ursson í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins, en hann er ný-
kominn heim frá millisvæðamóti
í skák, sem haldið var í Biel í
Sviss 1.—27. júlí.
Margeir lenti í 14. sæti af 18.
Hann tefldi 17 skákir, vann
tvær, gerði tíu jafntefli og tap-
aði fimm. Biðskákir voru 22.
„Erfiðasta skákin min var við
Ljuboyevic frá Júgóslavíu. Þá
þurfti ég að tefla samfleytt í
sex tíma.
Ég byrjaði mótið þokkalega,
en var alls ekki í formi. Ég varð
að leggjast í vörn í flestum
skákunum framan af, svo að
skákirnar urðu langar þæfi-
skákir.
Ég fann að ég var alis ekki
nógu vel smurður þegar til átti
að taka. Ég tók alltof langan
tíma og tefldi frekar óákveðið. í
lokaskákunum vissi ég að ég
kæmist ekkert áfram svo ég
varð ekki eins stressaður and-
stæðingar mínir, sem voru að
keppast um fyrstu sætin. Litlu
munaði að ég ynni tvo þeirra,
Margeir Pétursson
stöðurnar voru það upplagðar,
en það vantaði herslumuninn.
Þær skákir enduðu með jafn-
tefli."
Margeir sagði að viðbrigðin
frá því að koma inn í svona
sterkt mót miðað við þau mót
sem hann venjulega tæki þátt í
hefðu verið miklu meiri en
hann bjóst við. „Ég held að það
sé nauðsynlegt fyrir mann að
tefla meira við þessa sterku
skákmenn heldur en að sitja
alltaf í sama farinu og tefla
alltaf við þessa sömu menn í
nágrannalöndunum. íslend-
ingar verða að bjóða þessum
mönnum hingað til lands til að
gefa íslenskum skákmönnum
færi á að reyna sig við þá,“
sagði Margeir.
Mikil og góð þátttaka er í öllum söng á mótinu.
Neskirkja:
Nærri 300 þátttakendur
á kristilegu stúdentamóti
NÁLEGA þrjú hundruð manns frá
öllum Norðurlöndunum nema
Grænlandi eru um þessar mundir
þátttakendur í norrænu kristilegu
stúdentamóti í Reykjavík. Hófst
mótið síðdegis á mánudag og lýkur
því næstkomandi sunnudg.
Mót þessi eru haldin til skiptis
á Norðurlöndunum á hverju ári
og skipulögð af kristilegu stúd-
entahreyfingunum í hverju
landi. Kristur og vandi okkar er
yfirskrift mótsins sem fer fram f
Neskirkju og er fjallað um efnið
í fyrirlestrum, umræðuhópum,
biblfulestrum og á kvöldsam-
komum. í kvöld, miðvikudag, tal-
ar Jens Ole Christensen frá
Danmörku á samkomu er hefst
kl. 20.30 en kvöldsamkomurnar
eru opnar öllum almenningi. Á
morgun fara þátttakendur í
dagsferð austur í sveitir
Ljóam. G.H.I.
Norræna stúdentamótið fer fram f Neskirkju og hér bíða þátttakendur
þess að samkoma hefjist.
#«i
Bannila
stallaó pakstál
frá Finnlandi
Margar plötulengdir Jyrirliggjandi á
lager.
Hægt er að sérpanta þá lengd sem
þér hentar.
EJnisþykkt: 0,5 mm.
Lökkun: Plastisol 200 MY
Lager litir: Brúnt og svart. 1+86 kr. m'
Allir Jylgihlutir Jyrirliggjandi.
PflRÐUS
Smiðjuvegi 28, Kóp. S: 79011